Morgunblaðið - 03.01.1981, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981
15
þáttum, sem þeir lýstu, væri ekki
rétt þá yrði að endurskoða þá tölu.
Þannig að af þeirra hálfu er málið
sett upp eins og um kaup á sléttu
sé að ræða fyrir fólk með meðal-
laun og lægri."
— Nú hafa lög verið í gildi sem
segja að ríkisstjórn skuli hafa
samráð við launþegasamtökin
þegar hreyft er við verðbótaþætti
launa. Var þetta samráð haft við
ykkur?
„Þessi fundur sem ég lýsti var
enginn samráðsfundur því þarna
er um að ræða mjög flókið mál og
á fundinum stóðum við frammi
fyrir algjörlega frágengnum skjöl-
um, og ætlaðist enginn til þess,
virtist mér, að við hefðum neitt til
máianna að leggja. Það var ekki
um það að ræða að hafa nein áhrif
á þá ræðu sem forsætisráðherra
eflaust hefur þá þegar verið far-
inn að semja.
Ég vil leggja áhersiu á það að ég
vil hafa allan fyrirvara varðandi
málið og þá ekki eingöngu í
sambandi við þennan jafnvirðis-
reikning sem ég var að ræða
heldur málið í heild. Það er
náttúrulega mikið atriði í því
hvaða árangri yrði náð í verðbólg-
unni.
— Nú kemur það væntanlega
ekki í ljós fyrr en síðar á árinu, en
munið þið láta hlutina liggja
óhreyfða, fram yfir þessar aðgerð-
ir 1. marz?
„Það er ekki mitt að ákveða um
það, heldur miðstjórnar sam-
bandsins."
— Nú segir í samningunum að
þið getið sagt þeim upp. Hvað
finnst þér persónulega?
„Ég held að við munum ræða
það í miðstjórninni hvaða við-
brögð eru við því. Við hljótum að
skoða málið í heild sinni og meta
það hvað við teljum vera heppi-
legast. Og þá ekki aðeins það sem
til skamms tíma lýtur heldur
einnig til lengri tíma. Það er
náttúrulega auðsætt þegar textinn
er lesinn í yfirlýsingum ríkis-
stjórnarinnar að þar er flest með
allalmennu orðalagi sem til lengri
tíma lýtur og aðgerðirnar virðast
fyrst og fremst tilraun til að
kaupa sér tíma til stefnumótunar
og að stefnan sé tæpast mótuð
enn, þannig að þarna sé frekar
verið að stíga upphafsskref.
— Nú heyrist oft sú skoðun, að
ekki sé sama hverjir séu í stjórn
þegar atvinnurekendur og laun-
þegar fjalla um aðgerðir ríkis-
valdsins. Eru skoðanir þínar og
hógværar yfirlýsingar vegna þess-
ara aðgerða að einhverju leyti
háðar því hverjir tóku ákvarðan-
irnar?
„Ég held að það verði að vera
okkar afstaða og hafi raunar
alltaf verið að meta innihaldið en
ekki það hverjir standa á bak við
það. Því hefur oft verið haldið
fram, eins og þú segir, að það sé af
hálfu hreyfingarinnar litið mis-
jöfnum augum á hver á í hlut,
þ.e.a.s. hver er gerandinn og ég
verð að segja í fullri hreinskilni að
það er erfitt að finna þeim fullyrð-
ingum stað í ljósi reynslunnar. Ég
reikna með því að ef skoðuð er
sagan þá hafi hógværðin, eins og
þú orðaðir það, af okkar hálfu,
eflaust verið mest á árunum 1974
og 1975 þegar við áttum við
ríkisstjórn Geirs Hallgrímsson-
ar.“
— Nú hafa menn almennt án
tillits til hvar í flokki þeir standa,
verið mjög harðorðir vegna þess-
ara aðgerða rikisstjórnarinnar,
þ.e. 10% hækkunarinnar og 7%
kjaraskerðingarinnar 1. marz?
