Morgunblaðið - 10.12.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.12.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1980 Sovézkum neitað um pólitískt hæli _ Canberra. Ástralíu. 9. des. — AP. ÁSTRALSKA ríkisstjórnin hefur neitað að veita ptilitískt hæli sovézkum sjómanni sem strauk af skipi sínu í Sydney aðfaranótt þriðjudags. Sagði talsmaður utanríkisráðuneytisins, að mað- Urinn „uppfyllti ekki þau skil- yrði sem ástralska stjórnin setti fyrir þvi að hann fengi pólitískt hæli“. Maðurinn var annar stýri- maður á flutningaskipinu Novo- polotsk, sem átti að fara frá Syndey 1 dag. ___________ Adolfo Suarez Suarez í fyrstu heim sókn í Baskalandi Listræningjar stálu listaverkum Papju Q /ipú __ A p INNBROTSÞJÓFAR höfðu á brott með sér fimm verðmæt málverk, þar á meðal eitt eftir Van Gogh og Matinnes og eitt eftir Picasso, úr íbúð fransks iðjuhölds, Daniel Leclery um helgina, en ekki var skýrt frá þjófnaðinum fyrr en í dag. Ekki hefur verið látið upp- skátt um verðmæti mál- verkanna. Málverk þessi voru sögð hin verðmætustu úr safni Leclerys og segir lögreglan að augsýnilega hafi atvinnubófar verið að verki. Vitoria, Baskalandi. 9. des. — AP. ADOLFO Suarez, forsætisráðherra Spánar, kom í fyrstu opinberu heimsókn sína til Vitoria. höfuð- borgar Baskalands á Norður-Spáni í dag og voru gríðarlegar öryggis- ráðstafanir hvarvetna, þar sem mikill ótti var meðal lögreglu og hers svo og embættismanna við að hermdarverkasamtökin ETA myndu láta að sér kveða. Forsætis- ráðherra heimastjórnar Baska- lands. Carlos Garaicocchea, tók á móti honum og Suarez sagði I ávarpi sinu að þetta væri ákaflega þýðingarmikil heimsókn. Suarez mun dveljast í Baskalandi í þrjá daga og ferðast um allt landið og verður öflugur vörður hvar sem hann fer. Síðasta hryðjuverkið í Baskalandi var framið sl. laugardag, er kráareigandi nokkur skammt frá San Sebastian var skotinn til bana. Hafa nú á þessu ári 124 menn, þar á meðal hermenn og lögreglumenn, verið myrtir á Spáni, þar af lang- flestir í Baskalandi. Gjöfin 'sem gleður Kodak EKTRA vasamyndavél með handfangi KodakEKTRA vasamyndavélarnar eru í tösku, sem myndar handfang þegar hún opnast. Þú nærð þannig trausti taki á vélinni og hún verður stöðugri og þú tekur betri og skarpari myndir. Skemmtileg gjöf sem á eftir aó veita ómældar ánægjustundir. Verð frá kr. 27.000 - 44.460. UMBOÐSMENN UM ALLT LAND HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI S: 20313 AUSTURVER S: 36161 GLÆSIBÆR S:82590 Viðbrögðin víða um heim einkenn * „Eg skil þetta ekki, ég get ekki skilið þetta“ — sagði Paul McCartney um morð- ið á John Lennon London, 9. des. — AP. „ÉG skil þetta ekki, ég get bara ekki skilið þetta,“ sagði Paul McCartney i dag niðurbrotinn vegna fréttanna um morðið á John Lennon. Paul, sem ásamt Lennon samdi fegurstu söngva Bítlanna, var greinilega í miklu uppnámi þegar hann hélt af stað til sveitaseturs síns í Sussex. „John var stórkostlegur félagi, hans mun verða saknað um allan heim," sagði Paul við fréttamenn, fölur og tekinn í andliti, og haft var eftir talsmanni hans, að hann hefði orðið fyrir „miklu