Morgunblaðið - 04.12.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTIJDAGUR 4. DESEMBER 1980
29
Helgi fer í göngur
Barnasaga dansks höfund-
ar sem gerist á íslandi
ALMENNA bókafélagið hefur
sent frá sér nýja barnabók eftir
danska teiknarann or barna-
bókahöfundinn víðkunna Svend
Otto S. Þessi gerist á íslandi og
heitir HELGI FER í GÖNGUR.
Bókin er kynnt þannig á kápu:
.. Árið 1979 gaf AB út eftir
hann (Svend Otto S.) barnabókina
Mads og Milalik, sögu frá Græn-
landi, og hlaut hún miklar vin-
sældir hinna ungu lesenda hér
sem annars staðar. Síðastliðið
sumar dvaldist Svend Otto S. um
tíma á Islandi (á Silfrastöðum í
Skagafirði), og birtist nú sú
barnabók sem til varð í þeirri ferð.
Svend Otto S. er mikill náttúru-
og dýraunnandi eins og vel kemur
fram í bókinni um Helga, skag-
firska strákinn, sem lendir í
ævintýrum í göngunum ...“
Því má bæta við, að þessi
barnabók um ísland hefur á þessu
ári verið gefin út á mörgum
tungum Evrópu og verður hún góð
íslandskynning meðal ungra les-
enda víðsvegar.
Bókin er íslenskuð af Sigrúnu
Ástríði Eiríksdóttur. Hún er sett í
Prentsmiðjunni Odda og prentuð í
Danmörku.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför bróöur
okkar,
HALLDORS SIQMUNDSSONAR,
Grettisgötu 79.
Sólveig Sigmundsdóttír,
Sigurjón Sigmundsson,
Vilborg Sigmundsdóttir.
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og
hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar og móöur okkar,
HÓLMFRÍÐAR JÓNSDÓTTUR,
Óskar Frímannsson
og börn
t
Þökkum af alhug auösýnda samúö og alla hjálp veitta í veikindum
og útför
PÁLS STEINSSONAR,
Háteigsvegi 11,
Guö blessi ykkur öll.
María Jónsdóttir, Guófinna Steinsdóttir,
Guómundur Steinsson, Sigurgeir Steinsson.
Mikið úrval af „Peysufötum“, Combi-fatnaði og Tweed- og
flanneslfötum frá Kóróna og Van Gils.
' ■ - '■ ■ ^
.. .
7.123
Bankastræti 7 og Aðalstræti 4
SKUGGSJÁ
BÓKABÚÐ OUVERS STEINS SE
Þetta er einstök bók um lífsspeki eftir hinn mikla frömuð rannsókna á yfirskil-
vitlegum fyrirbærum, höfund bókanna DULARMÖGN HUGANS,
LÆKNINGAMÁTTUR ÞINN og AÐ SIGRA ÓTTANN. — Þeir sem glata trúnni lifa í
ótta og óvissu um framtíðina, þá skortir öryggi. En er mögulegt að endurheimta
það, sem glatazt hefur? Og hvernig vita menn hverju þeir mega trúa? Þessi bók er
hreinskilið, presónulegt svar Harold Sherman við þessum hrennandi spurningum.
Frá örófi alda hafa draumar og vökusýnir fylgt mannkyninu. Draumurinn er
margslungið ævintýri, sem menn ráða á ýmsa vegu, jafnvel hefur hver ráðandi sína
eigin lausn, sinn eigin lykil að leyndardóminum.
Hér segir fjöldi kunnra manna frá'draumum sínum og vökusýnum. Hver segir frá
á sinn sérstæða hátt, en sem heild mynda frásagnir þeirra óvenjulega og forvitnilega
hók, sem stór hópur lesenda mun fagna.
HVERJU MÁ ÉG TRÚA? eftir
Harold Sherman
SÝNIR í SVEFNI OG VÖKU eftir Halldór Pjetursson
HÉRERBÓKIN!