Morgunblaðið - 29.01.1981, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981
35
Sigurður setti nýtt
met, stökk 4,70 m
KR—ingurinn Sigurður SÍKurðs-
son sotti i gærkvöldi nýtt ís-
landsmet i stangarstökki innan-
húss i iþróttahúsi KR. Sigurður
stökk 4,70 metra i fyrstu tilraun.
Næst reyndi hann við við 4.75
metra og var mjöjf nálægt því að
fara yfir þá hæð. Gamla metið
átti Sigurður ok var það 4.66 m.
Kúluvarparinn KÓðkunni Guðrún
InRÓlfsdóttir hefur tilkynnt fé-
laKaskipti yfir í frjálsíþrótta-
deild KR, og er ein af f jölmörguin
frjáisíþróttamönnum sem Rensið
hafa i raðir félansins að undan-
förnu. — ÞR.
Þjóóverji til KR
Bjarni Guðmundsson. bezti maður íslenzka liðsins, stekkur inn i teiginn og skorar. U«sm.: Kristján Einarsson.
Frakkar sigruðu baráttu-
laust íslenskt landslió
ÞAÐ VAR ekki hægt að sjá það á
islensku landsliðsmönnunum i
handknattleik i gærkvöldi að
þeir væru að keppa um sæti í
þeim 16 manna landsliðshóp sem
valin verður til B—heimsmeist-
arakeppninnar í handknattleik í
næsta mánuði. Handknattleiks-
landsliðið varð að sætta sig við
eins marks tap á móti Frökkum
22—21 í gærkvöldi. Sigur
franska liðsins var sanngjarn
þeir voru sterkari aðilin í lok
leiksins og léku mun betur.
Fyrri hálfleikur var allvel leik-
inn af íslenska liðinu og það hafði
forystu allan hálfleikinn. Mesti
munur á liðunum var þrjú mörk
10—7 fyrir íslenska liðið. Staðan í
hálfleik var 12—10 fyrir ísland. Á
42. mínútu leiksins tókst franska
liðinu að jafna metin 15—15 og
mínútu síðar að komast yfir 16—
15. Nú varð íslenska liðið að sækja
á brattann og náði að jafna metin
Island — Frakkland
21—22
tvívegis 18—18 og 19—19 á 57.
mínútu. Síðustu mínútur leiksins
léku Frakkar svo mun betur og
komust í 21—19 og 22—20. Bjarni
Guðmundsson skoraði svo siðasta
mark íslenska liðsins þegar 31 sek
var eftir af leiknum. Þrátt fyrir að
leikið væri maður á mann í lokin
tókst ekki að jafna Frakkar héldu
boltanum vel og tryggðu sér sigur.
Það er ekki hægt að fara
mörgum orðum um leik íslenska
liðsins. Liðið getur leikið svo langt
um betur en það gerði í gærkvöldi.
Varnarleikurinn var mjög slakur
og þá fylgir jafnan slök mark-
varsla. Sóknarleikurinn var sæmi-
legur framanaf en þegar leikmenn
franska liðsins fóru að leika vörn
sína framarlega og bakverðirnir
komu langt út á móti skyttum
íslenska liðsins var eins og allt
færi í hnút. Besti maður íslenska
liðsins í gærkvöldi var Bjarni
Guðmundsson. Það er engin
spurning um það að mikil þreyta
sat í leikmönnum öllum eftir
stranga leiki síðustu daga.
Franska liðið er létt leikandi og
leikur svo til eingöngu alveg
Knattspyrnudeild KR réð
Manfred Steves sem þjálfara
meistaraflokks félagsins fyrir
næsta keppnistimabil.
