Morgunblaðið - 29.01.1981, Síða 2

Morgunblaðið - 29.01.1981, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981 Attatíu erlendar stúlkur eru komn- ar í fiskvinnslu Mun færri en undanfarin ár UM ÞAÐ bil 80 erlendar stúlkur eru nú komnar til landsins í vertíðarbyrjun til starfa aðalleKa í ýmsum frystihúsum á Snæfells- nesi ok Vestfjörðum samkvæmt upplýsinKum Bjarna Elíassonar F ramkvæmdast jóri Listahátíðar: Dráttar- vextir stór- auka hallann Morjíunblaðið innti Örnólf Árnason fram- kvæmdastjóra síðustu Listahátíðar álits á þeim mikia halla sem hátíðin skildi eftir. Örnólfur sagði það aug- ljóst að á meðan tapið væri ekki greitt þá yxi greiðslu- hallinn vegna dráttar- vaxta. „Þegar við tilkynnt- um um allverulegan halla í ágústlok sl.,“ sagði Örnólf- ur, „um það bil 40 millj. kr. var miðað við greiðslu þá, en þegar upp var staðið reyndist hallinn um það bil 50 milljónir kr., en nú er þessi tala komin yfir 60 millj. kr. vegna dráttar- vaxtanna og m.a. eru þarna inni í myndinni um 7 milljónir kr. í dráttar- vexti til Flugleiða." hjá Solumiðstöð hraðfrystihús- anna. en Bjarni kvað beiðnir hafa komið um ráðninKU á 100 stúlk- um það sem af er en það væri mun fa‘rra en verið hefði undanfarin ár. Stúlkurnar koma í gegn um London frá ýmsum löndum. m.a. Ástralíu. Suður-Afríku, Banda- rikjunum og Kanada. Bjarni kvað nokkrar stúlkur einnig ráðnar til Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar en aðrir staðir hefðu ekki beðið um stúlkur í vinnu utan Meitillinn í Þorláks- höfn, en Bjarni sagði að SH stæði ekki að ráðningu starfsfólks þang- að vegna þeirrar aðstöðu sem frystihúsið biði þessum starfs- mönnum upp á. Það þarf að hyggja að mörgu um þessar mundir i mannlífinu því mikil hálka er ríkjandi á þjóðlífssvellinu. Maðurinn til vinstri er að feta sig á ísi lagðri gangstétt og konan veltir vöngum yfir því sem hún handleikur við budduna sína. Ljósmynd Mbl. Emiiía BjörK Flugmálastjóri um viðræðurnar í Luxemburg: Stefnt er að niðurstöðum í rekstrarkönnun fyrir 1. apríl „Á FUNDINUM í dag voru tekin fyrstu skrefin í þeirri viðleitni að koma flugrekstr- inum á Atlantshafsieiðinni aftur í lífvænlegt form fjár- hagsiega.“ sagði Agnar Ko- foed-IIansen flugmálastjóri í samtali við Mbl. í gær um viðræður íslenskra og luxem- burgiskra forráðamanna í Sjálfstæðisfólk á Akureyri: 50 ára afmælishátíð Sjálfstæðisfélögin á Akureyri efna til árshátíðar nk. laugar- dag. 31. janúar. sem hefst í Sjálfstæðishúsinu þar á staðnum stundvíslega klukkan nítján. Þetta er jafnframt 50 ára af- mælisfagnaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar en félagjð náði þeim aldursáfanga í desembermánuði sl. Forsala aðgöngumiða verður í Sjálfstæðishúsinu í dag, fimmtu- dag, og á morgun, föstudag, milli kl. 17 og 19 og þá verður jafnframt tekið á móti borðpöntunum. Miðar verða einnig afgreiddir á laugar- dag milli kl. 13—15, ef einhverjir verða eftir. Hátíðarræðu flytur Jónas Rafn- ar, bankastjóri, sem lengi var þingmaður Akureyringa og for- vegismaður sjálfstæðisfólks Norðurlandi eystra. á Jónas Rafnar. bankastjóri. flugmálum, en Agnar kvað góðan anda hafa ríkt á fund- inum sem fulltrúar Flugleiða. Cargolux og Luxair sátu auk aðila stjórnvalda. Verður við- ræðum haldið áfram nk.. föstudag og kvaðst Agnar fyrir sitt leyti ánægður með gang mála, hann væri bjart- sýnn á því að fyrir hendi væri fullur vilji til þess að gera átak í þessum