Morgunblaðið - 27.02.1981, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981
Frá sjóréttinum í Eyjum í gær.
skýrslu.
Þórður Rafn Sigurðsson skipstjóri
Ölduljóninu gefur
LjÓNm. Mbl. Sigurgeir.
Sjópróf Heimaeyjarslyssins:
SJÓPRÓF hófust í gær í Vestmannaeyjum í máli Heimaeyjar VE og kom
skipstjórinn Gísli Garðarsson fyrir sjórétt í gær ásamt skipstjórum á
Ölduljóninu VE og togaranum Sindra. Sjóprófum verður haidið áfram í
dag og koma þá fyrir sjórétt skipverjar. fulltrúar útgerðar og
tryggingarfélags. t réttinum var lögð fram dagbók skipsins og verður
rakið efni hennar hér á eftir. Dómsforseti er Jón Ragnar Þorsteinsson, en
meðdómendur Friðrik Ásmundsson og Angantýr Elíasson.
t skipsdaghók ritar skipstjórinn að um kl. 16 þann dag sem óhappið átti
sér stað voru þrjú net einnar trossunnar komin i sjó þegar báturinn
kastaðist yfir í stjór. Fóru netin i skrúfina við kastið, en strax var kúplað
frá vélinni. Voru gerðar tilraunir til þess að losa netin með því að kúpla að,
en vélin stöðvaðist strax. Ölduljón VE 130 var þá statt skammt frá og
kallaði skipstjórinn i það og bað um að vera dreginn i land.
Síðan segir skipstjórinn i dag-
bókinni:
,Um kl. 18 kom Ölduljónið til
okkar og hófust tilraunir til að koma
taug á milli skipanna. Um kl. 19
hafðist að koma vír frá Ölduljóninu
yfir til okkar og dró hann okkur
vestur fyrir Einidrang en um kl. 20
bilaði rör við spilið á Olduljóninu en
þar er búnaður sem sá um að gefa
eftir ef mikið tók á vírinn. Skömmu
síðar slitnaði virinn milli skipanna.
Vorum við þá staddir 4 sjóm.
norðvestur af Þrídröngum. Togarinn
Sindri VE hafði samband við okkur
er Ölduljónið var byrjað að draga
okkur og bauðst hann til að aðstoða
okkar ef með þyrfti, en hann var þá
skammt suðvestur af okkur. Er
vírinn slitnaði hafði Ölduljónið sam-
band við varðskip, sem statt var í
vari út af Eiðinu og bað þá að koma
okkur til aðstoðar. Skömmu síðar
hafði útgerðarstjórinn samband við
okkur úr mb. Suðurey og bað mig að
bíða með að taka varðskip meðan
haft væri samband við tryggingarfé-
Þingfundir
falla niður
á mánudag
FUNDIR Alþingis á mánudaginn
falla niður vegna þings Norður-
landaráðs, sem senn hefst í Kaup-
mannahöfn, en allmargir þing-
menn og ráðherrar sækja þingið
að venju. Gert er ráð fyrir að
þingfundir verði síðan haldnir
með eðlilegum hætti það sem eftir
er næstu viku, en rólegt mun að
öllum líkindum verða í þingsölum
þar til landsfeður koma heim frá
Danaveldi á ný.
I gær voru fundir í báðum
deildum Alþingis, og í neðri deild
lauk fyrstu umræðu um bráða-
birgðalög ríkisstjórnarinnar um
„viðnám gegn verðbólgu". Var mál-
inu vísað til fjárhags- og viðskipta-
nefndar neðri deildar að umræð-
unni lokinni.
lagið, nema skipið væri statt í neyð.
