Morgunblaðið - 03.01.1981, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981
35
r
r,
Loks tap hjá
Vestur-Þjódverjum
- höfðu leikið 23 leiki í röd án taps
Vestur-bjóðverjar töpuðu loks
landsleik í knattspyrnu, en lið
þeirra tapaði 1—2 íyrir heims-
meisturum Argentinu i hinni
svokölluðu „Gullbikarkeppni“
sem haldin er í Uruguay þessa
dagana. Áður höfðu Vestur-
bjóðverjar leikið 23 landsleiki i
röð án þess að biða lægri hlut.
Tap liðsins kom nokkuð á óvart
miðað við gang leiksins, þvi að
bjóðvejarnir voru lengst af
sterkari aðilinn á vellinum, en
tvö mörk undir lok ieiksins færðu
Argentínumönnum sigurinn.
Argentínumenn byrjuðu frísk-
lega, en er Þjóðverjarnir létu þá
Felix Magath og Hans Peter
Briegel elta Diego Maraodna og
Osvaldo Ardiles, færðust þeir
mjög í aukana. Rétt fyrir leikhlé
náði liðið síðan forystu með fal-
legu skallamarki Horst Hrubesch,
en nokkru áður höfðu þeir Klaus
Allofs og Karl Heinz Rumenigge
verið nálægt því að skora. Framan
af síðari hálfleik voru Þjóðverj-
amir sem fyrr sterkara liðið, en
þegar 8 mínútur voru til leiksloka
fékk argentínska liðið horn-
spyrnu. Maradona framkvæmdi
spyrnuna og fyrirliðinn Daniel
Pasarella skallaði laglega í netið.
Fjórum mínútum síðar skoraði
Ramon Diaz síðan sigurmarkið
með glæsilegu skoti frá vítateigs-
línunni. Kom markið eins og
þruma úr heiðskíru lofti ...
Valsmenn urðu Reykjavíkurmeistarar í innanhússknattspyrnu um nýárið. Liðið
sigraði Fram í úrslitaleik með 5 mörkum gegn 4. Valsmenn tefldu meðal annars fram
Hilmari Sighvatssyni, miðherjanum sterka sem leikið hefur með Fylki síðustu árin. Á
meðfylgjandi mynd Bjarna Friðrikssonar má sjá hið sigursæla lið Valsmanna.
• bað eru ekki mörg ár síðan að Southampton vann bikarinn, var liðið þá i 2. deild og sigraði Manchester
Utd. mjög óvænt i úrslitunum. Southampton er nú eitt af bestu liðum 1. deildar og af mörgum talið
sigurstranglegt í FA-bikarkeppninni. Á meðfylgjandi mynd má sjá Charlie George fagna marki sinu í
markaleiknum mikla gegn Tottenham fyrir skömmu, leikurinn endaði 4—4.
• Horst Hrubesch, (t.v.) skoraði mark Vestur-Þjóðverja
gegn Argentínu, en það dugði ekki til sigurs.
Slakir Hollendingar
steinlágu gegn Uruguay
URUGUAY vann sannariega
óvætan sigur gegn Hollendingum
i „Gullbikarkeppninni“ i Monti-
evedo i Uruguay. 70.000 áhorf-
endur réðu sér vart af kæti er lið
þeirra skoraði tvívegis i fyrri
hálfleik og gerði þá i raun út um
lcikinn. Lokatölurnar urðu 2—0
og kom getuleysi Hollendinga
verulega á óvart. Uruguay-menn
léku enga sniildarknattspyrnu,
leikurinn i heild var slakur, en
sigur liðsins var þó verðskuidað-
ur.
Uruguay-menn voru lítt sann-
færandi framan af og var þá
hollenska liðið heldur skárra liðið
á vellinum. En þegar fór að líða á
fyrri hálfleik færðist heimaliðið
nokkuð í aukana og á 34. mínútu
skoraði Valencia Ramos laglegt
mark með skalla. Á síðustu mín-
útu fyrri hálfleiks bætti Valdemar
Victorino öðru marki við. í síðari
hálfleik reyndu Uruguay-menn
fyrst og fremst að verja fenginn
hlut og tókst það skakkafallalaust.
En leikurinn þótti dapur ...
Haukar mæta
Víkingum
annao kvöld
EINN LEIKUR fer fram annað
kvöid i 1. deild íslandsmótsins i
handknattleik. bá eigast við lið
Vikings og Hauka og fer leikur-
inn fram i Laugardalshöllinni.
Hann hefst klukkan 20.00. betta
er mikilvæg viðureign fyrir bæði
lið, ekki sist Hauka. sem berjast
harðri baráttu við faiidrauginn.
Leikur þessi átti að fara fram á
síðasta ári, en var frestað vegna
Evrópuleikja Vikinga.
3. umferð enska bikarsins í dag:
West Ham hefur titil-
vörnina gegn Wrexham
3. UMFERÐ ensku FA-bikar-
keppninnar fer fram i dag og er
það með stærstu dögum ensku
knattspyrnunnar. bá koma loks
stóru liðin, úr 1. og 2. deild, inn í
keppnina og etja kappi við smá-
liðin. sem hafa allt að vinna en
engu að tapa. Verða oft ótrúleg
úrslit og margt stórliða fellur
jafnan fyrir smælingja hendi.
Heldur fá utandeildarlið hafa
borað sér i þriðju umferðina að
þessu sinni, en engu að siður má
reikna með slatta af óvæntum
úrslitum. Til gamans skulum við
rifja upp hvernig drátturinn var.
West Ham — Wrexham
Leeds — Coventry
Plymouth— Charlton
Barnsley — Torquai
Bury — Fulham
Hull/Blyth — Doncaster
Colchester — Watford
WBA Grimsby
Everton — Arsenal
Derby — Bristol City
Liverpool — Altrincham
Mansfield — Carlisle
Burnlev — Knfield
Wimbledon — Oldham
Preston — Bristol Rovers
GillhinKham — Exeter
Leicester — Cardiff
Southampton — Man. Utd. — Briffhton Notts County — Blackhurn Norwich — Cambridffe Orient — Luton Ipswich — Aston Villa Man. City — Cr. Palace QPR — Tottenham Newcastle - Sheífield Wed. Stoke — Wolves Huddersfield — Shrewsbury Swansea — Middleshrouffh Nott. Forest — Bolton Birminffham — Sunderland Peterbr. — Sheffield Utd. Chelsea