andlegu áfalli" vegna dauða fyrrverandi félaga síns, sem hefði ásamt honum samið mörg ógleymanlegustu lög Bítl- anna, eins og t.d. „Yesterday" og „Eleanor Rigby“. Ringo Starr, sá þriðji Bítlanna, var í fríi þegar honum bárust tíðindin, en hélt þá samstundis til New York. Talsmaður hljómplötu- fyrirtækis hans sagði, að „Ringo er ákaflega dapur en vill ekkert láta eftir sér hafa á þessari stundu". George Harrison, fjórði meðlim- ur hljómsveitarinnar, sem olli bylt- ingu í dægurlagaheiminum á sjöunda áratugnum, var sagður vera ákaflega langt niðri og að hann hefði hætt við eða slegið á frest öllum fyrri fyrirætlunum sínum. Cynthia, fyrri kona John Lenn- ons, sagði við fréttamenn í dag, að hún væri harmi slegin vegna hins skyndilega fráfalls Lennons. „Mér hefur alltaf þótt ákaflega vænt um hann þrátt fyrir skilnaðinn og lagt mig fram um að samband hans og sonar okkar, Julians, væri sem best. Julian ætlaði að hitta föður sinn skömmu eftir jól, en nú vitum við ekki hvað verður," sagði Cynth- ia. Alan Williams, fyrsti umboðs- maður Bítlanna, sagði, að það væri „undarlegt og dapurlegt“, að þrír menn, sem komið hefðu við sögu Bítlanna, væru nú látnir: Stuart Sutcliffe, sem var í upphaflegu hljómsveitinni en hætti og lést skömmu síðar úr heilablæðingu, aðeins 21 árs að aldri; annar umboðsmaður Bítlanna, Brian Epstein, sem framdi sjálfsmorð, og nú John Lennon. Viðbrögðin við dauða John Lenn- ons meðal almennings í Englandi einkennast af undrun og jafnframt af skömm á New York-borg. „Hann McCartney heyrir tíðindin um dauða Lennons. Myndin var tekin þegar McCartney hélt frá heimili sínu eftir að honum hafði verið sögð fréttin um lát Lennons. McCartney mátti vart mæla fyrir geðshræringu og allt sem hann sagði var: „Ég skil þetta ekki. John var stórkostlegur félagi. Hans mun verða saknað um allan heim.“ AP-simamynd. sagði oft, að hann myndi láta lífið á voveiflegan hátt,“ sagði vegfarandi í London við fréttamann. „Þetta er vissulega mikið áfall, en eins og ástandið er í heiminum, og sér- staklega í New York, er kannski engin ástæða til að vera hissa." Viðbrögðin víða um heim við dauða John Lennons einkennast öll af hryggð og söknuði, bæði í austri og vestri. í mörgum útvarpsstöðv- um voru lögin hans leikin án afláts og mikil eftirspurn var strax eftir hljómplötum Bítlanna og þeim, sem hann gaf út upp á eigin spýtur. í ríkjum Austur-Evropu jafnt sem um allan hinn frjálsa heim hefur hans verið minnst sem eins fremsta dægurlagahöfundar okkar tíma og mikils listamanns. í Liverpool, heimabæ Bítlanna, hafa ráðamenn borgarinnar á prjónunum að minnast John Lenn- ons og er einkum um það rætt að skíra einhvern skólann í höfuð honum. Mörgum finnst það þó kaldhæðni örlaganna, að á meðan John Lennon var á lífi vildu sömu menn ekki heyra á það minnst, að reist væri stytta af Bítlunum í borginni. Lögrcglumenn sjást hér flytja mann að nafni Mark David Chapman til aóalstöðva lögreglunnar í New York í gærmorgun. Búist er við að Chapman verði formlega ákærður fyrir að hafa myrt John Lennon í fyrrinótt. AP-símamynd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.