Morgunblaðið - 04.12.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESDMBER 1980
27
/
því að breyta Kópavogi á nokkrum
árum úr sveitabyggð í stærsta
kaupstað landsins.
Þegar Kársnesskóli tók til
starfa 1957, var Gunnar ráðinn
skólastjóri hans. Það var eitt af
gæfusporunum í sögu skólamála í
Kópavogi. Á fyrstu árum Kársnes-
skóla og raunar miklu lengur, var
mikil fjölgun íbúða í Kópavogi.
Kársnesskóli var lengst af yfir-
fullur af nemendum, þrísett var í
allar kennslustofur og bygginga-
framkvæmdir oftast á eftir áætl-
un. Vinnuaðstaða í skólanum var
því ekki alltaf upp á það besta
fyrir nemendur og kennara.
En Gunnar stjórnaði skólanum
af röggsemi og festu, en var samt
lipur og léttur í lund og réð fram
úr hverjum vanda. Gunnar var
glaðvær að eðlisfari og félagslynd-
ur og hrókur alls fagnaðar í vina
hópi og höfðingi heim að sækja.
Hann tók virkan þátt í margs
konar félagsstarfi í kaupstaðnum.
Gunnar var greindur maður,
traustur, hjálpsamur og vinur
vina sinna, sannkallaður heiðurs-
maður.
Fráfall hans er mikið áfall fyrir
vandamenn hans og vini og starfs-
fólk og nemendur Kársnesskóla.
Við í Kársnesskóla kveðjum nú
Gunnar skólastjóra hinstu kveðju
og þökkum honum samstarfið og
samfylgdina á liðnum árum.
Rannveigu, dætrum og ættingj-
um öllum sendum við einlægar
samúðarkveðjur.
Þórir Hallgrímsson
í dag kveðjum við skólabróður
okkar og vin, Gunnar Guðmunds-
son, skólastjóra.
Þegar komið er að leiðarlokum
bregður minningum af kynnum
við góða samferðamenn fyrir, eins
og leiftrum sem lýsa upp hvers-
dagslega tilveru okkar, og bregða
birtu yfir farinn veg.
Því miður er okkur mörgum
þannig farið að okkur hættir til að
gleyma því hve örstutt ævin er, og
fyrr en varir er dagur að kvöldi
kominn og kveðjustundin runnin
upp.
Við minnumst þess skólasyst-
kini Gunnars er við á vordögum
1949 fengum afhent kennaraprófs-
skírteini okkar frá Handíða- og
myndlistaskólanum við hátíðlega
athöfn á vorsýningu skólans í
gamla Listamannaskálanum.
Stærsti kennarahópur sem sá
skóli hefur útskrifað var að ljúka
námi og kveðja, góðum áfanga
höfðum við náð. Skólavistin hafði
verið okkur lærdómsrík og
ánægjuleg á allan hátt og tíminn
liðið alltof hratt við skemmtilegt
nám og í góðum félagsskap skóla-
systkina og kennara okkar.
Sem í sjónhending hafa árin
liðið. Við fráfall Gunnars Guð-
mundsonar er staldrað við. Bjart-
ar minningar um góðan dreng
koma upp í hugann. í skólanum
var Gunnar sá okkar sem oftast
hafði frumkvæði að félagslegu
starfi innan skólans. Hann var
okkar reyndastur á því sviði, hafði
áður en hann kom í smíðakenn-
aradeild Handíðaskólans lokið al-
mennu kennaraprófi frá Kennara-
skólanum og starfað við kennslu í
nokkur ár. Gunnar var glaðlynd-
ur, félagslyndur og traustur.
Hann var ósérhlífinn og þær
stundir voru ekki taldar sem hann
vann að félagsstörfum í skólanum.
Félagslíf nemenda var mikið og
skemmtilegt og átti Gunnar þar
stóran hlut að máli.
Eftir kennarapróf dreifðist hóp-
urinn um allt land, meginhluti
hans hefur þó starfað hér á
höfuðborgarsvæðinu.
