Morgunblaðið - 10.12.1980, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.12.1980, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1980 Vestan úr Fjörðum Gils GuAmundsson: Frá yztu nesjum Fyrsta bindi Önnur útgáfa aukin Skuggsjá Hafnarfirði 1980 Gils Guðmundsson lét frá sér fara á árunum 1942—1953 sex hefti undir nafninu Frá yztu nesjum. Þau höfðu að flytja ýmsar sagnir og annan þjóðlegan fróð- leik, en einnig þætti úr vestfirzku atvinnulífi. Þessi hefti urðu mjög vinsæl, enda Gils góður skrásetj- ari og sögumaður, og eru heftin löngu uppseld. Svo er þá komið út fyrsta bindið af nýrri útgáfu heftanna, og hefur það að geyma efni tveggja, nokkuð aukið og endurbætt. Höfundur skýrir svo frá því, að hin fjögur hefti verði gefin út á næstu árum í tveimur bindum. I þessu bindi eru tvær forvitni- legar frásagnir úr atvinnulífinu á Vestfjörðum á seinasta áratug 19. aldar og þeim fyrsta þessarar aldar. Þá reistu Norðmenn hvorki fleiri né færri en sex hvalveiði- stöðvar á Vestfjörðum, veittu þar fjölmörgum atvinnu, en voru að því leyti skaðvaldar, að þeir svo til eyddu hvalastofni þeim, sem hafð- ist við á svæðinu frá Látrabjargi og norður að Tjörnesi. Var at- vinnurekstur þeirra svo stórbrot- inn, að þeir urðu ekki aðeins að fá fólk til vinnu víðsvegar af Islandi, heldur urðu þeir líka að flytja inn norska og sænska verkamenn. Þá gerðist það um svipað leyti, að um það bil 20 seglskip frá Gloucester í Bandarikjunum lögðu stund á lúðuveiðar út af Vestfjörðum, höfðu bækiðstöð á Þingeyri og réðu á skipin allmarga Islendinga. Þegar þeir hættu þessum veiðum, var þannig komið, að stórlúðu hafði fækkað svo á miðunum, að ekki þótti borga sig að senda lengur skip til veiða yfir Atlants- hafið. Gils segir í löngum, skemmti- legum og fróðlegum þætti frá athöfnum Hans Ellefsens, sem reisti vinnslustöð og fleiri hús á Sólbakka innan við Flateyri í önundarfirði og gerði þaðan út á Bókmenntir eftir GUÐMUND G. HAGALÍN hvalveiðar í hálfan annan áratug. Ber Gils Ellefsen vel söguna, en ritar í efnissamhengi við hana kafla, sem heita Ryskingar á sjó og Óspektasumarið 1897. Þá er ágætur þáttur frá sprökuveiðum Kananna, eins og þeir voru kallað- ir vestra. Er þar sögumaðurinn Þorvaldur Þorvaldsson, bóndi á Efstabóli í Önundarfirði. Hann var háseti á fjórum amerískum skútum, fyrst hjá hinum fransk- ættaða aflamanni Diego. Margt hef ég heyrt um þessar veiðar og Gils Guðmundsson um háttsemi Kananna, og marga hitti ég á bernskuárum mínum, sem hófu frásagnir, sem byrjuðu þannig: „Þegar ég var með Kön- um.“ Var stundum ærið róstusamt á Þingeyri, þá er skipin leituðu þar hafnar. Frásögn Þorvalds fjallar fyrst og fremst um það, hvernig veiðunum var háttað. Hann var maður fílefldur, enda sóttust Kanarnir fyrst og fremst eftir sterkum mönnum, þar eð þeir stunduðu veiðarnar á doríum, sem lögðu línu oft á miklu dýpi. Merkur þáttur er í þessu bindi af Holtsprestum, og skemmtilegur er þátturinn af Matthíasi As- geirssyni frá Holti, en honum var flest vel gefið, svo sem fleiri af þeirri ætt, og er þar