Morgunblaðið - 03.01.1981, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981
21
Ánægjuleg og
róleg áramót
ÁRAMÓTIN voru frcmur rólc«
víðast hvar á landinu og hcfur
verið lítið um slys ox óhöpp.
Sagði Bjarki Eliasson yfirlög-
regluþjónn i Reykjavik að ára-
mótin hefðu verið scrlcga
ánægjuleg og róleg. Sömu sögu
er að segja af slökkviliðinu i
Reykjavik.
— Aðalannir okkar á gamlárs-
kvöld og fram á nýársdagsmorgun
voru þær að aka fólki til og frá
vinnu, en nokkuð var erfitt um
samgöngur hér á höfuðborgar-
svæðinu, sagði Bjarki. — Ég geri
ráð fyrir að við höfum haft meira
að gera vegna þess að færðin var
erfið, fólk á kannski orðið lítið
benzín og lítið var um leigubíla.
En allt gekk þetta vel og fáir gistu
fangageymslur okkar á nýársnótt,
mun færri en oft áður og tel ég
það m.a. stafa af því að þeir, sem
verið hafa fastagestir okkar hér,
hafa nú í önnur hús að venda,
sagði Bjarki Elíasson.
Á nýársnótt voru 16 ökumenn
teknir vegna meintrar ölvunar við
akstur, en umferðin gekk að mestu
leyti óhappalítið fyrir sig, þrátt
fyrir erfiða færð.
Hvers kyns flugeldar og skrauteldar lýstu upp himininn við
áramótin. Ljósm. KÖE.
Mikið hafði snjóað á höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt gamlársdags, en um kvöldið var hið bezta veður.
Ljósm. Rax.
Brennur voru með fæsta móti i borginni og að sögn lögreglunnar var umferð heldur minni en oft áður,
að líkindum vegna ófærðarinnar. Ljósm. Rax.
Minning:
Margrét Ragna Þorsteins
dóttir frá Skipalóni
Fella- og Hólasókn:
Teikningar og líkön af
kirkju safnaðarins sýnd
Eins og títt er um stráka á
íslandi las ég snemma Nonnabæk-
urnar. Þar var ein öðrum fremri
um f.pennu og ævintýri, Á Skipa-
lóni. Með bók sinni gerði Nonni
Skipalón að ævintýralandi, sem
þekkt er meðal barna og unglinga
víða um lönd.
En fleiri hafa gert garðinn
frægan á Skipalóni. Þar er fremst-
ur Þorsteinn Danielsen, stórbrot-
inn framkvæmdamaður og frum-
kvöðull nýrra atvinnuhátta við
Eyjafjörð á síðustu öld. í hús-
kveðju yfir honum, í desember
1882, var sagt: „Þú varst mikil-
menni í stöðu þinni. Þú varðir
trúlega því pundi, sem þér var
lánað. Hljóttu trúrra þjóna verð-
laun.“
Því er þetta rifjað upp, að í dag
verður til moldar borin á Akureyri
heiðurskonan Margrét Ragna
Þorsteinsdóttir frá Skipalóni. Hún
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri 28. desember sl. eftir
skamma legu á 83. aldursári.
Margrét frá Lóni varð að vinna
hörðum höndum allt sitt líf og
mikla og margvíslega erfiðleika
þurfti hún að glíma við á langri
ævi. Og í lífsstarfi sínu safnaði
hún ekki þvílíkum auði, sem mölur
og ryð fá grandað. En það hvílir
jafnframt einkennilegur ævin-
týrablær yfir forsögunni, þegar
amma Margrétar, Ragnheiður
Einarsdóttir, var kornung tekin í
fóstur á Skipalóni. Um ástæður
þess og kringumstæður hafa jafn-
vel myndast munnmælasögur. En
þótt saga Margrétar frá Lóni hafi
þannig ívaf ævintýris, er hún
umfram allt íslensk alþýðusaga.
Hún fæddist að Möðruvöllum í
Hörgárdal 28. október 1898. For-
eldrar hennar, sem bjuggu lengst
af á eignarjörð sinni Skipalóni,
voru hjónin Gunnlaug Gunnlaugs-
dóttir, dóttir Ragnheiðar, fóstur-
dóttur Þorsteins Danielsen og
Margrétar Þorláksdóttur, og
Þorsteinn Daníelsson, frændi
gamla Danielsen og sá, sem hann
á efri árum fól að taka við búi sínu
á Skipalóni.
Tvo bræður átti Margrét. Sá
eldri var Gunnlaugur, sem starf-
aði árum saman að blaðamennsku
í Árósum, en sá yngri var Þor-
steinn, trésmiður að ævistarfi, en
jafnframt vinsæll og velþekktur
söngmaður.
Árið 1928 gekk Margrét að eiga
Sigurjón Kristinsson og bjuggu
þau hjón næstu 19 árin á Skipa-
lóni. Þar eignuðust þau 7 börn, 5
dætur og tvo syni. Björg er elst
þeirra barna, gift Árna Ingólfs-
syni, stýrimanni, og búa þau á
Akureyri. Gunnlaug, hjúkrunar-
kona, býr í Bandaríkjunum, gift
Robert Custis, fasteignasala. Erla,
gift Kjartani Sigurðssyni, útgerð-
armanni í Keflavík. Ólína, gift
Haraldi Óla Valdimarssyni, verk-
smiðjustjóra, og eru þau búsett á
Akureyri. Guðrún er yngst syst-
kinanna, býr á Seltjarnarnesi, gift
þeim, er þessar línur ritar. Eldri
sonurinn, Þorsteinn, lést af slys-
förum árið 1971, en Tómas, tré-
smiður, býr í Reykjavík og er
ókvæntur.
