Morgunblaðið - 03.01.1981, Síða 14

Morgunblaðið - 03.01.1981, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981 Hvað segja þeir um efnahagsaðgerðirnar? ótækt að standa þannig að málum að gera fyrst samninga en ganga síðan af þeim með þessum hætti, þrem til fjórum mánuðum seinna, án þess að forsendurnar hafi á nokkurn hátt breyst. Kjartan sagði ennfremur að stefnumörkun vantaði á ýmsum sviðum, svo sem í landbúnaðarmálum, stóriðju og fiskvinnslu, en þetta væru mál sem brýnt væri að taka á. Ég vil óska þess að í staðinn fyrir aðgerðir sem þessar fái þjóðin á nýju ári að sjá heildstæð- ar aðgerðir bæði í efnahags- og atvinnumálum, það er mín nýárs- ósk til þjóðarinnar," sagði Kjartan Jóhannsson formaður Alþýðu- flokksins. Eyjólfur ísfeld: „Vil ekki tjá mig um þetta að svo stöddu“ ^Ég vil ekki tjá mig um þessi mál að svo stöddu. Ég hef verið að fást við önnur mál 1 dag og ekki getað kynnt mér efnahagsaðgerð- irnar nægilega til að geta fjallað um þær,“ sagði Eyjólfur Isfeld forstjóri Sölumiðstöðvar Hrað- frystihúsanna, þegar Morgunblað- ið hafði tal af honum í gær. Jón Kjartansson: „Sé ekki betur en samningar séu nú lausir“ „Ég hef ekki getað gert mér fyllilega grein fyrir því hvernig þessar efnahagsráðstafanir koma fram, en í flióf^ oragði sýr.’ist mér heíía vera göm.vii íhalds- og íramsóknarýrræði á nýjum grup.rii,- sagði Jón Kjartansson formaður Verkalýðsfélags Vest- mannaeyja. „Annars finnst mér það ein- kennilegt að þeir með breiðu bökin, sem fengu þessa nýársgjöf, koma fram í fjölmiðlum og skammast út í þetta. Það er kannski vísbending til þess að þetta séu ekki eins slæmar ráð- stafanir í garð launþega eins og útlit er fyrir." Er ekki um talsverða kjararýrn- un að ræða með þessum efnahags- ráðstöfunum? „Jú, það verða tekin af launþeg- um 7% af eðlilegri vísitöluhækkun 1. marz en þar á móti er lofað leiðréttingu síðar á árinu. Þá er lofað afnámi þess þáttar Ólafslaga sem fjallaði um vísitölu viðskipta- kjara og mun það líklega þýða um 4% hækkun. Afnám sjúkratrygg- ingagjalds nemur um 1,5% og þar með eru komin 5,5% upp í 7% skerðinguna. Áfengi og tóbak verður tekið út úr vísitölu og verða ekki lengur notuð sem deiliþáttur eins og áður, þó hækkanir á því hefðu ekki átt að hafa áhrif á vísitöluna. Þá munu koma til einhverjar vaxtalækkanir, en ég get ekki sagt til um það hve mikil áhrif þær munu hafa. Ég hef fundið það á fólki, að það er fyllilega tilbúið að taka á sig sinn hluta þeirra byrða, sem nauðsynlegar eru til að takast á við efnahagsvandann, en að laun- þegar einir eigi að bera allar byrð.irnar er auðvitað út í hött. Það .íefur verið reynt áður, eins og til dæmis 1978 og alltaf með litlum árangri." Eru ekki samningar lausir nú vegna þessara miklu breytinga? „Ég get ekki séð betur, þetta eru það alvarlegar breytingar. Það má reyndar segja að nú sé verið að gefa okkur aftur það, sem löggjaf- inn tók af okkur með Ólafslögum 1978 og auk þess lofað einhverju síðar á þessu ári.