Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980
101
85 ára:
Jón Guðmundsson
f rá Stóra Laugardal
Mér er það sönn ánægja að
skrifa örlitla afmæliskveðju til
hans afa míns. Það kann að þykja
svolítið skrítið að dóttursonur
hans pári á blað í þessu tilefni. —
En meðal afa og okkar barnabarn-
anna hefur aldrei verið sá ald-
ursmunur sem árin segja til um,
hann hefur alla tíð verið einn af
okkur, fylgst náið með uppvexti
okkar, skólagöngu og daglegu
starfi.
A sínum yngri árum var hann
formaður á bátum á Patreksfirði
og Tálknafirði en seinna gerðist
hann fisksali í Reykjavík. Eg man
fyrst eftir honum þegar hann bjó í
Blesugrófinni, það þótti mér vera
æfintýrastaður, langt uppi í sveit.
Eftir að til borgarinnar kom tók
hann bifreiðina í sína þjónustu,
bátarnir höfðu þjónað honum vel
fram að því. A meðan hann bjó
þarna átti hann sendiferðabíl af
Fordson-gerð, grænan að lit, ef ég
man rétt. Það var ánægjulegt
fyrir lítinn strákhvolp af Hring-
brautinni að ferðast með slíku
farartæki. Þetta var enginn spari-
bíll því í honum flutti afi fiskinn,
hann var jafnan fullur af fiskköss-
um og alltaf var í honum sérstak-
ur ilmur af þessum sökum. Ég
minnist þess að á þessum árum
varð ég stundum hræddur í bíl hjá
afa, það var þegar hann tók í nefið
um leið og hann stjórnaði ökutæk-
inu. Eins og allir vita eru tilfær-
ingar aldamótakynslóðarinnar við
athöfn þessa tilkomumiklar og
tímafrekar. Mér fannst hann vera
óratíma að koma tóbakinu fyrir á
handarbakinu og síðan skvera því
upp í nasirnar, stundum var sem
gamli Fordsoninn stýrði sér sjálf-
ur.
A þessum árum var það æðsti
draumur minn að gerast fisksali.
Ég dáðist að afa mínum þegar
hann stóð við afgreiðsluborðið í
fiskbúðinni sinni í Skjólunum.
Hann fór æfðum höndum um
fiskinn, flakaði og saitaði af svo
mikilli snilli að ungan dreng
langaði til þess að geta gert eins
vel. Margir lögðu leið sína í búðina
og jafnan fór drjúgur tími afa í að
ræða við viðskiptavinina um lífið
og tilveruna. Þegar ég var í
heimsókn hjá honum og ömmu
kom ég mér jafnan fyrir í úti-
geymslunni og dundaði mér við að
þykjast selja fisk tímunum sam-
an.
Jón Guðmundsson hefur ekki
enn látið deigan síga þótt orðinn
sé 85 ára gamall. Hann er sístarf-
andi frá morgni til kvölds árið um
kring og mikið þarf að koma til ef
hann sleppir degi úr. Hann hefur
sniðið sér stakk eftir vexti og
vinnur því ekki lengur erfiðis-
vinnu. Hann innréttaði sér vinnu-
herbergi inni í bílskúr og þar situr
hann nokkra tíma á dag og fæst
við að hnýta öngla á línu og annað
það sem að netagerð lýtur og
landkrabbi kann ekki að nefna.
Síðustu árin hefur hann jafnframt
safnað og skráð örnefni sem við
koma Patreksfirði og Tálknafirði,
fiskimiðum þar og kennileitum. Á
þeim slóðum reri hann um ára-
tuga skeið og fáir núlifandi menn
þekkja þar staðhætti betur.
Afi hefur látið sig félagsmál
miklu varða um dagana. Fyrir
nokkrum árum var hann upphafs-
maðurinn að því að stofnað var
ættarfélag sem kennt er við
Stóra-Laugardal í Tálknafirði.
Langalangafi minn, Guðmundur
bóndi Jónsson, lét byggja kirkjuna
þar fyrir eigið fé, síðan eru liðin 74
ár. Áfi hefur tekið ástfóstri við
kirkju þessa og hefur m.a. komið á
fót styrktarsjóði henni til fram-
dráttar, í minningu eiginkonu
sinnar, Halldóru Kristjánsdóttur
frá Sellátrum sem lést fyrir 22
árum.
Þótt afi sé nú orðinn 85 ára að
aldri er ekki að sjá að ellin sé
honum erfið. Hann hefur alla tíð
verið ungur í anda og lætur ekki
krankleika á sig fá. Við frændurn-
ir höfum alltaf náð góðu sambandi
okkar á milli þrátt fyrir nær sex
tuga aldursmun. Enginn kemur að
tómum kofunum hjá Jóni Guð-
mundssyni. Við ræðum saman um
heimsmálin og yfirleitt allt það
sem nöfnum tjáir að nefna. Vita-
skuld hljóta lífsviðhorf okkar að
vera að mörgu leyti ólík en við
reynum jafnan að vera málefna-
legir og virða skoðanir hvors
annars.
Síðustu árin hefur afi haldið sér
ungum með ýmsu móti, honum
hefur aldrei fallið starf úr hendi,
hann umgengst margt fólk, ungt
sem gamalt, og hann fer sér til
heilsubótar á Náttúrulækninga-
hælið í Hveragerði — hann er
einmitt staddur þar núna.
Lifðu heill,
Hjalti Jón
Sveinsson.
..VERD
STOPVUN
A PHILIPS
11K1ANVADBC-
irl I vlVll fHnr v
TJEKJUM!
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTUN 8 — 15655
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
I>1 AIGLYSIR l'M U.I.T LAM) ÞEGAR
Þl AIT.LYSIR I MURGl NBLADINT