Morgunblaðið - 27.11.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980 3 1
Halvard K. Iversen:
„Moonistarnir44
hin hliðin á málinu
Ég sit hér sem leiðtogi Samtaka
Heimsfriðar og Sameiningar hér á
íslandi. Ég sá sjónvarpsmyndina
og hef hér fyrir framan mig á
borðinu þær greinar sem blöðin
hafa birt um okkur í framhaldi af
henni. Ég geri mér grein fyrir því
að það er nokkur munur á kenn-
ingum okkar og þjóðkirkjunnar,
en er það ástæða til ómaklegra
árása á saklaust fólk?
Slíkur áróður í fjölmiðlum,
blöðum og sjónvarpi, miðar aug-
ljóslega að því að gera heiðarlegt
fólk tortryggilegt í augum al-
mennings. I slíkum áróðri er ekki
hugsað um það hvað sé sannleikur
eða lygi. Mér virðist að ósannindin
séu látin ráða í árásum á okkur.
Við erum ekki dýrlingar, við erum
venjulegt fólk sem vill berjast
fyrir háleitri hugsjón. Við álítum
okkur ekki fullkomin og erum þar
af leiðandi ekki yfir gagnrýni
hafin. Hafi okkur orðið á einhver
„BÓNDI er bústólpi“ nefnist ný
bók eftir Guðmund Jónsson, þar
sem sagt er frá nokkrum góð-
bændum.
„Þeir tólf góðbændur, sem hér
er getið, voru allir uppi um það
leyti er byltingin hófst í íslenskum
landbúnaði," segir á kápusíðu.
„Þjóðin var að vakna úr aldar-
löngum svefni og kyrrstöðu.
Bændur létu ekki sitt eftir liggja
og brautryðjendur á því sviði
verða ekki ofmetnir. An bjart-
sýnna dugnaðarmanna má ætla að
nú væri ekki landbúnaður á ís-
landi. — Til eru menn, sem virðast
telja að þá væri vel, en hver getur
í rauninni hugsað sér ísland án
sveita og búskapar. Við hlið sjáv-
mistök, þá erum við fús til að gera
yfirbót. En við stöndum fast á
trúarsannfæringu okkar.
Ákærur um heilaþvott eru ekki
nýjar af nálinni. Heilaþvottur er
ennþá notaður til þess að sverta
starfsemi okkar í augum almenn-
ings. Þetta eru ósannindi, sem
jafnvel fulltrúar kristinnar kirkju
taka trúanleg. Ósannindi þessi
hafa hvað eftir annað verið kveðin
niður, jafnvel fyrir rétti og af
sérstökum stofnunum svo sem
CIA og FBI.
Starfsemi okkar á sér stað í
öllum meginlöndum heims. Sam-
tök okkar reka spítala á ýmsum
stöðum í Asíu og þar er veitt
fullkomin læknisþjónusta af al-
mennum læknum og sérfræðing-
um. Og þessi starfsemi á sér
einnig stað á svonefndum van-
þróuðum svæðum. Einnig má geta
þess að árið 1976 var hrundið af
stað alþjóðlegri hjálparstofnun til
arútvegs er það þjóðarsálin og án
þeirra þátta athafnalífs á voru
landi væri ekkert ísland. — Þessi
bók er viðleitni til að halda á lofti
minningu framfaramanna í bú-
skap og félagsmálum og hljóti hún
viðtökur að vonum er ætlunin að
fleiri slíkar verði saman teknar."
Þeir, sem um er rætt í bókinni,
eru: Dagur Brynjúlfsson í Gaul-
verjabæ, Davíð á Arnbjargarlæk,
Gestur á Hæli, Guðjón á Ljúfu-
stöðum, Jónatan á Holtastöðum,
Kristinn á Skarði, Ólafur í Hval-
látrum, Ólafur í Brautarholti, Páll
í Þúfum, Jón J. Skúlason, Sig-
mundur á Hamraendum og Þor-
steinn á Húsafelli.
Ægisútgáfan gefur bókina út.
dreifingar á matvælum, klæðnaði
og lyfjum víða um heim. Auk
þessa hefur hreyfingin unnið að
því í Californiu og víðar, að veita
efnalitiu fólki, utan hreyfingar-
innar, nægjanlega verkmenntun.
Við leitumst við að gera gagn á
öllum sviðum og að vinna að
sameiningu milli allra manna og
stétta þjóðfélagsins.
Því er haldið fram að menn
verði að hætta námi vilji þeir taka
þátt í hreyfingu okkar. Staðhæf-
ing þessi er með öllu ósönn.
Margir meðlimanna eru hvattir til
að halda áfram námi sínu, og
margir taka upp þráðinn þar sem
frá var horfið eftir nokkurt hlé,
því að með því móti verða þeir
sjálfum sér og öðrum að meira
gagni. Þess vegna leggjum við
þunga áherslu á það að menn efli
anda sinn í lærdómi og komi þeim
að gagni sem þess þurfa.
