Morgunblaðið - 29.01.1981, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981
29
fclk í
fréttum
Dr. Hurvitz
látinn í K-höfn
+ Einn fremsti og kunnasti lög-
fræðingur Dana um áratuga skeið
og jafnframt sá sem fyrstur
manna var skipaður sem sérstak-
ur ríkisumboðsmaður, dr. jur.
Stephan Hurvitz prófessor, er
nýlega látinn í Kaupmannahöfn,
79 ára að aldri. Hann varð doktor
í lögum við Kaupmannahafnar-
háskóla 32ja ára gamall. Nokkrum
árum síðar varð hann prófessor
við lagadeildina. Mikil ritstörf
liggja eftir Hurvitz á sviði lög-
fræðinnar, sem hann sjálfur
komst þannig að orði um að hún
væri fyrst og fremst fólk, en ekki
aðeins málarekstur og lögskýr-
ingar.
Þess er getið í sambandi við
lát hans, að sem ríkisumboðsmað-
ur, en það embætti settu dönsk
stjórnvöld á laggirnar 1955, hafi
hann fjallað um 17000 mál. Ekkert
þeirra var svo óverulegt í augum
hans, að hann gæfi sér ekki tíma
til þess að fja.Ua. um það sem um
stórmál væri að ræða í hverju
einstöku tilfelli. Hann lét af starfi
árið 1971. Honum var margvís-
legur sómi sýndur heima og er-
lendis. Þess er getið að hann hafi
verið heiðursdoktor við háskólana
í Stokkhólmi, Osló, Helsingfors og
Háskóla íslands.
Árásin á Bernadettu
og fjölskyldu
+ Eins og komið hefur fram í fréttum hefur lögreglan á
Norður-írlandi nú þrjá menn í haldi sem grunaðir eru um að hafa
helsært Bernadettu McAliskey (áður Devlin) og eiginmann hennar
Michael. Menn þessir eru einnig grunaðir um morðið á Airey
Neave ráðherra, sem myrtur var árið 1979. Bernadette McAliskey
átti hér á árunum áður sæti í breska þinginu fyrir Norður-írland.
Talið er að árásarmennirnir hafi keyrt upp að húsinu í bíl og brotið
upp hurðina með sleggju. Þeir skutu á frú McAliskey með
skammbyssum og hæfðu hana í brjóstið, handlegginn og
mjöðmina. Michael, eiginmann hennar skutu þeir í eldhúsinu. Þrjú
börn þeirra hjóna sakaði ekki. Herdeild ein hafði haft gætur á
húsinu og þegar meðlimir hennar heyrðu skotin þustu þeir að
húsinu. Þeir gátu veitt hjónunum nauðsynlega hjálp þar til þyrla
kom á staðinn og flutti þau á sjúkrahús. Bæði eru þau þungt
haldin en eru þó ekki talin í lífshættu. — Myndin af þeim hjónum
er nýleg og hin er af húsi þeirra þar sem árásin var gerð.
+ Múhameð Ali hefur alltaf verið leikinn í listinni að láta
bera á sér og enn á ný hefur hann opnað ginið og sagst vilja
slást. Nú vill hann berja á Evrópumeistaranum í þungavigt
John L. Gardner. Vonir stóðu til að einvígið færi fram á
Hawaii en þær urðu að engu þegar „Boxararáð Hawaii"
neitaði Ali um „boxaraleyfi". Samkvæmt reglum fá eldri
menn en 38 ára ekki „boxaraleyfi" en Ali er nú 39. Ali slóst
síðast við Larry Holmes og tapaði. Ali hefur einnig sagt að
hann vilji mæta Holmes aftur vegna þess að: „Það leit svo
illa út í fyrsta skiptið. Ég hef sannað það í gegnum árin að
ég get gert betur.“ Aðspurður um aldur sinn sagði Ali:
Sumir fá ekki að eldast, þeir deyja mun yngri en ég er
núna. Sumt ungt fólk segir við mig: „Ferlega ertu gamall,"
en ég segi: „Þú skalt vona að þú verðir einhvern tímann
gamall, því eldri sem ég verð, því hamingjusamari er ég.“
Merkileg lífspeki þetta.
Aftur bak við
lás og slá
+ Fyrir um 8 mánuðum strauk
einn frægasti glæpamaður Breta
Charles Richardson úr Spring-
hillfangelsi en, þökk sé tveimur
lögregluþjónum, situr hann nú
aftur bak við lás og slá. Richard-
son var foringi fyrir glæpaflokki
en árið 1967 var hann handtekinn
og dæmdur í 25 ára fangelsi.
í bréfi sem
hann skrifaði
breska blaðinu
„The Guar-
dian“ sagðist
hann vera
gjörbreyttur
maður og að
ástæðan fyrir
stroki hans
væri sú v að
náðunarbeið'sj
hefði jafnan
verið neitað.
í sama bréfi sagði hann að hann
væri nú orðinn 46 ára og því ekki
seinna vænna að hann vendist
aftur lífinu utan fangelsismúr-
anna. Richardson var svo hand-
tekinn á götu í London og veitti
hann enga mótspyrnu. Með því
lauk þessum sérkennilega flótta
hans, því það þykir undrum sæta
hversu víða hann komst. Hann fór
til útlanda, heimsótti fjölskyldu
sína og í eitt skipti fór hann að
hitta vini sína á krá, dulbúinn sem
jólasveinn.
MoaeisamioKin syna tiskuratnao sem Mari
Lovísa Ragnarsdóttir, hönnuöur hefur hannað o
framleitt. Einnig sýna modelin handunna skartgrif
eftir Mogens Petersen.
HOTEL ESJU
Pantiö borö tímanlega í síma 17759.
Veriö velkomin í Naust.
Magnú* Kjartansson
skammtlr i kvötd.
Iþróttahús —
íþróttafélög
Fyrirliggjandi leikfimidýnur, 100x200x5 cm, léttar
og meðfærilegar. Leikfimistökkbretti, trampólín,
varahlutir í trampólín, gjaröir og keilur.
Leitið upplýsinga.
P. Ólafsson sf.,
sími 52655.
|IF1 Felagsmálastofnun ReykjavikurÓörgar
iji Vonarstræti 4 sími 25500
Félagsstarf eldri
borgara Reykjavík
Þátttakendur í félagsstarfinu að Norðurbrún 1,
Furugerði 1 og Lönguhlíö 3 athugið:
Félagsstarfið hefir aukist og þess vegna eru
breytingar á dagskrám.
Vinsamlegast kynnið ykkur nýjar dagskrár sem
fást á fyrrnefndum stöðum og hjá Félagsmála-
stofnuninni að Vonarstræti 4.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Hjá okkur boröar hver og
einn, eins og hann getur í
sig látið.
líá<Lisýnim
í kvöld kl. 2L30