Morgunblaðið - 04.12.1980, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980
20
Þýzki rithöfundurinn
Ingeborg Drewitz
les úr verkum sínum föstudaginn, 5. 12. kl. 20.30 í
stofu 101, Lögbergi. Veriö velkomin.
Þýzka bókasafniö.
1x2
15. leikvika — leikir 29. nóv. 1980
Vinningsröó: X X 2-X 0 1-2 X 2-2 1 X
1. vinningur: 10 róttir — kr. 628.500.-.
12590 18217 19122 19390 19925
25316(4/9) 29004(4/9) 29918(2/10,6/9R 32663(4/9) 34643(4/9)»
35761(4/9) 42366(6/9) 42654(6/9)»
2. vinningur: 9 réttir — 12.200.-
263 8725 14296 25189 29543 34644+ 40978*
346 8929 14541 25315 29582+ 34645+ 41224*
513 9098 14546 25405* 29600 34646+ 41247
527 9370 15232 25512 26907* 34649+ 41290
842 9484 15882 25684 29916*+ 34652+ 41346
896 9590 16047 25737 29917*+ 34715 41419
1386 9712 16153 25785 30048 34865* 41476
1799 9770 16366» 25867 30320 34979 41613
1939 9871 16626 26260 30492 35283* 41664+
2534 9901 16648 26297 30938* 35440 41667
2937 10339 17018 26411+ 30942* 35623* 42405*
3416 10519 17181 26573* 30966 35661 42646+
3611 10660 17248 26714*+ 30971* 35725* 42667+
3995 10793 17451 26758*+ 31365+ 36207 42882
4607 10876 17490 26872+ 31507* 36427+ 42992+
5176 10914 17565 26984* 31579* 36940+ 43074
5920 11009 18071 27705 31581* 36941+ 43203+
5921 11144+ 18282 27014 31592*** 37160* 43359
6052» 11275+ 18745 27206 32184 37381 44024
6129» 11280+ 18912 27333 32216 37411 44079
6659» 11281+ 19161 27400* 32225 37748+ 44097
6690» 11514+ 19260 27514 32374 37851 44143+
6764" 11532 19295 27645 33527+ 40051 44159
6788+ 12182 19530 27994 33530+ 40065 44242+
6847+ 12695 19815 28253 32661 40118 44291
6852+ 13311+ 19838 28566 33139 40141 44412
6854+ 13415 19975* 28594 33166 40190 44491
6970 13475 20139 28789+ 33849* 40346 44548
7236 13527 20601 28936 34538 40489* 44877+
7967 13643 20681 29082+ 34545 40541" 44883
8068 13786+ 20927 29091 34586 40722 44962
8091 13793+ 21898 29147 34603+ 40772 45524
8705 13794» 20986 29156 34604+ 40794 45525
8720 13795 25188 29497 34605+ 40823
* =(2/9)
** =(3/9)
* * * = (4/9)
Kærufrestur er til 22. desember kl. 12 á hádegi. Kærur
skulu vera skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboös-
mönnum og á aðalskrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupp-
hæöir geta lækkaö, ef kærur veröa teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seöla (+) veröa aö framvísa stofni
eöa senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og
heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR — íþróttamiöstöóinni — REYKJAVÍK
Hringiö!
í síma
Okkur
vantar
stráka
35408
Miðbær:
Laufásvegur frá 2—57.
Þingholtsstræti.
Laugavegur frá 1 —33
Leifsgata
Rætt við fulltrúa á flokksráðs- og formannaráðsfundi
Sjálfstæðisflokksins - ,
VIÐTÖL viö fulltrúa á flokksráös- og fomannaráðsfundi Sjálfstæóisflokksins voru
birt í Mbl. í gær. Tvö þessara viötala viö Björgu Einarsdóttur og Hildi Einarsdóttur
skoluöust til og veröa því birt hór í heild sinni. Einnig var fariö rangt með nafn
kvenfélagsins í Bolungarvík, það heitir Sjálfstæóiskvennafélagiö Þuríöur Sunda-
fyllir. Eru hlutaöeigendur beönir velvirðingar á þessum mistökum.