málum en erfitt væri um vik vegna ástandsins á Atlantshafsleið- inni. Kvað Agnar stefnt að því að slíkur flugrekstur sem til umræðu væri yrði fjárhagslega sjálfstæður og án rikisstyrkja. „Ramminn að Líbíu- Fokkerinn í flug á ný VIÐGERÐ á Fokker-flugvél Flugleiða sem hlekktist á í lend- ingu í Líbíu í síðustu viku verður lokið fyrir helgi og hefur vélin þá farþegaflug að nýju, samkvæmt upplýsingum Björns Theodórsson- ar framkvæmdastjóra markaðs- deildar Flugleiða, en íslenskir flugvirkjar fóru utan til þess að yfirfara vélina og ganga úr skugga um hvað hefði bilað. Bilunin varð í nefhjóli og reyndist ekki alvarleg. þessum rekstri er fyrir hendi,“ sagði flugmálastjóri, „en það vantar mikið í myndina og könnun þar að lútandi fer nú í gang af fullum krafti, en stefnt er að því að ákvörðun verði hægt að taka um möguleg fyrstu skref í fram- kvæmdaátt fyrir 1. apríl í seinasta lagi ef sú verður stefnan, en menn voru sammála um að kanna málið og möguleikana ofan í kölinn á næstu vikum og mánuðum.“ Alusuisse mót- mælir orðbragði ísl. stjórnvalda RAGNAR Halldórsson forstjóri ISAL staðfesti í samtali við Mbl. i gær að Alusuisse hefði með skeyti mótmælt við islensk stjórnvöld þeim orðrómi scm ráðamenn á Islandi hefðu haft uppi i garð fyrirtækisins. Segir i skeytinu að Alusuisse telji óheppilegt að hald- ið sé áfram að útbreiða áburð sem sé skaðlegur fyrirtækinu að þeirra áliti og að það sé gert þrátt fyrir skýringar sem fyrirtækið hefur gefið stjórnvöldum á ákveðnum atriðum og jafnframt tilkynnt að nánari skýringar verði gefnar i febrúar, eða eins fljótt og unnt er. Sagði Ragnar að þessi ummæli hefðu farið víða um Evrópu á sl. tveimur vikum, en m.a. birtist slík umsögn í blaðinu Metal Bulletin. Varð það efnisyfirlit um álit stjórnvalda sent frá Center for Policy Research, eða upplýsinga- þjónustu sem Elías Davíðsson kerf- isfræðingur rekur á eigin ábyrgð. í samtali við Mbl. í gær sagði Elías að hann stæði fyrir upplýsingaöfl- un og upplýsingamiðlun í ýmsar áttir, bæði varðandi fjölmiðla og fyrirtæki. Kvaðst Elías enga pen- inga fá til þessarar starfsemi, aðeins stuðning frá ýmsum ein- staklingum í formi upplýsinga. Kvaðst Elías búa yfir ýmsum upplýsingum um starfsemi fjöl- þjóðafyrirtækja eins og Isal, Járn- blendifélagsins og IBM, en auk þess hefði hann samvinnu við efnisöflun hjá aðilum erlendis sem störfuðu innan ramma háskólarannsókna, kirkjulegs starfs og á vettvangi verkalýðsmála. Tvær FlugleiÖaáttii r í tvö ár til Saudi-Arabíu TVÆR AF DC-8 þotum Flug- leiða fara til Saudi-Árahíu eftir cinn mánuð til leigu- flugs í tvö ár samkvæmt ieigusamningi sem Flugleiðir eru nú að gera við flugfélagið Overseas National Áirways, sem leigir vélarnar af Flug- leiðum til vöruflutninga aðal- lega innan Saudi-Arabiu, samkvæmt upplýsingum Björns Theodórssonar fram- kvamdastjóra markaðsdeild- ar Flugleiða. Vélarnar verða leigðar án áhafna, en þá hafa Flugleiðir eftir til ráðstöfunar í farþegaflugi milli landa eina DC-8 þotu og þrjár Boeing þotur, en ein átta er í leiguflugi fyrir Air India með íslenskum flugmönnum. Áttan sem eftir er sinnir Atlantshafs- fluginu, þ.e. ein ferð á viku til Bahama og þrjár til New York, en þegar sumaráætlun kemst í fullan gang upp úr 1. apríl er gert ráð fyrir því að Flugleiðir leigi vélar til Atlantshafsflugsins. Á leið á miðin. I.jbHin. Snorrl Snorruon.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.