Morgunblaðið - 08.02.1981, Blaðsíða 32
Síminn á afgreióslunni er
83033
JtUrguntiInbib
imgpiistlMftfrtfe
^SÍminn á afgreióslunni er
83033
JtUrgunbtabib
SUNNUDAGUR 8. FEBRUAR 1981
Nýr togari
Húsvíkinga
sjósettur
Akureyri, 7. febrúar.
SKUTTOGARI, sem smíðaður cr
fyrir útKcrðarfélaKÍð Höfða hf. á
Húsavík. var sottur á fiot í Slipp-
stöðinni á Akureyri um kl. 11:30 i
morgun. Við það takifari flutti
Gunnar Rannars forstjóri ávarp ok
Tryjíífvi Finnsson talaði af hálfu
kaupenda skipsins. Að því loknu
Kekk fram Krla llelKadóttir, kona
Kristjáns Ásgeirssonar útgerðar-
stjóra, og gaf skipinu nafnið Kol-
beinsey ÞH 10.
Skipið er að öllu leyti hannað af
starfsmönnum tæknideildar Slipp-
stöðvarinnar hf. og er talið afar
fullkomið að byggingu og lögun með
tilliti til ganghraða og sjóhaefni. Það
er 495 lestir að staerð, lengdin er 47,8
m, breidd 9,76 m, dýpt að efra þilfari
6,7 m og mesta djúprista 4,36 m. Það
verður útbúið til veiða með botn-
vörpu og flotvörpu. Áætlað er að
smíði þess ljúki í apríllok og verður
það þá afhent eigendum.
Næsta verkefni Slippstöðvarinnar
er smíði skuttogara fyrir Skag-
strending hf. á Skagaströnd. Sv.P.
Ottó N. Þorláksson. hinn nýi togari Bæjarútgerðar Reykjavikur. sem verið hefur i smíðum hjá Stálvik, var sjósettur i gærmorgun. Hann
var síðan dreginn inn til hafnar í Hafnarfirði, þar sem lokið verður við frekari smíði. Emilía. ljósmyndari Mbl. tók þessa mynd í
gærmorgun. þegar lóðsbáturinn í Hafnarfirði og Magni drógu hinn nýja togara inn um hafnarkjaftinn.
Myndina tók Halldór P. Gislason.
Fjöldi unglinga í miðborg Reykjavikur:
Hrói höttur útdeildi 500
glösum af heitu kakói
MIKILI, fjöldi unglinga safnaðist
saman í miðborg Reykjavíkur á
föstudagskvöldið og aðfaranótt
laugardagsins. en á föstudag lauk
samræmdum prófum í grunnskól-
um landsins. Aðalvarðstjóri
Reykjavikurlögreglunnar á mið-
borgarstöð. sagði ölvun hafa verið
nokkuð almenna. en ekki hefði þó
komið til óspekta. Unglingana
sagði hann hafa verið með al-
yngsta móti að þessu sinni. Um
klukkan þrjú um nóttina hefði
liðið ekki verið tekið að þynnast,
en unglingarnir tóku að halda
heim á leið er kom fram undir
klukkan fjögur.
Ungt fólk í Reykjavík, sem
starfað hefur undir heitinu Hrói
höttur, var á ferli í miðborginni í
fyrrinótt, ræddu við unglingana og
gáfu þeim heitt kako. Sagði einn
liðsmanna Hróa hattar í samtali
við Morgunblaðið í gær, að um 500
glös af heitu kakói hefðu verið
gefin um nóttina, og hefðu ungl-
ingarnir verið mjög þakklátir fyrir
hressinguna. Sagði hann Hróa hött
áreiðanlega myndu láta meira til
sín taka meðal unglinga í Reykja-
vík á næstunni.
Án samnings við EBE
stöndum við illa að vígi“
- segir Steingrímur Hermannsson um hugsanlegar loðnu-
veiðar EBE-skipa á hafinu milli Islands og Grænlands
VITANLEGA höfum við áhyggj-
ur af því ef fjöldi skipa frá
löndum Efnahagsbandalagsins
stunda loðnuveiðar á hafinu milli
íslands og Grænlands næsta
sumar“, sagði Steingrimur Her-
mannsson. sjávarútvegsráðherra,
i samtali við Morgunblaðið. Hann
sagði að ráðuneytið hefði reynt
að grennslast fyrir um hvort það
væri rétt. að Danir hefðu riflegan
styrk til að útbúa sig á slíkar
veiðar. Til þessa hefði það ekki
fengizt staðfest.
„Við vitum, að í þessum löndum
er töluverður floti, sem gera má út
á slíkar veiðar og ef þeir fara
þarna með verksmiðjuskip þá geta
þeir vitanlega veitt þarna talsvert
magn af loðnu", sagði Steingrím-
ur. „Það fer þó eftir því hvernig
háttar til á miðunum á þessum
tíma og ætli maður verði ekki að
vona að yfir þessu svæði verði ís
þangað til Grænlendingar hafa
ráðið sínum ráðum gagnvart
Efnahagsbandalaginu.
Gagnvart Efnahagsbandalaginu
Staðið hefur verið að fullu við
framkvæmdaáætlun Fiskeldis
„ÞAÐ ER alrangt. sem haldið var
fram í blaðafréttum í vikunni, að
oliufélög séu að berjast um hlutafé
fyrirtækisins,“ sagði Skúli G. John-
sen, einn stjórnarmanna Fiskeldis
hf. i samtali við Morgunblaðið f
gær. „Samkvæmt hluthafaskrá á
ekkert oliufélag hluti í félaginu,“
sagði Skúli. „Beiðni kom fram um
hluthafafund i félaginu, en henni
var vísað frá á íundi hinn 5.
febrúar. vegna formgalla. Aðal-
fundur Fiskeldis hf. hefur hins
vegar verið auglýstur hinn 21.
