Morgunblaðið - 27.11.1980, Page 30

Morgunblaðið - 27.11.1980, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980 Minning: Eiríkur Sigurðs- son rithöfundur Fæddur 16. október 1903. Dáinn 17. nóvember 1980. Þegar ég lít yfir vináttusam- band okkar Eiríks Sigurðssonar síðastliðin tuttugu ár ber þar engan skugga á. Hann var einstakur maður. Eiríkur var borinn í þennan heim á morgni aldar okkar og á þeim morgni virðast fleiri þrosk- aðar sálir hafa íklæðst holdi norður hér en á velflestum öldum öðrum. Ég þykist vita að margir muni verða til að rita um starfsferil Eiríks, viðvíkjandi skóla- og fé- lagsmálum. Mig langar til að vekja athygli á ritstörfum hans og því hve maðurinn var óvenju vel af guði gerður. Starfsþrek hans var með ein- dæmum og starfsgleðin var undir- rót þess. Mér sýnist að hann muni hafa látið frá sér fara nær 40 bækur: skáldsögur (barnabækur), fræði- og minningarit og þýð- ingar. Auk þess vann hann að útgáfu margs konar rita og rit- stýrði barnablaðinu „Vorið" ára- tugum saman, ásamt Hannesi J. Magnússyni. Þar skrifaði hann jafnan mikið sjálfur. Áhugi Eiríks á bókmenntum var sívakandi og gleðin rík yfir því sem vel tókst hjá hverjum þeim sem í hlut átti. Hann lét sér engin menningarmál óviðkomandi og lagði víða hönd á plóginn þeim til framdráttar. Eiríkur unni æskustöðvum sín- um heitt og vann austfirskum málefnum ómetanlegt gagn með penna sínum hin síðari ár. Og ekki skal gleymt atfygli hans við gerð kvikmyndarinnar um Austurland. Æviminningaþættir Eiríks munu koma út nú fyrir jólin þar sem bernskustöðvunum er ennþá sungið lof. Hann átti sem drengur heima á Dísastöðum í Breiðdal. Sá bær, þau ár voru dýrust minn- ingagull hans og þær dísir, sem bærinn var við kenndur, virðast hafa verið drengnum hliðhollar og sæmt hann dýrum gjöfum mann- kosta og gæfuláni. Það verður seint fullþakkað að eignast vináttu jafn andlega heil- brigðs manns og Eiríks Sigurðs- sonar. Þar fannst ekkert lítið og lágt. Síglaður og uppörvandi, rétt- dæminn og öfundarlaus gekk hann meðal samferðarmanna. Handtak hans var fast og hlýtt eins og skapgerðin. Trúin gaf huga hans fagnandi flug en batt hann ei á kenningaklafa. Eiríkur á sér heimvon góða. Ég og fjölskylda min þökkum honum samfylgdina af heilum hug og sendum hinni góðu eiginkonu hans, Jónínu Steinþórsdóttur, og börnunum hlýjar samúðarkveðjur. Kristján frá Djúpalæk Einn af burðarásum íslenskrar bindindishreyfingar er fallinn. Eiríkur Sigurðsson, fyrrverandi skólastjóri og rithöfundur, var jarðsunginn sl. mánudag. Eiríku'r var austfirskur að ætt, fæddur í Hamraseli í Geithellna- hreppi 16. október 1903. Hann fór ungur í Eiðaskóla og segir um þá dvöl í nýútgefinni ævisögu: „Ég held að enginn tími í ævi minni hafi verið eins markverður og áhrifamikill fyrir mig og síðari vetur minn í Eiðaskóla." Það voru Blöndalshjónin, Sigrún og Bene- dikt, sem mest áhrif höfðu á hann. Síðan lá leið Eiríks til Askor og í Kennaraháskólann í Kaupmanna- höfn. Kennaraprófi lauk hann frá Kennaraskólanum í Reykjavík. Að námi loknu var Eiríkur fyrst við kennslu á Austfjörðum en 1933 fluttist hann til Ákureyrar. Þar kenndi hann við Barnaskóla Akur- eyrar uns hann gerðist fyrsti skólastjóri Oddeyrarskólans. Eiríkur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Signý Jónsdóttir. Þau slitu samvistum. Síðari kona hans er Jónína Steinþórsdóttir. Ég á Eiríki margt að þakka og þeim hjónum báðum. Hann var umburðarlyndur og góðviljaður. Barnastarf góðtemplara var hon- um mjög hjartfólgið og það var einmitt á þeim vettvangi sem leiðir okkar lágu saman. Eiríkur var snjall rithöfundur sem leitaði kjarna án orðskrúðs. Eftir hann liggja fjölmargar barnabækur, ævisögur og þýðingar. I haust hitti ég þau hjón, Eirík og Jónínu, hress og