Morgunblaðið - 10.12.1980, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.12.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1980 7 Þakklœti Skyldfólki mínu og venzlafólki, ásamt starfs- mönnum og öörum vinum sem mundu mig hálf-áttræöan sendi ég mínar hjartans þakkir. Mngnús Hannesson. Encyclopædia Britannica IS.útgáfa Brítanniea 3 Þrefalt alfræölsafn I þrjátlu blndum Lykill þinn að framtíðinni Orðabókaútgáfan A uÖhrckku 15. 200 Kópavogi, sími 40557 Hesthús — Unglingar í Kópavogi Getum gefiö nokkrum unglingum kost á að hafa hesta í vetur í sameignarhesthúsi Gusts og Tómstundaráðs. Nánari uppl. á félagsmálastofn- uninni, Álfhólsvegi 32, sími 41570. Tómstundarráö Kópavogs. Ráöherra sem vill loka vinnustað 700 manna og skerða þjóðartekjur og lífskjaragrundvöll sem nemur verðmætasköpun í álverinu við Straumsvík. Sósíalismi: minna frelsi — lakari lífskjör í gjörvallri A-Evrópu og fjölda ríkja í Afríku og Asíu hefur sósíalisminn feng- ið reynsluprófun. Niðurstaðan er hvar- vetna sú sama: Minni verðmætasköpun á hvern þjóðfélagsþegn (og þar meö lakarí lífskjör) en í V-Evrópu og N-Ameríku. Frelsi einstaklinga til at- hafna og skoðana og félagafrelsi, þar á meðal launþegafélaga, er og annað og verulega minna í ríkjum sósíalismans en á Vesturlöndum. Lokun álversins, sem iðnaöarráðherra predikar, myndi sennilega hvorki auka verömætasköp- un í þjóöarbúskapnum né treysta at- vinnuöryggið. Austur-þýzkur bakgrunn- ur lífsviöhorfs lætur ekki að sér hæða. Vegið að nátttröllum Þjóðviljinn birtir í Kær viðtal við Hrafnkel A. Jónsson. Eskifirði, sem gagnrýndi „at- vinnumálastefnu Al- þýðubandalagsins" á landsfundi þess. Ilann segir i viðtalinu: „Er ekki raunhæft að ætla að örtölvubyltingin leysi af hólmi verulegt vinnuafl i þjónustu- greinum og fiskiðnaði. Og svo kemur auk þess til það unga fólk, sem árlega bætist á vinnu- markaðinn. Hvað á að verða um þetta fóik? ... Ég sé ekki betur en við þurfum á að halda nýj- um atvinnugreinum. Kemur manni þá helzt í hug orkufrekur iðnaður. Ég óttast hann ekki en auðvitað kemur ekki til greina að gleypa við hverju sem er. Hér þarf að vega og meta hvert einstakt mál". Hér er hóflega orðuð en engu að síður hörð gagnrýni á þau nátttröll Alþýðubandalagsins sem ráða ferð í orku- ráðuneytinu og standa sem Þrándur í Götu æskilegrar sóknar til bættra lifskjara um stór- virkjanir og orkufrekan útflutningsiðnað. Þá segir Hrafnkell: „Mér sýnist það einnig öfugþróun að stækka si- fellt fiskiskipaflotann þótt flestum komi saman um að hann sé þegar of stór. En á hinn bóginn er haldið aftur af tækni- búnaði i fiskiðnaði." Hér er enn hnippt í „stjórn- arstefnuna" ef nokkuð slíkt er þá til staðar I samhæfingu fiskveiði- sóknar og veiðiþoli nytjafiska okkar. Enn segir Hrafnkell: „En þrátt fyrir þetta hefur stjórnarþátttakan skapað hjá mér nokkrar efasemdir um hvort verkalýðshreyfingin eigi að vera mjög tengd stjórnmálaflokkunum. Ég er ekki viss um að það sé allskostar heilla- vænlegt að hún byggi baráttu sina á mjög flokkspólitiskum grunni." Þetta segir maður sem þekkir gjörla til þess, hvern veg Al- þýðubandalagið hefur reynt að gera launþega- hreyfinguna að drátt- arklár fyrir flokkspóli- tískum vagni sínum. Öðru vísi sósíalismi!!! Atburðarásin í Pól- landi hefur vakið á ný hugleiðingar um, að framkvæmd sósialisma hefur hvarvetna fallið í sama jarðveg: í Sovét- rikjunum. í öllum rikj- um