Morgunblaðið - 03.01.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981
25
Htibner lék af sér
hrók í 7. skák-
inni og gafst upp
EINS og kunnugt er af fréttum
stendur nú yfir skákeinvigi
mikið í Meranó á Ítalíu. Þar
eigast við vestur-þýski stór-
meistarinn Robert Húbner og
hinn siunKÍ Viktor Korchnoi.
Sigurvegari þessa einvigis verð-
ur eigi öfundsverður af hlut-
skipti sinu enda mun hann
væntanlega heyja langt og
strangt einvígi við núverandi
heimsmeistara Anatoly Karpov.
Eins og sakir standa eru kapp-
arnir jafnir að vinningum eftir
að Korchnoi jafnaði metin í 7.
skákinni sem tefld var á
fimmtudaginn. Báðir hafa unn-
ið 2 skákir en 3 skákum hefur
lyktað með jafntefli. Því er ljóst
að hart verður barist og erfitt
er að spá um úrslit á þessu
stigi.
A mánudaginn var tefld 6.
skákin í einvígi þeirra félaga og
lyktaði henni með jafntefli í 88.
leik. Skákin var lengst af í
jafnvægi og eftir 54 leiki var
komin upp staða þar sem Korch-
noi hafði hrók og riddara á móti
hrók. Slíkar stöður eru auðvitað
ekkert nema jafntefli en samt
sem áður þjösnaðist gamli mað-
urinn áfram í 34 leiki en vita-
skuld án árangurs. Eins og að
framan greinir var 7. skákin
tefld á fimmtudaginn. Eftir að-
eins 9 leiki var búið að skipta
upp á drottningum og framhald-
ið varð sannkölluð langavitleysa
þar sem hvorugum tókst að
komast nokkuð áfram. í 63. leik
vöknuðu áhorfendur upp með
andfælum er Húbner lék af sér
heilum hrók og gafst þá upp. Þar
með fékk Korchnoi ódýran vinn-
ing sem honum mun ekki veita
af í baráttunni sem framundan
er. Annars er rétt að minna á að
Guðmundur Sigurjónsson er nú
mættur á vettvang og því er
gamla manninum hollara að
fara að vara sig!
Að sjálfsögðu mun ég ekki
eyða dýrmætu plássi í 7. skákina
en þess í stað kemur hér 6.
skákin sem var öllu meira fyrir
augað.
Hvítt: Viktor Korchnoi.
Svart: Robert Húbner.
Drottningarbragð
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6. 3. Rf3
— d5, 4. Rc3 - Be7, 5. Bf4 -
0-0, 6. e3 — c5, 7. dxc5 — Bxc5,
8. Dc2 - Rc6, 9. Hdl - Da5,
10. a3 - Be7, 11. Rd2 - e5.
Athyglisverður möguleiki er 11.
— a6!? sbr. Petrosjan — Spassky
Buenos Aires 1979 en þar varð
framhaldið 12. Be2 — Bd7, 13.
0-0 - Hac8, 14. Bg3 - b5 og
keppendur urðu fljótlega ásáttir
um jafntefli. 12. Bg5 — d4, 13.
Rb3 - Dd8, 14. Be2 - a5!
Textaleikurinn, sem er hugmynd
Gellers, miðar að því að hrekja
riddarann á b3 á verri reit. Aðrir
möguleikar eru 14. — Rg4 eða 14.
— h6 (Korchnoi — Karpov
Baguio 1978 9. einvígisskák.) 15.
Bxf6 - Bxf6, 16. 0-0 - a4, 17.
Rc5 - Da5, 18. R3xa4 - Be7,
19. b4 — Da7, 20. Bf3 Hótunin
Skák
eftir JÓHANNES
GÍSLA JÓNSSON
var 20. — b6 með mannsvinn-
ingi. — dxe3, 21. fxe3 — Bxc5,
22. Rxc5 - I)xa3, 23. Dd2 -
Dxb4, 24. Dxb4 - Rxb4, 25.
