Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981 Hjálmar H. Ragnarsson stjórnar Háskólakórnum og var myndin tekin i Olfusborsum nýlega er kórinn dvaidi þar við söngþjálfun. Tvennir tónleikar Háskólakórsins: Frumflytur mörg íslenzk tónverk HÁSKÓLAKÓRINN heidur um heigina tvenna tónleika i Félags- stofnun stúdenta við Hringbraut i Reykjavík. Verða hinir fyrri kl. 17 á iaugardag og þeir siðari kl. 20:30 á sunnudagskvöld. Stjórn- andi er Hjálmar H. Ragnarsson og hljóðfæraleikarar Hanna G. Sigurðardóttir og Vilberg Viggó- son á pianó og Eggert Pálsson á slagverk. Á efnisskrá tónleikanna eru mest íslenzk verk og heyrast mörg þeirra nú í fyrsta sinn, en auk þeirra er að finna þjóðlög og stúdentasöngva. Meðal íslenzkra verka eru Islandsvísur Gylfa Þ. Gislasonar er hann samdi árin 1935-36 og voru þær fluttar við skólaslit það vor, en raddsetningu gerði Jón Þórarinsson. „The Sick Rose“ nefnist verk eftir Atla Heimi Sveinsson, sem hann samdi árið 1978 til minningar um Benj- amin Britten. Þá verður flutt verk Jóns Ásgeirssonar, Á þessari rím- lausu skeggöld, en verkið samdi hann að beiðni danska tónskálda- félagsins og var það frumflutt í Danmörku árið 1974. Fimm man- söngvar nefnast lög eftir Jónas Tómasson er hann samdi sl. haust að beiðni Háskólakórsins, en ljóð- in eru úr ljóðaflokki Hannesar Péturssonar, Manvísur. Þá má nefna tvö verk eftir stjórnandann, Hjálmar H. Ragnarsson, Gamalt vers, samið á liðnu hausti og A-Mahla Muhru, verk, sem samið er við ljóð Karls Einarssonar Dunganons, hertoga af Sankti Kildu. Verkið var samið í janúar, en ljóðið A-Mahla Muhru er samið á „ókunnri mállýzku Atlantis- tungumálsins", segir m.a. í frétt um tónleikana. Háskólakórinn, sem tók við af Blandaða Háskólakórnum, hefur flest sl. ár haldið tvenna tónleika og nokkuð hefur verið um söng- ferðir undanfarið bæði innanlands og milli landa. Rut Magnússon var stjórnandi kórsins lengst af, en Hjálmar H. Ragnarsson tók við stjórn hans sl. haust. Ráðgerð er söngför til Vestfjarða og þátttaka í Sólrisuhátíð Menntaskólans á ísafirði um miðjan næsta mánuð, en nýlega dvöldu kórfélagar eina helgi í Ölfusborgum við söngþjálf- un. * Hjúkrunarfélag Islands: Lýsir einróma stuðn- ingi við baráttu fóstra Á STJÓRNARFUNDI Hjúkrunar- félags íslands 17. febrúar 1981 var það einróma samþykkt að lýsa yfir stuðningi við fóstrur í kjarabar- áttu þeirra. Launakjör fóstra, sem og ann- arra kvennastétta, hafa einkennst af því launamisrétti sem hingað til hefur verið ríkjandi í þjóðfélag- inu. Fréttatilkynning frá stjórn HFt. Almannavarnir í Kópa vogi tókust f arsællega - segir Ásgeir Pétursson bæjarfógeti Morgunblaðið hafði i gær samhand við Ásgeir Pétursson bæjarfógeta i Kópavogi og innti eftir hjálparstarfsemi almanna- varna í Kópavogi þegar óveðrið skall á 16. febrúar siðastliðinn. Sagði Ásgeir að hann vildi strax geta þess að stjórn al- mannavarna í Kópavogi væri sjálfboðaliðunum, sem almanna- varnir kvöddu út til aðstoðar, afar þakklát fyrir skjóta og góða aðstoð. Það var ekki aðeins að