Gunnar snéri sér strax aftur að
kennarastörfum haustið 1949 og
starfaði á þeim vettvangi þar til
yfir lauk.
Það kom okkur skólasystkinum
hans ekki á óvart að hann valdist
til ábyrgðar- og virðingarstarfa á
vettvangi skólamála og margskon-
ar félagsmála. Slíkir voru augljós-
ir mannkostir hans. Ekki verður
mikil og gifturík starfssaga hans
rakin hér, aðrir munu greina frá
henni, bæði á sviði fræðslumála og
félagsmála.
Gunnar var maður trygglyndur
og vinafastur og ekki gleymdi
hann skólasystkinunum úr Hand-
íðaskólanum. Hann hafði frum-
kvæði að því að þau héldu sam-
bandi sín á milli og fylgdist vel
með þeim öllum. Vorið 1979 á 30
ára kennaraafmæli okkar var það
hann sem enn hafði frumkvæði að
því að hópurinn hittist. Þá sinntu
flestir skólafélagar kallinu og áttu
saman góða stund þar sem rifjað-
ar voru upp gamlar minningar og
greint frá ýmsu sem á dagana
hafði drifið.
Að heilsast og kveðjast það er
lífsins saga. Stundum kemur
kveðjustundin snöggt og óvænt, en
fyrir kemur að menn renni grun í
að samvistardögunum fari að
fækka.
Gunnar Guðmundsson hafði
ekki gengið heill til skógar í mörg
undanfarin ár, það vissum við. En
hetjulund hans og æðruleysi var
slíkt að einsdæmi er. í fari hans
ríkti ætíð bjartsýni og jákvæð
afstaða til allra góðra hluta.
Komið er að ferðalokum. Við
þökkum samfylgd, vináttu og
tryggð okkur sýnda.
Við sendum eiginkonu Gunnars,
Rannveigu Sigurðardóttur, inni-
legar samúðarkveðjur. Rannveig
var skólasystir okkar í Handíða-
skólanum og þar kynntust þau
Gunnar.
í blíðu og stríðu hefur hún
staðið við hlið manns síns og
hjónaband þeirra verið einstak-
lega farsælt og traust. Á Rann-
veigu hefur mikið reynt í veikind-
um Gunnars og hún ætíð verið
honum sú styrka stoð sem aldrei
brást. Dætrum þeirra, Guðrúnu
Elísabetu og Sigurborgu, flytjum
við samúðarkveðjur svo og aldr-
aðri tengdamóður Gunnars,
bræðrum hans og öðrum ættingj-
um.
Megi minning um góðan dreng
veita ykkur styrk á sorgarstundu.
Þórir Sigurðsson
ATHYGLI skai vakin á því, að
afmælis- og minningargrcinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í
siðasta lagi fyrir hádcgi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi. Þess skal einnig getið
af marggefnu tilefni að frum-
ort ljóð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunbiaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu linubili.
WÐn -
• • W Klmlr
STOjDVUN
Á PH1I1PS
UTSIONVARPS-
TJEKJUM!
Staðgreiðsluverð
16‘
20‘
22‘
26“
14“ Kr. 591.150- Nýkr. 5.911,50
Kr. 643.910.- Nýkr. 6.439,10
Kr. 720.700.- Nýkr. 7.207,00
Kr. 995.600.- Nýkr. 9.956,00
Kr. 948.575.- Nýkr. 9.485,75
PHILIPS
...mestsekla
sjónvarpstækið
íEvrópu.
m
heimilistæki hf
HAFNAftSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTUN 8 — 15655
Fimmtudags
Á fimmtudagskvöldum frá kl. 18:30
bjóðum við veislumat úr stærsta aski
landsins.
Matsveinninn sker niður kjötið og hið
girnilega úrval veislurétta stenst enginn.
Gerið ykkur dagamun á ASKl.
veislukvöld
Veislumatur úr
stærsta aski landsins
ASK.UR
Laugavegi 28