Manfrcd Steves er 39 ára frá
Dússeldorf í Þýskalandi. Til 1972
var Steves leikmaður með ýmsum
liðum i Þýskalandi. Belgíu. IIul-
landi og Sviss. Síðan 1972 hefur
Manfred Steves þjálfað ýmis lið
viðsvegar í heiminum. nú síðast í
frjálsan handknattleik. Leikmenn
hafa góða boltameðferð og eru
mjög fljótir. Varnarleikur og
markvarslan var þokkaleg, en liðið
á að vera hægt að vinna án
nokkuran vandræða sé leikið af
festu og ákveðni. Bestu menn í liði
Frakka voru þeir Michel Geoffroy
sem leikið hefur 87 landsleiki og
Michel Serinet. Þá kom Eddie
Couriol vel frá leiknum.
Mörk Islands: Bjarni Guðmunds-
son 5, Sigurður Sveinsson 5v,
Þorbergur Aðalsteinsson 4 lv,
Stefán Halldórsson 3, Axel Axels-
son 2 lv, Brynjar Harðarson 1, og
Páll Björgvinsson 1.
Markahæstir í liði Frakka voru
Geoffry með 6 mörk og Serinet
með 5. — þr.
Abu Dhabi. þar sem hann náði
mjög góðum árangri.
Manfred Steves hefur hæstu
gráðu, sem knattspyrnuþjálfari í
Þýskalandi getur náð. frá
íþróttaháskólanum i Köln.
Exeter
vann 3-1
ÞRÍR leikir voru í ensku bikar-
keppninni i gaxkvoldi og urðu
úrslit þeirra sem hér segir:
Bristol City — Carlisle 5—0
Enfield — Barnsley 0—3
Exeter — Leicester 3—1
l.deild
Sunderland — M. United
2-0
Mikill straumur
til og frá Þrótti
Ýmis félagaskipti hafa átt sér
stað að undanförnu. Má þar
nefna, að Þorvaldur I Þorvalds-
son, miðvallarleikmaðurinn
snjalli hjá Þrótti, hefur gengið til
liðs við Val. Það hefur einnig
Skoskur þjálf-
ari í atvinnuleit
Skoskur þjálfari nokkur er að
leyta fyrir sér um vinnu hér á
landi fyrir komandi vertíð. Mað-
ur þessi heitir George Blues, er
38 ára gamall og hefur frá 1973
þjálfað hér og þar. Má þar nefna
lönd eins og Astraliu, Kuwait og í
Skotland. KSÍ gefur nánari upp-
lýsingar um farandþjálfara
þennan.
Ililmar Sighvatsson úr Fylki
gert, en það hcfur áður komið
fram.
Daníel Gunnarsson, hinn sterki
miðvörður og fyrirliði Hauka í 2.
deild, hefur hins vegar gengið til
liðs við Þrótt og er missir Hauka
þar töluverður. Mikil hreyfing er á
mannskap til og frá Þrótti og víða
hefur komið fram að auk Þor-
valds, sem getið er hér að framan,
hefur Úlfar Hróarsson gengið úr
Þrótti í Val, Ágúst Hauksson,
Ársæll Kristjánsson og Halldór
Arason í Fram. Annars staðar á
síðunni má lesa pistil þar sem frá
því er greint, að Þróttur fái þá Jón
Pétursson úr Fram og Ásgeir
Elíasson úr FH. En auk þeirra og
Daníels, fær liðið tvo efnilega
stráka, Val Helgason úr Leikni og
Steinar Birgisson úr Gróttu. —gg.
Sagt eftir
leikinn
Þjálfari íslands Ililmar
Björnsson. — Menn léku alls á á
fullu í þessum leik. Það var engin
barátta og menn nýta ekki dauð-
afæri. Þessi hóður náði ekki
saman sem liðsheild. Þetta
franska lið er svipað að styrkl-
eika og ég átti von á. Við eigum
að geta sigrað þá i landsleik. Ég
er að prófa mig áfram með
þennan 20 manna hóp sem ég
valdi og mun gera miklar breyt-
ingar fyrir næsta leik.
