Morgunblaðið - 29.01.1981, Síða 1

Morgunblaðið - 29.01.1981, Síða 1
36 SÍÐUR 23. tbl. 69. árg. FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Víðtæk verkföll þrátt fyr- ir áskoranir Samstöðu Varsjá. 28. janúar. AP. SAMSTAÐA hefur boðað klukkustundar allsherjar- verkfall í aðvörunarskyni 4. febrúar nk. Um leið var ítrekaður vilji samtak- anna til viðræðna við vald- Muriel Humphrey Ekkja Humphreys í það heilaga Minneapolis — 28. janúar — AP. MURIEL Humphrey. ekkja Ilubert liumphreys fyrrum varaforseta Bandarikjanna, lýsti því yfir í dag að hún ætlaði að giftast kaupsýslu- manninum Max Brown, sem er jiamall skólabróðir henn- ar. Frúin, sem um skeið var á þingi er hún tók þar sæti eiginmanns síns í öldunga- deildinni að honum látnum árið 1978, er 68 ára að aldri. Systir brúðgumans, sem varð ekkjumaður fyrir ári, sagði að kærustuparið hefði þekkzt frá barnæsku og haldið kunn- ingsskap síðan, en aldrei hefði verið um samdrátt að ræða fyrr en nú. hafana í landinu hvenær sem væri, en tilkynnt að til langvarandi allsherjar- verkfalls kynni að verða hoðað áður en langt um liði, yrði kröfum verka- lýðsins i landinu ekki sinnt. ÞÆR FREGNIR bárust frá Kabúl I dag að götuhardagar i borginni hafi mjög færzt í vöxt á síðustu dögum og væri þar einkum um að raða árásir á handbcndi Karmals forseta úr Khalq-sveitinni. Ilefðu a.m.k. átta af því sauðahúsi verið skotnir til bana á síðustu tiu dögum. Þá hefur frétzt af hörð- um átökum i Panjshir-dal, skammt norður af Kahúl. en sá staður er hernaðarlega mjög mikilvægur. Fregnir af þessum átökum eru óijósar, en benda þó til þess að sovézka innrásarlið- inu gangi illa að verjast hinum herskáu uppreisnarmönnum. Brezka stjórnin tilkynnti í dag að hún styddi áframhaldandi vígbúnað afganskra uppreisnar- sveita, en talsmaður stjórnar- innar neitaði að svara þeirri spurningu hvort stuðningurinn væri fólginn í vopnasendingum. Hurd, aðstoðarutanrík- isráðherra Breta, skýrði einnig frá því á þingi, að í Afganistan verðust 40 uppreisnarsamtök sovézka innrásarliðinu, en til- raunir til að samræma krafta þeirra hefðu ekki tekizt fram að þessu. Ráðherrann kvað stað- hæfingar leppstjórnarinnar í Afganistan um að uppreisnar- menn hefðu verið brotnir á bak aftur ekki eiga við nein rök að í yfirlýsingu Samstöðu var því beint til félaga í verkalýðshreyf- ingunni að þeir efndu til verkfalla þangað til 4. febrúar, en samtímis bárust fregnir um skyndiverkföll á þremur stöðum og skæruverkföll í átta verksmiðjum í suðaustur- hluta landsins. A mörgum stöðum, þar sem unnið var, lögðu menn styðjast, um leið og hann sagði að Sovétmönnum hefðu orðið á „alvarleg mistök" með innrás- inni, og „Afganistan gleymdist ekki". „Ef þig langar að fara í annan flokk, þá er með öllu óþolandi að hafa þig sitjandi hér,“ sagði Foot við Williams, „og það er eins gott fyrir þig að fara að ákveða hvernig þú ætlar að hafa þetta í framtíðinni." Anthony Wedgewood-Benn, sá sem löngum hefur verið talinn lengst til vinstri af framá- mönnum í Verkamannaflokknum, lét ekki sitt eftir liggja, heldur æpti ókvæðisorðum að andstæð- niður vinnu í samúðarskyni og þeyttu sírenur á meðan. Á fundi í Rzeszow þar sem Lech Walesa var meðal ræðumanna skýrði fulltrúi frá Bielsko Biala frá því að á því svæði logaði allt í verkföllum. I Lodz eru um 10.500 