A-Evrópu, i fjöl- mörgum ríkjum Afriku og Asiu, að ógleymdri Kúbu. Verðmætasköpun á hvern þjóðfélagsþegn í rikjum sósíalismans (og þjóðartekjur eru undir- staða lifskjara þegn- anna í hverju ríki) er aðeins brot af því sem gengur og gerist í vest- rænum lýðra-ðisrikjum. Frelsi einstaklinga og félagasamtaka. þar á meðal verkalýðsfélaga. er og nánast ekki neitt. hvorki til sjálfstæðs starfs, atvinnurekstrar, skoðanamyndunar né skoðanatjáningar. Einn- ig þar eru hin borgara- legu þjóðfélög langt á undan ríkjum sósialism- ans. Borgaralcgt þjóð- skipulag er engan veg- inn gallalaust. En það hefur þann höfuðkost að geta þróazt frá ann- mörkum sinum til meiri fullkomnunar á friðsam- an og lýðrasðislegan máta. fyrir meirihluta- áhrif almennings i frjálsum. leynilegum kosningum. Slik al- mannaáhrif rúmast ekki innan hagkerfis og þjóð- félagsgerðar sósialism- ans eins og dæmin sanna. Atburðirnir i Póllandi eru að vísu ljós punktur en framhald hliðstæðrar tilraunar i Tékkóslóvakiu á sínum tima gefur naumast til- efni til nema hóflegrar hjartsýni. Dómur reynslunnar af framkva-md sósialisma i mörgum tugum ríkja og a.m.k. fjórum heimsálf- um (ef Kúba er meðtal- in) er einn og hinn sami: faíleinkunn. bæði hvað varðar frelsi fólks og lifskjör. Hvarvetna sem talmenn sósíalisma bera skoðanir sínar á torg i heiminum boða þeir „öðruvísi sósíalisma", enginn vill viðurkcnna „framkvæmdina" ann- arsstaðar scm sina, þó öll reynsluda-min séu í aðalatriðum eins. Þann- ig viðurkenna þessir talsmenn i raun að sósia- lisminn hefur /ívarveína mistekizt. Þó er full- trúum heimskommún- ismans. menntuðum austan tjalds. hossað upp i ráðherrastóla á íslandi. Þar boða þeir lokun eins stærsta vinnustaðar í þjóðarbú- skapnum. væntanlega til að tryggja verðma'ta- sköpun i þjóðarbúskapn- um. undirstöðu lifskjar- anna. og framtíðarat- vinnuöryggi vaxandi þjttðar! Einnig hérlendis falla hin skemmdu reynslueplin af fúnum meiði þeirrar 19. aldar kenningar, sem kennd er við Marx en útfærð af Lenin. Tónmenntir L — Ö komin út ÚT ER komin Tónmenntir 1—ö eftir Hallgrím Helgason. Þetta er 12. bindi í Alfræðum Menningarsjóðs og seinni hluti þessa rits, en hinn fyrri (Tón- menntir a—k) kom út 1977. — Tónmenntir I — II fjalla um fag- heiti og hugtök tónmennta undir uppflettiorðum í stafrófsröð líkt og önnur rit' í flokki þessum. Höfundurinn, dr. Hallgrímur Helgason tónskáld, hefur ritað mikið um þessi efni. Hann gerir ítarlega grein fyrir verkefni sínu og vinnubrögðum í inngangsorð- um beggja bindanna. Tónmenntir 1—ö eru 317 bls. að stærð og bókin sett og offsetprent- uð í Odda en bundin í Sveinabók- bandinu. Hún er prýdd fjölda mynda og teikninga. Rit í bókaflokki þessum, auk Tónmennta I —II, eru: Hannes Pétursson: Bókmenntir, Ólafur Björnsson: Hagfræði, Einar Lax- ness: íslandssaga I —II. Hannes Pétursson og Helgi Sæmundsson: íslenskt skáldatal I —II, Ingimar Jónsson: íþróttir I —II, Guðsteinn Þengilsson: Læknisfræði, Þor- steinn Sæmundsson: Stjörnufræði — Rímfræði. Jótabækurnar (og úrval eldri bóka). Jólakort og frímerki (póstkassí er í búöinni). Jólapappír. Jólakerti og jólaskraut. Jólagjafavörur. Leikföng m.a.: Barble og Cindy, FJscher-Price, Matchbox og Aurora, bílabrautir, Corgy, Kiddycraft, Bambola og Play- mobil. BÓKABÚÐIN EMBLA Wmmm ■ W ■ WLmJr wmm m m j Feilagöröum, (Völvufelli 21). Sími 76366.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.