Að því er snertir vísindalegar
ráðstefnur, sem haldnar hafa ver-
ið á vegum okkar hreyfingar, þá
hafa þeir vísindamenn, sem mætt
hafa á slíkum ráðstefnum, verið
algerlega sjálfráðir í sínum skoð-
unum og aldrei verið þvingaðir til
þess að halda einhverju fram, sem
þeir væru ekki sannfærðir um
sjálfir.
Meðal þeirra ákæra sem á okkur
eru bornar, eru að þeir sem vilji
ganga í samstarf við okkur verði
að láta af hendi eignir sínar. Þessi
fullyrðing er alger ósannindi og á
sér enga stoð í staðreyndum. Því
er einnig haldið fram að foringi
okkar, sr. Moon, vilji gera okkur
að hugsunarlausum mannskepn-
um, sem láti stjórnast af hans
vilja einum. Slíkar fullyrðingar
eru naumast svaraverðar.
Vil viljum ekki eiga í stríði. Við
viljum eiga samvinnu við alla
menn hvar sem þeir kunna að
standa í trúarlegum málefnum,
því að okkar viðleitni á að miðast
við það að láta gott af okkur leiða
eftir því sem við höfum tök á.
Því hefur verið haldið fram að
fyrrverandi meðlimir okkar er-
lendis hafi fullyrt að þeir hafi
borið við allskyns lygum til þess
að fá peninga fyrir söfnuðinn.
Óheiðarlega menn má finna í
öllum söfnuðum og slík aðferð í
fjársöfnun til styrktar okkar mál-
efni er ekki gerð að fyrirmælum
samtakanna. Slíkt er í algerri
andstöðu við trúarviðhorf okkar.
Samtök okkar hér á landi eru ekki
leynileg og ekkert okkar er hrætt
við að viðurkenna að hann/hún sé
meðlimur í okkar söfnuði.
Því er ekki að neita að við
höfum orðið fyrir aðkasti á ýmsan
máta í starfi okkar. En það
breytir ekki því viðhorfi trúar og
trausts sem við höfum öðlast. Við
leitumst ætíð við að lifa í anda
kristinnar trúar og láta trú okkar
koma fram í verkum. Við viljum
hjálpa þeim sem hjálpar eru þurfi
og gerum það í anda kærleiks.
Virðingarfyllst,
Halvard K. Iversen.
Víða liggja
leiðir
Þriðja bók Guðbjarg-
ar Hermannsdóttur
„VÍÐA liggja leiðir" nefnist bók
eftir Guðbjörgu Hermannsdóttur
sem Skjaldborg hf. á Akureyri
gefur út. Á bókarkápu segir að
bókin sé „saga um ógnþrungin
örlög og ólgandi ástir“.
Guðbjörg Hermannsdóttir hef-
ur áður sent frá sér tvær bækur.
Ný lögreglusaga
Sjöwall og Wahlöö
PÓLÍS, PÓLÍS ... er ný bók í
sagnaflokkinum Skáldsaga um
glæp sem Mál og menning gefur
út. Höfundar sagnanna eru
sænsku rithöfundarnir Maj
Sjöwall og Per Wahlöö, og hafa
bækur þeirra verið gefnar út á
fjölmörgum þjóðtungum. Þetta
er flokkur tíu lögreglusagna sem
eru sjálfstæðar hver um sig, en
aðalpersónur eru þær sömu,
Martin Beck og starfsbræður
hans í rannsóknarlögreglu
Stokkhól msborgar.
Pólís, Pólís ... er sjötta bókin í
þessum flokki, en áður hafa
komið út bækurnar: Morðið á
ferjunni, Maðurinn sem hvarf,
Maðurinn á svölunum, Löggan
sem hló og Brunabillinn sem
týndist sem kom út fyrr á árinu.
Þýðandi Pólís, Pólís... er
Ólafur Jónsson. Bókin er 222 bls.,
gefin út bæði innbundin og í
kilju. Setningu og prentun ann-
aðist Prentrún hf., en Bókfell hf.
sá um bókband. Kápumynd er
gerð af Hilmari Þ. Helgasyni.
(Cr fréttatilkynniniíu)
„Bóndi er bústólpi44
ný bók eftir Guðmund Jónsson
Alpa kemur mjúkt
inn úr kuldanum
Veistu aö
Alpa kemur mjúkt inn úr kuldanum? Þess
vegna er auövelt að smyrja því á brauðið,
beint úr ísskápnum.
Veistu aö
Alpa er einstaklega gott til að
steikja og baka úr? Viö steikingu
og bakstur kemur hið Ijúffenga
Alpabragð vel fram, og gerir
matinn sérlega bragðgóðan og
girnilegan.
Veistu aö
á botni hverrar Alpa-
öskju er uppskrift? Þú
getur safnað uppskriftum
af gómsætum réttum og
kökum. Með hverri öskju
færð þú nýja uppskrift.
Veistu aö
litarefnið í Alpa er B-karotin?
Það er unnið úr gulrótum og þrungið A-vítamíni.
Að auki er svo D-3 vítamíni, bætt í Alpa.
Nú veistu
að allt þetta og meira til, gerir Alpa
ómissandi á brauðið, í baksturinn, á
pönnuna.
Bsmjörlíki hf.