Rxb7 - Ha3. 26. Rd6 - Be6
Eftir 26. — Hxe3 getur hvítur
valið milii þess að vinna peðið til
baka með 27. Hfel eða að leita á
vit ævintýra með 27. Rxf7!? —
e4!, 28. Bh5. Rétt er að taka fram
að ef svartur reynir að halda
fengnum hlut með 27. — Hxel,
28. Hxel — f6 kemur 29. Hbl! og
hvítur vinnur. 27. Hbl — Rc2,
28. Hfcl - Rxe3. 29. c5 - f5,
30. Rb5 - Ha2. 31. Hel - 14.
32. c6 - BÍ5, 33. Ilbcl - Hd2
Hvítur hótaði að leika 34. Hxe3!
ásamt 35. Bd5+ Ekki gekk 33. —
e4 vegna 34. Rc3 34. He2 — Hd3,
35. c7 — e4, 36. Bxe4 — Bxe4,
37. c8 — Hxc8. 38. Hxc8+ —
Kf7, 39. Rc3 - Bxg2. 40. Hc7+
- Ke6
Eins og sjá má er staðan í
jafnvægi en hvítur reynir þó að
gera sér mat úr stöðu sinni. 41.
IIxc3+ - fxe3, 42. Kxg2 -
Hd2+, 43. Kf3 - Ilxh2. 44.
Ilxg7 - h5, 45. IIg5 - IIf2+,
46. Kxe3 - HÍ5, 47. Hg8 -
Ha5, 48. Re4 — hf og friðar-
samningar voru undirritaðir 40
leikjum síðar!
Minnugur þess að „augað fýsir
illt að sjá“ læt ég fylgja hér
lokin í 7. skákinni.
Hvítur á leik og hefði nú best
leikið 63. Bb2 með 64. Bcl í huga,
og þá hefði jafntefli verið
skammt undan. Þess í stað kom
ótrúleg yfirsjón: 63. Kd5?? —
Re3+, 64. Ke5 og hvítur gafst
upp um leið enda verður hann
heilum hróki undir eftir 64. —
Rxg2.
Jón L. hafnaði
í 2.-5. sæti
JÓN L. Arnason hafnaði í 2.-5.
sæti á Evrópumeistaramóti ungl-
inga í skák, sem lauk í Groning-
en í Iloliandi í gær. Illaut Jón 9'/2
vinning af 13 miigulegum. sem er
góð útkoma. Sigurvegari í mót-
inu varð Svíinn Ralf Akesson
með 1112 vinning. sem er frába'r
útkoma. Svíinn vann 11 skákir.
gerði eitt jafntefli. við Jón L.
Arnason og tapaði einni skák
mjög slysalega, gegn Sovétmann-
inum Pigusov. Vinningshiutfall
Svians er 88,5%.
Jón L. Árnason sigraði í skákum
sínum í tveimur síðustu umferð-
unum. I 12. umferð vann hann
Skotann Motwani og í 13. umferð
sigraði hann Hollendinginn Kar-
olyi. Þeir sem hlutu 91 í; vinning
ásamt Jóni voru Sovétmennirnir
Andrianov og Pigusov og Danailov
frá Búlgaríu. Árangur Akessons
er svo góður að hann tryggir
honum alþjóðlegan meistaratitil í
skák.
Hvað er að gerast í bænum
Ofvitinn og
Rommí í Iönó
í kvöld verður Ofvitinn á
fjölunum i Iðnó, en annað kvöld
verður þar sýnt leikritið Rommí
eftir D.L. Coburn.
Ofvitinn eftir Þórberg Þórðar-
son í leikgerð Kjartans Ragnars-
sonar hefur nú verið sýndur á
annað leikár og virðist ekkert lát
vera á aðsókn. Kjartan er jafn-
framt leikstjóri sýningarinnar.
Jón Hjartarson leikur meistarann,
en Emil Gunnar Guðmundsson
leikur hann á unga aldri, þegar
sagan gerist. Fjöldi annarra leik-
ara tekur þátt í sýningunni og Atli
Heimir Sveinsson hefur samið
tónlistina við verkið.