kát. Eiríkur var þá önnum kafinn við skriftir. En „skjótt hefur sól brugðið sumri". Við bindindismenn þökk- um Eiríki samfylgdina og vottum aðstandendum hans, eiginkonu og börnum, samúð. Far vel, vinur og bróðir. Hilmar Jónsson Þegar ég man Eirík Sigurðsson fyrst var hann ritstjóri Vorsins. Þegar hann lést var hann einn þriggja ritnefndarmanna Vor- blómsins, ársrits Unglingaregl- unnar. — Það er í raun táknrænt. Eiríkur var vorsins maður, unn- andi fagurs mannlífs og gróandi. Hann var kennari og uppeldis- frömuður af hugsjón. Hann var rithöfundur sem tók mið af því sem til heilla horfði og mannbóta. Hann var góður maður. Snemma mun Eiríki hafa orðið Ijóst að ekkert spillir jafnmörgu mannsefninu sem vímuefni ýmis, einkum áfengi. Fyrir lítið kemur góð menntun ef menn gerast galeiðuþrælar fíkniefnis sem brýt- ur niður persónuleika þeirra og skaphöfn. — Því tók hann snemma á kennaraferli sínum að fræða og leiðbeina í þeirri grein sem séra Magnús í Laufási gaf nafnið bindindisfræði. Hann gerð- ist einn forystumanna Unglinga- reglunnar en hún er elsti æsku- lýðsféiagsskapur íslenskur, nær aldar gamall. Og svo undarlegt sem það kann að virðast beitti hún frá upphafi þeim kennsluháttum sem nú hin síðustu missiri þykja vænlegastir til árangurs ef temja skal unglingum að lifa lífinu lifandi — án stundarblekkinga og gervigleði. — Síðar gerðist Eirík- ur Sigurðsson einn stofnenda í LOK októher sl. sendu Orkustofn- un og Rannsóknastofnun bygg- ingariðnaðarins frá sér greinar- gerð um „Orkusparandi endurbæt- ur á oliu- og rafhituðu húsnæði“. Hér er um að ræða fyrstu niður- stöður úr könnun á einangrun og orkunotkun ibúðarhúsa hér á landi. Tilgangur greinargerðar- innar er að meta hagkvæmni þrenns konar aðgerða til orku- sparnaðar, þ.e.a.s. einangrunar á þaki, tvöföldun glers og uppsetn- ingu hraðgengra oliuhrennara i stað hæggengra. Niðurstöður arðsemisreikninga eru m.a. Bindindisfélags íslenskra kennara sem hefur um aldarfjórðungsskeið unnið mikið starf og gagnmerkt á sviði bindindisfræðslu, gefið út fjölda bóka og bæklinga og átt hlut að stefnumótun, víðsýnni og nútímalegri, í þeim málum. — Þeir munu ófáir sem Unglinga- reglan og Bindindisfélag íslenskra kennara hafa veitt það veganesti sem að haldi kom í hreggviðrum svipuls lífs. Eiríkur Sigurðsson var mikill skólamaður, ágætur rithöfundur og þýðandi prýðilegra skáldverka, svo sem Sandhóla-Péturs. Hann var margfróður og minnugur og skemmtilegur á mannafundum. — Kona hans, frú Jónína Stein- þórsdóttir, er um margt lík hon- um, ritfær vel og skörp. Það var mannfagnaður að þeim hjónum hvar sem þau fóru. Samúðarkveðj- ur flytja vinir þeirra henni og ástvinum hans öðrum. — Þegar Eiríkur Sigurðsson fellir hurð af stöfum að baki sér er að honum mikill sjónarsviptir. Bindindismenn sjá á bak einum traustasta, heilsteyptasta og dug- mesta foringja sínum, kennarar og aðrir uppalendur kveðja önd- vegismann sem vildi vel og vann flestum betra dagsverk. Mér koma í hug hendingar Fornólfs og beini spurn til ungra kennara: „Viltu taka upp verkin hans og verða þar að manni?" ólafur Ilaukur Árnason. 1. Kostnaður við að endurbæta ein- angrun þaka í húsum sem nú eru hituð með olíu er 4,3 milljarðar kr. Olíusparnaður á ári vegna aðgerðanna er áætlaður um 6 millj. lítra eða um 1,2 milljarðar kr. 2. Kostnaður við að setja tvöfalt gler í stað einfalds í húsum sem nú eru hituð með olíu er 1,7—2,4 milljarðar kr. Olíusparnaður á ári vegna aðgerðanna er áætlað- ur 2,0 milljónir lítra eða um 0,4 milljarðar kr. 3. Ætla má að á landinu öllu séu um 6000 hæggengir olíubrennarar í notkun. Endurgreiðslutími fyrir kaup og uppsetningu á hraðgeng- um brennara er 1—1 '/2 ár. Miðað er við að öll kynditæki sem verða í notkun við árslok 1983 verði