Morgunblaðið - 04.12.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.12.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980 15 Kissinger styður Haig sem utanríkisráðherra Bjórnunarmaður sprautar kalki kringum likkistu til að koma í veg íyrir (arsóttir. Myndin er tekin í smábænum Lioni. Hjólhýsi flutt til jarð- skjálftasvæðanna Napolí. 3. desomber — AP. „VIÐ FÁUM nú nægan mat frá hermönnum. en það er ekki ha“gt að lifa alitaf á ölmusu. Ég hef unnið í Þýskalandi og Sviss í meira en 15 ár til þess að geta byggt mér hús. Nú á ég ekkert.“ Þessi orð eru höfð eftir einu fórnarlambi jarðskjálft- ans mikla á Ítalíu. Ibúarnir á jarðskjálftasvæðunum fá nú reglulega mat og ullarteppi sem ver þá fyrir versta kuldanum. En ennþá eiga þeir eftir að hefja nýtt líf án heimilis og sumir án fjölskyldna og vina. Mikið af hjálpargögnum hefur borist til jarðskjálftasvæðanna eftir að fréttir hermdu að skortur væri á slíku. í smábænum Calabritto hafa heil- brigðisyfirvöld brennt föt sem liggja í húsarústum vegna hættu á að rottur kunni að sækja í blautar og illa lyktandi fatahrúgurnar. Yfirvöld hafa boðið íbúum jarðskjálftasvæðanna fría gistingu á hótelum en aðeins um 1.000 manns af 200.000 íbúum hafa þegið boðið. Útvarpssending- ar til Póllands Bonton. 3. desember — AP. EF RÚSSAR ráðast inn í Pólland hyggjast Bandaríkjamenn hefja stanslausar útvarpssendingar til Póllands. Er þegar hafinn undir- búningur að þessum útvarpssend- ingum. Að sögn mun verða útvarpað fréttum af innrásinni og viðbrögðum heimsins. Nú er hafinn flutnipgur á hjólhýs- um til jarðskjálftasvæðanna þar sem yfirvöld hræðast það að senn fari að kólna til muna á Ítalíu, en til þessa hafa flestir íbúanna hafst við í tjöldum. WashiiiKton. 3. des. AP. IIAFT VAR eftir heimildum i Washington i gær. að Alexander M. Haig hershöfðingi. sem var stoð og stytta Nixons þegar verst gegndi fyrir honum í Hvíta hús- inu, væri sá. sem Ronald Reagan kysi helst utanríkisráðherra í væntanlegri stjórn repúblikana. Eftir öðrum heimildum er haft. að Reagan hafi í hyggju að leita einnig til annarra embætt- ismanna fyrrv. stjórnar Richard Nixons. Henry Kissinger, fyrrv. utanrík- isráðherra, sagði í París í dag, að hann yrði mjög ánægður ef Haig yrði fyrir valinu. „Hann er gamall vinur minn,“ sagði Kissinger. „Ég held, að hann sé einhver besti maður, sem gæti gegnt þessu embætti, og hann hefur mikla reynslu af utanríkismálum." Haft er fyrir satt, að Reagan ætli að biðja Caspar W. Weinberg- er og William J. Casey, sem báðir gegndu embættum í stjórn Nixons, bankastjórann Walter B. Wriston og lögfræðing sinn, William French Smith, að taka að sér mikilvæg embætti í stjórninni. Alexander M. Haig Weinberger verður boðið emb- ætti varnarmálaráðherra, Casey verður yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, Wriston fjármálaráðherra og Smith dómsmálaráðherra, að því er haft er eftir heimildum í röðum repú- blikana. Tekið var þó fram, að ekkert væri endanlega ákveðið í þessum efnum og ekki víst að viðkomandi menn vildu taka sæti í væntanlegri stjórn. Talið er víst, að Reagan muni í lok þessarar viku eða strax eftir helgi tilkynna hverjir gegna muni helstu ráðherraembættum í stjórn hans. London: Óttast sprengjuher- ferð IRA um jólin íranir sækja á vesturhálendinu Beirút. 3. desember. AP. ÍRANIR sögðu í dag. að fallhlífa- hermenn þeirra hefðu reynt að ná yfirráðunum yfir vesturhálendinu úr höndum innrásarliðs íraka og barizt hefði verið byrgi úr byrgi. Þeir sögðu líka. að herþotur íraka hefðu verið hraktar frá helztu olíuhöfnum írana við Persaflóa. írakar sögðu, að stórskotalið þeirra og skriðdrekar hefðu haldið uppi hörðum árásum á fjórar helztu borgirnar í Khuzistan. íranska stjórnin svaraði ekki síðasta tilboði utanríkisráðherra íraka, Saadoun Hammadi, um vopnahlé, beinar samningaviðræð- ur um ný landamæri og brottflutn- ing til nýrra landamæra. „Þetta er eina raunhæfa og sanngjarna lausnin," sagði Hammadi í bréfum til utanríkisráðherra aðildarríkja Efnahagsbandalags Evrópu. Abolhassan Bani-Sadr forseti og Mohammad Ali Rajajai forsætis- ráðherra hafa hingað til krafizt skilyrðislauss brottflutnings íraka frá herteknum írönskum svæðum áður en setzt verði að samninga- borði. Seinna sögðu íranir, að þeir hefðu hrundið loftárás Iraka á aðalolíuhöfn írans á Kharq-eyju. Ixmdon. 