Þjálfari franska landsliðsins
sagði. — Það er alltaf gaman að
vinna landsleiki í handknattleik
og ekki sist á móti íslandi á
heimavelli þeirra. Lið okkar er
svipað og það verður i B — keppn-
inni þó eru þrir lcikmenn sem
gátu ekki verið með i þessari ferð
en leika þegar liðin mætast i
Frakklandi. Við höfum verið í
erfiðum æfingabúðum og keppn-
um og leikmenn minir eru þreytt-
ir þeir geta sýnt meira en þeir
gerðu í kvöld. Við vitum líka að
islenska liðið getur leikið betur
og er sterkt. Við stefnum að því
að verða jafnir þeim að styrkl-
eika og sigra þá í B — keppnin-
ni. —þr.
Mörk Sunderland skoruðu þeir
Chisholm og Rowell. Úrslitin í
Exeter og Leicester komu mjög á
óvart. Tony Kellow skoraði öll
þrjú mörkin fyrir 3. deildar liðið.
Enska
knatt-
spyrnan
Ovænt tap HSV
NOKKRIR leikir hafa farið fram
i vestur-þýsku deildarkeppninni i
knattspyrnu i vikunni og ber
helst að geta taps Ilamburger
gegn MSV Duishurg. Ilamhurger
er þó enn efst í deildinni. hefur
30 stig, einu stigi meira en
Bayern. En munurinn er nú sá,
að liðin hafa leikið jafn marga
leiki. Lokatölur urðu 2—0 og
skoraði Seliger bæði mörk Duis-
burg.
Fortuna Dusseldorf nældi sér í
stig á útivelli gegn Mönchenglad-
bach, þar sem Mattheus skoraði
tvívegis fyrir BMG, en Wenzel og
Klaus Allofs svöruðu fyrir For-
tuna, lokatölur 2—2. Þá sigraði
Eintrakt Frankfurt lið Schalke 04
5—0 á heimavelli sínum og Boch-
um burstaði 1860 Munchen 4—1.
Vikingur
AÐALFUNDUR knattspyrnu-
deildar Vikings verður haldinn i
félagsheimilinu við Ilæðargarð i
kvöld kl. 20. Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Stjórnin.
Valur
AÐALFUNDUR Vals verður
haldinn að Hliðarenda í kvöld kl.
20. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Anton og Johannes
sja um unglingaliðin
- verkefni sumarsins mörg og ströng
Þeir Anton Bjarnason og Jó-
hannes Atlason. iþrótta-
kennarar, leysa Lárus Loftsson
af hólmi sem þjálfarar íslensku
drengja — og unglingalandslið-
anna á komandi keppnistíma-
hili. Lárus hefur stjórnað liðum
þessum í mörg ár, oft með
frábærum árangri.
Anton verður með drengja-
landsliðið á sínum snærum. ís-
lenska liðið tekur þátt í fyrstu
Evrópukeppni í þessum aldurs-
flokki og er liðið í riðli með írum
og Skotum. Mánudaginn 22. júní
leika íslendingar á heimavelli
gegn Skotum og 3. ágúst sækja
íslensku strákarnir íra heim. 6.
ágúst verður leikið gegn Skotum
ytra og loks mætast Islendingar
og írar á Fróni 13. september.
Auk þessa fara að öllum líkind-
um fram einn til tveir landsleik-
ir gegn Færeyjum. Þess má geta,
að drengjalandsliðið er skipað
leikmönnum fæddum 1. ágúst
1964 eða síðar.
Jóhannes mun sjá um eldra
liðið, unglingalandsliðið. Ungl-
ingalandsliðið tekur þátt í Evr-
ópukeppninni eins og undanfarin
ár, en ekki hefur verið dregið um
mótherja enn sem komið er. Að
öðru leyti er óljóst um verkefnin,
Færeyingar verða þó líklega
sóttir heim og eitthvað af æf-
ingar — og vináttuleikjum fer
væntanlega fram á heimavelli.
8K-