Vegna þess að skipið var ekki í
neinni hættu þarna afþakkaði ég
aðstoð varðskipsins. Á meðan út-
gerðarstjórinn hafði samband við
tryggingarfélagið bauðst Sindri til
að draga okkur í land og þáði ég það,
enda taldi ég Sindra jafn vel útbúinn
til að draga okkur í land eins og
varðskip, auk þess sem hann var
miklu nær okkur. Áður hafði ég
verið búinn að kalla í VE-radíó og
athuga hvort hægt væri að fá
Lóðsinn okkur til aðstoðar. Talaði ég
við skipstjórann á honum og taldi
hann að hann gæti ekki dregið hann
í land vegna veðurs en sagðist geta
komið ef ég vildi, en ég sá ekki
ástæðu til þess að þiggja það þar
sem Sindri var búinn að bjóða
aðstoð. Kallaði útgerðarstjórinn í
mig skömmu síðar og bað hann mig
um að láta Sindra draga okkur. Kom
Sindri skömmu síðar og hófust strax
tilraunir til að koma taug á milli
skipanna. Létum við lóðabelgi með
línu út og ætluðum að láta þá reka
frá okkur en vindurinn var það
mikill að þeir fuku af bátnum aftur.
Reyndum við þá að skjóta með
yfir í Sindra, fyrst á
við okkur og síðan á
en þeir náðu hvorugri
niður, en þeir voru þar ekki svo ég
vissi að þeir hefðu farið útbyrðis.
Fór ég strax aftur í stýrishús og
leitaði með kastaranum í sjónum
kring um bátinn, einnig kallaði ég í
Sindra og bað hann að leita, en
vegna sjógangs og særoks sást ekk-
ert út fyrir bátinn. Þetta gerðist
skömmu fyrir miðnætti. Þegar þetta
gerðist var búið að losa báðar
ankerisfestingar uppi á dekki, en
þegar slaka átti ankerunum voru
keðjurnar fastar. Tel ég að þær hafi
kastast til í keðjukassa og óklárast.
Lét ég þá loka öllu og sagði mönnum
að fara niður í gang og halda sér þar,
því skammt var eftir í brimgarðinn.
Tilkynnti ég varðskipi hvernig kom-
ið væri og hafði það samband við
Slysavarnafélagið. Þegar brotsjór-
inn kom á okkur voru vélstjórarnir
niðri í vélarrúmi, því við reyndum að
losa um skrúfuna með því að láta
vélina snúast fullan snúning og
kúpla að en vélin stöðvaðist strax.
Þegar brotið kom á okkur köstuðust
vélstjórarnir til í vélarrúminu og við
það slasaðist 1. vélstjóri, brotnaði á
hægri hendi og marðist á baki.“
Síðan segir í skýrslu skipstjórans
að strandið hafi átt sér stað kl. 00.15
og 20 mín. síðar hafi björgunarsveit-
armenn verið komnir á strandstað.
Bar varðskip boð á milli skipverja á
Heimaey og björgunarsveitarmanna,
en skipstjórinn á Heimaey skaut
línu í land og voru skipverjar síðan
dregnir í björgunarstól. Skipstjórinn
síðastur, kl. 2.30 um nóttina.
línubyssu
hléborða
kulborða
línunni.
o
Þá reyndu þeir á Sindra að skjóta
yfir til okkar og náðum við línunni í
þriðju tilraun, en er við vorum að
draga hana yfir til okkar, slitnaði
hún vegna vinds og sjógangs. Þá
reyndu þeir á Sindra að keyra í
kring um okkur með línu aftan í og
náðum við tvisvar að setja í hana en
misstum hana í bæði skiptin. Meðan
á þessum tilraunum stóð hafði
vindurinn snúist úr suðsuðaustri í
suðvestanátt og án þess að gera
okkur grein fyrir, rak bátinn með
miklum hraða að landi. Um kl. 23.30
voru 2,7 sjómílur í land og lét ég þá
gera klárt til að láta ankerin falla.
Þegar Albert og Guðni voru að losa
ankerisbremsur á bakborðsankeri
kom mikill brotsjór á bátinn. Ég sat
í stól stjórnborðsmegin í stýrishúsi
og kastaðist yfir í bakborðshlið þess.
