Morgunblaðið - 03.01.1981, Page 24

Morgunblaðið - 03.01.1981, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981 Bráðabirgðalög: 7% vísitöluskerðing 1. marz Ólafslög skerða áfram laun yfir 725 þúsund gömlumkrónum Hér íara á eftir bráðabirjíða- lög þau. sem geíin voru út á KamlársdaK: 1. gr. 7. gr., 1. mgr. laga nr. 121 30. des. 1978 um kjaramál orðist svo: Ekki má hækka verð vöru eða þjónustu eða endurgjald fyrir af- not af fasteign eða lausafé frá því sem var 1. janúar 1981 til 1. maí 1981 nema að fengnu samþykki réttra yfirvaida, og skulu þau ekki leyfa neina hækkun nema þau telji hana óhjákvæmilega. Leyfi til hækkunar tekur þó ekki gildi fyrr en það hefur hlotið staðfestingu ríkisstjórnarinnar. 2. gr. ' Fyrsti málsliður ákvæðis tii bráðabirgða í 33. gr. laga nr. 13 10. apríl 1979 um stjórn efnahags- mála o.fl. orðist svo: Vaxtaákvarðanir skulu við það miðaðar, að fyrir árslok 1981 verði komið á verðtryggingu sparifjár og inn- og útlána, sbr. VII kafla þessara laga um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár. 3. gr. Við 36. gr. laga nr. 13 10. apríl 1979 um stjórn efnahagsmáia o.fl. bætist eftirfarandi ákvæði: Stofna skal til verðtryggðra sparifjárreikninga í bönkum og sparisjóðum, þar sem binda má fé til sex mánaða. 4. gr. Kauplagsnefnd skal reikna vísi- tölu framfærslukostnaðar miðað við verðlag í janúarbyrjun 1981. Heildarútgjöld vísitölunnar þá skulu vera sú grunnupphæð, er síðari breytingar hennar miðast við, og jafngilda því grunntölu 100 1. janúar 1981. Skíðan skal vísital- an reiknuð miðað við byrjun mánaðanna febrúar, maí, ágúst og nóvember 1981, og eftir það fjór- um sinnum á ári í sömu mánuðum, eftir grundvallarreglum, sem Kauplagsnefnd setur. Við þennan útreikning skal sieppa broti úr vísitölustigi, hálfu eða minna, en annars hækka í heilt stig. Nú óskar stjórn Alþýðusam- bands íslands eða stjórn Vinnu- veitendasambands íslands eftir því, að vísitala framfærslukostn- aðar verði reiknuð aukalega í öðrum mánuði en skylt er að reikna hana samkvæmt 1. málsgr. þessarar greinar, og skal þá Kaup- lagsnefnd verða við þeirri ósk, enda sé hún borin fram með minnst tveggja vikna fyrirvara. 5. gr. A tímabiiinu 1. mars til 31. maí 1981 skal greiða verðbætur á laun, eins og þau eru í ársbyrjun, í hlutfalli við breytingu vísitölu framfærslukostnaðar frá grunn- tölu hennar í janúarbyrjun til febrúarbyrjunar 1981. Þó skulu verðbætur á laun 1. mars 1981 ekki vera meira en 7 prósentustig- um lægri en orðið hefði sam- kvæmt ákvæðum laga nr. 13 1979. Á hverju þriggja mánaða tímabili frá 1. júní, 1. sept. og 1. des. 1981 skal síðan greiða verðbætur á laun samkvæmt hlutfallslegri breyt- ingu á vísitölu framfærslukostn- aðar frá 1. febr. til 1. maí, 1. maí til 1. ágúst og 1. ágúst til 1. nóv. 1981. Við útreikning á breytingu vísi- tölu framfærslukostnaðar sam- kvæmt fyrri málsgrein skal miða við hana að frádregnum áfengis- og tóbaksliðum. Verðbætur 1. júní, 1. september og 1. desember á þann hluta dagvinnulauna, sem er yfir 725 þúsund krónur á mánuði eða hliðstæð vikulaun og tímalaun, skulu skerðast skv. ákvæðum 50. gr. laga nr. 13 frá 1979, og breytist þessi viðmiðunartala í samræmi við áorðna hækkun verðbótavísi- tölu. 6. gr. Verðbætur á laun samkvæmt þessum lögum skulu reiknaðar með tveimur aukastöfum. Kaup- lagsnefnd tilkynnir opinberlega hverju sinni hvaða verðbætur skuli greiddar á laun. 7. