Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 12
76 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 Nýtt Nýtt ítölsku angorapeysurnar eru komnar. Margir litir. Glugginn, Laugavegi 49. HeildsölubirgAir: Egill Guttormsson hf. SIS, Búsáhaldadeild, Andvari hf. Sundaborg 16, Skipholt hf. Skipholti 1, Penninn, Hallarmúla Skíðagallar Dömu St: 36—44 Verð 36.900.- Barnast: 98—182 Verð frá 27.900.- Herrast: 48—54 Verö 36.900.- Litir: Rautt, blátt, svart. Póstsími 30980 HAGEAUP Hornhúsið á miðri myndinni á torginu í gamla bænum i Paimpol er frægt fyrir það, að þar bjó rithöfundurinn frani Pierre Loti er hann skrifaði sögu sína Pecheurs d'Islande um fiskimennina á íslandsmiðum. o« þar lætur hann söguhetjuna Gawd húa. með skaftpottum. Presturinn, sem kunni þjóðsönginn okkar, lét okkur kyrja La Marseillais alla næstu nótt til að halda á okkur hita. Þá kom Eyjólfur með hesta. Við urð- um svo veðurtepptir í nokkra daga í Öræfasveitinni og á meðan var safnað 70 hestum. Svo riðum við til Reykjavíkur, sem hefur tekið 3 vikur. Mikið var ég aumur í botninum. — Alls staðar var okkur tekið af einstakri gestrisni og hlýju, heldur Yves áfram frásögninni. Nóttina, sem okkur var bjargað, fæddist Guðrún, dóttir prestsins í Sand- felli. Mademoiselle, skilaðu góðri kveðju til hennar, ég hitti hana í fyrra á íslandi. Þegar við komum á Dyrhóiabæina, að ég held, var okkur skipt niður. Kona og dóttir hennar tóku mig við hönd sér og fóru með mig heim. Strákarnir stríddu mér, hrópuðu á eftir okkur: Varaðu þig á svona ungri, fallegri stúlku! Eg var svo feiminn. En þær háttuðu mig ofan í rúm og þarna svaf ég í fyrsta sinn á ævinni einn í herbergi. Mér var færð kaka og svo það sem meira var, bolli af heitu súkkulaði. Hugsaðu þér bara, Frakkar áttu að nýlendu Kamerún, land súkkulaðsins, þar sem afi minn hafði dáið, og svo þurfti ég að koma til íslands, sem ekkert á af auðlindum nema fisk, til að fá fyrsta súkkulaðibollann minn. Svona var fátæktin mikil heima hjá mér. Á þessum bæ voru litrík gluggatjöld og gljáandi húsgögn. Mæðgurnar leystu mig út með vettlinga og jakka, fannst ég víst illa búinn til ferðalags. Á Kirkjubæjarklaustri samein- uðust þeir öðrum strandmönnum af skipi, sem strandað hafði við Skaftárós, en það getur verið skýr- ingin á þessum stóra leiðangri með 70 hesta. Eftir að hafa fengið joð á bossann vegna rasssærisins á Franska spítalanum í Reykjavík, fór Yves og allir strandmennirnir 75, sem safnast höfðu saman í Reykjavik til Leeds með norska skipinu Sterling. Næsta sumar var Yves aftur kominn á íslandsmið og í þetta sinn fékk hann hvorki meira né minna en 2700 fiska á sitt nafn. En það ár horfði hann líka á eftir besta vini sínum í sjóinn, án þess að geta komið honum til bjargar. Enn kom ísland til bjargar 1914 skall heimsstyrjöldin á og Yves var tekinn í herinn og sendur í skotgrafirnar í Belgíu. — Ég mátti ekki til þess hugsa. Þjóðverja hafði ég hitt á íslandsmiðum, þar sem þeir voru eins og við að berjast við höfuðskepnurnar og nú átti ég að fara að skjóta þá. Eg slapp nú samt gegnum tvö stríð án þess að drepa mann, segir Yves le Roux. Fyrst var ég í Belgíu, en síðan fluttur í flotann og sendur suður til Miðjarðarhafsins, í allan hitann þar eftir kuldann á íslandi. Þar skaut austurrískur kafbátur okkur niður árið 1916, skammt frá Korfu. Af 250 manns komust aðeins 40 af. Og enn var ég minntur á ísiand. Sem ég hékk þarna á braki, hver kemur ekki siglandi nema togarinn Rorqual frá Boulogne, sem ég hafði svo oft séð á íslandsmiðum. Um leið og ég er dreginn um borð, eru mér boðin þurr föt á bretónsku. Eftir þetta var ég fluttur á annað herskip og í lok stríðsins vorum við látnir plaffa á byltingarmenn í Rússlandi, áður en okkur var sleppt heim. Eftir' fyrri heimsstyrjöldina var farið að halla undan fæti fyrir íslandsveiðunum. Aðeins 15 duggur héldu þangað fyrstu vertíðina. Yves gerðist háseti á flutninga- skipi, varð síðan loftskeytamaður, þá stýrimaður á strandferðaskipi og loks skipstjóri. Nú var hann kvæntur maður og lagði hart að sér við að fara gegnum stýrimanna- skólann í Brest, eldri en allir hinir. Þau hjónin tóku að byggja sér húsið sitt í litla þorpinu Kerity. Þar ætlaði hann að búa og segja barnabörnum sínum sögur af Is- landsmiðum, þegar hann yrði gam- all. En einkasonurinn dó 27 ára gamall, og tengdadóttirin fáum mánuðum síðar. Engin barnabörn. Þá gafst kona hans, sem var gigtveik, upp og lagðist í rúmið. Seinustu ár hennar varð hann að vera heima og hjúkra henni. Þótt Yves væri orðinn 47 ára gamall, þegar seinni heimsstyrj- öldin skall á, var hann tekinn í flotann. Var á tundurduflaslæðara, þar til Þjóðverjar voru komnir að Ermarsundi og allt komið í upp- lausn í Frakklandi. Þá fór hann heim til Bretagne, en var tekinn til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.