Morgunblaðið - 29.01.1981, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.01.1981, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981 Hvað er manntal? Manntal er annað og meira en talning mannfólksins á landinu. Manntal er hagfræðileg úttekt, sem hefur fólkið í landinu að viðfangsefni. Meginatriði sérhvers manntals má telja þrjú: 1. Hvað starfar fólkið í landinu? Þau störf, sem hver þjóð innir af hencji, sú vinna, sem lögð er fram í samfélagi fólks, er þrí- þætt: Atvinna, heimilisstörf og nám. 2. Hvernig skipar fólkið í landinu sér í frumhópa samfélagsins, fjölskyldur og heimili? 3. Við hvaða aðbúnað býr fólkið í landinu, að því er varðar húsa- kost og fleira. Manntalið þáttur í alþjóðlegu samstarfi Manntalið 1981 er hið 22. í röð svokallaðra aðalmanntala á ís- landi. Það er tekið samkvæmt lögum nr. 76 19. desember 1980. Manntöl eru svo mikilvæg und- irstaða allrar vitneskju um stöðu þjóðar, að bæði Þjóðabandalagið gamla og arftaki þess, Sameinuðu þjóðirnar, hafa staðið fyrir alþjóð- legu samstarfi um manntöl: til hvaða efnis þau skuli taka, hvern- ig ýmis hugtök skuli skýrgreind, o.s.frv., og síðast en ekki síst hvenær þau skuli fara fram. I samræmi við tillögur hagstofu Sameinuðu þjóðanna eru manntöl tekin í flestum löndum heims 1980 eða 1981. Manntal var t.d. tekið í Bandaríkjunum 1. apríl í fyrravor, í Svíþjóð 15. september, í Noregi og Finnlandi 1. nóvember síðast- liðinn, og manntal verður tekið í Efnahagsbandalagslöndunum i vor. I einungis fimm ríkjum heims hefur allsherjar manntal aldrei farið fram. Þessi ríki eru Eþíópía, Guinea og Mið-Afríka í Afríku, og Laos og Oman í Asíu. Trúnaðarskylda manntalsaðila 9. grein manntalslaganna hljóða svo: „Upplýsingar skráðar á manntal um einkahagi manna eru einvörðungu ætlaðar til hag- skýrslugerðar og er óheimilt að láta aðila utan Hagstofunnar fá vitneskju um þær. Heimilt er þó að láta viðurkenndum rannsókn- araðilum og opinberum stofnun- um í té upplýsingar skráðar á manntal, enda sé þá nöfnum og auðkennÍ8númerum einstaklinga sleppt. Úrvinnslu manntals- skýrslna skal Hagstofan ein ann- ast, og hlutaðeigandi starfsmenn hennar skulu bundnir þagnar- skyldu. Teljarar við manntalið og starfsmenn sveitarfélaga, sem vinna að framkvæmd þess, eru einnig bundnir þagnarskyldu." ManntaLsupplýsingar er ekki hæj?t að nota neinum einstaklingi í óhatr Engar upplýsingar, sem ein- staklingar gefa um sig og sína hagi, verða notaðar á neinn hátt viðkómandi eða öðrum í óhag. Trygging fyrir þessu er í fyrsta lagi eðli manntalsatriðanna: Ekk- ert þeirra varðar fjármuni eða eignir, nema að því er tekur til húseignar. Spurt er um eiganda íbúðar, en slíkar upplýsingar eru í öðru samhengi ekki trúnaðarmál, samanber vottorð úr veðmálabók-1 um. Upphæð tekna kemur ekki fram í manntali, né hvernig ein- staklingar eða heimili verja tekj- um sínum. Manntalsskráning get- ur ekki orðið sönnunargagn um neins konar fjárhagsleg málefni, enda trúnaðarskyldan tekin fram á eyðublaðinu. Ekkert manntals- atriðanna getur talist nærgöngult persónulegum högum fólks, enda alls ekki spurt um tómstundir fólks, áhugamál eða skoðanir. I öðru lagi er trygging gegn óhlutvandri mpðferð upplýs- inganna veitt í þeirri lögvernd, er trúnaðarskylda manntalslaganna kveður á um, og skýrð var hér að framan. Liður í þeirri vernd er það, að enginn. nema framkvæm- endur manntalsins, þ.e. teljarar og aðrir trúnaðarmenn sveitar- stjórna, og starfslið Hagstofunnar við úrvinnslu manntalsins, hefur aðgang að frumgögnum mann- talsins, þ.e. þeim eyðublöðum, þar sem manntalsatriðin eru skráð. Eftir úrvinnslu liggja upplýs- ingarnar fyrir sem slíkar, sviptar öllum einstaklingsauðkennum, þannig að útilokað er að rekja þær til nafngreindra manna. I þriðja lagi felst trygging í viðteknum hefðum við hag- skýrslugerð, en þar er nafnleynd varðandi upplýsingagjafa og hagi þeirra grundvallaratriði, enda brýnt hagsmunamá! fyrir