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að fresta framkvæmdum þrátt fyrir ákvæði fjárlaga fyrir árið 1981, sem þar er gert ráð fyrir, eða í lánsfjáráætlun fyrir sama ár, telji hún það nauðsynlegt. Tekur þetta einnig til fjárlagaliða, sem jafn- framt eru ákveðnir með öðrum lögum en fjárlögum. 8. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt eru úr gildi felld lög nr. 70 20. nóvember 1967 um verðlagsuppbót á laun og um vísitölu framfærslukostnaðar. Efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar: Verðbólgan verði 40% á árinu - verðstöðvun frá 1. janúar til 1. maí Hér fer á eftir tilkynning ríkisstjórnarinnar um þá efna- hagsáætlun. sem samkomulag náðist um á gamlársdag: „Þær aðgerðir í efnahagsmál- um, sem ríkisstjórnin hefur undir- búið, mótast af þrem aðalmark- miðum. I fyrsta lagi að efla atvinnulífið og tryggja öllum landsmönnum næga atvinnu. I öðru lagi að draga svo úr hraða verðbólgunnar, að hún lækki í um 40% á árinu 1981. í þriðja lagi að tryggja kaup- mátt launafólks. Um leið og gjaldmiðli þjóðar- innar verður breytt 1. janúar 1981, þannig að ein ný króna jafngildi lOOgömlum krónum, eru ákveðnar þær efnahagsaðgerðir, er nú skal greina: 1. Géngissigi verður hætt um áramót og gengi krónunnar haldið stöðugu næstu mánuði. 2. Verðstöðvun er ákveðin frá 1. janúar til 1. maí og verða engar hækkanir á vöru eða þjónustu heimilaðar nema með samþykki verðlagsyfir- valda og mega þau ekki heim- ila hækkanir á vöru og þjón- ustu nema þau telji þær óhjákvæmilegar. Slík leyfi skulu háð samþykki ríicis- stjórnarinnar. 3. Vísitala framfrælsukostnaðar ' verði ákveðin 100 1. janúar 1981 á grundvelli sérstakrar könnunar á framfærslukostn- aði. Þrátt fyrir ákvæði 50. og 51. gr. laga nr. 13 1979 skulu greiddar fullar verðbætur á laun 1. mars, 1. júní, 1. sept- ember og 1. desember 1981 samkvæmt framfærsluvísitölu eins ojg hún breytist frá 1. janúar 1981. Verðbreytingar á áfengi og tóbaki hafa þó engin áhrif á verðbætur á laun. Verðbætur á laun 1. mars skulu ekki vera meira en 7% Iægri en verið hafði sam- kvæmt ákvæðum laga nr. 13 frá 1979. Verðbætur á dagvinnulaun, sem eru yfir 725 þúsund krón- ur á mánuði, skerðast sam- kvæmt ákvæðum 50. gr. laga nr. 13 frá 1979, og breytist þessi verðmiðunartala í sam- ræmi við verðbótavísitölu þessara launa. Sú skerðing sem verður á verðbótum 1. mars verður þannig bætt: Verðbætur á laun 1. júní, 1. september og 1. desember verða hærri en ella hefði verið að óbreyttum lög- um, kaupmáttur á hverju verðbótatímabili rýrnar minna vegna talsvert minni verðbólgu, skattar verða lækk- aðir sem svarar til V/2% í kaupmætti lægri launa og meðallauna, og vextir eru lækkaðir og lánum húsbyggj- enda er að nokkru breytt í lán til lengri tíma. 4. Á næstu mánuðum verða ákveðin tímasett mörk fyrir hámark verðhækkana í sam- ræmi við hjöðnun verðbólgu. 