Rommí hefur verið sýnt við
miklar vinsældir síðan í haust.
Það segir frá samskiptum tveggja
roskinna einstaklinga á elliheim-
ili, samskiptum sem á stundum
verða mjög stormasöm, en leikrit-
ið fjallar ekki eingöngu um aldr-
aða heldur manneskjur yfirleitt.
Það eru Gísli Halldórsson og
Sigríður Hagalín, sem fara með
hlutverk þeirra Fonsíu og Wellers,
en leikstjóri er Jón Sigurbjörns-
son.
Jón Hjartarson. Lilja Þórisdóttir og Emil Gunnar Guðmundsson i
hlutverkum sinum i Ofvitanum.
Á FJÖLUNUM:
Á FJÖLUNUM:
Blindisleikur í
Þjóðleikhúsinu
í KVÖLD og annað kvöld verða í
Þjóðleikhúsinu sýningar á Blind-
isleik eftir Jón Ásgeirsson og
Jochen Uirich.
Blindisleikur var frumsýndur á
annan dag jóla og hefur hlotið
góðar undirtektir. Jón Ásgeirsson
samdi tónlistina, en Jochen Ulrich
samdi dansana með aðstoð Svein-
bjargar Alexanders. Sigurjón Jó-
hannsson gerði leikmynd og bún-
inga, en Sinfóníuhljómsveit ís-
lands leikur undir stjórn Ragnars
Björnssonar. Sveinbjörg Alexand-
ers og Ingibjörg Pálsdóttir skipta
með sér aðalkvenhlutverkinu, en
Michael Molnar og Conrad Bukes
dansa aðalkarlhlutverkin; í öðrum
hlutverkum eru meðlimir íslenska
dansflokksins auk annarra, alls
um 40 manns.
Sveinbjörg Alexanders og Conrad Bukes í hlutverkum sinum i
Blindisleik.
Edda Erlendsdótt
ir heldur tónleika
á Kjarvalsstöðum
I DAG heldur Edda Erlendsdóttir
pianóleikari tónleika á Kjarvals-
stöðum og hefjast þeir kl. 17.
Á fyrri hluta efnisskrárinnar
eru verk eftir Arnold Schönberg,
Anton Webern og Alban Berg, en
eftir hlé verk eftir F. Schubert og
Robert Schumann.
Edda Erlendsdóttir er búsett í
París og kemur nú heim til að
halda fyrstu opinberu tónleika
sína hér sem einleikari, en fyrir
rúmum tveim árum lék hún hér á
vegum Tónlistarfélagsins með
David Simpson cellóleikra.
Edda er fædd i Reykjavík ariö
1950. Hún hóf nám í píanóleik í
einkatímum hjá Selmu Gunnars-
dóttur, en stundaði síðan nám í
píanóleik við Tónlistarskólann í
Reykjavík og voru kennarar henn-
ar þau Hermína Kristjánsson, Jón
Nordal og Árni Kristjánsson. Að
loknu stúdentsprófi árið 1970 inn-
ritaðist hún í píanókennaradeild
Tónlistarskólans og lauk þaðan
prófi 1972 og einleikaraprófi ári
síðar. Hún hlaut franskan styrk
til að stunda nám við Tónlistar-
háskólann í París og lauk þaðan
prófi vorið 1978. Kennarar hennar
í París voru Pierre Sancan í
píanóleik og Jacques Parrenin í
kammermúsik. Edda hefir einnig
stundað nám við sumarakademí-
una í Nissa og Ravel-akademíuna í
St. Jean de Luz í Frakklandi.
Eins og fyrr segir, hefjast þessir
tónleikar kl. 17 og verða aðgöngu-
miðar seldir við innganginn og
kosta nkr. 30 en nkr. 20 fyrir
námsfólk.
Þetta eru einu tónleikar Eddu
Erlendsdóttur, sem fyrirhugað er
að halda að þessu sinni hér í borg.
Edda Erlendsdóttir