Morgunblaðið - 03.01.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981
5
Tómas Einarsson kennari og Valgerður Jónsdóttir. stjórnandi
þáttarins Þetta erum við að gera, ásamt dagskrárgerðarfólki úr
Hliðaskóla.
Hljóðvarp kl. 17.00:
Þetta erum
við að gera
Á dagskrá hljóðvarps kl. 17.20
er þátturinn Þetta erum við að
gera í umsjá Valgerðar Jóns-
dóttur. Börn í Hlíðaskóla gera
dagskrá.
— Þetta er fyrsti þátturinn á
alþjóðaári fatlaðra, sagði Val-
gerður, — og þess vegna fannst
okkur hæfa að sérdeildir hreyfi-
hamlaðra barna í Hlíðaskóla
ættu sinn hlut í þessari dag-
skrárgerð. Þau leggja fram eigið
efni og var það tekið upp í
skólanum. Auk þess taka krakk-
ar úr 8. bekk viðtöl við hreyfi-
hömluð skólasystkini sín, sem
skýra m.a. frá því hvernig dag-
urinn líður hjá þeim, bæði í
skólanum og heima. Einnig eru
þau spurð að því hvað þeim
finnist um alþjóðaár fatlaðra. í
upphafi þáttarins verður fjallað
um Hlíðaskóla almennt, nokkrir
úr nemendaráði segja frá því
helsta sem er að gerast hjá þeim,
t.d. að því er félagslíf varðar.
Rætt verður við nokkra af for-
ustumönnum ferðafélagsins
Garpa, sem starfar af miklum
krafti í Hlíðaskóla og hefur
notið leiðsagnar Tómasar Ein-
arssonar, sem sjálfur er kunnur
ferðamaður. Segja þau frá mörg-
um ferðum sem þau hafa farið,
hvernig þau skipuleggja félagið
og starfið, en fram kemur að þau
hafa m.a. átt gott samstarf við
Náttúruverndarráð. Viðtal er við
forustumenn ljósmyndaklúbbs
skólans. Krakkar úr 7. og 8. bekk
flytja leikþátt og 8. bekkingar
flytja lag undir stjórn söngkenn-
ara síns, Jóns Kristins Cortes.
Önnur tónlist í þættinum er af
hljómplötum og hafa krakkarnir
valið lögin.
Sjónvarp kl. 22.15:
Greifafrúin
Á dagskrá sjónvarps kl. 22.15
er nýleg þýsk-frönsk bíómynd,
Greifafrúin (Die Marquise von
0), byggð á skáldsögu Heinrich
von Kleist. Leikstjóri er Eric
Rohmer. Aðalhlutverk leika
Edith Clever, Bruno Ganz, Peter
Luhr og Edda Seippel. Þýðandi
er Kristrún Þórðardóttir.
Sagan hefst árið 1799. Rússn-
eskur her ræðst inn í Ítalíu og
sest um kastala á Langbarða-
landi, þar sem greifafrúin sem
orðin er ekkja dvelst hjá föður
sínum er stjórnar vörnum kast-
alans.
Rússarnir eru harðir í
horn að taka og ráðast á kastal-
ann og þar er barist upp á líf og
dauða.
Á dagskrá sjónvarps kl. 21.25 er bresk dansmynd i léttum dúr,
byggð á hinu þekkta Grimms-ævintýri um prinsessurnar sem
voru svo fíknar i að dansa að þær slitu nýjum skóm upp til agna
á hverri nóttu. Þýðandi er Rannveig Tryggvadóttir.
Færð er nú mjög þung á þjóðvegum og á gamlársdag var víða erfið færð á götum Keykjavíkur og
nágrennis. Margir urðu því til að rétta bílstjórum hjálparhönd þegar gekki hvorki né rak. Ljósm. Rax
Færð þyngist um allt landið
VERSNANDI færð er nú á
vegum um næstum allt landið.
en í gær unnu starfsmenn
Vegagerðar ríkisins víða að
snjómokstri, sem þó varð minna
úr en efni stóðu til vegna
stórhríðar. sem færðist yfir
landið. í dag verður reynt að
halda opnum vegum frá Reykja-
vik i Borgarnes, til Ilvolsvallar
og um Suðurnes, en aðeins ef
veður helst skaplegt.
Ætlunin var í gær að moka
nokkrar aðalleiðir m.a. milli
Reykjavíkur og Akureyrar og
austur með suðurströndinni, en
Banaslys
í Hníf sdal
tsafirði, 2. janúar 1981.
DAUÐASLYS varð við Hregg-
nasa i Hnifsdal á fimmta tíman-
um aðfaranætur nýársdags. Ung-
ur maður varð undir afturhjóli
fólksflutningabifreiðar er var að
flytja fólk frá dansleik í Félags-
heimilinu i Hnífsdal, og beið
bana.
Ekki er vitað nákvæmlega um
aðdraganda slyssins, en fólk sem
var á göngu skammt frá slysstað
sá piltinn hlaupa eða dragast með
bílnum, í um 100 metra fjarlægð
frá Samkomuhúsinu, þar til hann
rann skyndilega niður með hlið
bílsins og varð undir afturhjóli
hans. Lögreglan var kvödd á
staðinn innan fárra mínútna, en
þegar komið var með piltinn á
Sjúkrahúsið, reyndist hann látinn.