félagar í Hjálparsveit skáta og Björgunarsveitinni Stefni hefðu brugðist fljótt við sjálfir, heldur hefðu þeir einnig veitt ómetan- lega aðstoð með því að lána öflugar bifreiðir, með drifi á öllum hjólum. Margar þessara bifreiða höfðu einnig talstöðvar- búnað, sem kom sér fjarskalega vel, ekki sízt þegar varð raf- magnslaust. Eigendur lögðu því ekki bara sjálfa sig í hættu heldur líka bílana, sem auðvitað gátu skemmst t.d. vegna áfoks. Samtals voru þessir sjálfboðalið- ar um 50. Kvaðst Ásgeir einnig vilja geta þess að bæjarráð Kópa- vogs hefði á fundi sínum 17. febrúar samþykkt að færa þess- um aðilum og öllum öðrum, sem störfuðu við hjálparstarf beztu þakkir fyrir veitta aðstoð. Auk þess að kveðja út hjálpar- sveitina og björgunarsveitina Stefni, voru kvaddir út starfs- menn Kópavogskaupstaðar, sem starfa á vegum bæjarverkfræð- ings Kópavogs. Þá voru kvaddir til Iögreglumenn á aukavaktir. Varð þetta því fjölmennt lið, sem almannavarnir Kópavogs höfðu á að skipa þetta óveðursdægur. Kom í ljós að þeir þættir al- mannavarna, sem á reynir í slíkum tilvikum voru traustir og gildir það sem endranær að aðalatriðið var eins og á stóð, að láta hendur standa fram úr ermum það gerði allt þetta að- stoðar- og hjálparfólk. Auðvitað var þeim sem lánuðu bíla sína boðið að greiða bensinið. Ekki hafa þó allir tekið við því ennþá, en það verður gert hvenær sem óskað er. Lágmark er að slíkt komi á móti afnotum þessara tækja. Sá vandi kom upp þegar raf- magnið brast að þá urðu fjar- skiptatækin í lögreglustöðinni, sem notuð voru við stjórnstörf til lögreglubifreiða og hjálparsveita- bíla óvirk. En úr því var strax bætt með því að nota senditæki einnar lögreglubifreiðarinnar, sem lagt var við stjórnstöð al- Ásgeir Pétursson mannavarna í Kópavogi, lög- reglustöðina, sem boðbera. Einn- ig komu „lab-rab“-stöðvar með rafhlöðu að góðu gagni. Gafst þetta sæmilega. En ljóst er að framvegis þyrfti nauðsyn- lega að hafa lítinn rafmagnsmót- ór í stöðinni, sem grípa mætti til, þegar rafmagn frá samveitunni brestur. Væri þannig fengið afl til þess að fjarskiptatæki gengju óhindruð. Var mikið óskað eftir aðstoð frá bæjarbúum? Já, margar beiðnir bárust um aðstoð. Til lögreglunnar var til- kynnt um fok á járnplötum af 29 húsum. Ennfremur rúðubrot frá 6 húsum og i einu gróðurhúsi á heimalóð. Margar tilkynningar bárust um skemmdir á bifreiðum. Ýmist vegna þess að þær beinlín- is fuku eða þá að þær urðu fyrir áfoki af bárujárni eða öðru lausu. Mest varð tjónið á bifreiðum við Engihjalla, en þar tókust bifreiðir á loft og fuku um koll. Hafa a.m.k. 40 bifreiðir skemmst af völdum óveðursins í Kópavogi. Þá varð einn eldsvoði í Kópvogi, sem tilkynntur var til lögregl- unnar kl. 22:25. Margar hjálparbeiðnir bárust til lögreglunnar bæði um að flytja fólk á milli húsa og eins um að færa muni innanhúss, sem voru í hættu, ef rúður kynnu að brotna. Ýmislegt annað var reynt að gera til þess að aðstoða fólk. Oft þurfti að leiðbeina fólki um að halda kyrru fyrir, fara ekki út, því mesta hættan