Morgunblaðið - 10.12.1980, Side 15

Morgunblaðið - 10.12.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1980 15 st af djúpri hryggð og söknuði Lögreglumenn við vettvangsrannsóknir fyrir utan Dakota-ibúðabygg- inguna i New York þar sem John Lennon var skotinn til bana þegar hann var að koma heim til sín. í glerinu í hurðinni má greina göt eftir kúlurnar úr byssu morðingjans. AP-simamynd. Sumir grétu, aðr- ir horfðu fram fyrir sig skiln- ingsvana á svip Hundruð manna stóðu alla nóttina fyrir utan heimili Lennons með kertaljós í hendi New York, 9. des. — AP. MÖRG hundruð manna söfnuðust saman fyrir utan heimili John Lennons strax eftir að fréttirnar bárust út um morðið. Sumir voru hljóðir, skilningsvana á svip, aðrir grétu og enn aðrir sungu söngva Bítlanna í hálfum hljóðum. Margir kveiktu á kertum og biðu í hljóðri bæn fyrir utan heimili hans og sjúkrahúsið, þangað sem Lennon hafði upp strætið og undrun og óhugur lýstu sér úr hverju andliti. Maður á miðjum aldri, alvöru- gefinn á svip, hallaði sér upp að bíl og frá útvarpstæki, sem hann hélt á, bárust söngvar Bítlanna út í nóttina. Annar maður, sem staðið hafði við hlið hans, féll á bílinn og leið út af í öngviti. Maðurinn með útvarpstækið færði sig um set, settist á gangstéttar- brúnina og frá tækinu bárust tónarnir í laginu „When I’m Sixty-four“. í dögun, sex stundum eftir að John Lennon var allur, krupu enn margir fyrir utan bygginguna og fóru með bænir. Stórri mynd af John Lennon hafði verið komið fyrir á girðingunni og gangstétt- irnar voru líkastar blómabeði. „Ó, guð minn, guð minn,“ sagði ung kona með társtokkið andlit. „Ég get alls ekki trúað þessu.“ Hún hafði kropið á kné við garðhliðið, í annarri hendi hélt hún á logandi kerti, en með hinni reyndi hún að skýla loganum svo aö hægur blærinn slökkti hann ekki. Fólkið stóð alls staðar, á göt- unni, uppi á bílþökum og á grind- verkinu, sem umlykur heimili John Lennons, Dakota-íbúðabygg- inguna í New York, þar sem margt frægt fólk hefur búið. Á sumrin leggja þangað leið sína forvitnir ferðalangar en nú var öðru vísi um að litast: Rauð og blá leifturljós lögreglubílanna og skjannabirtan frá sjónvarpsmyndavélunum lýstu Ný skáldsaga eftir Jón Dan Stjörnu- glópar Jón Dan er sérstæður höfundur og alltaf nýr. Nú verður honum sagnaminnið um vitringana þrjá að viðfangsefni — fært í íslenzkt umhverfi bænda og sjómanna á Suðurnesjum. Þess- ir vitringar hafa reyndar ekkert Jesúbarn til að gefa gull, reyk- elsi og mirru, en þeir horfa á stjörnurjiar eins og þeir austur- lenzku, þÁ að þeir stýri ekki eftir þeim. Og umhverfi með álverksmiðju og kanavelli er andstætt þeim. Flestir aðrir falla þar betur inn í og semja sig að því, kannski ekki allir sársaukalaust. En vitringunum er þar ofaukið, sumum en ekki öllum finnst þeir þar eins og ankannalegar ójöfnur. Má vera að þeir jafnist út í umhverfið eins og aðrir, en þá verða þeir ekki lengur vitringar. Almenna bókafélagið Austurstræti 18. — Sími 25544. Skemmuvegi 36, Kóp. Sími 73055. AEG UOLA- GJAFIR Nú getum við boðið AEG smátæki á sérstaklega hagkvæmu verði vegna lækkunar erlendis. Notið tækifærið og kaupið jólagjöfina strax. BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.