„Ég ætla ekki að fara að leiða
líkur að því hvað aðrir hafa sagt.
En það sem ég hef sagt er, að það
þurfi að skoða málið og ég ætla
mér ekki að fara að taka afstöðu
fyrir samtökin áður en við fáum
tækifæri til að ræða málið í
miðstjórn, annað væri tæplega
rökrétt. Ég tel að það hljóti að
vera verkefni miðstjórnar að taka
afstöðu og ákveða viðbrögð.
—Nú mættu fulltrúar A.S.Í.
ekki á fundi verðlagsráðs á gaml-
ársdag. Af hverju?
„Fundurinn var ekki haldinn,
hann var blásinn af. Þeir hefðu
ekki mætt, það var augljóst. En
fundurinn var ekki haldinn.
— Var það að tilhlutan ykkar?
„Ég skal ekkert segja um það.
Ráðherra verður að segja til um,
af hverju hann hætti við að halda
fundinn. Hins vegar tel ég að það
hefði verið alveg fráleitt að halda
fund á gamlársdag.
Þá sagði Ásmundur: „Ég tel
10% hækkunina sem ákveðin var
opinberri þjónustu, algjörlega
fráleita en áhrifin af henni eru
þau, að hún hækkar mánuði fyrr
en verið hefði með eðlilegum hætti
vegna þess að skv. yfirlýsingu
ríkisstjórnar frá 1977 á að ákveða
hækkanir síðustu 10 dagana fyrir
vísitöluútreikning, þannig að mið-
að við það hefði sú hækkun átt að
koma um mánaðamót janúar,
febrúar. Hækkunin kemur hins
vegar í visitölu með eðlilegum
hætti og bætist með verðbótum 1.
mars. Ég held að vandinn hefði
fremur verið aukinn heldur en
hitt, það hefði verið að bæta gráu
ofan á svart að leyfa aðrar
hækkanir samtimis.
Ásmundur sagði í lokin: „Ég tel
að það hljóti að vera miðstjórnar
að taka endanlega afstöðu til
þeirra málefna sem um er að ræða
og þá meta málið allt efnislega og
verður fundur haldinn í miðstjórn
A.S.Í. nk. fimmtudag."
Metsala Ymis
í Þýzkalandi
SKUTTOGARINN Ýmir HF 343
seldi i Cuxhaven i V-Þýzkalandi i
gær og fékk hærra meðalverð
fyrir aflann, en íslenzkt skip
hefur áður fengið þar i landi.
Ýmir seldi 96,7 tonn fyrir 850
þúsund nýjar krónur eða 85
milljónir króna, meðalverð á
hvert kíló var því 8,79 nýjar
krónur eða 879 gamlar krónur.
Skipstjóri á Ými er Sverrir Er-
lendsson.
Ýmir var með um 40 tonn af
stórum karfa, um 40 tonn af ufsa
og afgangurinn var einkum þorsk-
ur og ýsa. Ýmir var eini togarinn,
sem seldi í Cuxhaven í gær, en
þýzkur togari landaði í Bremer-
haven í gærmorgun. 'Á mánudag
landar Ögri í Englandi og Guð-
steinn og Júní landa þar á þriðju-
dag og miðvikudag.
Verðlagsráð:
Fundur qfboðaður því full-
trúar ASI gátu ekki mætt
AÐ MORGNI gamlársdags
hafði verið boðaður fundur i
Verðlagsráði til þess að fjalla
um 9 hækkunarbeiðnir af ýmsu
tagi. Á ellefta tímanum kvöldið
áður var fundurinn hins vegar
afboðaður í skyndi og að sögn
Björgvins Guðmundssonar. for-
manns ráðsins, var ástæðan sú
að fulltrúar Alþýðusambands
ísland gátu ekki mætt á fund-
inn.
