Morgunblaðið - 04.12.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980
Jónas Hallgríms-
son og Fjölnir
— ný AB-bók eftir Vilhjálm Þ. Gíslason
VILHJÁLMUR Þ. Gíslason hefur
sent frá sér nýja bók, sem hann
nefnir Jónas Hallgríinsson og
Fjölnir, 330 blaðsíðna rit auk
mynda. Útgefandi er Almenna
bókafélagið.
Bókin er kynnt þannig á bók-
arkápu: „Jónas Hallgrímsson og
Fjölnir eftir Vilhjálm Þ. Gíslason
er ítarlegasta ævisaga Jónasar
Hallgrímssonar sem við hingað til
höfum eignast. Sýnir skáldið í
nýju og miklu skýrara ljósi en við
höfum átt að venjast.
Jónas Hallgrímsson, skáldið
góða, sem kenndi íslendingum
öðrum listamönnum fremur að sjá
fegurð íslenzkrar náttúru og njóta
hennar og hlúði umfram aðra að
jákvæðu viðhorfi þjóðarinnar
gagnvart landinu og lífinu, átti við
vanheilsu að stríða síðustu æviár
sín, dó um aldur fram.
Þetta er sú almenna mynd
okkar af Jónasi Hallgrimssyni, í
senn fögur og dapurleg, alltof
einföld.
Jónas Hallgrímsson er „hið
drambsamasta dýr“, lét eldri
skáldbróðir hans eftir sér hafa,
„fúllegur og mjög hæglátur", sagði
annar. Aðrir tala um hans björtu,
hýru og skinandi fögru augu, og
landar hans í Höfn stofnuðu
bindindisfélag, sjálfsagt aðallega
til að reyna að bjarga honum. Það
var víst engum sama um Jónas
Hallgrímsson, sem honum kynnt-
ist.
I þessari nýju bók um Jónas
Hallgrímsson er hófsamlega og
hispurslaust sögð saga hans —
umfram allt sönn og ítarleg. Þetta
er saga af afburðagáfum og góðum
verkum og af nokkrum veilum,
sem oft er dregin fjöður yfir.
„Saga Jónasar Hallgrímssonar er
um margt glæsileg saga, kannski
hins mikilhæfasta mannsefnis
síns tíma í lífi lista og fræða, en
líka saga um mann í brotum og
vanhirðu", eins og höfundurinn,
Vilhjálmur Þ. Gíslason, kemst að
orði í inngangi bókarinnar."
Bókin er unnin í Prentverki
Akraness. Hún er 336 bls. að stærð
og auk þess er í bókinni fjöldi
mynda.
Suomi-hátíð 6. des.
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGUR Finna
er á laugardaginn kemur, 6. des.
Löngum hefur Suomi-félagið
haldið þennan dag hátíðlegan.
Nú efnir það til skemmtunar í
Nurræna húsinu kl. 20.30 og
hefur verið vel vandað til dag-
skrár.
Formaður félagsins, frú Barbro
Þórðarson, flytur ávarp. Sendi-
herra Finna hér á landi, Lars
Lindemann, heldur tölu og hátíð-
arræðu flytur dr. Kristján Eld-
járn, fyrrum forseti íslands. Þá
syngur frú Sólveig Björling með
undirleik Gústafs Jóhannessonar
og loks skemmtir vinsælasti
skemmtikraftur Finna um þessar
mundir, M.A. Numminen, með
söng og látbragðslist. Undirleik
annast H. Pedro Hietanen.
Síðan verður sest að borðum og
borinn fram náttverður.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Sunnudaginn 7. des. heldur fé-
lagið barnaskemmtun í Norræna
húsinu kl. 14.00. Þar skemmtir
hinn bráðskemmtilegi Numminen,
sem er sérstaklega ástsæll hjá
börnum víða um lönd. Undirleik
annast Pedro Hietanen. Aðgöngu-
miðar við innganginn.
Öll börn eru velkomin meðan
húsrúm leyfir.
Numminen t.v. og Hietanen t.h.
Ogurvík hyggst láta
lengja togara sína
Fyrirtækið telur ekki grundvöll fyrir smíði nýs skips
FORRÁÐAMENN útgerðarfé-
lagsins Ögurvíkur í Reykjavík
eru þessa dagana að athuga
möguleika á að iáta breyta skut-
togurunum Ögra og Vigra í
Póllandi. Skipin voru byggð í
Gdynia fyrir átta árum og eru
svokölluð stiuskip, en hugmynd-
in er að lengja þau um 8,5 metra
svo hægt verði að taka 2—300
tonn af fiski i kassa i lestar
skipsins. eða sama aflamagn og
nú er sett i stiur i skipunum.
Fulltrúar frá pólsku skipasmíða-
stöðinni Centamor eru staddir
hér á landi þessa dagana og ef
samningar takast á milli þeirra
og Ögurvikur myndu skipin fara
utan til hrcytinga á næsta ári.
Ögri og Vigri hafa verið mikil
aflaskip síðan skipin komu til
landsins og meðal aflahæstu skut-
togara ár hvert. Morgunblaðið
spurði Þórð Hermannsson, skrif-
stofustjóra Ögurvíkur, að því í
gær hvort fyrirtækið hefði hug-
leitt endurnýjun á skipakostinum.
Sagði hann að fyrri hluta þessa
árs hefðu þau mál verið könnuð
ítarlega, en niðurstaða fyrirtækis-
ins hefði orðið sú, að ekki væri
mögulegt að láta byggja nýtt skip
og reka það án gífurlegrar skulda-
söfnunar við þau skilyrði, sem nú
eru.
„Við komumst að þeirri niður-
stöðu, að þó nýja skipið kæmi með
þúsund tonnum meiri afla að landi
en Ögri og Vigri, sem þó hafa
aflað vel, myndu endar alls ekki
ná saman og um verulega skulda-
söfnun yrði að ræða. Það var sama
hvernig við fórum að í okkar
útreikningum, útkoman varð allt-
af neikvæð. Við settum upp lítið
dæmi og miðuðum þá við afla
meðalskips, vaxtaspilið eins og
það er núna, 50% verðbólgu og
annað, sem útgerðin glímir við í
dag og komumst að því, að eftir 18
ár yrðu skuldir hvílandi á þessu
skipi hvorki meiri né minni en 900
milljarðar króna,“ sagði Þórður
Hermannsson hjá Ögurvík.
PTOFRA
■
Ryksugan sem svifur
HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur
undrun. vegna þess hve fullkomlega einföld hun er
Sogsfyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn
rúmar 12 litra, já 12 litra af ryki. HOOVER S 3005 er
ennfremur léttasta ryksuga sem völ er á, hún líður um
gólfið á loftpúða alveg fyrirhafnarlaust
fyrir þig, svo létt er hún.
Verðkr. 144.100.-
Nýkr. 1.441.-
Eg er lettust...
búin 800Wmótor
og 12 lítra rykpoka
(Made in USA)
/
•V’*:
o
OI
HOOVER er heimilishjálp