Morgunblaðið - 29.01.1981, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981
11
Paul Zukovsky Rut L. Magnússon
Kammertónleikar
Þriðju áskriftartónleikar
Kammersveitar Reykjavíkur
fóru fram í Austurbæjarbíói sl.
mánudagskvöld. A efnisskránni
voru kvintett op. 115 eftir J.
Brahms og „Pierrot lunaire"
(Pétur í tunglinu) eftir A.
Schönberg. Kammersveitin
hafði fengið til liðs við sig þann
ágæta Paul Zukovsky og Rut
Magnússon söngkonu. Zukovsky
hefur þegar markað eftirminni-
leg spor í listalíf vort sem
einleikari, leiðbeinandi á nám-
skeiðum og hljómsveitarstjóri.
Virðast allir þessir þættir leika í
höndum hans, enda maðurinn
klár og kröfuharður. Það er
vissulega mikils virði þegar slík-
ir afburðamenn fást til starfa
hér, og fagnaðarefni að frétta að
Zukovsky mun enn efna til
seminars með ungu hæfileika-
fólki á sviði hljóðfæraleiks. Á
tónleikunum gerði Zukovsky
hvorttveggja að leika 1. fiðlu í
kvintett Brahms og stjórna því
margslungna verki „Pierrot
lunaire" og leysti hlutverk sín af
hendi með fagmannlegu öryggi
og listrænni reisn. Kvintett
Brahms er alveg óvenjulega heil-
steypt og unaðslegt verk. Kafl-
arnir, sem eru fjórir, mynda eina
samstæða heild, þar sem hver
nýr þáttur er sem rökrétt fram-
hald þess, sem á undan er
gengið. Stefjamál kaflanna eru
einnig samofin. Gunnar Egilsson
blés í klarinett og lék af hógværð
en þó hæfilegri festu. Nýstárlegt
var að sjá Rut Ingólfsdóttur
leika á lágfiðlu, en það virtist
ekki vefjast fyrir henni. Raunar
var flutningur allur ágætur og
vandaður með Zukovsky í broddi
fylkingar.
Mörgum er enn í fersku minni
flutningur Kammersveitarinnar
ásamt þeim Rut og Zukovsky á
Tðnllst
eftir EGIL
FRIÐLEIFSSON
„Pierrot lunaire" eftir Schön-
berg á síðustu listahátíð. Vöktu
tónleikarnir óvenju mikla at-
hygli og aðsókn og því full
ástæða til að endurtaka verkið
nú, og ekki brugðust listamenn-
irnir áheyrendum sínum á
mánudagskvöldið. Verkið gerir
óvægnar kröfur til flytjenda,
einkum söngkonunnar, sem þarf
að fremja talsöng samkvæmt
forskrift höfundar. Ef til vill er
best að vitna í efnisskrá til að
útskýra hvað við er átt, en þar
segir: „í raddskránni er hljóðfall
og tónferli skráð eins og um
venjulegan söng væri að ræða,
en í söng er tónferlinu ævinlega
fylgt óumbreytanlega og af
nákvæmni. Schönberg vildi hins-
vegar, að talröddin snerti hvern
tón aðeins augnablik og færði sig
síðan í átt að næsta tóni. Vandi
flytjandans liggur því í kröfu
tónskáldsins um að röddin eigi
aldrei að minna okkur á söng.“
Rut Magnússon skilaði hlutverki
sínu af stakri prýði og vakti
almenna aðdáun fyrir frammi-
stöðu sína, enda henni og reynd-
ar öðrum flytjendum einnig
mjög innilega fagnað af þakklát-
um áheyrendum. Það var kallað
að gera „stormandi lukku“ í
gamla daga. Tilkoma Kammer-
sveitarinnar á sínum tíma var
fjörkippur og framfaraspor í
íslensku tónlistarlifi, og þær
vonir, sem við hana voru bundn-
ar, hafa vissulega ræst.
Nýjar bóksöluskrár
f rá Bókavörðunni
ÚT ERU komnar bóksöluskrár
Bókavörðunnar númer 6 og 7. í
bóksöluskrá 6 eru eingöngu
smárit ritlingar og pésar ýmis
konar frá síðustu öld til okkar
daga.
Smáritunum er skipað
niður eftir efni á 15 siður, og
eru þau hin fjölbreyttustu. flest
mjög ódýr og öll til sölu i
Bókavörðunni að Skólavörðu-
stig 20.
í bóksöluskrá 7 eru kynntar
fágætar bækur og handrit frá
ýmsum tímum um norræn fræði
og íslensk, Islandslýsingar og
ýmis efni önnur. Bóksöluskrá 7
er 25 síður að lengd.
Bóksöluskrár Bókavörðunnar
eru nær eingöngu sendar föstum
viðskiptavinum verslunarinnar
utan Reykjavíkur og erlendis, og
ekki afhentar í versluninni fyrr
en hálfum mánuði eftir útgáfu á
meðan upplag endist.