Margrét og Sigurjón fluttust frá
Skipalóni til Akureyrar árið 1947.
Stundaði Sigurjón sjómennsku
upp frá því, allt til dauðadags, en
hann lést árið 1959.
Ég kynntist Margréti frá Lóni
þá fyrst, er nokkuð var liðið á
hennar ævikvöld. Hún naut nú vel
þeginnar hvíldar í hópi barna
sinna og barnabarna. Hún hafði
unun af bóklestri og eyddi löngum
stundum með bók í hönd. Eftir
erfiði og strit margra áratuga
hvíldi nú friður og ró yfir þessari
góðu konu. Nú er hún öll og er sárt
saknað.
Þegar móðir hennar, Gunnlaug,
var til moldar borin, í apríl 1934,
orti Davíð Stefánsson frá Fagra-
skógi um hana minningarljóð og
segir þar m.a.:
Frá mörgu leiAi legKur
hinn Ijúfa hjartayl.
Vió ttrafir KÓdra manna
er K«tt aó finna til.
Og nú þegar við kveðjum Mar-
gréti frá Lóni og þökkum hennar
mikla starf, milda góðar minn-
ingar söknuðinn. Frá leiði hennar
leggur ljúfan hjartayl.
Að leiðarlokum minnist ég á ný
orðanna, sem töluð voru yfir
frænda hennar, Þorsteini Daniel-
sen, fyrir 98 árum. Þau gætu eins
hafa verið sögð um Margréti frá
Lóni: „Þú varst mikilmenni í stöðu
þinni. Þú varðir trúlega því pundi,
sem þér var lánað. Hljóttu trúrra
þjóna verðlaun."
Valur Valsson
í DAG, laugardaginn 3. janúar.
verða úrslit i teiknisamkeppni
um kirkju fyrir söfnuð Fella- og
Hólasóknar birt og vcrða tcikn-
ingar og líkön sýnd i Fellaskóla
frá kl. 15 til kl. 18 og einnig á
morgun, sunnudag. frá kl. 14 til
kl. 17.
Safnaðarnefnd Fella- og Hóla-
sóknar efndi til teiknisamkeppn-
innar og voru arkitektarnir Hilrn-
ar Ólafsson og Hrafnkell Thor-
lacius, Ingimundur Sveinsson og
Gylfi Guðjónsson, Þorvaldur
Þorvaldsson og Mannfreð Vil-
hjálmsson fengnir til að taka þátt
í samkeppninni.
UNGLINGASKÁKMÓTINU i
Skien i Noregi lauk i gær en þar
voru 7 islenzkir piltar meðal 50
keppcnda.
Úrslit urðu þau að sænska
stúlkan Pia Kramling sigraði,
hlaut Vk vinning af 9 mögulegum.
Elvar Guðmundsson náði beztum
árangri íslenzku piltanna, hlaut
6V£ vinning og hafnaði í 4. sæti.
Elvar hafði 6V2 vinning fyrir
síðustu umferðina og tefldi þá
mjög stíft til vinnings í skák sinni
við vestur—þýzka piltinn Lutz því
sigur í skákinni hefði fært Elvari
sigur á stigum í mótinu. En Elvar
spennti bogann of hátt og varð að
gefa skákina.
Mikill hugur er í þeim sem að
safnaðarmálum starfa að kirkja
rísi sem fyrst í Fella- og Hóla-
sókn. Þetta er stærsta og barn-
flesta hverfi borgarinnar. Ýmsir
hafa sýnt þessu verkefni áhuga og
safnaðarnefndin vill hér með
koma á framfæri þakklæti til
tveggja aðila er gefið hafa til
kirkjubyggingarsjóðs, þ.e. Kvenfé-
lagsins Fjallkonunnar sem afhenti
söfnuðinum á síðasta ári kr.
500.000. Einnig afhenti Skúli
Pálsson f.h. systur sinnar Hlífar
Pálsdóttur frá Kirkjubóli, Korpu-
dal, Önundarfirði kr. 500.000 til
minningar um eiginmann Hlífar,
Vigfús Ingvarsson frá ísafirði.
Af hinum íslendingunum er það
að segja að Róbert Harðarson
hlaut 6 vinninga og varð 6., Karl
Þorsteins hlaut 5% vinning og
varð 11., Ágúst Karlsson hlaut 5
vinninga og varð 15., Jón Árni
Jónsson hlaut 4V£ vinning og varð
30. og Hrafn Loftsson og Lárus
Jóhannesson hlutu 4 vinninga.
Ólafur Ólafsson, fararstjóri
piltanna sagði í gær að aðbúnaður
í Skien hefði verið mjög góður og
skipulag eins og bezt væri á kosið.
Þátttakan í mótinu hefði verið góð
reynsla fyrir þessa ungu skák-
menn.
Elvar náði beztum
árangri í Skien