Er ég leit út á dekkið aftur sá ég að
það vantaði Albert og Guðna á
dekkið. Hljóp ég strax fram og
athugaði hvort þeir hefðu komist
INNLENT
Sjúkrahús Suðurlands:
Rekstrarstjórn aug-
lýsir stöðu yfirlæknis
Ráðuneytið segir yfirlækni þegar ráðinn
Brotsjór um 3 sjómílur
frá landi tók mennina út
AUGLÝSING frá rekstrarstjórn
Sjúkrahúss Suðurlands þar sem
auglýst er laus til umsóknar staða
yfirlæknis við Sjúkrahús Suður-
lands er „á misskilningi byggð“
segir i athugasemd sem barst Mbl.
frá heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytinu í gær. Segir einnig í
athugasemd ráðuneytisins, að yfir-
læknir Sjúkrahúss Selfoss, sem
væntanlega hættir starfrækslu með
tilkomu Sjúkrahúss Suðurlands,
eigi sjálfkrafa að hljóta yfirlækn-
isstöðuna á hinu nýja sjúkrahúsi.
Formaður rekstrarstjórnar Sjúkra-
húss Suðurlands, Páll Hall-
grimsson sýslumaður, viidi ekki tjá
sig um málið, er Mbl. ræddi við
hann i gær: „Ég hef hvorki heyrt
né séð neitt frá ráðuneytinu og það
hefur ekki verið haft samband við
mig út af þessu, ég ræði þvi málið
ekki á þessu stigi,“ sagði hann.
Athugasemdin frá ráðuneytinu
hljóðar svo: „Undanfarna daga hef-
ur birst í fjölmiðlum auglýsing frá
rekstrarstjórn Sjúkrahúss Suður-
lands, þar sem auglýst er laus til
umsóknar yfirlæknisstaða við
Sjúkrahús Suðurlands. Vegna þess-
arar auglýsingar óskar ráðuneytið
að koma á framfæri eftirfarandi:
Sjúkrahús Suðurlands á Selfossi
tekur að öllum likindum til starfa á
þessu ári. Tekur það m.a. við
starfsemi Sjúkrahúss Selfoss og
verður rekstri þess sjúkrahúss þar
með hætt. Ráðuneytið hefur alltaf
litið svo á, að öll starfsemi og allt
starfslið Sjúkrahúss Selfoss eigi að
flytjast yfir til Sjúkrahúss Suður-
lands og telur að um það hafi náðst
samkomulag, enda er slíkt fyrir-
komulag á allan hátt eðlilegt. Ráðu-
neytið lítur því svo á, að starfandi
yfirlæknir við Sjúkrahús Selfoss
eigi að taka við yfirlæknisstöðu við
Sjúkrahús Suðurlands, enda er
ráðuneytinu kunnugt um, að hann
hefur ekki sagt lausu starfi sínu.
Fyrir því lítur ráðuneytið svo á að
nefnd auglýsing sé á misskilningi
byggð og mun óska eftir því við
Læknafélag íslands, að það komi
þeim upplýsingum á framfæri við
félagsmenn sína.“
Búvöruverð
ljóst í dag?
BÚIST var við því, að nýtt búvöru-
verð lægi ljóst fyrir um hádegisbil-
ið i dag, samkvæmt heimildum sem
Mbl. aflaði sér i gær. Á fundi
sinum i gærmorgun fjallaði rikis-
stjórnin um málið og jafnvel búist
við nýjum fundi hennar um það í
morgun. og jafnframt var Sex-
mannanefnd landbúnaðarins
stefnt saman i morgun.
Sexmannanefndin hefur kynnt
ríkisstjórninni þau atriði um fram-
reikning búvörugrundvailar sem
hún er sammála um, en upp kom í
nefndinni deila um hvernig túlka
bæri ákvæði í lögum um verðstöðv-
un varðandi framreikning vissra
þátta búvörugrundvallarins, eins og
skýrt var frá í Mbl. í gær.
Sjónvarpið kaup-
ir hæðarhluta fyr-
ir 2,3 milljónir kr.