5. Viðræður verði hafnar við samtök launþega og aðra hagsmunaaðila atvinnulífsins um framkvæmd samræmdrar stefnu í kjaramálum, atvinnu- málum og efnahagsmálum til næstu tveggja ára. 6. Strangt og stöðugt eftirlit verður haft með því, að útlán banka og sparisjóða verði í samræmi við markmið ríkis- stjórnarinnar í efnahagsmál- um sbr. 28. gr. laga nr. 13 frá 1979. 7. Aðlögunartími til þess að koma á verðtryggingu inn- og ntlán; verður framlengdur til ársloka 1981. Skylt skal þó innlánsstofnunum að hafa á boðstólum verðtryggðá spari- reikninga, þar sem binditimi verði 6 mánuðir í stað tveggja ára. 8. Útgerð og fiskvinnslu verður gert kleift að breyta skamm- tímalánum og lausaskuidum í lengri lán. 9. Vextir af gengistryggðum af- urðalánum skulu lækkaðar úr 8,5% í 4%. 10. Stefnt verði að almennri lækk- un vaxta 1. mars. 11. Verðjöfnunarsjóði sjávarút- vegsins skal útvegað fjármagn til þess að tryggja eðlilega afkomu fiskvinnslunnar, ef þörf krefur vegna stöðvunar gengissigs. 12. A hliðstæðan hátt verður út- vegað fjármagn til að tryggja afkomu samkeppnisiðnaðar og útflutningsiðnaðar. Því fjár- magni verði ráðstafað til fyrirtækja á svipaðan hátt og söluskattur er endurgreiddur, eða til stuðnings iðnaði um- fram það, sem þegar er ákveð- ið, svo sem með fjárframlög- um til hagræðingarverkefna og eflingar lánasjóða iðnaðar- ins. 13. Hraðað verði samanburði á starfsskilyrðum höfuð- atvinnuveganna og þau sam- ræmd. Tryggt verði að starfs- skilyrði iðnaðar verði ekki lakari en annarra atvinnu- greina. Þannig verður hlut- deild iðnfyrirtækja í rekstrar- og afurðalánum Seðlabankans aukin frá ársbyrjun 1981 til samræmis við hliðstæð lán til annarra atvinnuvega. Jafn- fm.T.t yprða endnrskoðaðar reglur varðandi veðhæfni á aðföngum og framleiðslu- birgðum iðnfyrirtækja. 14. Vegna íbúðabygginga og -kaupa skal stefnt að því að breyta skammtímalánum og lausaskuldum í föst lán til lengri tíma. Að þessari skuld- breytingu verði unnið á vegum viðskiptaráðuneytisins, Seðla- banka, félagsmálaráðuneytis- ins og Húsnæðismálastofnun- ar ríkisins. 15. RíkÍ8stjórninni er heimilt að fresta einstökum opinberum framkvæmdum til þess að koma í veg fyrir hugsanlega ofþenslu í efnahagslífinu og til þess að afla fjármagns til að treysta kaupmátt lágtekju- fólks. 16. Ströngu aðhaldi verður áfram beitt í fjármálum rikisins. 17. Opinber þjónusta verður ekki hækkuð fyrr en við vísitölu- útreikning í maí-júní. 18. Vextir af verðtryggðum lánum til lengri tíma en 10 ára verði ekki hærri en 2%, en af lánum til skemmri tíma mest 4% umfram verðtryggingu. Auk framangreindra aðgerða í efnahagsmálum verður á næstu vikum og mánuðum unnið að eftirfarandi aðgerðum: 1. Verðlagsyfirvöld taki upp samvinnu við samtök neyt- enda og launafólks og við fjölmiðla um stöðuga kynn- ingu á leyfilegu og lægsta verði hverrar vöru. í þessu skyni verði veitt nokkurt fé úr ríkissjóði. 