BÓKAVARÐAN
— GAMLAK BÆHIJR OG NYJAR —
•KOLAVOMmsna m - rrykjavw. - rm am
ÍSLAND
Forsiða bóksöluskrár nr. 0 frá
Bókavörðunni.
Hækkun íasteignamats í
Reykiavík nálægt 60%
- Svipuð hækkun á höfuðborgarsvæðinu nema hvað
hækkun í Kópavogi er umfram almenna hækkun
- Fasteignamat úti á landi er á bilinu 48% til 50%
- Áætlað er að fasteignamatið sé 7% undir gangverði íbúða
„HÆKKUN fasteignamats á ein-
stökum fasteignum er breytileg. í
Reykjavík má ætla. að ibúðir
hækki nálægt 60% i mati frá
árinu 1979. Atvinnuhúsnæði
hækkar ekki eins mikið. eða um
43% til 48%. Þar kemur fyrst og
fremst til tregða á sölu atvinnu-
húsnæðis. Hliðstæðra hækkana
má vænta á öllu höfuðborgar-
svæðinu, nema hvað mat hækkar
meira i Kópavogi og mat á
atvinnuhúsnaéði í Ártúnshöfða
hækkar til jafnaðar nálægt 55%.
Annars staðar á landinu hækkar
fasteignamat um 48% til 50%,“
sagði Guttormur Sigurbjörnsson.
forstjóri Fasteignamats ríkisins.
á fundi með fréttamönnum. en
nýtt fasteignamat tók gildi þann
1. desember siðastliðinn og þessa
dagana fá menn tilkynningar-
seðla frá Fasteignamatinu.
„Ástæða þess að fasteignamatið
í Kópavogi hækkar umfram al-
menna hækkun er að á síðastliðnu
ári fór fram endurmat á íbúðum.
Á undanförnum árum hefur fast-
eignaverð í Kópavogi nálgast það í
Reykjavík. Frá því 1970 þegar
upphaflega matið var gert, hefur
hitaveita verið lögð í bænum og
samgöngur allar innan bæjarins
sem út úr honum hafa stórbatnað.
Þetta hefur hækkað verð íbúða.
Við höfum dæmi þess, að matið
hafi hækkað á milli 15% og 30%
umfram almenna hækkun annars
staðar á höfuðborgarsvæðinu,"
sagði Guttormur ennfremur.
Miklar verðsveiflur
— fasteignaverð
lækkaði í apríl og júlí
Á fundinum kom fram, að
áætlað er að fasteignamat á íbúð-
arhúsnæði hækki um 60%, en
lóðir um 50% — meðaltalshækkun
er því 57%. Fasteignamatið er
áætlað 7% undir gangverði íbúða,
en 1979 var þessi munur 8% til
9%. Ástæður þess, að fasteigna-
mat er lægra en gangverð íbúða,
er óstöðugur markaður. „Síðast-
liðið ár var engu líkt. Markaður-
inn var ákaflega óstöðugur og
verðfall á íbúðum varð í apríl og
júlí," sagði Guttormur. Vegna
þessa hefur ekki verið talið rétt að
láta fasteignamatið fylgja að fullu
stærstu verðsveiflunum, heldur
beri að jafna matshækkanir á
fleiri ár þegar óeðlilegrar þenslu
gætir. Miklar hækkanir áttu sér
stað á íbúðaverði 1979 og náðu
hækkanir það árið hámarki síð-
ustu mánuði ársins. Til þess að
láta matið fylgja þessari verð-
sveiflu, hefði þurft að hækka
matið rétt um 80%, en þá var
hækkun ákveðin 60%.
Síðastliðið ár var sérstætt.
Nauðsynlegt reyndist að reikna
verðlagið út mánaðarlega, en það
hafði áður verið gert ársfjórð-
ungslega. Mikil þensla var fyrstu
mánuðina, en í apríl féll verðið og
óvissuástand ríkti á fasteigna-
markaðinum fram á haustið. í
Fréttabréfi Fasteignamatsins er
tafla um hækkanir og lækkanir á
fasteignaverði milli mánaða.
Skýrt er þó tekið fram, að taka ber
slíkar tölur með varúð, en engu að
síður ættu þessar tölur að gefa
glögga mynd af þróun á verðlagi á
ibúðum.
„Ég er hér með línurit um
sveiflur milli mánaða og væri um
hjartasjúkling að ræða, þá þyrfti
hann ekki að kemba hærurnar,"
sagði Guttormur á fundinum.