í slíku fárviðri er að verða fyrir áfoki, eða að slasast við það að falla og fjúka undan þunga stormsins. Fyrir kom að beðið var um að menn yrðu sendir upp á þök að negla niður plötur, sem höfðu losnað. Slíkt hefði verið óðs manns æði, því þannig hefði verið stofnað til enn meiri hættu en fyrir var. Auðvitað urðu viðgerðir í flestum tilvikum að bíða þess að slotaði. Hinsvegar var fólki að sjálfsögðu hjálpað að komast frá þeim stöðum þar sem beinlínis var hættulegt að það dveldi. Sama gilti ef maður var einsamall og vildi yfirgefa dvalarstað sinn. Stjórnun aðgerða hvíldi eink- um á yfirlögregluþjóninum, Ás- mundi Guðmundssyni og Jóhanni Marteinssyni varðstjóra sem og fleiri varðstjórum lögreglunnar. Einnig á forráðamönnum hjálp- arsveitanna. Var almannavarnanefndin ekki kvödd til fundar? Nei, verkefnið var afmarkað og sýnilegt að mínu mati að nefnd- arfundir voru eins og atvik báru að, ekki beztu vinnubrögðin né stjórnunin. Það sem gilti var að ná saman mannskap og flutn- ingatækjum. Tíminn var naumur og verkefnin brýn. Hinsvegar höfðu forráðmenn almannavarna í Kópavogi með sér samband og gátu auðvitað komið saman ef það teldist nauðsynlegt. Almannavarnir Kópavogs kynna sér nú alla þætti málsins og munu ræða niðurstöður á fundi sínum, sem haldinn verður á næstunni. Hef ég óskað þess að framkvæmdastjóri almanna- varna ríkisins komi á fundinn. Hverjar eru þá helstu niður- stöður? Þær að hafa fengið reynzlu af því hve örugglega mátti treysta Hjálparsveit skáta og björgun- arsveitinni Stefni, auk starfsliðs bæjarverkfræðings og lögregl- unni í Kópavogi. Fékkst hér glögg sönnun þess hve þýðingarmikið það er fyrir bæjarbúa í Kópavogi að hafa eigin, sjálfstætt lögreglu- lið, sem hefur mann — og þó einkum staðarþekkingu. Þá kom í Ijós gott og skipulagt samstarf sjálfboðaliðanna og lögreglunnar, sem eðlilega hafði forystu um aðstoðar- og björgunarstörf. Að endingu ítrekaði Ásgeir Pétursson þakkir almannavarna Kópavogs til allra þeirra, sem veittu aðstoð þetta óveðursdæg- ur. Sagði hann að sjálfsagt hefði eitthvað mátt betur fara úr hendi, en þá væri að gera sér grein fyrir því að kanna sem bezt hvað það væri, því öllu skipti að læra af reynslunni í þessu efni sem öðrum. Þetta var í fyrsta sinni sem reyndi á almannavarn- ir í Kópavogi sem eru nýstofnað- ar. Nýtt leiðakerfi hjá Strætisvögnum Kópavogs NÝTT leiðakerfi tekur gildi hjá Strætisvögnum Kópavogs nk. laug- ardag. Tvær megin breytingar verða þá á leiðakerfi SVK; annars vegar verða eknir þrír hringir um bæinn i stað 2ja áður, og hins vegar verða sérstakir vagnar i förum miili Kópavogs og Reykjavikur. Þessar breytingar munu, að sögn Karls Árnasonar, framkvæmda- stjóra SVK, bæta verulega þjónustu Strætisvagna Kópavogs, og er gert ráð fyrir um 10% aukningu farþega- fjölda við breytinguna, en jafnframt mun rekstrarkostnaður aukast um 10%. Vagnstjórum fjölgar um 4. Við breytinguna nk. laugardags- morgun fá vagnar SVK auðkennis- númer, sem byrja á tölunni 2 og verða leiðir SVK númeraðar 20—23, til að byrja