Morgunblaðið - 01.02.1981, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 01.02.1981, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1981 31 Ingólfur Guðbrandsson gestgjafi á fyrsta sælkerakvöldi ársins HINN 5. febrúar nk. verður fyrsta sælkerakvöld ársins i Blómasal Hótels Loftleiða. Gestgjafinn verður enjfinn annar en hinn þjóðkunni ferðamála- frömuður og tónlistarmaður Ing- ólfur Guðbrandsson. Ingólfur er með víðförlustu Is- lendingum og því kunnugur mat- argerð margra þjóða. Hann mun stjórna matseldinni að hætti Pek- ingbúa og verða nokkrir af kín- verskum eftirlætisréttum hans á matseðlum kvöldsins. Kínversk matargerðarlist er víðfræg og kínverskir veitingastaðir vel sóttir víða um lönd. Meðal þess sem Ingólfur hefur á matseðlinum verða kínverskar rækjubollur, hænsnakjötsseyði, austurlenskur kjúklingaréttur, “sweet and sour pork“ og kínverskt te. Þetta fyrsta sælkerakvöld árs- ins verður með austurlensku ívafi. Ingólfur Guðbrandsson forstjóri. Linda Meehan frá Korean Airlines sem kemur sérstaklega til sæl- kerakvöldsins mun færa austur- lenskar smágjafir. Kínverski gítarsnillingurinn Jósef K. Cheung Fung frá Hong Kong mun leika japanska og spænska gítartónlist og sópran söngkonan Margrét Pálmadóttir syngur lög eftir John Dowland og J. Rodriques við undirleik Jóseps. Margrét er nýkomin til landsins að loknu fjögurra ára námi við tónlistarháskólann í Vínarborg. Sælkerakvöldin á Hótel Loft- leiðum voru á sínum tíma nýmæli í borgarlífinu. Þar ríkir ávallt mikil stemmning og þessi fimmtu- dagskvöld þegar gómsætir réttir eru framreiddir undir stjórn ým- issa góðborgara hafa unnið sér þann sess að venjulega komast færri að en vilja. (Fréttatilkynning) Margrét Pálmadóttir söngkona. hefst á morgun mánudag Rauðarárstig 1 Sími 15077 Símamenn mótmæla kjara- skerðingu ríkisstjórnarinnar EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt einróma á fundi Fé- lagsráðs Féiags íslenzkra sima- manna, sem haldinn var miðviku- daginn 28. janúar sl. Félagsráð mótmælir harðlega þeim ákvæðum í bráðabirgðalög- um ríkisstjórnarinnar, sem fela í sér 7% kjaraskerðingu 1. mars nk. og riftun kjarasamninga BSRB frá því á sl. hausti. Þeir samningar voru þá túlkaðir af stjórnvöldum sem hógværir láglaunasamningar, sem aettu að vera til eftirbreytni fyrir aðra launþega í landinu, sem síður en svo varð raunin á, því allir þeir samningar sem gerðir hafa verið síðan hafa falið í sér verulega meiri kjarabætur. Með bráðabirgðalögum ríkis- stjórnarinnar nú verða opinberir starfsmenn fyrir mun meiri kjara- skerðingu en þær kjarabætur námu, sem samið var um á sl. hausti eftir að samningar höfðu verið lausir í á annað ár. Félagsráð varar við síendur- teknum aðgerðum stjórnvalda að rifta gildandi kjarasamningum og telur að slíkt hljóti að leiða til ófarnaðar. * Islenzki skipastóllinn minnkaði i fyrra ÍSLENZKI skipastóllinn minnk- aði um 7.137 brúttórúmlestir sl. ár, samkvæmt skipaskránni, sem er nýkomin út. Skipastóllinn var 970 skip um síðustu áramót, samtals 187.327 brúttórúmlestir en var 979 skip um fyrri áramót, samtals 194.464 brúttórúmlestir. 25 skip voru skrásett á árinu og 16 skip stækkuðu vegna breytinga. 30 skip voru tekin af skrá en 4 minnkuðu vegna endurmælingar. + Utför móöur okkar og tengdamóöur, STEINUNNAR MAGNUSDOTTUR frá Miövogí, verður gerð frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 3. febrúar kl. 10.30. Elfn Guöjónsdóttir, Alfreó D. Jónsson, Guöjón Guöjónsson, Helga Bergþórsdóttir, Magnús Guöjónsson, Anna Sigurkarlsdóttir, Borghildur Þóröardóttir. Kæliklefar — Frystiklefar Afgreiöum meö stuttum fyrirvara kæli- og frystiklefa samsetta úr einingum. Allt efni fyrir kæli- og frystiklefa. Kæling hf. Langholtsvegi 109, sími 32150. v’ Sum bílsætl eru sjóóheit á sumrin en ískóld á vetrum Þekkíróu vandamálió? En vissirðu að á því höfum við Ijómandi góða lausn. Austi bílaáklæðin. Viðurkennd dönsk gæðavara, falleg og furðulega ódýr. Þau veita góða einangrun og hlífa bílsætinu. Framleidd eftir einföldu kerfi sem tryggir lágt verð og að áklæði séu fyrirliggjandi í flestar gerðir bíla. Austi bílaáklæði. Úr fallegum efnum, — einföld í ásetningu. Fást á öllum bensínstöðvum okkar. Q CD O CJ Cd Vöruval og vönduö þjónusta STÖÐVARNAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.