Fyrir fundinum lágu m.a.
beiðnir um hækkun á gosdrykkj-
um, smjörlíki, fargjöldum í inn-
anlandsflugi, aðgöngumiðum
kvikmyndahúsa, saltfiski, far-
miðum með hóp- og sérleyfis-
bifreiðum og farmiðum með
vögnum Landleiða á leiðinni
Reykjavík—Hafnarfjörður.
Björgvin Guðmundsson sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær
að ekki væri ákveðið hvenær
næsti fundur yrði haldinn í
ráðinu. Hann sagði aðspurður að
þær hækkanir, sem afgreiddar
yrðu í Verðlagsráði eftir áramót
yrðu bættar í vísitölu 1. marz,
aðeins hækkanir samþykktar
fyrir áramót féllu innan þeirra
7%, sem ekki yrðu bætt.
Björgvin var að því spurður
hver yrði í raun breytingin á
afgreiðslu hækkunarbeiðna í
Verðlagsráði nú um áramótin,
þegar hin tímabundna verð-
stöðvun, sem ríkisstjórnin hefði
ákveðið, tæki gildi. Hann svar-
aði: „Meiningin er sú að fylgt
verði miklu harðari stefnu í
verðlagsmálum en verið hefur og
ekki verði aðrar hækkunarbeiðn-
ir afgreiddar en óhjákvæmilegar
teljast. Sannleikurinn er sá, að
afgreiðsla Verðlagsráðs hefur
verið mjög fagleg undanfarna
mánuði. Ef framfylgja á hertri
verðstöðvun er ekki hægt að
verða við öllum erindum fyrir-
tækjanna og erindin verða ekki
afgreidd alveg faglega. Það geta
komið upp mál, þar sem hægt er
að færa rök fyrir meiri hækkun
en samrýmist stefnu stjórn-
valda. Ég sé ekki að það sé hægt
að framkvæma þetta tvennt í
einu, afgreiða hækkanir alveg
faglega og framkvæma herta
verðstöðvun," sagði Björgvin.
Leigubílstjóri í átökum við vopnaðan mann:
Tókst að grípa í hlaup riffilsins,
og skotið hljóp í dyrastafinn
„ÉG HAFÐI tekið manninn upp i
bílinn fyrir utan Hótel Borg, og
ók að hans ósk að húsi upp við
Hverfisgötu. Þar kvaðst hann
þurfa að skreppa inn, og beið ég
á meðan. Skömmu siðar kemur
maður út úr húsinu, opnar aftur-
dyr bifreiðarinnar og beinir að
mér riffli og skipar mér að aka af
stað“. — Sá er þetta segir er
Grimur A. Grimsson, leigubil-
stjóri, er varð fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu um eitt-
AÐ undanförnu hefur ástandið i
rafmagnsmálum og simamálum
hér um slóðir verið ömurlegt.
Simalaust hefur nú verið i
Austur-Landeyjum siðan fyrir
jól, og litlu skárra hefur það
verið i nágrannasveitum. Á ofan-
verðum RangárvöIIum hefur ver-
ið simalaust i nær viku. og veit
enginn. hvenær simasamband
kemst þar á. þvi viðgerð mun
ekki hafin enn.
Sjálfvirka símstöðin á Lauga-
landi í Holtum var óvirk vegna
rafmagnsleysis um jólin. Á Rang-
leytið aðfaranótt 2. janúar, að
beint var að honum hlöðnum
riffli, og skoti hleypt af, sem þó
geigaði.
„Er maðurinn hljóp inn í húsið
hafði hann alveg skipt um föt, og
þekkti ég hann ekki er hann kom
út á ný,“ sagði Grímur ennfremur
í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi. „Hann beindi rifflinum
að mér inn um afturdyr bílsins, og
settist um leið í aftursætið. Mér
tókst þá svo að segja um leið að
útvarpslausir eftir að útsendingar
hófust. Svipað má raunar segja að
eigi við um símann, og jafnvel
rafmagnið einnig. Þetta óvenju-
lega og ömurlega ástand hefur því
skyggt á jóla- og nýársgleðina hjá
æði mörgum, sem að líkum lætur.
