Morgunblaðið - 03.01.1981, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 03.01.1981, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981 + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG STEFÁNSDÓTTIR, frá Þórukoti, Njarövík, lézt að heimili sínu, Hólagötu 3. Njarðvík, á nýársdag. Börn, tengdabörn, barna- börn og barnabarnabörn. + Konan mín, móðir okkar og fósturmóðir, JÓHANNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Rjúpufelli 21, lést í Borgarspítalanum 31. desember. Jón Guðmundsson, Órlygur Þorkelsson, Bennie Þorkelsson, Þórdís Þorkelsdóflir, Jóhanna Karlsdóttir. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma, GUÐRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR, Ölduslóö 17, Hafnarfiröi, andaðist í St. Jósefsspítala miövikudagínn 31. desember. Hinrik Albertsson, Halldóra Hinriksdóttir, Margrét Hinriksdóttir, Sigurjón Ingi Haraldsson, Guörún Sigurjónsdóttir. + Móöir okkar, tengdamóöir og amma. SIGURBJÖRG HJÁLMARSDÓTTIR frá Siglufirói, andaöist í Landspltalanum á nýársdag. Sigríöur Stefánsdóttir, Ingólf Klausen, Friöleifur Stefánsson, Björg Arnadóttir, Hjálmar Stefánsson, Halla Haraldsdóttii. Þröstur Stefánsson, Guömunda Ólafsdóttir og barnabörn. Faölr okkar, tengdafaöir og afi"^ ELLERT ÁRNASON fyrrverandi yfirválstjóri, lézt í sjúkradeild Hrafnistu 1. janúar. Sigrún Ellertsdóttir, Guölaugur Jóhannesson, Sigurþór Ellertsson, Sigurborg Bragadóttir og barnabörn. Maöurinn minn, BALDVIN SIGURÐSSON, , Sólvöllum 6, Akureyri, lézt í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 1. janúar 1981. Auóur Þorsteinsdóttir. + Móöir mín, GUORÚN JÓNMUNDSDÓTTIR, lést 27. desember 1980. Jaröarförin ákveöin þriöjudagín-. 6. janúar 1981 frá Fossvogs- kirkju kl. 10.30. Jónmundur Jensson. + Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, JÓHANNJÓHANNSSON, fyrrverandi skólastjóri á Siglufirði, lést hinn 30. desember. Jaröarförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 8. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Aöalheiöur Halldórsdóttir, Jónína Jóhannsdóttir, Stefanía Jóhannsdóttir, Finn Nielsen, Jóhann Heiöar Jóhannsson, Elín Björnsdóttir og barnabörn. Minning: Sigurður Tómas- son úrsmiður Þann 23. desember sl., að kvöldi dags, lést Sigurður Tómasson úr- smiður. Sigurður var nokkra ára- tugi allvel þekktur hér í Reykjavík og víðar. Þar sem Sigurður var kominn hátt á 88. aldursárið er hann lést, er að vonum margt af hans samferðafólki og vinum um ævina horfið sjónum. Vil ég því minnast að nokkru helstu æviat- riða hans. Sigurður var fæddur þ. 12. apríl 1893 að Efri-Gegnishólum, Gaul- verjabæjarhreppi í Árnessýslu. Foreldrar hans voru Tómas Magn- ússon bóndi og kona hans Hall- dóra Sigurðardóttir. Er nú einn bróðir Sigurðar, Ingjaldur Tóm- asson eftirlifandi úr hópi fjögurra systkina. Ég minnist að í einum af frásögnum Sigurðar, sagði hann að ein af hans fyrstu bernsku- minningum væri tengt klukku. En það var árið 1896 í landskjálftan- um mikla á Suðurlandi. Fólkið yfirgaf bæinn í flýti og ekki var útséð hvað uppi mundi standa eða hrynja. Þó var fljótlega reynt að nálgast fatnað, mat og heimilis- klukkuna, sem eflaust hefur verið einn af kjörgripum heimilisins. Björgun klukkunnar var stór við- burður i augum þriggja ára drengs. Á þeim timum voru úr og klukkur ekki algeng eign. Árið 1908 hóf Sigurður úrsmíðanám og var eitt ár hjá Guðmundi V. Kristjánssyni og þrjú ár hjá Jóni Hermannssyni úrsmið og starfaði hjá Jóni í þrjú ár í viðbót. Sigurður settist að um tíma á Eyrarbakka og starfrækti þar úrsmíðavinnustofu. En hugurinn stóð til frekara náms og fór hann út til Þýskalands og starfaði hjá hirðúrsmið F. Schlesicky í Frank- furt am Main. Einnig vann Sig- urður við sjó-cronometersmíði í Hamborg. Eftir að Sigurður kem- ur heim til íslands 1922 starfar hann hjá Magnúsi Benjamínssyni úrsmið í tvö ár og síðar hjá Árna B. Björnssyni í tíu ár. Eftir það, árið 1934 starfrækti Sigurður eig- ið úrsmiðaverkstæði á nokkrum stöðum hér í Reykjavík. Eflaust muna þó flestir eftir starfsemi hans að Skólavörðustíg 21, í sama húsnæði og í samstarfi við Jón Dalmannsson gullsmið, er lést fyrir allnokkrum árum síðan. Systir mín. + MARGRÉT HÁLFDÁNARDÓTTIR, Kaplaskjólsvegi 