Morgunblaðið - 03.01.1981, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981
29
fclk í
fréttum
Á Péturstorginu
+ Á jóladag færði Jóhannes Páll Páfi miklum mannfjölda, sem safnast hafði saman
í Vatikaninu jólakveðjur sínar og blessun. Tugir þúsunda dyggra kaþólikka tóku við
kveðjum hans, á Péturstorginu í Róm.
Skíða-
kóngurinn
frægi
+ ÞETTA er nýjasta fréttamynd-
in, sem við höfum rekist á af
konuntri vetrariþróttanna
sænska skiðakónginum Ingemar
Stenmark. Myndin er óvenjuleg
fyrir það að mjög sjaldan eru
fréttamyndir af Stenmark öðru
visi, en þar sem hann er sýndur á
fullri ferð á skiðunum sinum. bá
sést andlit hans sjaldnast. bessi
mynd er tekin að lokinni skíða-
keppni suður á ítaliu á „Ma-
donna di Campiglio“-skíðamót-
inu. bar sigraði Stenmark svig-
kappann Paul Frommelt frá
Liechtenstein.
Jólaskammturinn
+ HÆTT er nú við að íslenskir matarkaupendur jólin. Pólskur efnahagur stendur nú vægast sagt
myndu ekki láta bjóða sér svona afgreiðslu, en höllum fæti. Hefur hinn ráðandi kommúnista-
myndin er tekin í Póllandi og sýnir hvar pólskar flokkur þar i landi sagt að pólsk alþýða megi
húsmæður kaupa matarskammtinn sinn fyrir vænta erfiðs árs.
Helgi Vigfússon:
Tengslin við íslend-
inga í Vesturheimi
Ég geri ráð fyrir, að margir eða
flestir lesendur Morgunblaðsins
viti, að á þessu nýbyrjaða ári 1981
er aldarafmæii hins vestur-
íslenzka kaupstaðar Gimli í
Nýja-íslandi, Manitoba í Kanada.
Nú þegar er hafinn undirbúningur
hátíðahaldanna um mánaðamótin
júlí-ágúst næstkomandi. Ég hygg
að allir séu sammála að samband
og samvinna við íslendinga í
Vesturheimi, eða Bandaríkjamenn
og Kanadamenn af íslenzkum
uppruna, megi ekki leggjast niður.
Eitt mesta hugðarmál mitt er
sambandið við fólk af íslenzkum
uppruna í Vesturheimi. Til þess
hef ég stofnað félag, Ferðaklúbb-
inn Ameríkuferðir, til að útbreiða
og efla frændrækni og ættfræðiá-
huga, og út hefir komið „Frétta-
bréf“ þessa félagsskapar.
Ég er afar þakklátur fyrir
hrifningu fólks á þessu framtaki
og hvað fólk hefir tekið þessum
félagsskap framúrskarandi vel,
árangur sem er óvæntur.
Að þessum nauðsynlegu sam-
bandsmálum vinn ég dag út og dag
inn. Reyni eftir fremsta megni að
greiða götu þeirra sem skrifa eða
hringja, er leita ættingja annað
hvort hér heima eða vestur i
Ameríku.
Áhugi manna og kvenna af
íslenzkum uppruna vestanhafs á
íslandi og íslendingum er geysi-
lega mikill og af ýmsum ástæðum.
Árin hafa liðið blönduð skini og
skuggum. Sólskinsstundum
hugljúfra minninga, sem tengdar
eru við samverustundir með hjart-
fólgnum vinum, ömmum eða öf-
um, feðrum eða mæðrum, systrum
eða bræðrum. Margir bjartir og
hlýir geislar höfðu borið inn í líf
fólks tengdir Islandi, meðan leiðir
lágu saman og þær minningar
einar útaf fyrir sig eru nægileg
hvatning, að leita uppi frænda eða
frænku á íslandi. Sögur ömmu og
afa hafa orðið mörgum Vestur-
íslendingi, hvati til Islandsferðar
oftar en einu sinni, hvati til þess
að halda íslenzku máli við. ís-
landsferðirnar hafa orðið hvatn-
ing og uppörfun, til að láta ekki á
sér standa að veita frjómagni og
sálubætandi áhrifum móttöku.