námsmenn í setuverkfalli í skólum sínum, og ætla ekki að hverfa þaðan fyrr en yfirvöld gefa sig fram til að hlýða á erindi þeirra. Talsmaður náms- mannanna tjáði fréttamanni í dag, að þeir mundu ekki sinna áskorun Samstöðu um frestun verkfalla. Hann kvað ástæðu til að búast við því að háttsettir emb- ættismenn kæmu til viðræðna við námsmennina á fimmtudag, en helztu kröfur þeirra eru um aka- demískt frelsi og afnám skyldu- lærdóms í marxískum fræðum. ingum sínum á fundinum, ekki sízt Williams og Tom Bradley. Dennis Skinner lét mjög ófriðlega og sakaði Williams m.a. um sið- leysi, sem væri í því fólgið að lifa af tekjum sem hún fengi fyrir að vera í flokknum. Blaðið Sun birti í dag niður- stöður skoðanakönnunar sinnar, en samkvæmt þeim mundi nýr miðjuflokkur fara með sigur af hólmi ef þingkosningar færu fram nú. 43% þeirra, sem spurðir voru, Nauðsyn- legt að her- væðast á ný — segja Jones og Weinberger WashinKton — 28. janúar — AP CASPAR Weinberger, hinn nýi varnarmálaráðherra Bandarikjanna, skýrði frá því á þingi i dag. að ekki yrði hjá þvi komizt að draga úr ýmsum félagslegum verkefnum, eða hætta jafnvel við þau, ef tak- ast ætti að framfyigja þeirri stefnu stjórnar Reagans að „hervæða Bandarikin á ný“ eins og hann tók til orða. í þinginu var til umra>ðu skýrsla David Jones hershöfð- ingja. yfirmanns alls herafia Bandarikjanna. en þar kom fram að Bandarikin og sam- herjar þeirra yrðu að koma sér saman um nýja hernaðar- stefnu um víða veröld og efla herstyrk sinn svo að nægði til að mæta ögrunum Sovétrikj- anna við Persaflóa og annars- staðar. Ein tillaga Jones er að þegar verði hafin smíði og dreifing fullkominnar sprengjuþotu, sem tæki fram þeim loftvarna- búnaði er Sovétmenn hafa nú á að skipa, en hershöfðinginn þykir hér allmiklu djarfari í skoðunum en hann var í skýrslu sinni til Carter- stjórnarinnar fyrir ári. Sem kunnugt er hætti Carter við smíði B-1 sprengjuþotunnar á sínum tíma og var sú ráðstöfun mikið umdeild. Þá var Jones legið á hálsi fyrir að leggja sig ekki nægilega fram um að sannfæra forsetann um nauð- syn þess að Bandaríkjamenn kæmu sér upp þessari þotu, en í dag sagðist Jones aldrei hafa dregið dul á þá skoðun sína að illt væri að vera án hennar. sögðust mundu ljá slíkum flokki stuðning. Ef marka má könnun- ina er mestur áhugi á því að David Steel, formaður Frjáls- lynda flokksins, yrði leiðtogi hins nýja flokks, síðan Shirley Willi- ams en Roy Jenkins var í þriðja sæti í þeirri vinsældakeppni. George Brown lávarður og fyrr- um utanríkisráðherra Verka- mannaflokksins hefur lýst yfir stuðningi við stofnun nýs flokks. Hann sagði af þessu tilefni í dag, að hann hefði ekki fram að þessu lagt nafn sitt við sökkvandi skip, og að sínum dómi ætti nýr miðjuflokkur mikla framtíð fyrir sér. Sjá nánar á bls. 16. Enn hitnar í kol- unum í Kabúl Islamahad. 28. janúar. AP. Verkamannaflokkurinn: Heift og fúkyrði á leiðtogafundi I.undúnum, 28. janúar. AP. TIL HEIFTARLEGRAR orðasennu kom í dag á fundi framkvæmda- nefndar brezka Verkamannaflokksins. Gengu skammirnar svo langt að Michael Foot, hinn umdeildi og vinstrisinnaði flokksformaður, hreytti því i Shirley Williams og samherja hennar á fundinum. að þau skyldu annað hvort fara að makka rétt eða hætta i flokknum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.