sjálfgert að skírskota til Jóns forseta Sigurðs- sonar. Þá tel ég vert að geta þáttarins Mannskaðaveðrið mikla í Önundarfirði 1812, en þá fórust 52 menn, flestir Önfirðingar. Læt ég svo lokið umsögn minni um þetta bindi ritsins Frá yztu nesjum, þó að sleppt sé hér að minnast á ýmsa forvitnilega kafla, þar á meðal fleiri en einn, sem Gils hefur fengið ágæta fræði- menn til að rita. En það vil ég leggja áherzlu á, að þessi bók svíkur engan, sem hana kaupir og les. Endurminningin merlar æ ... Mánasilfur Safn endurminninga II Gils Guðmundsson valdi efnið og sá um útgáfuna Iðunn, Reykjavik 1980 Gils Guðmundsson var lengi framkvæmdastjóri bókaútgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvinafé- lagsins og gerði þar margt vel. Hann lét og frá sér fara hvorki meira né minna en sex hefti af vestfirzkum þjóðlegum fróðleik, sem hann hafði að mestu ritað sjálfur, en einnig fengið aðra til að skrifa. En hann sinnti og stjórn- málum, og þar kom, að hann varði til þeirra sem þingmaður starfs- kröftum sínum í svo ríkum mæli, að hann sá sér ekki annað fært en segja upp framkvæmdastjóra- starfinu hjá Menningarsjóði og Þjóðvinafélaginu. Síðan óx svo vegur hans á stjórnmálasviðinu, að um skeið varð hann forseti sameinaðs þings. En vissulega fagnaði ég þvi, þegar ég frétti, að hann mundi láta þingmennsku lönd og leið og væri tekinn að hyggja á ný að bókmenntum og þjóðfræðum, og ljúft var mér að fá í hendur í fyrra Mánasilfur hans, fyrsta bindi af úrvali íslenzkra endurminninga, stóra bók, prentaða á góðan papp- ír og bundna í fallegt band. í því bindi var birt úrval minninga 26 manns, 20 karla og 6 kvenna, og þótti mér vel hafa til tekizt um valið. Nú er svo komið frá honum og bókaútgáfunni Iðunni annað bindi af Mánasilfri, sem flytur efni eftir 29 höfunda, þar af 5 konur. Og von mun vera á tveimur bindum í viðbót á næstu árum. Það er fljótsagt, að i þessu bindi, sem nú er komið út, er mikil fjölbreytni í mannvali og þá einn- ig því efni, sem frá er sagt. Þarna er því saman komin margvíslegur fróðleikur um þjóðarhagi og ald- arfar, og upp er brugðið mjög skýrum mannlýsingum á fleira fólki en sögumönnunum sjálfum. Margt er, jafn hugnanlegt sem harmrænt, ritað af slíkum hagleik á mál og stíl, að það hefur ekki aðeins fróðleiksgildi, heldur á óumdeilt sæti á bekk fagurra bókmennta. Ég hafði hugsað mér Bókmenntlr eftir GUÐMUND G. HAGALÍN að benda á nokkra kafla, sem væru öðrum fremur verðir athygli og valdi fljótlega tvo af þeim fyrstu, Barnstrú, eftir Björn Sig- fússon, fyrrverandi háskólavörð, og Mannskaðaveðrið 1898, eftir Boga Ólafsson menntaskólakenn- ara um áratugi, enda eru þessir þættir, svo ólíkir sem þeir eru, báðir með ágætum ritaðir og eftirminnilegir að sama skapi. Svo kom þá eitt af öðru, sem vert væri að geta, en hvað skyldi svo nefna og hverju sleppa? Svo minntist ég tveggja mjög sérstæðra þátta aft- ast í bókinni, Bréfs í myrkri, eftir Skúla Guðjónsson frá Ljótunnar- stöðum í Strandasýslu, og frá- sagnar Sæmundar Stefánssonar, en þetta hvort tveggja hefur sína