Morgunblaðið - 29.01.1981, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981
7
Alúðarþakkir til allra er sýndu mér vinsemd
og virðingu á áttrœðisafmæli mínu, 23.
janúar sl.
Eyþór Stefánsson
Ég þakka öllum þeim sem glöddu mig með
heimsóknum, gjöfum og kveðjum á áttræðis-
afmæli mínu hinn 12. desember sl.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún M. Teitsdóttir,
Njálsgötu 39.
=Hvíld=
Tauga- og vöövaslökun (aðferð J.H. Shultz).
Isometric (spenna — slökun).
Liökandi líkamsæfingar.
Öndunaræfingar.
Hvíldaræfingar, losa um streitu og vöðvabólgu.
Auðvelda svefn.
Nýtt námskeið hefst 2. febrúar.
Síðasta námskeið vetrarins hefst 2. marz.
Sími 82982 og 36534.
Æfingastöðin
=Hvíld=
Laugavegi 178
Þórunn Karveltdóttir,
íþróttakennari.
Kjólar — Kjólar
Nýtt, fjölbreytt úrval af samkvæmis- og kvöldkjól-
um. Allar stærðir. Hagstætt verö.
Opið á morgun Fatasalan
9—19* Brautarholti 22,
Nóatúnsmegin,
(við hliðina á Hlíðarenda).
Skattaframtal 1981
Tek að mér aö telja fram til skatts fyrir einstaklinga
og rekstraraðila.
Lögfræöiskrifstofa, Jón Þóroddsson hdl.,
Klapparstíg 26, III. hæð, Reykjavík.
Sími11330.
AUKANÁMSKEIÐ
4. FEBR.
SAMSKIPTI
VIÐ FJÖLMIÐLA
Stjórnunarfélag íslands mun efna til eins dags
námskeiðs um hvernig forráðamenn fyrirtækja
og félaga skulu haga samskiptum sínum viö
fjölmiðla. Námskeiðiö verður haldið í Kristalssal
Hótels Loftleiða mánudaginn 2. febrúar kl.
09—17, og aukanámskeið verður haldið miðviku-
daginn 4. febr. þar sem fullbókað er á hið fyrra.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Jörn Damgaard,
fyrrverandi fréttamaöur við Danska sjónvarpið, en
hann starfar nú sem ráðgjafi og leiðbeinir á
námskeiðum um samskipti fyrirtækja og stofnana
við fjölmiðla.
Á námskeiöinu er m.a. sýnd myndseglusbands-
spóla, þar sem teknar eru fyrir dæmigerðar
aðstæður sem upp koma í samskiptum fyrirtækja
við fjölmiðla.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma
82930._____________________
A STJÓRHUNARFÉLflG fSLANDS
SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930
(MMÉmir
Hvað vill
framsókn?
beir ræddust við í
sjónvarpinu á þriðju-
dagskvöld Ilalldór
Blöndai þinKmaður
Sjálfstæðisfiokksins úr
Norðurlandskjördæmi
eystra og Guðmundur G.
bórarinsson þingmaður
Framsóknarflokksins úr
Reykjavik. Umræðurnar
leiddu berlega í ljós hið
pólitiska flökt fram-
sóknarmanna. í raun er
ógjörningur að henda
reiður á raunverulegri
stefnu þeirra. Halldór
hélt sínu striki en Guð-
mundur fór úr einu víg-
inu í annað og las talna-
raðir frá Þjóðhags-
stofnun til að sannfæra
sjálfan sig um það. að
sist af öilu væru skattar
of háir hér á landi.
Athyglisvert var. að
hann bar saman mestu
erfiðleikaár síðari tima
1967/68 og 69, þegar
verðfall á útflutnings-
mörkuðum þrengdi hag
landsmanna. og siðustu
tvö ár, sem framsi'ikn-
armenn telja þó þau
bestu. sem þjóðin hefur
nokkru sinni fengið að
njóta, enda hápunktur
framsóknaráratugarins
og Ólafslög i gildi.
Þegar efnahagsráð-
stafanir rikisstjórnar-
innar voru kynntar um
áramótin birti Tíminn
forystugrein undir fyrir-
sögninni: Niðurtalning-
in hafin. Síðan hefur
verið hamrað á þessu i
hlaðinu og máli sinu til
stuðnings hefur áróð-
ursmeistari fiokksins,
Þórarinn Þórarinsson.
skrifað hátíðarleiðara
um ágæti samvinnu-
hreyfingarinnar og
besta verðlagseftirlitið
felist í þvi, að verslun-
arfyrírtæki hennar séu
einráð á markaðnum.
Guðmundur G. Þórar-
insson minntist að visu
ekki á SÍSvvaldið í
fyrrgreindum sjónvarps-
þa’tti og raunar var
hann ekki á sömu linu
og Tíminn. þegar hann
ræddi um efnahagsúr-
ræðin. Hann sagði nefni-
lega, að eftir kjaraskerð-
inguna 1. mars gæti
niðurtalningin loksins
hafist! Og siðar i þættin-
um sagði Guðmundur.
að framsóknarmenn
væru nú þannig gerðir,
að niðurtalningin væri
þeim ekkert heilagt mál.
þeir væru svo sem til
viðtals um annað!
Halldór Blöndal hélt
því réttilega fram í sjón-
varpsþættinum. að efna-
hagsráðstafanir rikis-
stjórnarinnar væru enn
of óljósar til þess að
menn gætu tekið skýra
afstöðu til þeirra. Guð-
mundur G. Þórarinsson
stuðlaði síður en svo að
þvi að draga úr þeirri
óvissu. þvert á móti var
málflutningur hans all-
ur með þeim hætti. að
almenningur hlýtur að
spyrja: Hvað vill Fram-
sóknarflokkurinn?