Vestur-íslendingar hafa fundið
með íslandsferðum sínum tæki-
færi til að tengja að nýju milli sín
og íslands bönd ástúðar og elsku.
Óneitanlega er það nokkuð ein-
kennandi fyrir íslendinga í Vest-
urheimi, að fyrsta hugsunin er
mætir ferðalangi frá íslandi í
Ameríku, skuli vera helguð ís-
landi. Vestur-íslendingar unna ís-
landi hugástum og bera heill lands
og þjóðar og velferð mjög fyrir
brjósti, og að þeir minna á landið
og biðja fyrir kveðju, er óneitan-
lega nokkur trygging þess, að þeir
hafi engu gleymt, þó þrír eða
fjórir ættliðir skilji í milli.
Því miður eru of margir Vest-
ur-íslendingar, er gista ísland á
sumrin, ekki svo lánsamir að hitta
ættingja.
Það er einmitt þessu fólki er
félagsmeðlimir í Ferðaklúbbnum
Ameríkuferðir víðsvegar um land-
ið vilja veita aðstoð. Láta þá finna
að þeir eru meðal frænda og vina,
bjóða þeim í kaffisopa eða öku-
ferð, kynna þá vinum og kunningj-
um svo dvölin verði ánægjulegri,
„heima á íslandi". Vilt þú, lesandi
góður, leggja þessu máli lið. Ef svo
er, láttu mig vita bréfleiðis eða
símleiðis, ég vil beina þeirri ósk til
þeirra, sem þetta mál lesa.
Helgi Vigfússon.
Bólstaðarhlið 50.
Brldge
Umsjónt ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgefélag
Breiðholts
Fyrsta spilakvöldið á árinu
verður á þriðjudaginn kemur, 6.
janúar, og verður spilaður eins
kvölds tvímenningur.
Spilað er uppi í húsi Kjöts og
fisks, Seljabraut 54 og hefst
keppnin kl. 19.30. Keppnisstjóri
verður Hermann Lárusson. Állt
spilafólk er velkomið og eru
spilarar beðnir að mæta stund-
víslega á nýja árinu.
Tafl- og bridge-
klúbburinn
Aðalsveitakeppni félagsins
hefst 8. janúar og að henni
lokinni hefir verið ákveðið að
spila fimm kvölda barómeter-
keppni. Þá verður árshátíð
klúbbsins á Hótel Sögu 7. febrú-
ar. Spilað er í Domus Medica.
Bridgefélag
Selfoss
Nýlega er lokið sveitakeppni
sem 12 sveitir tóku þátt í. Úrslit
urðu þau að sveit Gunnars Þórð-
arsonar sigraði, hlaut 49 stig.
Með honum eru í sveit Hannes
Ingvarsson, Sigurður Hjaltason
og Þorvarður Hjaltason.
Röð næstu sveita:
Sveit stig
Halldórs Magnússonar 33
Steingerðar Steingrímsd. 32
Auðuns Hermannssonar 6
Björns Jónssonar
Leif Österby
Málningarþjónustu Páls Árnas.
Upphaflega var sveitunum
skipt í tvo riðla, 6 sveitir í
hvorum. Fóru tvær efstu sveit-
irnar í A-riðil og spiluðu um
sæti frá 1—4. 2 næstu fóru í
B-riðil og spiluðu um sæti 5—8
og tvær neðstu fóru í C-riðil og
spiluöu um sæti 9—12.
Nýlega var keppt við Bridgefé-
lag Suðurnesja í sveitakeppni og
vann Bridgefélag Selfoss á öllum
borðum nema einu.
Fimmtudaginn 8. janúar 1981
hefst Höskuldarmótið í tvímenn-
ingi, sem jafnframt verður
meistaramót félagsins.
Þátttöku þarf að tilk. stjórn
félagsins sem allra fyrst.
Bridgefélag kvenna
Mánudaginn 12. jan. 1981
hefst starfsemin á sveitakeppni,
spilað verður í einum riðli.
Sveitaforingjar eru beðnir að
tilkynna þátttöku sem fyrst í
síma 17987 og 17933.