Skortur á lóðum á
höíuðborgarsvæðinu
Þá kom fram á fundinum, að
verð á byggingarlóðum fyrir íbúð-
arhús hefur hækkað hlutfallslega
meira en íbúðarhúsnæði síðustu
árin. Sú þróun hélt áfram á
síðastliðnu ári og er svo að sjá, að
skortur sé á íbúðarhúsalóðum á
öllu höfuðborgarsvæðinu. Þrátt
fyrir sölutregðu, þá bötnuðu
greiðslukjör ekki frá árinu 1979,
en þá voru þau hin verstu frá
upphafi, eða 76%. Á þriðja árs-
fjórðungi 1980 var útborgun að
jafnaði 76,1%. Hins vegar var
útborgun rétt liðlega 70% 1978.
Vextir af fasteignaveðlánum,
sem gefin eru út fyrir eftirstöðv-
unum, eru 18% til 20% og greiðast
oftast á 5 árum.
Dæmi um fasteignamat
víðs vegar um land
Sem dæmi um fasteignamat
íbúðarhúsa í Reykjavík, þá er 226
fm. einlyft nýlegt einbýlishús í
Fossvogi metið á 87 milljónir g.kr.
Tveggja herbergja íbúð í þriggja
hæða blokk í Breiðholti er metin á
23,1 milljón g.kr., og þriggja her-
bergja 81 fm. íbúð í sama húsi er
metin á 28,4 milljónir g.kr. Allar
matstölur, sem Fasteignamatið
sendir út í ár, eru gefnar upp í
gömlum krónum. Þetta er vegna
þess að Fasteignaskráin sem mat-
ið kemur úr, tók gildi 1. desember
siðastliðinn.
Hér fara á eftir dæmi um mat
fasteigna víðs vegar um landið.
Nýleg hús
Einlyft einbýlishús í Fossvogi,
385 þús. g.kr. á 226 fm. Þriggja
hæða blokk í Breiðholti: 65 fm.
íbúð, 2 herbergi, 81 fm 355 þús.
íbúð, 3 herbergi. 351 þús. Sjö hæða
fjölbýlishús í Breiðholti: 55 fm.
íbúð, 2 herbergi, 309 þús. 99 fm.
íbúð, 4 herbergi, 284 þús.
20—40 ára
Sænskt timburhús á steyptum
kjallara í Vogahverfi: 52 fm.
kjallaraíbúð, 2 herbergi, 304 þús.
126 fm. sérhæð, 5 herbergi, 280
þús. Sambýlishús í Hlíðahverfi:
116 fm. sérhæð, 5 herbergi, 272
þús. 73 fm. risíbúð, 4 herbergi, 262
þús.
Eldri hús
Bárujárnsklætt timburhús á
hlöðnum kjallara í Austurbæ (frá
aldamótum) 87 fm., 244 þús. Stórt
steinsteypt einbýlishús í grónu
hverfi: Hæð, kjallari og ris, 334
fm., 308 þús.
Kópavogur
Steinsteypt raðhús á tveim hæð-
um, 816 m3 og 288 fm., 256 þús.
Hafnarfjörður
Forsteypt einbýlishús á einni
hæð, 618 m3 og 180 fm., 311 þús.
Keflavík
Steinsteypt einbýlishús á tveim
hæðum, 684 m3 og 252 fm., 174 þús.
Akranes
Steinsteypt einbýlishús á einni
hæð, 451 m3 og 134 fm., 236 þús.
Stykkishólmur
Steinsteypt einbýlishús á tveim
hæðum, 504 m3 og 181 fm., 162 þús.
ísafjörður:
Einlyft steinsteypt einbýlishús,
141 fm., 249 þús.
Siglufjörður
Steinsteypt einbýlishús, 808 m3
og 253 fm., 124 þús.
Akureyri
Tvílyft steinsteypt einbýlishús,
251 fm., 243 þús.
Egilsstaðir
Hlaðið einbýlishús, 386 m3 og
110 fm., 154 þús.
Vestmannaeyjar
Einlyft steinstevpt einbýlishús,
150 fm„ 175 þús.
SeJfoss
Einbýlishús úr timbri, 390 m3 og
126 fm„ 235 þús.
Línurit fasteignamarkaðarins á síðastliðnu ári — Guttormur
Sigurbjörnsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins. heldur linuritinu á
lofti. Verðfall varð á fasteignum í april og júlí. Lk'wmynd Mhi. RAX.
Nóvember
Desember
Janúar
Febrúar
Mars
April
Athyglisverð er lækkunin í apríl og júlí, en hækkunin í næstu mánuðum á eftir mikil. Tölurnar fyrir
septembermánuð eru einna óáreiðanlegastar. Ef miðað er við hækkunina frá nóv. ’79 til sept. ’80 hefur hún
orðið 49,6%.
1979 9.4% hækkun Maí 1980 11.1% ha’kkun
1979 0.8% hækkun Júní 1980 4.4% ha kkun
1980 4.7% ha'kkun Júlí 1980 +5.4% lækkun
1980 4.4% hækkun Agúst 1980 7.6% hækkun
1980 1980 8.5% hækkun +5.9% lækkun Septemher 1980 2.9% hækkun