Morgunblaðið - 01.02.1981, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1981
27
hjálpsemi, frú Kristín kjarkmikil
kona, starfsöm, reglusöm og
hirðusöm, góð kona, er öllum vildi
liðsinna. Kristín var hin ástrík-
asta móðir Sigríðar og unni Sig-
ríði mjög, eins og hennar eigin
börnum.
í Arnardal við Skutulsfjörð sleit
Sigríður barnsskónum, en átti
ennfremur öruggt athvarf hjá
hinni mikilsvirtu húsfreyju í Æð-
ey, Guðrúnu föðursystur sinni.
Áranna í Æðey minntist Sigríður
ávallt með velvild, vináttu og
hlýju, en frú Guðrún í Æðey var
þekkt fyrir góðvilja, greiðasemi,
þótti framúrskarandi gjöful kona,
húsbóndinn Guðmundur Rósin-
karsson var þekktur fyrir mikla
rausn að landfrægt var og raunar
út fyrir landsteinana. Árin í Æðey
voru sólrík og hamingjurík. Sig-
ríður fékk aldrei lýst, hve mikið
hún átti Æðeyjarheimilinu að
þakka. Vinátta Æðeyjarsystkina,
tryggð þeirra við Sigríði, var
henni mikill sólargeisli í lífinu
fyrr og síðar.
Sigríður Jensdóttir var tvígift.
Fyrri maður hennar var: Guð-
mundur, f. 15. júlí 1877, drukknaði
27. nóv. 1915, Jakobsson bónda í
Unaðsdal og víðar Kolbeinssonar.
Ung varð Sigríður ekkja, á 15
árum missti hún eiginmann og
fimm börn þeirra, en Elísabet
dóttir þeirra f. 1906 varð síðar
eiginkona Magnúsar Rögnvalds-
sonar vegaverkstjóra í Búðardal.
Milli þeirra mæðgna Elísabetar og
Sigríðar var náið og innilegt
samband, en sorgin barði enn að
dyrum 13. marz. 1947, er frú
Elísabet fórst í flugslysi.
16. apríl 1919 giftist Sigríður
öðru sinni: Elíasi Þórarni Magn-
ússyni, f. 5. febr. 1878, skipstjóra í
Bolungarvík, er var ekkjumaður
og 7 barna faðir. Eignuðust þau
þrjár dætur. 1. Guðmunda þekkt
óperusöngkona, ekkja Sverris
sagnfræðings Kristjánssonar, átti
fyrr Henrik gullsmið Knudsen. 2.
Þorgerður eldri, f. 1922 d. sama ár.
3. Þorgerður Nanna, átti fyrr
Guðlaug heitinn lögfræðing og
bæjarstjóra á Akranesi Einars-
son, síðar Finnboga heitinn Kjart-
ansson konsúl og stórkaupmann.
Elías skipstjóri drukknaði með
vélbáti sínum Agli 7. nóv. 1923.
Sigríður Jensdóttir lét aldrei bug-
ast, þrátt fyrir langa og erilsama
ævi blönduð þungbærum sorgum.
Eg man Sigríði Jensdóttur síðan
ég var smár drengur, en hún var
stjúpa fyrri manns móður minnar
Jóns Elíassonar er drukknaði 24.
júlí 1925, af vélbátnum Æskan úr
Bolungarvík.
Mér þótti mjög vænt um Sigríði,
enda var hún mér mjög góð. I
barnsaugum mínum stóð hún sem
fögur kona, ímynd þróttar, þol:
gæðis, umhyggju og óeigingirni. í
andlit hennar voru ristar djúpar
rúnir sorga og áhyggna. En yfir
svip hennar hvíldi göfgi, og al-
vara, undursamlega blönduð svip
léttrar lundar og græskulausrar
glaðværðar.
Tign í svip hennar, reisn í fari
hennar enda klæddist hún ís-
lenzka búningnum, allt far hennar
var mótað hógværð og einbeitni.
