Morgunblaðið - 03.01.1981, Blaðsíða 36
'Sími á ritstjórn og skrifstofu: ij^
10100
JMvrgunbbibib
Síminn á afgreiðslunni er
83033
2M«rgunbIflt>it>
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981
Tómas Árnason, viðskiptaráðherra:
Nýjar ráöstafanir
þegar líður á árið
Engar ákvarðanir um fé til iðnaðarins eða verðjöfnunarsjóðs-
ins, en beðið eftir verðhækkunum á erlendum mörkuðum
RÍKISSTJÓRNIN hefur ennar ákvarðanir tekirt um það. hvernijt útveKa á
verðjöfnunarsjóði sjávarútvejjsins fjármaxn til að tryxtcja eðlilejfa afkomu
fiskvinnslunnar ná heldur hvernitc útve>?a á fjármagn til að trygtfja
afkomu samkeppnisiðnaðar ok útflutningsiðnaðar. Tómas Árnason.
viðskiptaráðherra, sa«ði í samtali við Mhl. í Ka’rkvoldi. að menn vonuðust
eftir verðhækkunum sjávarafurða á erlendum mörkuðum ok KaKnvart
iðnaðinum ka-mu til Kreina að sínu mati afnám ýmissa Kjalda ok skatta.
Tómas saKði ennfremur, að nýjar ráðstafar r þyrfti að Kera, þeKar liður á
árið, ef takast ætti að ná þvi takmarki efoahaKsáætlunarinnar að draKa
svo úr hraða verðbólKunnar. að hún lækki í um 40% á þessu ári.
10% hækkun á allri
opinberri þjónustu
„Þessar aðgerðir nú miða að því að
koma í veg fyrir að verðbólgan á
þessu ári hækki upp í 70%. Þær
tryggja það, að hún fari ekki yfir
50% og ef til vill verður árangurinn
eitthvað fyrir neðan það, en takmark
efnahagsáætlunarinnar um að
lækka verðbólguna í 40% á þessu ári
þýðir viðbótarráðstafanir, þegar líð-
ur á árið, sagði Tómas Árnason,
viðskiptaráðherra, í samtali við Mbl.
í gærkvöldi.
Tómas sagði þó enn of snemmt til
að leiða getum að því, hvers eðlis
viðbótarráðstafanirnar yrðu eða
hversu víðtækar, en sagði framsókn-
armenn leggja áherzlu á það, að
menn reyndu sem fyrst að gera sér
grein fyrir því máli og ef niðurstað-
an yrði sú, að til viðbótaráðstafana
þyrfti að grípa þá yrðu hafnar
viðræður við hina ýmsu aðila þjóð-
félagsins þar um.
Mbl. spurði Tómas, hvaða upp-
hæðir væri um að ræða í sambandi
við fjármagn til verðjöfnunarsjóðs
sjávarútvegsins og iðnaðarins, sem
rætt er um í efnahagsáætlun ríkis-
stjórnarinnar og hvar taka ætti fé til
þeirra hluta. Tómas sagði engar
ákvarðanir liggja fyrir í þeim efn-
um. Menn væru að vona að sjávaraf-
urðir „lyftu sér„ á erlendum mörkuð-
um og að verðjöfnunarsjóðnum yrði
þá gert kleift að brúa bilið þar til
verðhækkanir kæmu fram. Varðandi
iðnaðinn sagði Tómas, að hann teldi
aðgerðir í hans þágu geta falist í
niðurfellingu á ýmsum sköttum og
gjöldum, sem gerðu rekstrargrund-
völl hans sambærilegan við til dæm-
is rekstrargrundvöll sjávarútvegs-
ins.
Loks spurði Mbl. Tómas um fyrir-
hugaða skuldabreytingu vegna
íbúðabygginga og kaupa. Hann sagði
það mál enn ómótað, en hins vegar
hlytu þeir, sem samþykkja slíkt, að
gera sér ljóst að slíkar breytingar á
skammtímalánum og lausaskuldum
kostuðu sitt. Sjálfur kvaðst hann
telja, að „með því að lina á lánskjör-
um fyrir þá, sem búnir eru að
byggja, þýði það að minna verður til
útlána í nýjar framkvæmdir".
Mbl. spurði Ragnar Arnalds, fjár-
málaráðherra, um fyrirhugaða
skattalækkun og staðfesti hann að
niðurfelling á sjúkratryggingar-
gjaldi á meðal- og láglaun kæmi
sterklega til greina til að auka
kaupmátt þeirra launa um þau 1,5%,
sem á vantaði að næðust aftur af
visitöluskerðingunni 1. marz.
