Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 77 w2344. FAIMPOL — Vue Gonérale de la Proces ocession a la Bénédiction des Goélett Kveðjuhátíðin í Paimpol 1904, þeKar borinn er i skrúðgöngu niður á bryggju Heilög Maria úr kirkjunni og hvert skip blessað fyrir brottförina á íslandsmið en hver maður tók þátt í hátiðahöldunum. fanga af Þjóðverjum og sendur í fangabúðir í Þýzkalandi. — Og enn varð Island mér til bjargar, segir gamli maðurinn. Læknirinn þarna í búðunum hafði lesið söguna frægu „Pecheurs d’Islande" um fiskimennina á íslandsmiðum eftir Pierre Loti og þegar hann vissi, að ég var einmitt frá Paimpol, eins og söguhetjurnar í henni og sjálfur einn af Islandsfiskimönnunum, gaf hann mér læknisvottorð eftir 2ja ára vist þarna og sendi mig heim. Þú sérð að Island og það sem því tengist, hefur alltaf fært mér gæfu. Ég skal segja þér það, að meðan ég var í siglingunum, tók hjartað alltaf kipp og sló hraðar, þegar ég sá íslenzka fánann á skipi. Og ég veifaði svo lengi sem ég sá til hans. Jæja, ég fékk að fara heim og rækta garðinn minn hér í Kerity og gat hugsað um konuna mína, sem var orðin heilsulaus. Hún hafði raunar farið að læra esperanto og skrifaðist um skeið á við esperant- ista á íslandi. Hvort muna Paim- polarar ísland? Sagan af Yves le Roux og tengsl- um hans við ísland er ekki þar með búin. Enn kom tilviljunin, eða kannski örlögin, til skjalanna. Árið 1974 skrifar Karl Sigurðsson, vél- stjóri í Reykjavík, esperantistan- um Guillou Silvester í Paimpol, en esperantistar hafa slík bréfasam- bönd. Kveður sér leika forvitni á að vita hvort Paimpolarar muni enn eftir viðskiptum sínum við íslend- inga, og hann sendir nokkrar ís- lenskar frásagnir um strönd frönsku dugganna, Silvester þýddi þær á frönsku og birti ásamt bréfi Karls í vikublaðinu La Presse Paimpolaise. Hafði hann í hyggju að safna upplýsingum hjá gömlum mönnum í Paimpol, „þótt fyrri fiskimenn séu af skiljanlegum ástæðum flestir dánir, þá hefur fólk hér heyrt um þessa tíma,“ eins og hann sagði. Nú gaf sig fram gamli sjómaðurinn Yves le Roux. Paimpolarar attuðu sig á því, að þeir voru að missa af síðasta Islandssjómanninum, sem gæti frætt þá um þessa merku tíma í sögu þeirra. Efnt var til fyrirlest- urs, þar sem Tonton Yves sagði frá í 40 mínútur. Miklu fleiri komu en inn komust í húsið, að því er borgarstjórinn Jean le Meur sagði mér. Áhuginn var gífurlegur. Blaðamenn gripu á málinu og áhugafólk um menningu Bretóna streymdi að. Yves le Roux tók að skrifa frásagnir sínar, sem hann var raunar eitthvað byrjaður á fyrr fyrir sjálfan sig. Og útgáfufyrir- tæki í París fékk þekktan listgagn- rýnanda, Jacques Dubois, sem hef- ur sérþekkingu á Bretagne, til að stytta og vinna upp úr þúsund blaðsíðna handriti hans bókina, sem kom út 1979 og vakti strax svona mikla athygli i Frakklandi. Gamli Tonton Yves, síðasti Is- landssjómaðurinn, sem allir í bæn- um þekktu raunar, var orðinn frægur. Ákveðið er að skíra götu í bænum eftir honum. Hún mun sennilega hljóta nafnið gata „Yves le Roux Islandais". Frá fornu fari er í gamla bænum „Gata íslands- faranna". Eftir fyrirlestur Yves le Roux í Paimpol kom franska menningar- félagið Alliance Francaise inn í málið. Sendikennari Frakka á ís- landi, Jacques Raymond, fór við annan mann á hans fund í Paimpol. Erindið var að bjóða Tonton Yves til íslands, til að flytja hér fyrir- lestur um íslandssjómennina á vegum Alliance Francaise í Reykjavík. Þótt Yves væri orðinn 85 ára gamall, hikaði hann ekki og fékk frænda sinn, sem er kjarn- orkueðlisfræðingur í