Morgunblaðið - 04.12.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980
3
Verðhækkanir á svartolíu erlendis:
Útgjaldaauki útgerðar
rúmlega 3,1 miUjarður
un að ræða. Áhrif þessara
breytinga valda auknum halla á
útgerð togaranna, sem nemur
3,5% af tekjum, og þyrfti því að
hækka olíugjald utan skipta um
3,5%, ef jafna á þetta áfall.
Verðmunur á gasolíu og svart-
olíu mun því minnka til mikilla
muna og draga úr þeim sparn-
aði, sem brennsla á svartolíu
hefur haft í för með sér.“
TALIÐ er. að íslendingar þurfi
170 þúsund lestir af svartolíu á
næsta ári og hefur langmestur
hluti þeirrar svartolíu. sem
notuð er hér á landi. verið
keypt frá Sovétríkjunum. Nú
hafa Sovétmenn hins vegar
neitað að selja íslendingum
nema 110 þúsund lestir og er
ófyrirséð um útvegun á annarri
svartolíu. Nú brenna yfir 50
skuttogarar svartolíu og 3
loðnuskip. en einnig má nefna
loðnubræðslur og fleiri verk-
smiðjur. sem nota þessa olíu.
Þessar upplýsingar komu
fram í ræðu Kristjáns Ragn-
arssonar, formanns LÍÚ, er
hann setti aðalfund samtakanna
í gær. Sagði hann, að á undan-
förnum árum hefðu íslendingar
keypt þunna svartolíu í háum
gæðaflokki frá Sovétríkjunum
og hefðu verið greiddir 2 dollar-
ar aukalega fyrir tonnið miðað
við verðskráningu í Rotterdam á
mjög þykkri svartolíu. í nýgerð-
um samningi við Sovétríkin var
samið um 17 dollara auka-
greiðslu fyrir gæði í stað 2ja
dollara áður.
Sú verðhækkun bætist við
mikla verðhækkun, sem orðið
hefur á svartolíu, en í haust
hefur svartolía hækkað til mik-
illa muna á Rotterdammarkaði
eða úr 187 dollurum í september
í 242 dollara nú.
Síðan sagði Kristján Ragn-
arsson: „Aukin útgjöld af þessu
tilefni nema um 60 milljónum
króna á hvern togara af minni
gerð og 75 milljónum króna
fyrir hvern togara af stærri
gerð á ári. Samtals nemur þessi
útgjaldaauki 3.135 milljónum
króna og er þá ekki tekið tillit til
breytinga á gengi, heldur er hér
eingöngu um erlenda verðhækk-
\l (•LYSINíiA
SIMINN KK:
22480
William F.
Pálsson
bóndi látinn
Húsavik. 3. des«»mb<*r.
WILLIAM F. Pálsson, Ilalldórs-
stöðum í Laxárdal. andaðist í
nótt. 84 ára gamall, í sjúkrahús-
inu á Ilúsavfk eftir nokkurra
daga dvöl þar. William hefur
búið á Ilalldórsstöðum allan sinn
aldur og verið þar einbúi hin
síðari ár.
William var sonur hjónanna
Lissýar og Páls Þórarinssonar á
Halldórsstöðum. Hann var þjóð-
þekktur frímerkjasafnari og um
allan heim þekktur sem eggja-
safnari. Nafn hans er skráð í
þekktustu upplýsingaritum um
eggjasafnara í heiminum.
William var ókvæntur og barn-
laus.
— Fréttaritari
„Ekki óeðli-
legt seðla-
útstreymi“
„VIÐ IIÖFUM ekki merkt það. að
útstreymi seðla hafi verið meira
undanfarna daga en við gerðum
ráð fyrir i okkar áætlun,“ sagði
Stefán Þórarinsson, rekstrar-
stjóri Seðlabanka íslands, í sam-
tali við Mbl., er hann var inntur
eftir því hvort ótti almennings
við hankaverkfall hefði haft þau
áhrif, að fólk tæki allt sitt fé út
úr bönkunum.
„Auk þess er hámark seðlavelt-
unnar ekki fyrr en eftir miðjan
mánuðinn alla jafna og f okkar
áætlun gerðum við ráð fyrir mjög
ríflegu magni, þannig að við sjá-
um ekki fram á nein vandræði í
þessu sambandi þótt svo seðla-
útstreymið aukist verulega á
næstu dögurn," sagði Stefán
enníremur.
svo
ótrúlega-mjúkar
enda 100% lambsull
PEYSUR í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
Verö aöeins kr. 19.800.-
^KARNABÆR
Glæsibæ, Austurstræti 22, Laugavegi 66. Sími 85055.