Sjá fréttir bls. 16 og 17
og hráðabirgðalögin og
efnahagsáætlun ríkis-
stjórnarinnar bls. 24.
or^unXiTabií*
Morgunblaðið kostar i lausa-
sölu kr. 4,00 (gamlar kr.
400.-) frá og með 1. janúar
1981.
Áskriftar- og auglýsingaverð
er óbreytt.
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
gamlársdaK að hækka þjónustu allra
opinberra fyrirtækja um 10% um
áramótin og jafnframt að þessi
hækkun verði ekki bætt launþeKum i
visitöluhækkun 1. marz frekar en
aðrar hækkanir. sem samþykktar
voru tvo síðustu mánuði ársins 1980.
Samkvæmt upplýsingum þeirra
ráðuneyta. sem annast gjaldskrar
breytinKar opinberra fyrirtækja
voru umra ddar hækkanir ekki gefn-
ir út í Stjórnartíðindum fyrir ára-
mótin en fyrir liggur dómur um að
KÍIdistaka slikra hækkana miðist við
útKáfu þeirra í Stjórnartiðindum.
Ilins veKar Kaf iðnaðarráðuneytið út
tilkynningu um hækkun á rafmagni
ok heitu vatni i gær.
Samkvæmt upplýsingum Krist-
mundar Halldórssonar deildarstjóra í
iðnaðarráðuneytinu varð 10% hækk-
un á gjaldskrám allra hitaveitna og
rafmagnsveitna, sem selja raforku í
smásölu. Þá varð 16% hækkun á
heildsöluverði frá Landsvirkjun, Lax-
árvirkjun, Andakílsárvirkjun og Raf-
magnsveitum ríkisins. Hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur verður
hækkun í smásölu 10% að meðaltali
en 6,5% hækkun verður á heimilis-
taxta en 15% hækkun á taxta til
hitunar. Er með þessu verið að
minnka mun á heimilistöxtum RR og
Rarik. Hver rúmmetri af heitu vatni
kostar 2,23 nýkrónur hjá Hitaveitu
Reykjavíkur eftir hækkunina.
Kristmundur sagði að margar hita-
veitur, sem nú fengu hækkun hefðu
ekki verið búnar að sækja um hækk-
un. Hitaveita Reykjavíkur hafði sótt
um 40% hækkun frá 1. febrúar,
Landsvlrkjun hafði sótt um 30—40%
hækkun og Rafmagnsveita Reykja-
víkur hafði sótt um 28% hækkun.
Hinn 1. nóvember sl. fengu öll þessi
fyrirtæki 9% hækkun.
Halldór S. Kristjánsson deildar-
stjóri hjá samgönguráðuneytinu tjáði
Mbl. 10% hækkun á verði á þjónustu
Pósts og síma, Skipaútgerðar ríkisins
og Strætisvagna Reykjavíkur og
Kópavogs. Póstur og sími fékk 9%
hækkun 1. nóvember og hafði sótt um
25% hækkun frá 1. febrúar. SVR
hafði farið fram á 45% hækkun frá
sama tíma.
Geir Hallgrímsson
um bráðabirgðalögin:
Kaupskerding og
lögbundinn taprekstur
— Alþingi sýnd alvarleg óvirðing
- ÞINGFLOKKUR sjálfstæA
ismanna er ekki andvígur þvi, að
út séu gefin bráðahirgðalog. ef
óvænt vandamál krefjast úrlausnar
á meðan þing er ekki að störfum.
Hitt er fordæmanlegt. ef ríkis-
stjórn notar þetta vald til að gefa
út log um almenn efni. sem augljóst
var. að við þyrfti að bregðast á
þingtima. Allt frá þvi núverandi
ríkisstjórn var mynduð hefur að-
gerðarleysi einkennt afstöðu henn-
ar til efnahagsvandans. Fyrir jóla-
hlé Alþingis lýsti ég þvi skýlaust
yfir fyrir hönd þingflokks sjálf-
stæðismanna. að þingi ætti ekki að
fresta, ef i ráði væri að nota þann
tíma til útgáfu bráðabirgðalaga
um efnahagsmál. Versti grunur
okkar í því efni hefur ræst. Alþingi
hefur verið sýnd alvarleg óvirðing,
eðlilegar leikreglur hafa verið
brotnar. Þess vegna krefjumst við
þess nú. að þing verði tafarlaust
kallað saman og ekki síðar en 7.
janúar. Við þessi almennu ruk
bætist nú þverbrestur i stjórnarlið-
inu, sem gerir enn brýnna en áður
að fá úr því skorið. hvort aðgerðir
ríkisstjórnarinnar njóta meiri-
hlutafylgis á þingi. sagði Geir
Hallgrímsson. formaður Sjálfstæð-
isflokksins i ga-r. þegar Mbl. leitaði
álits hans á þeirri aðferð ríkis
stjórnarinnar að gefa út bráða-
hirgðalog um nokkra þætti efna-
hagsmála á gamlársdag.’