Fylgismenn
Sjálfstæöis-
flokksins vilja
stööuga og
jafna fram-
vindu í mál-
efnum flokks-
ins
„Ég fæ ekki betur séð en að
jarðvegur „byltingarinnar" sé
senn tilbúinn, ef svo fer fram sem
horfir," sagði Björg Einarsdóttir,
formaður Hvatar, félags sjálf-
stæðiskvenna í Reykjavík, er hún
var spurð álits á gangi þjóðmála.
„Þeir sem vilja breytt þjóð-
skipulag eða réttara sagt færa
þungamiðju samfélagsins, þurfa
væntanlega að doka við enn í
smátíma og þá er lag — nema
sterkt þjóðfélagsafl á borð við
Sjálfstæðisflokkinn sporni við.
Verðbólgan eins og hún birtist
okkur hér á landi á síðari árum,
er í eðli sínu sjálfvirkt tæki til að
liða sundur innviði þjóðfélags-
byggingarinnar. Undirstaðan,
þjóðarframleiðslan og utanríkis-
verslunin, hefur ekki styrkst en
yfirbyggingin og þenslan aukist
stöðugt og getur áður en varir
nálgast endamörk sin.
Samsöfnun fjármagnsins á
einn stað og útdeiling þaðan
flytur valdið á fárra hendur.
Grundvöllur sjálfstæðisstefnunn-
ar, sem Sjálfstæðisflokkurinn
byggir á, er að treysta fólki fyrir
eigin aflafé. Að frjálsir og ábyrg-
ir einstaklingar fái notið fram-
taks síns og verið reiðubúnir að
forsvara sjálfa sig og okkur sem
þjóð.
Vanmætti núverandi stjórn-
valda til að takast á við ný og
knýjandi verkefni er uggvekj-
andi. Misvitrar ákvarðanir í sam-
göngum; skammsýni í orku- og
stóriðjumálum; hálfkák í efna-
hagsmálum og handaskol varð-
andi uppbyggingu atvinnulífsins
— sem meðal annars kippir
fótunum undan húsnæði í einka-
eign — þetta ásamt öðru orsakar
að æ fleiri velta því fyrir sér,
hvort betra sé að búa annars
staðar. Við eigum á hættu að
missa frá okkur margt af okkar
dugmesta og útsjónarsamasta
fólki, mesta verðmæti hverrar
þjóðar."
Um horfur í flokksmálum sagði
Björg:
„Sjálfstæðisflokkurinn er
stærsta fjöldahreyfing hér á
landi og innan vébanda hans er
rúm fyrir alla sem hafa lýðræðis-
hugsjónina í heiðri og virða þær
leikreglur, sem menn koma sér
saman um.
Sú staðreynd, að flokkurinn
gekk ekki heill til seinustu kosn-
inga og að nokkrir úr framvarð-
arsveit hans gengu til stjórnar-
starfs með öðrum, án þess að
hafa að baki flokkslegan styrk —
er trúnaðarbrestur, sem kom
Björg Einarsdóttir
mörgum sjálfstæðismönnum í
opna skjöldu.
Þetta hefur leitt til þess, að
fjöldi sjálfstæðismanna endur-
metur nú afstöðu sína til Sjálf-
stæðisflokksins, glöggvar sig á
þeirri stefnu sem þeir hafa at-
hyllst og hvað hún hafi fram yfir
aðrar. I þessu er fólgin skírsla og
endurnýjun fyrir alla, sem hlut
eiga að máli.“
— En hvað með þróun mála í
Sjálfstæðisflokknum í Reykja-
vík?
„Reykjavík er fjölmennasta
kjördæmi landsins og ekkert get-
ur sagt til um stöðu stjórnmála-
flokks þar annað en fjöldi at-
kvæða í kosningum.
