Morgunblaðið - 29.01.1981, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.01.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981 5 AÐALFUNDUR fulltrúaráðs SjálfstæðisfélaKanna á Akranesi var haldinn fyrir skömmu. Frá- farandi formaður, Inga Jóna Þórðardóttir, flutti skýrslu stjórnar og reikningar voru lagð- ir fram. Að loknum venjulegum aðal- fundarstörfum flutti Valdimar Guðjón Guðmundsson Indriðason, forseti bæjarstjórnar, erindi um málefni bæjarfélagsins. Fjörugar umræður urðu á fundin- um um stjórnmálastarfið og var m.a. samþykkt tillaga þess efnis að stjórn fulltrúaráðsins beiti sér fyrir því, að fram fari sameigin- legt prófkjör allra flokka á Akra- nesi vegna væntanlegra bæjar- stjórnarkosninga. Formaður var einhuga kjörinn Guðjón Guðmundsson, skrifstofu- stjóri, en aðrir í stjórn eru Bene- dikt Jónmundsson, Friðrik Jóns- son, Guðný Jónsdóttir, Halldór Sigurðsson, Hörður Pálsson og Þorgeir Jósefsson jr. INNLENT Guðjón Guðmunds- son kosinn formaður Verður magnesíum- framleiðsla næsti stóriðjukosturinn? SENN lýkur athugun á forsendum fyrir magnes- íumframleiðslu hérlendis, sem Tæknideild TSÍ, Iðn- tæknistofnunar íslands, Leitað að bílstjóra á bláum Saab Á þriðjudaginn, um klukkan 17, varð ung stúlka fyrir bifreið á Fríkirkjuvegi við Hljómskálann. Stúlkan var á leið austur yfir götuna þegar blá Saab-bifreið kom suður Fríkirkjuveginn og lenti á stúlkunni. Ókumaðurinn stöðvaði bifreiðina og ræddi stuttlega við stúlkuna, en þar sem hún var ómeidd skildu leiðir. Síðar kom í ljós að dýrt hljóðfæri, sem stúlkan var með í tösku var stórskemmt ef ekki ónýtt. Því eru það vinsamleg tilmæli slysarann- sóknadeildar lögreglunnar í Reykjavík að ökumaðurinn hafi tal af lögreglunni sem allra fyrst. hefur gert fyrir iðnaðar- ráðuneytið. Vegna þessa verkefnis, sem og margra annarra er keypt sérfræði- aðstoð bæði utanlands ok innan. Þetta kemur fram í nýju fréttabréfi TSÍ. Magnesíumframleiðsla er einn af álitlegustu stóriðjukostum, þar eð mikla hita- og raforku þarf til framleiðslunnar, en öll hráefni er hægt að fá innanlands. Þar eð magnesíum er léttasti smíða- málmurinn, eða um 65% af eðlis- þyngd áls, er því spáð, að notkun hans muni aukast mikið samfara auknum kröfum um léttari flutn- ingstæki, sem þarfnast minni orku. Virðist nú örla á tækifæri fyrir íslendinga að gerast iðnaðarþjóð með stóriðnað byggðan á sérstök- um innlendum aðstæðum og land- kostum. Að síðustu segir í fréttabréfi TSÍ, að þó að niðurstöður forsend- urathugunarinnar liggi ekki fyrir enn, sé þegar nokkur ástæða til bjartsýni. Fulltrúaráð Sjálfstæðisf lokks á Akranesi: Ljósm. A.S. H£H predslon “ Hjöruliðir Einnig eru tímareimar og tímakeðjur fáanlegar i flestar gerðir bifreiða og vinnuvéla. Stærsta sérverzlun landsins með legur, ásþétti, hjöruliöi og skildar vörur. Sendum u land allt. FÁLKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 - , - m TIMKEN MWMia Keilulegur FAG Kúlu- og rúllulegur Viftureimar Heitt í kolunum í sjávarút- vegsmálum Evrópuráðsins * Steingrímur Hermannsson kynnti stefnu Islands Evrópuráðsins i Strassburg fjallaði ég um okkar sjónar- mið í sjávarútvegsmálum og gerði grein fyrir okkar til- raunum til stjórnunar fisk- veiða og eflingar fiskistofn- ana og þessu var ákaflega vel tekið og mikið um það rætt,“ sagði Steingrímur Ilermanns- son sjávarútvegsráðherra í samtali við Mbl. í gær. Hann kvaðst hafa lýst yfir áhyggjum á því styrkjakerfi sem ryddi sér nú víða rúms í Evr- ópulöndum og sagðist hafa bent á að ýmsar aðrar leiðir væru skynsamlegri til eflingar sjávar- útvegsins. Steingrímur sagði að ágætar umræður hefðu farið fram eftir ræðu hans og mikill íslenskur bragur hefði verið á því margir íslendingar hefðu flutt ræður, Kjartan Jóhannsson, Þorvaldur Garðar Kristjánsson og Ólafur Ragnar Grímsson. Kvað Steingrímur þá alla hafa varað við styrkjastefnunni og kvað hann þetta sjónarmið hafa fengið meiri hljómgrunn en hann hefði þorað að vona, m.a. hefði írski fulltrúinn sagt að írar gætu tekið íslendinga sér til fyrirmyndar varðandi stjórnun fiskveiða. Steingrímur sagði að það hefði verið áberandi á þessum fundi hve heitt er í kolunum í þessum efnum og virtist nánast ómögu- legt að ná sameiginlegri stefnu. Frakkarnir voru t.d. harðir á móti áliti Evrópuráðsins og töldu það stuðla að enn meiri málaflækju á þessum vettvangi en væri til staðar nú þegar. Bentu þeir á að ef Portúgalir og Spánverjar kæmu inn í þessar veiðar eins og álitið reiknaði með þá myndi franskur sjávar- útvegur líða undir lok. Kvað Steingrímur mikið bera á milli og víða augljósan vanda í sjávar- útvegsmálum. Atvinnulausir múrarar: Fá þeir vinnu í Víðishúsinu? FORMAÐUR Múrarafélags Reykjavíkur, Helgi Steinar Karlsson. kom þeirri hugmynd á framfæri við félagsmálaráðu- neytið i gær hvort ekki sé mögulegt að nýta þann stóra hóp múrara, sem nú eru atvinnulausir i Reykjavík og nágrenni til viðgerða á Víðis- húsinu. Helgi Steinar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann hefði viljað koma hugmyndinni á framfæri og henni hefði ekki verið illa tekið. Þetta mál og ýmis önnur í sambandi við atvinnuástand hjá múrurum yrðu könnuð á næst- unni. Um ástæður fyrir miklu at- vinnuleysi múrara í vetur sagði Helgi Steinar að lítið hefði verið um úthlutun lóða undanfarin ár og það kæmi nú mjög harkalega niður á múrurum. Hann sagðist óttast að næstu vetur yrði ástandið enn verra og þá ekki aðeins hjá múrurum heldur einnig hjá öðrum iðnaðar- mönnum. Gunnar Björnsson, formaður Meistarasambands byggingar- manna, sagði í gær, að ein ástæðan fyrir atvinnuleysi múr- ara væri breytt byggingartækni. Veggir og jafnvel loft væru ekki pússuð í nýbyggingum þar sem steypt væri með fleka- og stál- mótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.