Marga góða vini átti Sigríður og
stóran frændgarð, bar allt til
hennar mjög hlýjan hug. Vinir
hennar virtu hana, dáðust að
þreki hennar og skapgerðarfestu,
geðprýði og glaðværð. Allra vand-
kvæði vildi hún leysa, er til
hennar leituðu. Hún var vinsæl
meðal þeirra er kynntust henni.
Ég hygg þó að fáir hafi skilið
Sigríði og metið meira en móðir
mín. Milli þeirra var einlæg og
fölskvalaus vinátta. Eftir að Sig-
riður flutti til Reykjavíkur vann
hún fyrir sér með saumaskap,
hafði fágað handbragð og var
eftirsótt, sérstaklega lagði hún
stund á peysufatasaum.
Athyglisvert er að Sigríður nam
skreðarasaum á Akureyri, því
efnin voru engin, en alltaf hafði
Sigríður úrræði, svo allt fór vel
fyrr og síðar. Móðurhæfileiki,
móðurkærleikur og meðfædd
höfðingslund stjórnaði gerðum
hennar.
Mér er það fyllilega ljóst hversu
frábæra stjúptengdamóður
mamma mín átti, en þær mamma
kynntust fyrst árið 1908. Ekki get
ég lýst Sigríði Jensdóttur betur en
benda hverjum og einum á þá
háttprúðustu, hreinskilnustu og
merkustu konu sem hann þekkir.
Minningin um Sigríði Jensdótt-
ur mun ávallt verma okkur mæðg-
inum, megi það og verða líka
dætrum hennar, barnabörnum og
niðjum öllum.
Guð blessi minningu hennar.
Helgi Vigfússon
Legsteinn er
varaniegt
minnismerki
Framleiðum ótal
tegundir legsteina.
Allskonar stærðir og
gerðir. Veitum fúslega
upplýsingar og ráðgjðf
um gerð og val
legsteina.
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEQI 4S 76677
SVAR MITT
eftir billy graham
Biblíunni er skipt í kapftula og vers. Hvenær var það
gert?
í fornum hebreskum og grískum handritum Biblí-
unnar eru engar slíkar skiptingar í kapítula og vers.
Þar eru ekki einu sinni bil á milli orða. Skiptingin í
kapítula er þó gömul og hún þróaðist smám saman.
Gömul skipting í hebreska textanum á rætur að
rekja til fræðimanns í hópi gyðinga, sem uppi var
fyrir nær því 700 árum. Sá, sem á heiðurinn af
núverandi skiptingu í kapítula og vers, er franski
fræðimaðurinn og prentarinn Robert Stephens. Hann
notaði hana um það bil árið 1545.
I fyrstu prentun Biblíunnar í Genf um miðja
sextándu öld var hin venjulega skipting. En hún
svarar ekki á eðlilegan hátt til efnisskiptingar og
hugsana. Nefna má sem dæmi, að 1. vers í 2. kapítula
fyrstu Mósebókar á heima í niðurlagi kapítulans á
undan. Samt er núverandi skipting til mikillar
hjálpar við lestur Biblíunnar og hún auðveldar okkur
að átta okkur á, hvar tiltekið efni er að finna í
bókinni.
Styrkið og fegrið líkamann
Dömur og herrar!
Nýtt 4ra vikna námskeid hetst 4. febrúar. Leikfimi fyrir konur
á öllum aldri.
Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira.
Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af
vöðvabólgum.
Vigtun - mæling - sturtur - Ijós - gufuböð
- kaffi.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Innritun og upplýsingar alla
virka daga frá kl. 13—22
í síma 83295.
HLJOM-
, PLOTUM
UTSALAN
stendur nú
sem hæst
Allt
aö
ROKK -
DISKÓ - JAZZ -
LÉTT TÓNLIST
KLASSÍK
ÍSLENSKAR
PLÖTUR OG
KASSETTUR
afsláttur
Stórar plötur _ _ _ _
frá kr. 30,00
Litlar plötur _ AA
frá kr. 5,00.
FÁLKIN N
Suöurlandsbraut 8 — sími 84670
Laugavegi24 — sími18670
Austurveri — sími 33360
crcrfíí