sérstöðu meðal efnis þessa bindis. Skúli skýrir þannig frá aðstæðum sínum, stríði sínu og starfsferli, að frásögn hans er líkleg til að geta breytt viðhorfum lesenda til blindra manna, bæði sem einstakl- inga og borgara þjóðfélagsins. Þá er það hin hartnær einstæða sjálfsævisaga harmkvælamanns- ins Sæmundar Stefánssonar. Hann var olnbogabarn guðs og manna frá fæðingu til grafar, en samt gæddur allt að því yfirnátt- úrlegri seiglu og herkju, sem fengu því áorkað, að þrátt fyrir allar píslir og hörmungar mun hann hafa til grafar gengið sáttur jafnt við dauðann sem lífið ... Svo duttu mér í hug konurnar, sem eiga efni í þessari bók, kem þá niður á frásögnina Bernskuheim- ili mitt, eftir hina bráðgáfuðu og sannhreinskipnu skáldkonu, Ólöfu Sigurðardóttur frá Hlöðum. Þessi ritgerð birtist í Eimreiðinni og vakti feikna athygli, þar eð hún ber jafnljóst vitni manndóma skáldkonunnar sem snilli hennar í máli og stíl. Síðan minntist ég þáttarins Úr minningablöðum, eftir skáldkonuna Huldu, og þá einkum frásagna hennar af minn- ingaslitrum frá fyrstu bernskuár- unum. Þær bera það með sér, að þar sé hvorki of né van ... Svo læt ég þar staðar numið, og læt því ógetið milli 20 og 30 frásagna, sem allar eru fróðlegar og sumar gersemar máls og stíls, og mannlýsinga, þar á meðal ein frá sjálfum Matthíasi Jochums- syni. Kirkjur og kennimenn Síra Ágúst Sigurðsson: FORN FRÆGÐARSETUR. III. 223 bls. Bókaútg. örn og örlyg- ur. Reykjavik, 1980. Þetta rit síra Ágústs Sigurðs- sonar ætlar að verða fastur liður í bókaútgáfunni. Allt er þegar þrennt er, segir máltækið. Og þrjú stór bindi er ekki svo lítið þegar öllu er á botninn hvolft. Hér með ætti að vera klárt hvaða stefnu þetta ætlar að taka hjá höfundi. Mér þótti fyrsta bindið skemmti- legt, annað bindið síðra, einkum fyrir þá sök að höfundur fór sums staðar of langt út fyrir efnið, en þetta, sem nú liggur fyrir, tel ég svo sem mitt á milli. Síra Ágúst sýnir forverum sínum verðuga ræktarsemi með þessum skrifum. Hann ber virðing fyrir kirkju sinni og metur mikils hlutverk hennar á liðnum öldum. Prests- setrið var andlegt höfuðból hverr- ar sveitar, um það er engum Bókmenntlr eftir ERLEND JÓNSSON blöðum að fletta. Það sem þar gerðist fór ekki fram hjá nágrönn- unum. Og til skamms tíma þótti ýmsum meir en lítið til þess koma að geta rakið ættir sínar til presta. Því er ekki ósennilegt að um prestaættir séu til gleggri heimildir og samfelldari ættartöl- ur en um aðrar ættir. Mér þykir ættfræðiáhuga höfundar bera hæst í þessu riti. Síra Ágúst er þegar kominn í röð meiri háttar ættfræðinga. Ég læt öðrum eftir að sannreyna þau fræði eins og hann setur þau fram í þessum bókum. Að óreyndu hef ég enga ástæðu til að efast um sannfræði ritsins. Að gefa góðar vonir Eðvarð Ingólfsson: Gegnum bernskumúrinn Skáldsaga Barnablaðið Æskan Reykjavík 1980 Saga þessi er eftir ungan menntaskólanema og er hún fyrsta bók hans og ber mörg merki þess. Sögusviðið er að mestu skóli í Reykjavík, nefndur Holtsskóli, sem er aðeins setinn af þrem efstu árgöngum