2. í athugun er að beita krónu- töluálagningu þar sem kostur er í stað prósentuálagningar. 4. Innkaup opinoerrá oíll® Y?r&* endurskoðuð með hliðsjón af möguieikum til lækkunar- áhrifa á almennt innflutnings- verðlag. 5. Samanburðarkönnunum á erlendu verðlagi og efldu verð- lagseftirliti verði beitt til að skapa grundvöll fyrir eðlilegri verðmyndun í innflutnings- verslun. 6. Ríkisstjórnin mun stuðla að innkaupum í stórum stíl og stefna að því í áföngum að veita greiðslufrest á tollum. Þannig verði einnig dregið úr óhóflegum geymslukostnaði innfluttrar vöru og rýrnun umfram það sem erlendis ger- ist. 7. Vaxtakerfið verði endurskoðað í heild með einföldun fyrir augum og dregið verði úr þörf fyrir vaxtamismun með hækk- un á þjónustugjöldum banka og sparisjóða. 8. Skipuð verði nefnd til að gera tillögur um almenna meðferð efnahagsmála og með hverjum hætti best megi samræma skipulag og markmið efna- hagsstefnu til lengri tíma. Nefndin kanni stofnun sér- staks efnahagsráðuneytis í þessu skyni. 9. Rækileg úttekt verði gerð á næstu mánuðum, með aðstoð sérfróðra manna, á rekstri umsvifamestu fyrirtækja og stofnana hins opinbera. Stefnt skal að hagræðingu í rekstri, samræmingu framkvæmda- áætlana stofnana og fyrir- tækja undir stjórn ríkisins og aukinni hagkvæmni í innkaup- um, mannahaldi og fram- kvæmdum. 10. Kjarasamningar ríkisins, ríkisfyrirtækja, ríkisstofnana og annarra aðila, sem ríkið hefur að meirihluta til undir sinni stjórn, verði samræmdir og þannig spornað gegn launa- skriði í opinbera geiranum og því misræmi, sem af slíku hlýst. 11. Tollheimta af tækjum til at- vinnureksturs verði endur- skoðuð með það fyrir augum að auka möguleika á fram- leiðniaukningu i þessum greinum. 12. Orkustefnunefnd geri tillögur um leiðir til að nýta orkulindir landsins á næstu árum, sér- staklega að því er varðar meiriháttar iðnað, sem lands- ménn ráða við. 13. Rikisstjórnin beiti sér týFÍr aðstoð til fyrirtækja, sem þarfnast sérfræðiaðstoðar við hagræðingu og framleiðni- aukningu. Samhliða þessum aðgerðum verði mörkuð atvinnustefna, sem tryggi stöðugleika í hagkerfinu, aukna framieiðni og framleiðslu og hagkvæmni 1 Íjárfssíi.lfu-H Af hálfu ríkisins verði stöðug- leika gætt með skipulegri áætl- anagerð um opinbera fjárfestingu eftir landshlutum í því tilefni að forða að komi til ofþenslu eða atvinnuleysis og verði þar bæði tekið mið af áætlunum um fjár- festingu einkaaðila og sveitarfé- laga sem og ríkisins. Meðal meginþátta slíkrar at- vinnustefnu verði samræming veiða og vinnslu í sjávarútvegi, athugun á fjölda fiskvinnslufyr- irtækja í einstökum byggðalögum og samvinna milli þeirra, svo og áætlun um endurnýjun fiskiskipa- stólsins. Ennfremur verði gerðar áætlanir um framleiðniaukningu atvinnuveganna, aukna fjöl- breytni í íslenskum iðnaði og um heildarstefnumörkun í landbúnaði og úttekt gerð á möguleikum nýrra búgreina. Skipulagt arð- semismat verði tekið upp á fjár- festingum opinberra aðila og at- vinnufyrirtækja og á framkvæmd útlánastefnu í sambandi við fjár- festingaráætlanir."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.