“ Er ekki-þarna verið að ganga þvert á kosningaslagorðið „Samn- ingana í gildi"? „Ætli að það sé ekki bezt í þessu tilfelli að ég vitni í Björn Jónsson. Þegar ég fyrir mörgum árum spurði hann hvort hann teldi að allar ríkisstjórnir væru fjand- samlegar verkalýðnum. Hann sagði að þær væru kannski ekki endilega fjandsamlegar, en verka- lýðshreyfingin þyrfti alltaf að vara sig á hverri ríkisstjórn sem væri. Mér þykir fullsannað nú að svo sé.“ Árni Arnason: Álitsgerð frá Verzlunarráði birt í dag ao vinna „Við erum búnir a*' "onn,ln þessa máls J ne,.„ óg erum að leggja mat á pessar ákvarðanir ríkisstjórnar- innar að því er varðar verzlun- ina,“ sagði Árni Árnason hjá Verzlunarráði íslands í gær. „Framkvæmdastjórnin mun hittast á ný í fyrramálið og verður þá gengið endanlega frá álitsgerð. Mínar skoðanir á þessum aðgerð- um fara saman við það sem álitsgerðin mun fela í sér, þannig að ég tel rétt að bíða með að gefa yfirlýsingar þar til hún verður birt.“ Björn Þórhallsson: Enn einu sinni ráðist á samninga „ÉG sá þessar ráðstafanir fyrst á gamlársdag. en eftir þvi sem ég hef kynnt mér þetta mál, þá get ég aðeins lýst minni persónulegu skoðun á þessu,“ sagði Björn Þórhallsson varaforseti ASI, en Morgunblaðið spurði hann álits á efnahagsráðstöfunum ríkis- stjórnarinnar. „Þarna er enn einu sinni ráðist á samninga, rétt eins og fordæmin gefa ríkisstjórnum tilefni til. Ef treysta má því sem sagt er þá mun þessi árás verða bætt, a.m.k. þeim sem helst þurfa á því að halda, þeim sem hafa miðlungs tekjur og lægri. Þar eru sum atriði óljós ennþá og víst er að með því verður fylgst hverjar efndir verða. Það sem mest einkennir þessi bráða- birgðalög fyrst og fremst og hinn nýja stjórnarsamning, er boðun ýmissa aðgerða sem lofa mörgu góðu. Verði efndir á því þá er óhyggilegt að dæma hvatlega það sem nú þegar er fram komið og þá má þess minnast, að ráðstafanirn- ar hafa ekki áhrif á kaup launþega fyrr en 1. mars. Þar til eru tveir mánuðir. Ef það sem ríkisstjórnin hefur sagt, rætist, þá mun kaupafl tekna fólks sem er með miðlungs og lægri tekjur, verða þegar litið er á árið 1981 í heild, svipað og orðið hefði þó engu hefði verið breytt, frá því sem gilti áður en ráðstafanir þessar voru gerðar. Um leið og þetta er sagt þá blasir það við að tekjur þeirra sem hærra liggja á skalanum en miðl- ungur telst, munu hafa minni kaupmátt. Þegar miðað er við tekjur verður ekki skyndilegri kjaraskerðingu svarað með öðrum hætti en í gegn um skattakerfið. Því kemur þetta ekki fólki til góða fyrr en eftir álagningu skatta á miðju þessu ári “ 5jörn „Sumir hafa seilst til þess að bera þetta saman við þær ráðstaf- anir sem gerðar voru í febrúar- mánuði árið 1978. Þá var tekin skýr ákvörðun um efnahagsmál og engin eftirkaup sem að vísu er geðfellt. Því stóð það mönnum kannski skýrara i huga heldur en aðrar ráðstafanir. Þessar ráðstaf- anir sem nú eru gerðar eru miklu líkari ráðstöfunum sem gerðar voru í nóvembermánuði sama ár af allt annarri stjórn Lpar sen; einslags v.