Enginn í fólksflutningabifreiðinni
varð var við slysið, og hélt hún
áfram ferð sinni til ísafjarðar.
Fólk, sem sá er bifreiðin lagði af
stað frá Félagsheimilinu, svo og
aðrir, er upplýsingar geta gefið
um aðdraganda slyssins, eru beðn-
ir að hafa samband við lögregluna
á ísafirði vegna rannsóknar máls-
ins.
Hinn látni hét Jósef Heimir
Óskarsson, 16 ára, til heimilis að
Aðalstræti 11 á ísafirði, sonur
hjónanna Óskars Hálfdanarsonar
og Dagnýjar Jóhannsdóttur.
- Úlfar.
GENGI islenzku skákmannanna.
sem tefla nú á Rilton skákmótinu
i Stokkhólmi hefur verið misjafnt
til þessa.
Lokið er 7 umferðum af 9 og er
Margeir Pétursson í 6,—10. sæti
með 5 vinninga en þeir Jóhann
Hjartarson og Árni Árnason eru
nokkru aftar í röðinni, Jóhann
með 3'A vinning og Árni með 3
vinninga. Efstu menn mótsins eru
með 6 vinninga. Mótið er allsterkt
og þar tefla 7 alþjóðlegir meistar-
ar.
í 4. umferð mótsins gerði Mar-
geir jafntefli en þeir Jóhann og
Árni töpuðu sínum skákum. I 5.
• umferðinni gerði Margeir jafntefli
við Svíann Schussler, sem talinn
er sterkasti maður mótsins og
munaði litlu að Margeir ynni þá
skák. Þeir Jóhann og Árni unnu
báðir í þessarri umferð. í 6.
umferð varð Margeir að þola
óvænt tap fyrir óþekktum Svía,
Ligtenstein að nafni. Lék Margeir
illa af sér í tímahraki í mun betri
stöðu. Jóhann tapaði einnig slysa-
lega en Árni gerði jafntefli. í 7.
umferðinni vann Margeir sína
skák en þeir Jóhann og Árni
töpuðu báðir.
Telja má líklegt að Margeir hafi
misst af vinningsvon í mótinu með
tapinu í 6. umferð en hann ætti að
eiga möguleika á 2. sætinu. Mót-
inu lýkur á morgun.
þar seni veður fór mjög versn-
andi er á daginn leið var hætt
við. Var þannig ekki hægt að
hefja mokstur út frá Vík í
Mýrdal. Fært var um Þrengsla-
veg, um Hvalfjörð og að miklu
leyti um Snæfellsnes í Dalina, en
í gærkvöld var útlit fyrir að færð
á þessum vegum spilltist vegna
veðurs. Á Austurlandi var fært
um Hérað, um Fjarðarheiði og
allt til Breiðdalsvíkur, en ófært
þar fyrir sunnan.
ö
Misjalnt gengi
á Rilton-cup
INNLENT
Slæm byrjun
hjá Sveini
SVEINN Gylfason. unglinga-
meistari i skák, teflir um þessar
mundir á mjög sterku unglinga-
skákmóti i Hallsberg i Sviþjóð.
Óhætt er að segja að Sveinn
hafi byrjað illa í mótinu því hann
hafði í gær hlotið ‘k vinning í 6
fyrstu umferðunum. Þegar Mbl.
talaði við Svein í gær stóð 7.
umferð yfir og bjóst Sveinn við að
skák hans í þeirri umferð lyki með
jafntefli. Ef svo fer hefur Sveinn 1
vinning í 7 umferðum.
Að sögn Sveins, sem aðeins er 14
ára gamall, er meðalaldur skák-
manna í mótinu 17—18 ár og er
Sveinn næst yngstur 30 keppenda.
Sveinn hefur 1600 Elo-stig en
meðalstyrkleiki keppenda er um
2100 stig. Sú spurning hlýtur
óhjákvæmilega að vakna hvaða
greiði það er við ungan skákmann
að vera sendur á jafn sterkt
skákmót og mótið í Hallsberg er.
Það er Skáksamband Islands sem
bauð Sveini á mótið og kostar för
hans.
Ekkert f logið
til Vestf jarða
INNANLANDSFLUG Flugleiða
gekk sæmilega í gær nema hvað
fella varð niður ferðir til Vest-
fjarða. Síðdegis í gær lokuðust
flugvellir við Höfn, Egilsstaði,
Akureyri og Húsavík vegna hríð-
ar, en þó stóðu vonir til að þeir
opnuðust að nýju undir kvöldið
og átti þá að reyna flug.
Um áramótin gekk flugið nokk-
uð eðlilega, en innanlandsflug
liggur niðri á nýársdag. Á gaml-
ársdag varð Flugleiðaþota á leið
frá Bandaríkjunum til Luxem-
borgar að snúa frá landinu og
lenti hún í Glasgow. Um 60
farþegar höfðu ætlað til íslands
og tókst síðdegis á gamlársdag að
senda Boeing þotu frá Keflavík
eftir fólkinu og var hún komin til
landsins að nýju um kl. 19:30. Fóru
með henni um 8 farþegar frá
landinu, en rúmlega 60 komu frá
Glasgow.