Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 28
92 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 Bing & Gröndahl: Jólaplatti er hátíðargjöf .lólaplattinn 1980 kr. 14.900,- Olympiuplattinn 1972 kr. 6.900,— 1978 Notre Ditnr, ParU, Kraaee. Jólabjöllur kr. 28.500,— Póstsendum um allt land Jólaplattinn 1975 kr. 11.000,— Jólaplattinn 1971 kr. 8.500,— Jólaplattinn 1966 kr. 8.500,— Lítið við í verslun okkar — Gjafaúrvalið hefur aldrei verið glæsilegra. 5 ára jólaplattinn kr. 20.500,— Kemur út hvert 5. ár. 10 ára mæðraplattinn kr. 20.500.— Kemur út hvert 5. ár jm Mxðraplaltinn 1980 kr. 8.500.— 1980 Köliwr Dom. koln. KKI). Jólabjöllur kr. 28.500.— # fytsoui Ma-ðraplattinn 1978 kr. 8.500 — Borfpjnd Surkiritr. Lardil Jólabjöllur kr. 28.500,— ATH.: Mjög takmarkað upplag er af sumum plöttunum. Mæöraplattinn 1973 kr. 8.500.— Postulíns- og kristalsdelldin Verið velkomin til að líta við. c RAMMAGERÐIN HAFNARSTRÆTI 19 SÍMAR 17910 & 12001 HAFA Classic Baðskápasýning f dag frá kl. 2—6 Nýtísku Hafa baðinnréttingar í baðherbergið ykkar Útsölustaðir: Málningarþjónustan Akranesi, Atlabúðin Akureyri, Valberg Ólafsfiröi, Húsgagnaverslun Patreksfjaröar, JL-húsiö Reykjavík, JL-húsiö Borgarnesi, JL-húsiö Stykkishólmi, GÁB Selfossi, Brimnes Vestmannaeyjum, Har. Jóhannesson Seyöisfiröi. Kf. Hvammsfjarðar Búðardal, KASK Homafirði, Kf. Þingeyinga Húsavík, Kf. V-Húnvetninga Hvammstanga, Kf. Rangasinga Hvolsvelli, Kf. Fram Neskaupstaö, Kf. Skagfiröinga Sauðárkróki. Innréttingadeild II. hæð Vald Poulsen h/f Suöurlandsbraut 10 — Sími 86499. Niræð á morgun: Guðrún Jónsdóttir Köldukinn, A-Hún. Á morgun, hinn 1. desember, verður heiðurskona píraeð. Það er hún Guðrún í Köldukinn. Margar minningar koma upp í huga manns á tyllidögum, sérstaklega þegar í hlut eiga þeir, sem manni eru kærir. Mér finnast árin ekki vera mörg frá því að ég fyrst kom í Köldukinn smáhnokki til sumar- dvalar, en árin eru þó senn orðin fjörutíu. Þá kynntist ég fólkinu í Köldukinn fyrst og hafa þau kynni haldist alla tíð siðan, mér og minni fjölskyldu til mikillar gleði og ánægju. Þar á Guðrún stærstan hlut að öðrum ólöstuðum. Guðrún fæddist í Mjóadal í Bólstaðarhlíðarhreppi í A-Húna- vatnssýslu, dóttir hjónanna Bjargar Jóhannsdóttur frá Mjóa- dal og Jóns Espólín, en hann var fjórði ættliður frá Jóni Espólín, fræðimanni og sýslumanni frá Espihóli. Guðrún fékk góða menntun miðað við það sem þá tíðkaðist. Var hún í kvennaskólan- um á Blönduósi árin 1906—1908. Haustið 1908 hóf hún nám í Kennaraskóla Islands og var þar í þrjá vetur. Kennaraskólinn hóf starf sitt sem sjálfstæð stofnun einmitt haustið 1908, svo að hún var meðal fyrstu nemenda skól- ans. Að námi loknu stundaði hún kennslu í 5 ár. Hinn 19. ágúst 1916 giftist hún Kristjáni Kristóferssyni frá Köldukinn. Eignuðust þau þrjú börn, tvo syni, þá Jón og Kristófer, og eina dóttur, Bergþóru. Guðrún setti upp bú með manni sínum í Köldukinn og hefur búið þar alla tíð síðan. Kristján andaðist á árinu 1973. — Guðrún þótti skör- ungur mikill alla tíð, enda hafði hún hlotið betri menntun en almennt gerðist á þeim tíma og var mjög félagslynd. Tók hún virkan þátt í félagslífi í sinni sveit og var t.d. formaður kvenfélagsins Vonarinnar í Torfulækjarhreppi um árabil og í stjórn Sambands austur-húnvetnskra kvenna og norðlenskra kvenna. Eins og af þessu má sjá, var hún víðsýn og maniibiendin kona, enda var Köldukinnarheimilið gesírisið með afbrigðum. Á búskaparárum þeirra flestum var tæknin við bústörfin ekki komin á það stig, sem síðar varð. Eg var svo lánsamur að vera hjá þeim í sveit nokkur sumur og var þá allt upp á gamla mátann, torfbær, trússhestar, mótekja og fleira þ.h. Ég tel þó, að þessi ár hafi verið þau bestu, sem ég hefi átt, sérstaklega þegar horft er til baka og sú reynsla, sem þar fékkst, er metin í lausn verkefna og viðfangsefna síðar meir, og er ég þakklátur fyrir það. Sðng- og tónelsk var Guðrún, enda voru hljóðfæri til á heimilinu frá því ég man fyrst og spiluðu þeir bræður, synirnir báðir, á hljóðfærin, en dóttirin var farin að heiman, þegar ég kom fyrst í sveitina. Þeir bræður hafa komið mikið við sögu í músíklífi Húnvetninga. Þeir spil- uðu á sveitaböllum áður fyrr en siðar meir tóku þeir þátt í starfi karlakórsins Vökumönnum og var Kristófer stjórnandi hans um tíma. Það var okkur hjónum mikil gleði og ánægja, þegar Guðrún kom með okkur suður fyrir sjö árum og dvaldi á heimili okkar í vikutíma og hélt yngstu dóttur okkar undir skírn. Við hefðum svo sannarlega viljað fá Guðrúnu og hennar fólk mun oftar í heimsókn en orðið hefur á liðnum árum, en það er nú svo, að í kaupstaðnum virðist tíminn alltaf vera naumur. Ég hefi sjaldan látið hjá líða að banka upp á hjá Köldukinnar- heimilinu, þegar ég hefi verið á ferðinni fyrir norðan. Alltaf nafa móttökurnar verið jafn frábærar, hvort sem ég hefi verið einn á ferð eða með ferðafélögum. Guðrún var ,7lár sem besta móðir, þegar ég dvaldi hjá henfii 9g foreldrar hennar voru mér sem afi og amma, enda er yngsta barn mitt skírt eftir móður Guðrúnar. Það er svo margs að minnast, en ég læt hér staðar numið. Ég vona, að Guðrún mín haldi sinni góðu heilsu og elskulega brosinu til hinstu stundar. Með bestu afmælisóskum og góðri kveðju, M. Jensson Afmœlis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal ejnnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.