„ÞAÐ ER EKKI á dagskrá hjá
okkur að lengja útsendingar-
tímann. eins og fjárhag sjón-
varpsins er háttað, þannig að
við þessa ákvörðun verður stað-
ið,“ sagði Pétur Guðfinnsson,
framkvæmdastjóri sjónvarps-
ins i viðtali við blaðamann Mbl.
í gærkvöldi, en sú ákvörðun,
sem tilkynnt var í sjónvarpinu í
fyrrakvöld, að sýna 25 mínútna
mynd frá heimsókn forseta ís-
lands til Danmerkur í staðinn
fyrir „Allt í gamni með Harold
Lloyd“, sem var á dagskrá
sjónvarpsins í kvöld kl. 20.50
hefur vakið óánægju margra og
jafnvel grát yngstu áhorfend-
anna, og hafa t.a.m. fjölmargir
lesendur Mbl. haft samband við
blaðið þessa vegna. Þá staðfesti
Pétur, að Ríkisútvarpið hefði
fest kaup á hluta jarðhæðar í
sjónvarpshúsinu við Laugavcg
fyrir 2,3 millj. kr., en húsnæði
þetta var í eigu Bílasmiðjunnar
og hefur verzlun verið þar til
húsa.
Pétur sagði, að filman frá
Danmörku væri ekki komin til
landsins, en væntanleg, og fyrri
ákvörðun um niðurfellingu þátt-
arins með Harold Lloyd yrði
ekki breytt. „Það má kannski
segja, að þetta hafi verið skortur
á framsýni hjá einhverjum í
sjónvarpinu að geta ekki séð
þetta fyrir, en ég sé ekki að það
breyti miklu, þó þessum þætti sé
frestað um eina viku.“ Áð sögn
Péturs voru húsnæðiskaupin
fjármögnuð með fé úr fram-
kvæmdasjóði Ríkisútvarpsins
sem væri afmarkaður sjóður og
sagðist hann aldrei hafa heyrt,
að til greina kæmi að fjármagna
dagskrárgerð eða annan rekstur
með því fé. „Húsnæðisskortur er
mikill, bæði hjá sjónvarpi og
útvarpi eins og kunnugt er. Ekki
hefur verið tekin ákvörðun um
til hvers þetta viðbótarhúsnæði
verður notað, en af nógu er að
taka,“ sagði hann í lokin.
V estmannaeyjar:
Boðuðu yfírvinnubanni af létt
BOÐUÐU yfirvinnubanni Verka-
lýðsfélags Vestmannaeyja, sem
átti að hefjast 1 gær, var aflétt á
stjórnar- og trúnaðarmannaráðs-
fundi i fyrrakvöld skv. upplýsing-
um frá Jóni Kjartanssyni i gær. Þá
hefur náðst samkomulag milli
Verkalýðsfélagsins og atvinnurek-
enda um meginþætti þess sem bar í
milli og hafa samningar þess efnis
verið undirritaðir.
Jón sagði, að ástæðan fyrir boðun
yfirvinnubannsins hefði verið sú, að
nokkrir sérsamningar hefðu verið
ógerðir, þar á meðal um vaktavinnu
í fiskimjöl8verksmiðjum og frysti-
húsum þar sem ákvæði laga um
hvíldartíma hefðu breytt þeim
samningum. Samkomulag hefur
náðst um þessi atriði en enn ber
eitthvað í milli um 10 klukkustunda
hvíldartíma á sólarhring.
Arnar Sigurmundsson skrifstofu-
stjóri hjá sameiginlegri skrifstofu
frystihúsanna í Vestmannaeyjum
sagði í viðtali við Mbl. í gær, að ekki
hefði náðst endanlegt samkomulag
um frávikin frá lögboðnum hvíld-
artíma, en ný lög um vinnutíma
o.fl., sem gildi tóku um sl. áramót,
hefðu skapað mikla erfiðleika varð-
andi fiskmóttöku á hinum hefð-
bundnu vertíðarsvæðum, þar sem
yfirleitt væri komið með óslægðan
fisk að landi seinni hluta dags og á
kvöldin.