þessa mánaðar, þar sem öll þessi
mál verða til umra'ðu.“
Skúli sagði einnig, að fullyrðingar
um skil á hlutafjárloforðum væru
rangar, og einnig væri rangt að
gengið hefði verið til lögfræðilegra
innheimtuaðgerða. Algjörlega hefði
verið farið að hlutafjárlögum um
úrlausn þess, er ljóst varð að hluti
þeirra er skrifaði sig á sínum tíma
fyrir hlutafé, hafði ekki áhuga á að
greiða það. Stjórnin seldi þá öðrum
þann rétt, og sagði Skúli það hafa
verið nokkra aðila sem áhuga hefðu
á tilgangi félagsins. Sagði hann
Fiskeldi vera skráð fyrir ákveðnu
hlutafé, og stjórnarinnar væri að
sjá um að til væri það hlutafé er
sagt væri til um í stofnsamningi
félagsins. Skúli sagði að þeir aðilar,
er komu inn í félagið á þennan hátt,
væru fjórtán talsins.
Framkvæmdir Fiskeldis sagði
hann hafa gengið með miklum
ágætum, og hefði verið staðiö að
fullu við framkvæmdaáætlun sem
gerð var í sumar er leið. Byggð hefði
verið fiskeldisstöð á Húsavík meðal
annars eins og til hefði staðið.
Um sögusagnir um óeiningu í
stjórn Fiskeldis, sagði Skúli að rétt
væri að tveir stjórnarmanna, þeir
Jakob Hafstein og Eyjólfur Frið-
geirsson, hefðu ekki viljað fella sig
við ákvarðanir meirihluta stjórnar-
innar. Það hefði endað með því að
þeir hefðu sagt sig úr stjórninni, en
nú á aðalfundinum í þessum mánuði
yrði að sjálfsögðu kjörin ný stjórn
til næsta árs.
hefur ekki verið tekin ákvörðun
um hvort reynt verður að ná þeim
rammasamningi, sem unnið hefur
verið að. Hinu er ekki að neita, að
án slíks samnings stöndum við illa
að vígi og það er sáralítið annað,
sem við gætum gert annað en að
krefjast viðræðna á grundvelli
draga að hafréttarsáttmála. Sam-
kvæmt þeim ákvæðum ber löndum
að reyna að ná samkomulagi. Ef
það tekst ekki ákveður hvert land
veiðar á sínu svæði og þannig er
ekkert öryggi í þessu máli fyrir
okkur þó sú leið verði farin," sagði
Steingrímur Hermannsson.
Borgin greiddi 118
millj. gkr. í leigu-
bíla á síðasta ári
KOSTNAÐUR Reykjavikurborgar
vegna leigubifreiða og bílaleigu-
bila nam á siðasta ári um 118
milljónum gkróna, að þvi er Mbl.
fékk upplýst í gær hjá Bergi
Tómassyni, borgarendurskoðanda.
Hann sagðist telja, að á siðustu
árum hefði þessi kostnaðarliður
ekki hækkað hlutfallslega mcira
en annað i rekstri borgarinnar, en
hins vegar gengi illa að lækka
þennan kostnaðarþátt.
Borgin verzlar einkum við leigu-
bílastöð BSR og greiddi um 47
milljónir króna fyrir leigubíla af
þeirri stöð á síðasta ári. Samtals
nam leigubílakostnaður borgarinn-
ar 77,6 milljónum króna. Það er
Félagsmálastofnun borgarinnar,
sem notar mest af leigubílum, en
einnig heilbrigðisstofnanir ýmsar,
skólar og fleiri stofnanir.
Bílaleigukostnaður borgarinnar
nam á síðasta ári um 40 milljónum
gkróna, en borgin verzlar nær
eingöngu við bilaleiguna Höld, sem
er nánast sama fyrirtæki og Bíla-
leiga Akureyrar. Borgin hefur einn-
ig nokkur viðskipti við Bílaleigu
Loftleiða. Að sögn Bergs Tómasson-
ar eru bílaleigubílar einkum notað-
ir á vegum borgarinnar af mönnum,
sem eru á vöktum um helgar og
geta átt von á að vera kallaöir út
hvenær sólarhringsins sem er, eins
og t.d. starfsmenn hitaveitu og
vatnsveitu.
Bergur var spurður hvort ekki
væri óeðlilegt að Reykjavíkurborg
hefði nær öll bílaleiguviðskipti sín
við fyrirtæki á Akureyri. Hann
sagði að um slíkt væri alls ekki að
ræða. Bilaleigan Höldur væri skráð
í Reykjavík og gjöld fyrirtækisins
til sveitarfélags væru greidd í
Reykjavík. Reynt væri að gera sem
hagkvæmasta samninga við eitt
fyrirtæki á hverjum tíma og slíka
samninga væri borgin með.
Tvísýn staða
á Skákþinginu
SKÁKUM, sem hafði verið frestað
á Skákþingi Reykjavíkur, var lok-
ió á föstudagskvöld. Helgi Ólafs-
son vann Jón L. Árnason og Bragi
Halldórsson vann Elvar Guð-
mundsson. Staðan er því orðin
nokkuð tvísýn, en Jón L. er nú
efstur með sex og hálfan vinning
og næstir eru þeir Bragi Hall-
dórsson, Elvar Guðmundsson og
Helgi Ólafsson allir með sex
vinninga. Skákþinginu verður
framhaldið í dag kl. 14.