39, sem andaöist á jóladag, 25. desember, veröur jarösett frá Fossvogskirkju mánudaginn 5. janúar kl. 15. Guörún Hálfdánardóttir. + Bróöir minn, OTTÓ TRYGGVASON, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 6. desember kl. 15.00. Ellerl Tryggvason. Unnusta mín, móöir og dóttlr, BRYNDÍS LEIFSDÓTTIR, Mávabraut 5B, Kaflavfk, fré ísafiröi, lést ( Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn 29. desember. Jaröarförin fer fram frá Keflavfkurkirkju mánudaginn 5. janúar kl. 14.00. Ingólfur Matthiasson, Rut Ingólfsdóttir, Alda Guómundsdóttir. + Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúö og vinarhug viö ,ra,a" ÓLAFS B. JÓNSSONAR ráöunauts, Aöalstrssti 3, Akureyri. Guörún Halldórsdóttir, Björg Ólafsdóttir, Kristján M. Finnbogason, Hólmfríður Ólafsdóttir, Jakob Jónsson, Jón Jakobsson. + Innilegar þakkir færi ég öllum sem á einn eöa annan hátt minntust móöursystur minnar, GUDRÚNAR NIKULÁSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs fyrir góöa hjúkrun og umhyggju viö hina látnu. Fyrir hönd aöstandenda, Ólafur Gunnar Vigfússon. + Alúöarþakkir fyrir samúö og hlýhug viö andlát og útför JÓHANNESAR ADALSTEINS JÓNSSONAR Freyjugötu 9. Sérstakar þakkir færum viö samstarfsfólki hans í pósthúsinu. Guörún Jónsson, dætur, tengdasonur og barnabörn. Sigurður fylgdist ávallt mjög vel með öllum nýjungum í sinni iðngrein svo og hinum margvís- legustu málefnum. Meðal áhuga- mála hans má t.d. nefna ferðalög utanlands sem innan og mynda- tökur sem hann varð þekktur fyrir. Varð hann meðal þeirra fyrstu hér á landi til að taka myndir í lit. En Sigurður lét ekki þar við sitja, hann vann að margvislegum endurbótum og tilraunum, bæði er snertu iðngreinina og áhugamálin. T.d. hafði hann fundið upp og smíðað höggvörn í úr árið 1916, en það var allmörgum árum áður en höggvarin úr komu fyrst á mark- að. Hugmynd Sigurðar að högg- vörn hefur verið notuð í svissn- eskri úraverksmiðju um alllangt skeið. önnur merkileg uppfinning Sigurðar var svokölluð textavél er hann lauk við árið 1932, en það var að miklu leyti sjálfvirk sýningar- vél er sýndi prentað mál á kvik- mynd. Sennilega hefur tækið verið ætlað til notkunar við þöglar kvikmyndir. Sigurður var mjög hlynntur samvinnu manna á með- al og samtökum er stuðluðu að framförum og bættum kjörum fólks. Var hann félagsbundinn í mörgum félögum eða studdi önnur á annan hátt. Úrsmiðafélag íslands fór ekki á mis við félagsanda Sigurðar. Var hann í stjórn og varastjórn þess í áratugi, skipaður í fyrstu próf- nefnd stéttarinnar og síðar for- maður sömu nefndar í 15 ár. í forystusveit var Sigurður með- an Innflutningssamband úrsmiða starfaði, en það var stofnað á tímum innflutningshafta. Á fjörutíu ára afmæli Úrsmiða- félags íslands árið 1967, glöddust stéttarbræður Sigurðar með hon- um, er hann var kjörinn heiðurs- félagi þess fyrir langt og fórnfúst starf í þess þágu. Og eigi kom það á óvart er Sigurði var veitt viðurkenning Landssambands iðn- aðarmanna á degi iðnaðarins 1977 fyrir handverk og störf í úrsmið- astétt. Fyrir hönd Úrsmiðafélags íslands færi ég fram þakkir fyrir einstaka viðkynningu og störf á liðnum árum. Á starfsferli sínum útskrifaði Sigurður lærlinga og þar að auki veitti öðrum tilsögn á þeim verk- stæðum þar sem hann vann. Ekki var hjá því komist að sá tími er fórnað var í þágu hugðarefna bitnaði á hans eigin, en Sigurður var maður einfaldleikans og ætl- aði ekki mikils sér til handa. Sigurður kom mér fyrir sjónir sem hamingjusamur maður, rólegur, þægilegur i umgengni allri og virtist ávallt hafa nægan tíma. Hraði og stress virtust fjarlæg hugtök í nærveru hans. Mörgum öðrum góðum kostum var Sigurður búinn en ætla má af þvi sem á undan er rakið, en veitt var athygli kurteisi og hógværð hans. Er hann flutti mál sitt var það gert hávaðalaust og ókryddað, en ávallt var hlýtt á mál hans með athygli. Að á tuttugu ára kynnum mín- um og nærri daglegum samvistum við Sigurð, skuli ekki eitt styggð- aryrði hafa fallið frá hans hendi, það tel ég lýsa persónu Sigurðar betur en mörg orð. Ég þakka vináttu og ómetanlega kynningu í okkar samfylgd. Blessuð veri minning hans. Hendrik Skúlason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.