— í stuttu máli vil ég segja það
um efni aðgerðanna, sagði Geir
Hallgrímsson, að kjarni þeirra er
tvíþættur. Annars vegar er mælt
fyrir um 7% kauplækkun 1. mars
næstkomandi og hins vegar ákveðið,
að atvinnuvegirnir skuli reknir með
tapi. Alþýðubandalagið komst til
sinna núverandi áhrifa á þeim
forsendum, að ekki skyldi skerða
kjör manna með lögum, og Fram-
sóknarflokkurinn hefur síðustu
misseri sagst sömu skoðunar. Al-
þýðubandalagið settist í þessa ríkis-
stjórn með því skilyrði, að kaup-
máttur yrði ekki skertur. Hið þver-
öfuga blasir nú við. Til lítils var
barist í 10 mánaða samningaþófi á
árinu 1980, ef enginn kom auga á, að
sú barátta myndi leiða til slíkra
skerðingarráðstafana ríkisstjórnar-
innar. Við sjálfstæðismenn höfum
aldrei verið þeirrar skoðunar, að
launakostnaður væri eina orsök
verðbólgunnar. Hins vegar viljum
við ekki afsala stjórnvöldum rétti til
íhlutunar, ef í óefni er komið vegna
víxlgangsins í verbólgukerfinu og
óraunhæfra kjarasamninga. Ekki
eru nema nokkrar vikur síðan ríkis-
stjórnin lýsti því yfir, að í einu og
öllu hefðu kjarasamningar verið
henni að skapi. Nú er sú yfirlýsing
dregin til baka með eftirminnilegum
hætti og látið í veðri vaka, að allt
verði síðar bætt með afnámi einu
bitastæðu ákvæðanna, sem eftir
stóðu af Ólafslögum. Á innan við
tveimur árum hafa framsóknar-
menn þannig látið Alþýðubandalag-
ið kúga sig til undirgefni.
— Látið er í veðri vaka, að
taprekstur atvinnuveganna eigi að
bæta með millifærslu fjármuna,
sem enginn veit, hvar á að finna.
Skattheimtan er komin út fyrir öll
eðlileg mörk, svo að varla verður
enn og aftur hoggið í þann knérunn.
Þá er tvennt eftir, innistæðulaus
seðlaprentun eða lántaka erlendis.
Hvort tveggja mun auka á hraða
verbólgunnar og þar með eyðileggja
áhrifin af 7% kaupskerðingunni.
Þessar ráðagerðir eru haldlausar til
þess að vinna bug á verðbólgu. Við
sitjum í sama verðbólgustigi og við
gerðum fyrir ári, þegar ríkisstjórnin
tók við og þessar aðgerðir breyta
engu um það. Sýndarmennskan
blasir því við. Millifærslur leiða til
margfalds gengis, spillingar og
stöðnunar.
— Þá er mönnum boðið að verð-
tryggja sparifé sitt í 6 mánuði um
leið og sagt er, að vextir á útlánum
skuli lækkaðir. Þetta er þversögn.
Verðtrygging sparifjár hlýtur að
leiða til dýrari lána. Nýsamþykkt
fjárlög eru gerð ómerk með heimild-
arákvæði til að fresta framkvæmd-
um, sem þar eru tíundaðar. Og
meira að segja er gengið svo langt
að ómerkja ákvæði í lánsfjáráætlun,
sem alls ekki hefur hlotið fullnaðar-
afgreiðslu! Eftir er að ákveða fisk-
verð, sem þó átti að taka gildi um
áramót og kjarasamningar sjó-
manna eru lausir. Verkföll hafa
verið boðuð í ríkisverksmiðjum og
ríkisstjórnin virðist ráðþrota í því
máli.
— Bráðabirgðalögin eru þannig
fordæmanleg bæði vegna þeirrar
aðferðar, sem beitt var við setningu
þeirra, og þess, sem þau hafa að
geyma. Kaupskerðingin er aðalat-
riðið, án þess að hún skapi skilyrði
fyrir bættum lífskjörum í framtíð-
inni, og lögbundinn er taprekstur
atvinnufyrirtækja, sagði Geir Hall-
grímsson að lokum.