ð^pti voru um um_ ®a7nda kaupgjaldsvísitölu og önn- ur atriði sem kom mönnum til góða. Þó er minna bögglapósts- bragð af því sem nú er gert en af því sem þá var. Þó ég segi þetta er það eingöngu mín persónulega skoðun. Þetta hefur ekki verið tekið til meðferðar hjá miðstjórn ASI, né þess landssambands sem ég er formaður fyrir og ég vil spara mér allar yfirlýsingar um afstöðu til þess arna til lofs eða lasts, þangað til mér sjáifum og þeim sem með mér starfa hefur unr.ist betri tími til að skoða þetta og mynda sér efnislega skoðun um málið. Mig vantar m.a. enn þahn dag í dag, sem ég gekk þó eftir á gamlársdag, þá útreikninga sem að baki þessum ráðstöfunum liggja. Sýnist þeir reikningar rétt- ir þá tel ég að þarna megi teljast stigið eitt skref í átt til þess að hamla gegn verðbólgu, og þó sumum þyki of lítið gert þá er þó alltént mark að því að stöðva sig á leið, gá að veðri og taka mið. Mætti þá halda til baka, rétt eins og áfram. Betra væri þó að haldið yrði til baka. Menn tala oft um það, þeir sem Leiftursókninni fylgja, að ekkert verði að neinu gagni nema að á andartaki gerist. Margt getur til gagns orðið annað heldur en þetta að mínu viti og meginatriðið er að spyrna við. Þó að kenningalega megi finna ágæti í ákveðnum aðferðum, er ævinlega nauðsyn að fólkið í landinu geti sannfærst um að rétt sé að farið, því ekkert verður gert nema að fylgi þess komi til,“ sagði Björn Þórhallsson. Magnús L. Sveinsson: Ríkisstjórnin setti samning- ana á áramóta- brennurnar „MEÐ þessum bráðabirgðalögum á gamlársdag setti ríkisstjórnin októbersamningana á áramóta- brennurnar. Það sem er alvar- legast við þessar aðgerðir og verkalýðshreyfingin hlýtur að fordæma, er að ríkisstjórnin ógildir nýgerða frjálsa kjara- samninga,“ sagði Magnús for- maður Verslunarmannafélags Reykjavikur i samtali við Morg- unblaðið, er hann var spurður um afstöðu til efnahagsráðstaf- ana rikisstjórnarinnar. „Ég sé ekki betur en að tvíend- urtekin íhlutun ríkisvaldsins í gildandi kjarasamninga sé orðin hrein ógnun við frjálsan samn- ingsrétt launþega. Það fer að heyra fortíðinni til að verkalýðs- hreyfingin hafi gert kjarasamning sem viðkomandi ríkisstjórn hefur ekki ógilt fljótlega eftir gerð hans. Og skiptir engu máli hvaða ríkis- stjórn á í hlut. Öllum eru í fersku minni hin hörðu viðbrögð verka* lýðshreyfingarinnar þegar ríM;_ stjórn Geirs HalM^úggonar ógilti kjarasa^nmgana j febrúar 1978. Pað var m.a. efnt til útflutnings- banns og verkföll boðuð til að leggja áherslu á kröfuna „Samn- ingana í gildi". Sú krafa á ekkert síður rétt á sér í dag, þegar ríkisstjórnin hefur sent Alþingi heim og með einu pennastriki ógilt nýgerða samninga sem svo til öll verkalýðshreyfingin stóð að. Það verður fróðlegt að sjá hvað þeir gera nú sem hæst höfðu 1978 og kröfðust samningana í gildi. Þjóðin mun fylgjast með því. Annað er það sem vekur sérstaka athygli. Það er að ríkisstjórnin hafði ekkert, akkúrat ekkert sam- ráð við forystumenn verkalýðs- hreyfingarinnar, þrátt fyrir marg- ítrekuð loforð hvers ráðherrans af öðrum, að engar ráðstafanir yrðu gerðar nema að höfðu fullu sam- ráði við alþýðusamtökin. Miðað við það sem sagt hafi verið er þetta auðvitað siðleysi og stór- móðgun við alþýðusamtökin, sagði Magnús. „Hvað aðgerðirnar áhrærir þá er það eins og fyrri daginn að þær beinast fyrst og fremst að því