— Jón.
grípa um hlaup riffilsins, og beina
því frá mér, en um leið hleypti
hann af, og lenti skotið í dyra-
stafnum við hurðina mín megin að
framan. Byssan var með skothylki
með fleiri skotum í, og renndi
hann þegar öðru skoti upp í
byssuna. Ekki kom þó til þess að
hann hleypti öðru af, en ég hélt
áfram um byssuhlaupið.
Dyrnar stóðu opnar og rúðan
hafði brotnað, og þannig tókst
mér að vekja athygli á hvað um
var að vera. Strætisvagnastjóri
sem kom þarna akandi að, kom
mér til hjálpar, og síðan kom
fljótlega annar leigubíll að, sem
kallaði á lögreglu okkur til aðstoð-
ar, og komu þeir og tóku mann-
inn.“
Grímur sagði manninn ekki
hafa verið áberandi ölvaðan, þó
hann væri að vísu greinilega undir
áhrifum áfengis. Ekki sagði hann
að neins konar misklíð hefði
komið upp þeirra í milli, hvorki
um ökugjaldið eða annað. „Ég
gerði mér held ég ekki grein fyrir
því að byssan var hlaðin fyrr en á
eftir,“ sagði Grímur, „svo þetta
hefði getað farið verr. En þetta fór
allt vel og ég er þakklátur fyrir
það. Svona lagað hefur aldrei hent
mig áður, en ofbeldisverk fara þó
greinilega í vöxt í starfi okkar,"
sagði hann að lokum.
Jóhann Jóhannsson
fv. skólastjóri látinn
Rangárvellir:
Rafmagnslausir,
símalausir og
útvarpslausir
Hrllu á Itaniíárvnllum 2. janúar 1981
árvöllum neðanverðum var raf-
magnslaust í tvo sólarhringa sam-
fellt, milli jóla og nýárs, og svipað
var ástandið í Holtunum. I öðrum
svcitum hefur rafmagnsleysið ver-
ið miklu minna, en þó mikið um
bilanir.
Vondu veðri er kennt um þetta
ástand. En spurning er, hvort
ástæður eru ekki að einhverju
leyti að minnsta kosti, gamlar og
lélegar línur, sem ekki hafa verið
endurnýjaðar með eðlilegum
hætti. Þyrfti það mál nánari
athugunar við. Þótt veðrið hafi
ekki verið gott hér að undanförnu,
hefur það alls ekki verið verra en
búast má við á þessum árstíma.
Við þetta bættist svo útvarpsleysi
hjá mörgum vegna bilana á lang-
bylgjusendi útvarpsins. Elstu
menn hér um slóðir, sem muna
alla ævi útvarpsins, minnast þess
ekki að hafa verið svo lengi
HINN 30. desember siðast liðinn
lést Jóhann Jóhannsson, fyrrver-
andi skólastjóri á Siglufirði, 76
ára að aldri. Jóhann fæddist á
Halldórsstöðum í Saurbæjar-
hreppi í Eyjafirði hinn 7. nóv-
ember 1904, sonur hjónanna Stef-
aníu Sigtryggsdóttur og Jóhanns
Sigurðssonar. bónda að Arnar-
stöðum i Eyjafirði.
Jóhann varð stúdent frá M.A.
árið 1930, og guðfræðiprófi lauk
hann frá Háskóla íslands 1935.
Framhaldsnám í kirkjusögu
stundaði hann 1937 til 1938 í
Uppsölum og hann var við nám í
Bandaríkjunum árið 1956, og
kynnti sér skólamál í Evrópulönd-
um 1957. ■
Jóhann varð kennari við Gagn-
fræðaskóla Siglufjarðar 1935, og
skólastjóri 1944. Eftir Jóhann
liggja ýmsar greinar í Kirkjurit-
inu og fleiri blöðum.
Eiginkona Jóhanns er Aðalheið-
ur Halldórsdóttir, og lifir hún
mann sinn.