með. Eins og segir í upphafi verða tvær meginbreytingar á leiðakerfi Kópavogs. í fyrsta lagi verða farnir þrír hringir um bæinn í stað tveggja áður. Tveir þessara hringja verða eknir í báðar áttir, þ.e. réttsælis og rangsælis. Við þetta mun ferðatími styttast verulega. í öðru lagi verða sérstakir vagnar í förum á milli Kópavogs og Reykja- víkur, og verður þeim ekið frá skiptistöð á miðbæjarsvæði Kópa- vogs niður í miðbæ Reykjavíkur, en síðan munu þeir hafa tímajöfnun á Hlemmi. Sem fyrr verður aðeins ekinn einn hringur um vesturbæinn, og verður hann ávallt ekinn réttsælis. Það verður leið 21. Um austurbæinn verða hinsvegar eknir tveir hringir og til skiptis að Túnbrekku, en hinn stærri, leið 23, inn á Smiðjuveg og Skemmuveg. Stærri hringurinn tengir þannig hið nýja iðnaðar- og þjónustuhverfi innst í bænum við strætisvagnakerfið, svo og hið nýja íbúðarhverfi í Hjöllunum. Með því að vögnunum er ekið til skiptis réttsælis og rangsælis um þessa hringi styttist ferðatími farþeganna verulega, einkum þeirra, sem næst búa miðbænum. Allir farþegar, sem ætla til Reykja- víkur, verða nú að skipta um vagn á skiptistöðinni á miðbæjarsvæðinu. Fram til klukkan 9 að morgni aka vagnar númer 20, það er þeir sem til Reykjavíkur aka, Kringlumýrar- braut og Laugaveg niður á Hlemm, þaðan niður Laugaveg og upp Hverf- isgötu og síðan frá Hlemmi um Laugaveg og Kringlumýrarbraut, eins og gert er nú. Eftir klukkan 9 verður ekin ieiðin Kringlumýrar- braut, Miklabraut, Sóleyjargata, Lækjargata, Hverfisgata, Hlemmur, Laugavegur, Kringlumýrarbraut. Skiptimiðar verða svo áfram í gildi milli SVK og SVR. Vagnarnir aka þessa leið á 15 mínútna fresti fram til klukkan 19 á virkum dögum, en eftir klukkan 19 og um helgar á 30 mínútna fresti. Kópavogskaupstaður hóf rekstur strætisvagna 1. mars 1957. Núver- andi leiðakerfi var tekið í notkun árið 1974 og var það þá til mikilla bóta og auðveldaði samgöngur milli bæjarhluta og í hinn nýja miðbæ Kópavogs, þar sem risin er mikil íbúðarbyggð og fjölmargar þjón- ustustofnanir eru einnig þar til húsa. Hið nýja iðnaðar- og þjónustu- hverfi innst í bænum, svo og íbúðar- byggðin í Hólmunum, hefur hinsveg- ar orðið útundan þar til að úr því verður bætt nú. Á síðasta ári óku vagnar SVK tæplega hálfa milljón kílómetra og um 2 milljónir farþega ferðuðust með vögnunum. Fast starfslið er um 50 manns, en fleiri starfa um sumarafleysingatímann. Bæklingi, sem hið nýja leiðakerfi er kynnt í, verður dreift í öll hús í Kópavogi næstu daga. KARSNESBRAUT REYKjIAVÍK Hafnatbrau; Kárr>resskoli Hábraut J«9r ® e © © @ ;í¥ Norfturvðr ijrftarb'áct ð<nbO NYBÝLAVEGUR Gruna*' Ástún ©Kars nes KÓPAVOGSBRAUT í?''-., KópavOr © © Þingiió'sskoi! Oryibjalli ENGIHJALLI Skemm/vOQur @ Hvammár HLlOARVEGUR LEIÐAKERFISVK í nýja kerfinu aka vagnar SVK Nýbýlaveg á enda, hring um Smiðjuveg og Engihjalla og uppó Álfhólsveg, réttsælis og rangsælis. Jafnframt sem sérstakir vagnar verða i ferðum milli miðbæjar Kópavogs og Reykjavikur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.