þá stofnun, sem að hagskýrslugerð- inni stendur. Störf Hagstofunnar byggjast öðru fremur á því, að stofnanir, fyrirtæki og almenning- ur geti treyst henni fyrir upplýs- ingum. Þetta gildir um manntal ekki síður en aðra upplýsingasöfn- un. Enn fremur má benda á, að manntalslög frá 1920 voru endur- skoðuð 1980 og ný lög sett, meðal annars sérstaklega í þeim tilgangi að tryggja rétt einstaklings við manntal. Skipulag manntalsins Manntalinu er nú hagað á nokk- uð annan hátt en áður. 1960 og fyrr fóru manntöl þannig fram, að teljarar gengu í hús og skrifuðu sjálfir niður eftir fyrirsögn heim- ilismanna allar upplýsingar um fólkið, íbúðir og hús á eitt og sama eyðublað fyrir alit húsið. Við þetta manntal er fólki ætlað að fylla sjálft út skýrslu sína. Formi eyðublaðanna er breytt þannig, að viðfangsefni manntals- ins er skipt á þrjú blöð: Einstakl- ingsskýrslu, sem gera skal um alla 12 ára og eldri um síðustu áramót, íbúðarskýrslu og hússkýrslu. Svokallað krossaprófskerfi er not- að, en það gefur færi á að orða spurningar nákvæmar og einhlít- ar en annars, og auðveldara verð- ur að svara. Þessi aðferð er nú notuð við manntöl í flestum lönd- um. T.d. getur gamall maður, sem er hættur að vinna og stundaði ekki nám eftir fermingu, útfyllt sína einstaklingsskýrslu einvörð- ungu með því að setja krossa, nema hvað hann þarf að skrifa heimilisfang í 1. lið, og heiti lífeyrissjóðs, ef það á við. Sama á við alla aðra, sem stunda ekki atvinnu, hvort heldur það eru unglingar, húsmæður, öryrkjar eða aðrir — þeir geta svarað einstaklingsskýrslunni á þennan einfalda hátt. örvar á eyðublaðinu vísa, hvernig svara skal, og hverju má sleppa, þegar svo ber undir. Auk þess sem hægt er að nota „krossapróf" leiðir sú tilhögun, aö hver maður geri sína einstakl- ingsskýrslu, til þess, að allir geta fyllt út skýrsluna samtímis, eftir leiðbeiningum í fjölmiðlum. Föstudagskvöld 30. janúar kl. 21.15 verður 30 mínútna þáttur í sjónvarpinu, þar sem farið verður yfir spurningar einstaklings- skýrslueyðublaðsins í því skyni, að hver og einn útfylli það fyrir sig eftir leiðbeiningum í þættinum. Hann verður endurtekinn i sjón- varpi kl. 16 á laugardag 31. janúar. Leiðbeiningar um gerð ein- staklings- skýrslu Einstaklingsskýrslu á að gera um alla, sem fæddir eru 1968 eða fyrr. Hana þarf hver og einn að gera sjálfur, eða aðrir fyrir hann, þar sem hann á sólarhringsdvöl 31. janúar. Fyrir þá, sem dveljast annars staðar en á lögheimili sínu, þarf annað heimilisfólk að gera einstaklingsskýrslu. Sérstök áhersla er lögð á, að einstakl- ingsskýrsla skal ekki gerð á dval- arstað fyrir þá, sem liggja í sjúkrahúsi til tímabundinnar dvalar, og er því nauðsynlegt, að heimilismenn, sé um þá að ræða, vandi til einstaklingsskýrslugerð- ar fyrir þá, sem eru fjarverandi vegna sjúkrahúsdvalar. Gera skal einstaklingsskýrslu um alla íslendinga sem eru í skólanámi eða öðru námi erlendis, svo og fjölskyldu þeirra, nema fyrir liggi, að þeir séu alfluttir til útlanda. Á sama hátt skal skrá aðra íslendinga erlendis, ef talið er, að þeir muni setjast aftur að á íslandi. Nánustu venslamenn ís- lendinga erlendis gera einstakl- ingsskýrsluna 'fyrir þá. Sam- kvæmt eðli máls er ekki krafist tæmandi útfyllingar einstakl- ingsskýrslublaðsins fyrir þá, sem dveljast erlendis, t.d. þarf engu að svara, sem varðar vikuna 24.