búin hraðgengum brennara, þarf því að skipta um brennara í um 2500 kynditækjum. Heildarkostn- aður er áætlaður 0,4—0,6 millj- arðar kr. Heildarsparnaður á ári er um 2,0 milljónir lítra af olíu, eða um 0,4 milljarðar kr. 4. Heildarkostnaður við að auka einangrun í þökum, ísetningu tvöfalds glers í stað einfalds og skipti á hraðgengum brennurum í stað hæggengra er 6,4—7,3 milljarðar kr. Aðgerðirnar spara um 10 milljónir lítra af olíu á ári eða um 15% af olíunotkun við húshitun og mundu spara húseig- endum um 2,0 milljarða kr. á ári. 5. Heildarkostnaður við að auka einangrun í þökum og isetningu tvöfalds glers í stað einfalds í húsum sem eru rafhituð er 3,7— 4,3 milljarðar kr. Orkusparnaður á ári er um 35 Gwh, sem kosta húseigendur um 0,7 milljarða kr. í greinargerðinni er einungis fjallað um þrjár aðferðir til að spara orku við húshitun. Ýmsar fleiri koma til greina. Má þar nefna einangrun gólfa og veggja að illa hituðu rými, hitastýrikerfi o.fl. Rík áhersla er lögð á það í greinargerð- inni að til þess að umræddar orku sparandi aðgerðir verði að veruleika er nauösynlegt að húseig- endum verði veitt tækniaðstoð og leiðbeiningar um hagkvæmar endurbætur. Það er mat Orkusparnaðarnefnd- ar að arðsemi þeirra fjárfestinga sem fjallað er um í greinargerðinni sé mjög mikil samanborið við aðrar fjárfestingar sem nú eru til umræðu og því er mikilvægt að Húsnæðis- málastofnun verði tryggt nægjan- legt fjármagn á næsta ári vegna lánveitinga til orkusparandi endur- Fréttatilkynninie. Eiginkona mín og móðir okkar, LAUFEY JONSDOTTIR, Stangarholti 12, Reykjavík, lést aöfaranótt miðvikudagsins 26. nóvember. Jörgen Þorbergsson og börn. + Utför bróður okkar, EYJÓLFS LEÓS frá Isafiröi, sem andaöist 18. nóvember sl., fer fram frá ísafjaröarkirkju föstudaginn 28. nóv. kl. 2. Þórhallur Leós, Ágúst Leós, Kristjón Leós, Margrét Leós. + Ástkær eiginkona mín, BIRNA BJÖRNSDÓTTIR LÖVDAL, Heiðargeröi 88, lést 25. nóvember. Ingi Lövdal. + Maöurinn minn, sonur okkar, faöir. tengdafaöir og afi, HOLGER P. CLAUSEN, kaupmaóur, Laugavegi 11, Reykjavík, veröur jarösunglnn frá Dómkirkjunni næstkomandi föstudag 28. nóvember kl. 3. Sólveig Clausen, Lára Siggeirs, Herlut Clausen, Lára Clausen, Arni Kristjánsson, Herluf Clausen jr„ Elín Gunnarsdóttir, Guórún Clausen, Jón Rafns Antonsson, barnabörn. + Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö fráfall og jaröarför KALMANNS SIGURÐSSONAR frá Stað í Höfnum. Ingunn Guömonsdóttir, Guörún Kalmannsdóttir, Sigríöur Kalmannsdóttir, Olafur Kalmann Hafsteinsson. + Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, GUNNAR SIGURJÓNSSON, guöfrssöingur, sem andaöist aö heimili sínu, Þórsgötu 4, aöfaranótt 19. | nóvember, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 28. nóvember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuö, en þeim, sem vildu i minnast hans, er bent á kristniboö Sambands íslenskra i kristniboösfélaga. Aöalskrifstofunni, Amtmannsstíg 2b. Vilborg Jóhannesdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Útför mannsins míns, sonar, fööur okkar, tengdafööur og afa, LARUSAR GUÐBJARTSSONAR Álftamýri 18, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuö, en þeim, sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd eöa Krabbameinsfélaglö. Kristín Sigfúsdóttir, móöir hins látna, börn, tengdabörn og barnabörn. + Innilegasta þakklæti flytjum viö öllum þeim sem sýnt hafa okkur hlýhug og virðingu í sambandí viö andlát EIRÍKS SIGURDSSONAR, fyrrverandi skólastjóra. Guö blessi ykkur öll. Jónína Steinþórsdóttir, Hákon Eiríksson, Marta Jóhannsdóttir, Þóra G. Ásgeirsdóttir, Herman Huijbens, og bern>börn Orkusparnaðarnefnd: Tvöfalt gler sparar 400 milljónir á ári

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.