3. des. AP. TALSMAÐUR Scotland Yard sagði í dag. að yfirgnæfandi líkur væru á því að skæruliðar írska lýðveldishersins, IRA, hefðu kom- ið fyrir tveimur sprengjum. sem sprungu fyrir utan varaliðsbúðir breska hersins í London sl. þriðjudagskvöld. Margir óttast nú að IRA muni standa fyrir sprengjuherferð í London um jólin. Leynilögreglumenn réðust í dag inn á heimili manna í London, sem grunaðir eru um að styðja IRA, og leituðu að vopnum og sprengiefn- um. Ekki var þó tilkynnt um neinar handtökur. Að sögn lögregl- unnar hefur „provisional“-armur írska lýðveldishersins ekki enn lýst ábyrgðinni á hendur sér en hins vegar láta þeir það oft bíða dögum saman. David Powis, næstráðandi í Lundúnalögreglunni, sagði frétta- mönnum, að talið væri að hryðju- verkamenn IRA hefðu aðsetur í London og væru að undirbúa sprengjuherferð um jólin þegar mannmergðin er hvað mest á götum úti og í verslunum. Powis varaði einnig við því, að líklega væri IRA með á prjónunum nýja bréfasprengjuherferð gegn framá- mönnum í bresku þjóðlífi. Þetta gerðist 1563 — Kirkjuþing kaþólskra í Trent rofið. 1586 — Elízabet drottning stað- feslir dauðadóm Maríu Skota- drottningar. 1676 — Danski herinn sigraður í harðri orrustu við Lund. 1691 — Habsborgarar ná aftur Transylvaníu og yfirráð þeirra viðurkennd. 1798 — Frakkar segja Napoli stríð á hendur. 1893 — Bretar og Frakkar ná samkomulagi um Síam. 1918 — Stofnun konungsríkis Serba, Króata og Slóvena lýst yfir. 1912 — Bandarískar sprengju- flugvélar ráðast á meginland Ital- íu í fyrsta sinn. 1944 — Brezkir hermcnn berjast með stuðningi Grikkja á gðtum Aþenu. l9“15 — Bandaríkjaþing samþykk- ir aðild að SÞ. 1%2 — Hundruð andstæðinga Ben Bella handteknir í Alsír. 1%6 — Harold Wilson ræðir við lan Smith í herskipinu „Tigris" um uppreisn Rhódesíu. 1971 — Indverskt herlið hefur árásir á Austur-Pakistan. 1974 — 191 ferst með hollenzkri leiguflugvél á Sri Lankn. 1975 — Fundi Fords forseta og kínverskra leiðtoga lýkur i Peking ún árangurs. 1977 — Fulltrúi íraks gengur af fundi Araba í Tripoli og rýfur samstöðu gegn friðarumleitunum Egypta. Afmæli — Thomas Carlyle, brezk- ur sagnfræðingur (1795—1881) — Samuel Butler, brezkur rithöfund- ur (1815-1905) - Edith Cavell, brezk hjúkrunarkona (1865—1915) — Francisco F’ranco, spænskur þjóðarleiðtogi (1892—1975) — De- anna Durbin, bandarísk leikkona (1922-). Andlát — 1642 Richelieu kardin- áli — 1679 Thomas Hobbes, heim- spekingur. Innlent - 12% Heklugos - 1739 d. Steinn Jónsson Hólabiskup — 1858 d. Þorleifur Guðmundsson Repp — 1867 d. Helgi G. Thordar- sen biskup — 1954 Kvikmyndin „Salka Valka“ frumsýnd í Reykja- vík — 1958 Ríkisstjórn Hermanns Jónassonar biðst lausnar — 1971 Samkomulag um nýja kjarasamn- inga — 1971 Eldsvoðinn í „Glaumbæ". Orð dagsins — Enginn verður góður ræðumaður, ef hann hefur eitthvað að‘ segja — F.P. Dunne, bandarískur rithöfundur (1867— 1936). gtllðP La Goombay Dance Band þekkja allir, þeir sem eiga hina vinsælu plötu „Son of Jamaica." Nú er komin út ný þrælgóð plata frá Goombay Dance Band, sem heitir Land of Gold. Lagið EHorado af þessari plötu nýtur nú geysivinsælda víðast hvar um Evrópu. Land of Gold inniheldur alls 12 hress danslög, sem eiga það sameiginlegt að koma öllum í hresst dansstuð. Heildsöludreifing stsinofhf Simar 85742 og 85055. ^ HUOMOEILO ®SfoKARNABÆR Ur Laugavegi 66 -- Glæsibæ — Ausfuisti ru .'. r Sím trá skipltboröi 85055

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.