—30. janúar 1981. Auðkenning skýrsl- unnar, heimilisfang Eins og eyðublaðið ber með sér- skal skýrslan auðkennd viðkom- andi einstaklingi efst með nafni hans og fæðingardegi. í línuna, sem merkt er „Staður", skal skrifa dvalarstað einstaklingsins, nema skýrslan sé gerð af öðrum en honum sjálfum vegna fjarveru hans frá lögheimili 31. janúar, þá skal rita lögheimilið þarna. Séu fleiri en ein íbúð í húsi, þarf að tilgreina hvaða íbúð skýrslan til- heyrir, t.d. 2. hæð til hægri eða þess háttar. í 1. spurningalið á að tilgreina, hvar viðkomandi átti heima á tilteknum timum. Séu menn í vafa um, hvernig skuli svara þessu, t.d. vegna þess að þeir dvöldust ann- ars staðar en á lögheimili sínu, eða muni ekki nákvæmlega, hve- nær þeir fluttust, nægir að svara eftir bestu trú, enda er alls ekki ætlast til fullrar samsvörunar með því, sem þarna er ritað, og skráningu í þjóðskrá á sínum tíma. Sambúð, hjónaband í 2., 3. og 4. lið einstaklings- skýrslunnar eru spurningar, sem lúta að fjölskyldugerð. Hlutverk 2. og 3. liðs er fyrst og fremst að leiða í ljós umfang óvígðrar sambúðar á íslandi. Talið er, að hún hafi farið í vöxt undanfarin ár, en eins og kunnugt er mun óvígð sambúð hafa tíðkast í meiri eða minni mæli mjög lengi hér á landi. Undanfarin ár hefur löggjafinn reynt að tryggja rétt- indamál þeirra, sem eru í óvígðri sambúð, og er hún því nú lagalega viðurkennd að nokkru leyti sem hjónabandsform. Það er mikil- vægt að fá fram, hve margt fólk telur sig nú vera í óvígðri sambúð á Islandi, og hve lengi sú sambúð hefur staðið. Ýmislegt bendir til þess að óvígð sambúð sé oft undanfari vígðrar sambúðar, þ.e. hjónabands í hefðbundinni merkingu. Einmitt þess vegna er spurt um upphafsár bæði sambúð- ar og hjónabands, þar eð þá kemur fram, hvort óvígð sambúð er undanfari hjónabands, og hve lengi hún stóð. Athugið sérstaklega, að einung- is er spurt um sambúð og hjóna- band, sem er við lýði manntals- daginn. Ekkert skal upplýsa um sambúð og hjónaband, sem nú er lokið, hvort sem það varð við andlát maka eða skilnað. Allir þeir, sem eru ekki í hjónabandi 31. janúar, ógift fólk, fráskilið fólk, ekkjur og ekklar, segja „Nei“ í 3. lið. Veitið því enn fremur athygli, að viðkomandi aðilar meta það sjálfir hvort sameiginlegt heimil- ishald þeirra er með þeim hætti, að það teljist óvígð sambúð. Þó mun verða að iíta svo á, að fólk sem býr saman í íbúð og hefur eignast barn saman, en er ekki gift, sé í óvígðri sambúð. Að sjálfsögðu er barn ekki skilyrði þess, að fólk teljist vera í óvígðri sambúð. Manntalsupplýsingar má alls ekki nota til neins annars er hagskýrslugerðar. Þjóðskráin, sem er deild í Hagstofunni, fær því ekki aðgang að neinum upplýs- ingum úr manntalinu um óvígða sambúð. Kunnugt er, að margt fólk vill ekki, af fjárhagsástæðum eða af öðrum orsökum, að sambúð þess sé skráð í þjóðskrá. Sambúð- arfólk á því allt að geta tilgreint sína sambúð óhikað, enda hags- munamál þess, að óvígð sambúð sé ekki vanmetin sem fjölskylduform hér á landi. í úrvinnslu manntalanna 1950 og 1960 var fólk talið í óvígðri sambúð eftir sérstökum reglum Hagstofunnar. Nú þótti hins vegar rétt, að hver og einn mæti þetta sjálfur, eins og áður sagði. Börn Það er öllum kunnugt, hve miklar breytingar hafa orðið á fjölskyldugerð í tíð núlifandi fólks. Einn mikilvægasti þáttur- inn í þessum breytingum er tengd- ur tölu barna, sem konur eignast. Upplýsingum kvenna í 4. lið er ætlað að leiða í ljós, hverjar breytingar hafa orðið á barnatöl- unni með nýjum kynslóðum. Samskonar spurningar gáfu góða raun 1950 og 1960, en voru þær nokkru ítarlegri. Nám, skólaganga, próí í 5., 6., 7. og 8. lið eru spurn- ingar, sem varða yfirstandandi nám og skólagöngu, nám, sem menn hafa stundað, og próf, sem þeir hafa lokið. Efnisinnihald spurninganna er nokkurnveginn það sama og var 1950 og 1960. Tilgangur þeirra er fyrst og fremst sá, að leiða í ljós, hvaða þjóðarauður liggur í menntun Islendinga, hvernig hún er nýtt í atvinnuvegunum, og hvaða námi menn eru í nú. Nám er vinna, og eitt þeirra starfssviða fólks, sem manntali er ætlað að upplýsa um. Athugið, að hafi menn hætt í námi áður en prófi var lokið, skal engu að síður tilgreina skólann og ártaiið í 5. lið. Sé um skóla í útlöndum að ræða, þarf að til- greina landið. Þetta á einnig við í 6. lið. Þar á að tilgreina öll próf að loknu námi, sem er til undirbún- ings tilteknum störfum, hvort sem prófin veita bein starfsréttindi eða ekki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.