París, með sér. Móttökurnar voru stórkostleg- ar, segir gamli maðurinn. Hann ferðaðist austur í Skaftafellssýslu, þar sem honum 18 ára gömlum var bjargað úr sjávarháska og til Fáskrúðsfjarðar, þar sem frændi hans hlaut á sínum tíma gröf. Myndir úr því ferðalagi, m.a. þar sem sýslumaðurinn á Höfn tekur á móti honum, eru nú á spjaldi í sjóminjasafninu í Paimpol. — Elskan mín, kauptu fyrir mig fallega, mjúka bretónabrúðu handa henni Kristínu litlu, sem sat alltaf i kjöltu minni á Fáskrúðsfirði og klappaði mér, sagði Tonton Yves við blaðamanninn. Fólkið hennar tók svo vel á móti mér, eins og allir á íslandi. Færðu sýslumanninum á Höfn áritaða bókina mína og skil- aðu góðri kveðju til forsetans ykkar, hennar Vigdísar, og óskaðu henni velfarnaðar. Og svo er það hann Karl Sigurðsson ... Öllum kveðjum hefur að sjálfsögðu verið skilað og haft upp á öllu þessu fólki. Hvað Karl snerti var það auðvelt, þótt hvorugt okkar Yves hefði hugmynd um hvaða Karl þetta var. Hann reyndist búa i sama húsi og blaðamaðurinn. Enn ein tilviljunin! Það sýnir áhuga Paimpolara og ekki síst Jean le Meur, borgar- stjóra í Paimpol, á sögulegum samskiptum Bretagnebúa og ís- lendinga, að hann kom sjálfur snarlega á vettvang, þótt hann væri í sumarleyfi, þegar Yves le Roux kvaðst vera með gesti frá íslandi. Spjallaði borgarstjórinn við okkur lengi dags. Kvaðst hafa mikinn áhuga á að taka upp samband borgarstjórnar Paimpol og íslensks bæjar — sem hérmeð er komið á framfæri. — Tengsl okkar eru í andanum og af menningar- legum toga, sagði hann. Við í Paimpol getum ekki talað um íslendinga sem ókunnugt fólk. Við tölum miklu fremur um þá sem frændur í fjarska. - E.Pá 1 hrídarspor e*"H Leikrit — Valgarður Egilsson Valgarður Egilsson, höfundur þessa leikrits er ungur læknir og vísindamaður. Dags hríöar spor er fyrsta skáldverk hans sem birtist á prenti og er gefið út samhliða því aö verkið er tekið til sýningar í Þjóðleikhúsinu. Nafn leikritsins er táknrænt — dags hríöar spor er kenning og merkir sár. Á sama hátt gætir táknsæis mjög í leikritinu. Það fjallar um nokkur einkenni í íslenzku þjóölífi samtímans með skírskotun til fortíðarinnar. Þar er vissulega mörg dags hríðar spor að finna og ýmis þeirra svíða. ji Almenna /jR bókafélagid 1Austurstra'ti 18. — Sími 25544. Skemmuvegi 36. Kóp. Sími 7305 Aðeins þaðbesta „lceland Review kemur alltaf eins og langþráður gestur frá Islandi . (Úr bréfi frá lesanda ritsins erlendis.) Sendu vinum þínum í útlöndum gjafaáskrift - og fáðu heilan árgang í kaupbæti. Gjöf, sem berst aftur og aftur - löngu eftir að allar hinar eru gleymdar, og segir meirafrá landi og þjóð en margra ára bréfaskriftir. o 0 o lceland Review Hverfisgötu 54, sími 27622,101 Reykjavík. Nýrri áskrift 1981 fylgir allur árgangur 1980 í kaupbæti, ef óskað er. Gefandi greiðir aðeins sendingarkostnað. Útgáfan sendir viðtakanda jólakveðju í nafni gefanda, honum að kostnaðarlausu. Fyrirhöfnin erengin og kostnaðurinn lítill. Hvert nýtt hefti af lceland Review styrkir tengslin. □ Undirritaður kaupir-------gjafaáskrift(ir) að lceland Review 1981 og greiðir áskriftargjald kr. 9.900 að viðbættum sendingarkostnaði kr. 2.800 pr. áskrift. Samt. kr. 12.700. □ Árgangur 1980 verði sendur ókeypis til viðtakanda(-enda) gegn greiðslu sendingarkostnaðar, kr. 2.500 pr. áskrift. Nafn áskrifanda Sími Heimilisfang Nafn móttakanda Heimilisf. Nöfn annarra móttakenda fylgja með á öðru blaði. Sendið til lceland Review, pósthólf 93, Reykjavík, eða hringið í síma 27622.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.