Ráðherra
í fýlu
„Ég tek eftir því. að
iðnaðarráðherra hefur
verið að ra'ða við aðra
aðila um olíuviðskipti.
Ég hefði nú haldið að
hans starfsvettvangur
væri að ra>ða við aðra
um rafmagnsmál. orku-
mál og iðnaðarmál. en
olíuviðskiptin hefur
hann ekki á sinni
könnu.“ Þessi orð voru
höfð eftir Tómasi Árna-
syni, ríðskiptaráðherra.
hér i blaðinu i gær i
tilefni af yfirlýsingum
iðnaðarráðherra eftir
opinbera heimsókn hans
til Noregs þess efnis. að
nú ættu íslendingar sko
að fara að kaupa oliu frá
Noregi. En ríðskiptaráð-
herra lét sér ekki nægja
að fara i fýlu út i
iðnaðarráðherra heldur
lýsti hann því yfir og
barði sér á brjóst að
hætti framsóknar-
manna. að hann væri
búinn að gera samning
um kaup á hensini frá
Noregi. Hefði verið
gengið frá kaupunum
um mánaðamótin sept-
ember-október á siðasta
árí. /Etli Hjörleifur hafi
ekki rítað um það sam-
komulag frekar en Tóm-
as um ferð Hjörleifs?
Ekki virðist vanþörf á
þrí. að ráðherrarnir fái
oliu tii að smyrja tann-
hjólin í ríkisstjórnar-
samstarfinu. Það er síð-
ur en svo skemmtilegt til
Hafldóf Btðndal
afspurnar, að einn af
ráðherrunum fari i
heimsókn til annars
lands án þess að vita um
samninga. sem meðráð-
herra hans hefur gert.
Og heldur er það
óskemmtilegt. svo að
ekki sé sterkar að orði
komist. að ráðherrar
skulu taka upp á þvi að
rífast opinberlega um
það. sem einhver þeirra
ræðir ríð erlenda starfs-
bræður. Hins vegar er
vel skiljanlegt. að
nefndaráðherrann i
iðnaðarráðuneytinu hafi
ríljað ræða annað en
rafmagnsmál. orkumál
og iðnaðarmál i Noregi.
Hvaða verð?
Þjóðviljinn hefur und-
anfarið birt háar tölur.
sem eiga að sýna hve
óhagkvæm oliuviðskipt-
in ríð Breta eru í saman-
burði við Sovétviðskipt-
in á Rotterdamverði. f
Guömundur G. Þórarinsson
gær birtist merkileg
Íeiðrétting í blaðinu. þar
var sagt. að í viðtali ríð
Hjörleif Guttormsson
hafi verið sagt. að á
Rotterdammarkaði
kostaði gasolíutonnið
250 dollara. Síðan segir:
„Uið rétta er að verðið
fór lægst niður í 271
dollara á árinu 1980. var
367 dollarar í ársbyrjun
1980 og 306.25 dollarar
nú þann 23. þ.m.“
Morgunblaðið spurði
Tómas Árnason að því.
hvort það væri rétt hjá
Hjörleifi Guttormssyni.
að gasolíutonnið frá
Bretum kostaði 320 doll-
ara. Svar Tómasar var:
„Það er ekki alveg rétt."
Vildi ráðherrann ekki
gefa upp nákvæmt verð.
Af þessu tilefni spyr
Morgunblaðið: Lagði
Þjóðviljinn 250 dollara
Rotterdamverð og 320
dollara breskt verð til
grundvallar i útreikn-
ingum sinum?
Af orðum Guðmundar G. Þórarins-
sonar í sjónvarpinu á þriöjudags-
kvöid má ráða, að framsóknarmenn
séu alls ekki enn á einu máli um
það, hvort niðurtalningin sé hafin
eða ekki. Auk þess lítur hann á hina
heilögu niðurtalningarbaráttu sem
samningsatriði í pólitískum hrossa-
kaupum. Viðskiptaráðherra Tómas
Arnason telur það hins vegar ekki
fara á milli mála, að Hjörleifi Gutt-
ormssyni komi olíuviðskipti ekkert
við. Hvers eiga Norðmenn að
gjalda? hljóta aðrir að spyrja.
17 milljóna skaðabætur!
New Jersey. 27. janúar. — AP.
Hæstiréttur New Jersey
ríkis da mdi í gær Daníel
Burton 2,8 milljónir doll-
ara (um 17 milljónir ný-
króna) í skaðabætur fyrir
mistók lækna, sem kost-
uðu hann sjónina.
Daníel, sem er 27 ára,
fæddist sex vikum fyrir tím-
ann á sjúkrahúsi í New
Jersey og var strax settur í
súrefniskassa. I réttarhöld-
unum kom fram að daginn
eftir fæðinguna hafi súrefn-
isgjöfin til hans verið minnk-
uð niður í „algert lágmark“,
vegna tilraunar, sem gerð
var til þess að kanna hvort
lítið súrefni gæti haft áhrif á
sjón.
Tveimur dögum síðar
leist yfirlækni sjúkrahússins
ekki á blikuna og skipaði
aukna súrefnisgjöf, en um
seinan.
Styrkið og fegrið líkamann
Dömur og herrar!
Nýtt 4ra vikna námskeid hefst 4. febrúar. Leikfimi fyrir konur
á öllum aldri.
Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira.
Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af
vöðvabólgum.
Vigtun - mæling - sturtur - Ijós - gufuböð
- kaffi.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Innritun og upplýsingar alla
virka daga frá kl. 13—22
í síma 83295.