grunnskólans. Aðalpersónur sögunnar eru Birgir og Ásdís nemendur í Holtsskóla. Vinir þeirra og vanda- menn koma einnig við sögu auk kennara og skólastjóra Holts- skóla. Það dylst engum sem mikið vinna með nemendum á þessum aldri að höfundur gjörþekkir þennan aldurshóp nemenda, hugs- anir þeirra og hegðun. Enda fá árin síðan hann var einn af þeim. Hann er einlægur og opinskár í frásögn sinni og segir hlutina umbúðalaust. Að mínu mati tekst Bðkmenntlr eftir JENNU JENSDÓTTUR honum mjög vel að túlka tilfinn- ingar og gerðir sögupersóna. Öll samskipti nemenda innan skóla og utan eru lifandi og raunveruleg þeim er til þekkja. Hann lýsir hinum ýmsu mann- gerðum á trúverðugan hátt. Viss hreinleiki sem í flestum tilfellum einkennir þennan aldurshóp kem- ur greinilega fram í sögunni. Nokkurs þunga gætir í garð full- orðinna sem hafa brugðist þeim grundvallarskyldum við afkvæmi sín, að ala þau upp, vernda þau og elska. Sú gagnrýni sem fram kemur í því efni á fullkomlega rétt á sér. Enda er hún ekki sett fram með orðum einum. Ógnvekjandi gerðir þessa fólks, sem sumt er hætt að ráða yfir sjálfu sér, eru ljóslifandi Ágirnd hinna ríku Graham Greene: SPRENGJUVEISLAN eða Dr. Fischer í Genf. Björn Jónsson íslenskaði. Almenna bókafélagið 1980. Ekki veit ég hvort það er rétt að til þess að njóta fyllilega skáld- sagna Grahams Greene þurfi maður að hfa starfað í utanríkis- þjónustu Breta eða vera heima í ýmsu því sem fínna fólk á Bret- landi tekur sér fyrir hendur, ekki síst því sem kenna má við úrkynj- um, sérvisku, eða öfughneigðir. Graham Greene hefur í senn samið skáldsögur sem kalla má alvarlegar bókmenntir og æsisög- ur samkvæmt þeirri bresku hefð sem virðist ódrepandi. í sumum skáldsagna sinna sameinar hann þetta tvennt: hann kemur á fram- færi boðskap sínum og hann skemmtir lesandanum prýðilega. Doktor Fischer of Geneva or the Bomb Party sem á íslensku kallast Sprengjuveislan eða Dr. Fischer í Genf er reyfaraleg saga, beisk í ádeilu sinni, jafnvel svo langt gengið í lýsingum ómennsku hjá flestum persónum sögunnar að jaðrar við mannfyrirlitningu. Sag- an er í eðli sínu fremur einföld svo að stundum undrast maður að hún skuli vera verk Greenes. En því ber ekki að neita að Graham Greene nær þeim tökum á viðfangsefni sínu að lesandinn er beygður undir söguna og les til enda hvort sem honum líkar betur eða verr. Dr. Fischer er hálfgerð ófreskja í mannslíki. Hann hefur auðgast á tannkremi sem vernda á gegn skemmdum svissnesks sælgætis. Hann hefur um sig hirð vina sem hann auðmýkir, ríkt fólk sem gerir allt fyrir peninga. Veislur heldur hann í því skyni að lítil- lækka þessa vini sína. Þegar einkadóttir hans verður fyrir slysi sem dregur hana til bana má hann ekki vera að því að svara tengda- syni sínum í síma. Hann hirðir ekki heldur um að fylgja dóttur- inni til grafar. En hann hefur nógan tíma til að hata mannkynið, finna upp aðferðir til að gera fólk ómerkilegt. Hámarki nær hann í sprengjuveislunni í lok sögunnar. Sögumaður í Sprengjuveislunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.