íslensk stjórnmál lúta lögmál-
um nágrennis og persónulegra
tengsla milli manna. Þess vegna
er sú hætta ævinlega fyrir hendi í
flokksstarfi, að afstaða til manna
yfirgnæfi afstöðuna til málefna.
Forystumenn í stjórnmála-
flokki persónugera ákveðinn mál-
stað og barátta fyrir málefni
getur af þeim sökum yfirfærst á
þá sem einstaklinga.
Starfið í flokksfélögunum hef-
ur á margan hátt orðið viðkvæm-
ara að undanförnu, vegna þess að
einstaka menn í forystusveit
flokksins hafa ekki átt samleið.
Mér hefur virst að undanförnu
öll almenn umræða hafa verið
opnari og margir gefa sig í Ijós
sem sjálfstæðismenn, án þess að
vera virkir í flokksstarfi.
Margt í samtölum við fólk
hefur fært mér heim sanninn um
að fylgismenn sjálfstæðistefn-
unnar vilja, framvegis sem
hingað til, hafa stöðugleika og
jafna framvindu í málefnum
flokks síns. Hvort heldur er um
að ræða framkvæmdir mála eða
menn í forystu til að framfylgja
þeim.“
Vestfiröingum
veitir ekki af
fleiri þing-
mönnum
„Það sem er efst á baugi á
Vestfjörðum eru náttúrulega at-
Hildur Einarsdóttir
vinnumálin," sagði Hildur Ein-
arsdóttir frá Bolungarvík ný-
kjörinn formaður Sjálfstæðis-
kvennafélagsins Þuríðar Sunda-
fyllis.
„Það vantar fjölbreyttari at-
vinnurekstur en nú byggist at-
vinna mest á fiskiðnaði. Við
höfum þó verið það vel sett að
við þekkjum ekki atvinnuleysi.
Kjördæmamálið skiptir okkur
líka miklu. Ég geri ráð fyrir því
að við munum ekki gera stórar
kröfur því við gerum okkur, að
ég held, grein fyrir mismuni á
gildi atkvæða þótt við viljum
halda okkar. Við teljum að
landsbyggðinni sé svo mikið mis-
munað að okkur veiti ekki af að
hafa fleiri þingmenn.
Höfnin hefur gert okkur Bol-
víkingum erfitt fyrir en hún
hefur verið í byggingu síðan
1911. Það er fyrst nú að hún er
að komast í viðunandi horf.
Þá er vegurinn okkur mikils
virði og mætti gera meira fyrir
hann. Það er oft þungt í sjóinn
og verða Bolvíkingar innilokaðir
ef vegurinn lokast.
Sem kvenfélagskona langar
mig einnig til að minnast á það
að konur taka engan veginn
nægilegan þátt í stjórnun mála á
Vestfjörðum."
— Hvað landsmálin varðaði
sagði Hildur, að orkumál væru
kannski það helsta sem snerti
Bolvíkinga.
„Hjá okkur er engin hitaveita
og er kyndingarkostnaður mikill.
Mér finnst að gæðum landsins
ætti að skipta jafnt. Það sækja
allir á okkar fiskimið og raforka
mætti kannski koma þar á
móti.“
Að lokum var Hildur spurð
álits á þróun mála innan Sjálf-
stæðisflokksins.
„Ég býst við að ég sé ein af
þeim sem finnst miður hvernig
komið er í forystumálum okkar.
Það eyðileggur fyrir flokknum,
slíkt er óhjákvæmiiegt eins og
málin standa í dag.
Ég er ekki hlynnt þeirri ríkis-
stjórn sem nú situr. Ég hefði
fremur kosið utanþingsstjórn í
skamman tíma en þá stjórn sem
nú situr.“
+
Ég þakka innilega samúö og vinsemd vegna fráfalls
GUOBRANDURJÖRUNDSSONAR
fró Valni.
Hugheilar þakkir færi ég starfsfólki Hjartadeildar Landspítalans og
bankastjórn og ööru starfsfólki Búnaöarbanka íslands.
ingiríöur E. Ólafsdóttir.