að skerða launin. Launataxtar stórs hluta launþega eru á bilinu 3—400 þúsund, s.k.v. nýgerðum samning- um. Þessi laun eru langt undir því marki að meðalfjölskylda geti lifað af þeim. Þessi laun verða nú skert um 20—30 þúsund krónur, eða liðlega þá hækkun sem samið var um í október síðastliðnum. Allir sjá hversu fráleitt það er að ætla sér að skerða svo lág laun. Varðandi fyrirheitið um lækkun skatta, vil ég benda á að sam- kvæmt því sem fram kom við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar í desember sl. er gert ráð fyrir verulegri hækkun útsvara frá fyrra ári, umfram meðaltals launahækkun fyrri ára og einnig munu fasteignagjöldin hækka langt umfram launahækk- un fyrri ára. Þannig virðast heild- arskattar síst eiga að lækka. Það er eftirtektarvert að við þessar aðgeðir er gert ráð fyrir að opinber þjónusta hækki um 10% á sama tíma og öll laun eru skert um 7%. Það er eins og ríkisstjórn- in sem sumir hafa fram að þessu trúað að væri sérstaklega vilveitt launþegum, sjái engin ráð önnur en að ógilda nýgerða kjarasamn- inga launþega og skerða kaup- máttinn enn. Það sem við þetta bætist er sú sorglega staðreynd að efnahagsvandinn verður ekki leystur með þessum aðgerðum, heldur er honum ýtt á undan sér eins og snjónum þessa dagana, en ekki eytt.“ sagði Magnús L. Sveinsson. Ásmundur Stefánsson: Tilraun til að kaupa tíma til stefnumótunar „Þáð er kannske erfitt eins og í svona tilfellum yfirleitt að gefa álit áður en það hefur gefist timi til að fjalla um málið i okkar samtökum og móta þar endan- lega afstöðu. Það er ekki langur timi frá þvi að þetta var lagt fram og það tekur sinn tíma að átta sig a því hvað þetta raun- verulega þýðir. Það eina sem er einhlftt og skýrt er að það er miðað við, að 1. marz falli 7 visitölustig niður og það er nátt- úrlega augljóst að með þvi er gengið á samningsákvæði,“ sagði Ásmundur Stcfánsson forseti Ál- þýðusambands Islands I V'iocaii sem ráðherrar áttu við okkur á gamlársdag þá sögðu þeir að sú ráðstöfun að fella niður 7 vísitölustig ætti ekki að valda skerðingu á kaupmætti þeirra launalægri vegna þeirra gagn- ráðstafana sem fylgdu og bentu í því sambandi í fyrsta lagi á skerðingarákvæði Ólafslaganna þar sem búvörufrádrátturinn og frádrátturinn vegna verðhæ^;na á áfen<d ^ iopaki féllu niður. En þessir frádráttarliðir hefðu vænt- anlega valdið hátt á annað prósent skerðingu 1. júní og svipaðri niðurstöðu 1. sept. í öðru lagi telja þeir að ráðstafanirnar í heild muni draga úr verðbólgunni og ef að það stenst þá þýðir það, að kaupmátturinn fellur minna á hverju tímabili en ella hefði verið. í þriðja lagi lýstu þeir því yfir að það ættu að koma skattalækkanir til þess að bæta það sem á vantaði." — Skýrðu þeir nánar út þetta með skattalækkanirnar, hverjar þær ættu að verða? „Það virtist ekki vera og þeir raunar sögðu, að það væri til þess ætlast að það væri hægt að hafa áhrif á í hvaða formi þær yrðu. Þeir töldu, að það sem þyrfti að bæta með skattalækkunum yrði hálft annað prósent. Fjármálaráð- herra sagði, að ef matið á þessum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.