Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981 21 Aldarminning: Helgi Jónsson Sólvangi Að Geldingaá í Leirársveit, Borgarfjarðarsýslu, stóð vagga Helga Bjarna Jónssonar fyrrum bónda að Jarðlangsstöðum í Borg- arhreppi, Borgarfjarðarsýslu og Glæsivöllum í Miðdölum, Dala- sýslu, en siðast um 19 ára skeið í Vestmannaeyjum. Þar fæddist hann 27. febr. 1881, en foreldrar hans höfðu búið á nokkrum stöðum öðrum, t.d. Ind- riðastöðum í Skorradal, Narfa- stöðum í Melasveit, á Geldingaá bjuggu þau í 9 ár, Áskoti frá 1882. Foreldrar Helga voru hjónin: Kristín f. 20. des. 1843, d. 2. febr. 1917. 74 ára að aldri Jónasdóttir söðlasmiðs í Belgsholti í Melasveit f. 14. ágúst 1816 d. 16. des. 1854 Benediktssonar prests á Stóru- Giljá í Austur-Húnavatnssýslu Jónssonar prófasts Húnvetninga f. 1738 d. 1819 á Höskuldsstöðum á Skagaströnd. Séra Jónas átti 3 konur, en sú síðasta var dóttir séra Björns í Bólstaðarhlíð. Séra Benedikt síðar í Hítardal faðir Jónasar söðlasmiðs var kvæntur Ingibjörgu dóttur séra Björns í Bólstaðarhlíð. (Bólstaðarhlíðar- ætt.) Móðir Kristínar var Helga þjón- ustustúlka á sýslumannssetrinu Leirá í Leirársveit hjá Jóni Árna- syni sýslumami, sem var mjög kvenhollur maður og átti margt barna, Sveinsdóttir bónda að Búrfelli í Hálsasveit Vigfússonar. Faðir Helga: (Deildartunguætt). Jón f. 17. nóv. 1840 d. 49 ára gamall 23. okt. 1889. fæddur í Deildartungu í Reykholtsdal Jónssonar bónda þar. Föðurmóðir Helga: Guðrún Böðvarsdóttir hús- freyja í Deildartungu, Sigurðsson- ar bónda að Hofsstöðum í Hálsa- sveit, síðar á Skáney í Reykholts- dal, frábær mannkostamaður. Hér hafa verið taldir sem næst- ir standa Helga í Sólvangi í föður- og móðurættum. En föðursystkini hans voru er upp komust, en föðurfaðir hans átti tvær konur: Ingibjörg húsfreyja á Húsafelli, móðir Kristleifs fræðimanns á Stóra-Kroppi, og þeirra mörgu merku systkina. Þuríður hús- freyja á Háafelli í Hvítársíðu, amma Jóns prófessors í Kaup- mannahöfn og skálds Helgasonar. Jón bóndi í Deildartungu, langafi Kristleifs bankastj. í Samvinnu- bankanum, og þeirra systkina. Jóhannes bóndi á Hól í Lundar- reykjadal, langafi t.d. Björns raf- magnsverkfræðings Kristinssonar yfirlæknis Björnssonar. Guðríður húsfreyja í Þingnesi, amma Björns Sveinbjörnssonar forseta Hæstaréttar Islands, langamma Einars Karlssonar hjá Almennum Tryggingum. Helga húsfreyja á Úlfsstöðum, amma Kristínar konu Joseps Brandssonar í Lundar, Manitoba og þeirra systkina. Helga var móðir Guðrúnar á Húsafelli, amma Freymóðs Þor- steinssonar bæjarfógeta í Vest- mannaeyjum. Sigríður húsfreyja í Fróðhúsum, móðir Árna Eggerts- sonar fasteignasala, borgarráðs- manns í Winnipeg, amma Leós Sigurðssonar rafmagnsverkfræð- ings í White Rock B.C. Sigurður bóndi á Indriðastöðum í Skorra- dal, langafi Eggerts Stefáns Sig- urðssonar Waage forstjóra í Kópavogi. Harolds Sigurðssonar vélvirkja í Swan River, Manitoba, Russel Carls Hrappsted í Swan River. Jón bóndi á Indriðastöðum, faðir Helga á Sólvangi. Vigdís húsfreyja í Deildartungu, amma Hjalta Pálssonar framkvæmda- stjóra hjá SIS, langamma Bjarna organista og bónda í Nesi í Reykholtsdal Guðráðssonar. Guð- rún húsfreyja í Bæ, Bæjarsveit, langamma Garðars Halldórssonar húsameistara ríkisins, Áslaugar Andrésdóttur konu Péturs aðstoð- arbankastj. Samvinnubankans og skrifstofustjóra, Erlendssonar. Móðursystkini Helga í Sólvangi: Kristín kaupmannsfrú á Vopna- firði, átti Jakob Helgason kaup- mann, foreldrar frú Þuríðar J. Kvaran, eiginkona Sigurðar Hjörleifssonar Kvarans læknis í Höfðahverfislæknishéraði, nú Grenivík. Mad. Sigríður Jónas- dóttir, að Melstað í Miðfirði f. 10.6. 1850, eiginkona séra Þorvalds Björnssonar að Reynivöllum og síðar á Melstað. Er af þeim hjþnum kominn mikill ættbogi í Húnaþingi, framúrskarandi mannkostafólk. Benedikt f. 7. marz 1854, fór til Ameríku. Eftir lát föður síns var Helgi í skjóli móður sinnar frú Kristínar Jónasdóttur er sat áfram á búinu í Áskoti til aldamótanna síðustu. Helgi eins og önnur systkini hans bar einlægan hlýhug til frábærrar móður sinnar. Þau sýndu henni sérstaka huglátssemi. Kristín Jón- asdóttir hafði framúrskarandi þrek, stilling hennar sérstök, er studdi hana í þrautum og raunum lífsins, en hún átti svo sannarlega örugga og vonglaða lund. Frk. Margrét Björnsdóttir hanskagerð- ardama Þorsteinssonar að Bæ í Bæjarsveit er var stálminnug og örugg, mundi langömmu mína vel, gaf mér er þessar línur skrifa, skemmtilegar minningar um hana. Kristín fór eins og að framan greinir ekki varhluta af áföllum lífsins, en húsmóðurhlut- verkinu gegndi hún af alúð og samviskusemi, skilningurinn, til- finningin, viljinn runnu saman í einni heild hjá Kristínu Jónas- dóttur sem eins og aðrar einstæð- ar mæður hafa haft, ótakmarkað- an kærleika til barna sinna. Krist- ín ólst ekki upp í skjóli föður síns, svo ef til vill verið henni tilfinn- ingamál að standa á eigin fótum. Hjá Kristínu Jónasdóttur fór saman atgervi til sálar og líkama, tilfinningaríki mikið, örlyndi og gjafmildi með fádæmum. Kristín og Jón í Áskoti áttu fimm sonu og tvær dætur. Jón málarameistara í Reykjavík, tók sér ættarnafnið Reykdal, f. 28. sept. 1865, átti Fanney Valdimarsdóttur. Guðrún húsfreyja að Ormsstöðum á Fellströnd, Klofningshreppi, Dalasýslu, f. 23. febr. 1871, átti Gest Magnússon bónda þar. Jó- hannes smiður í Kvöldúlfi f. 22. maí 1872, var þríkvæntur, Helga Vigfúsdóttir, Sólveig Sæ- mundsdóttir, Kristín Jónsd. Magnús, formaður, organisti, rit- stjóri, skáld (Hallfreður), bjó á Sólvangi í Vestmannaeyjum síð- ast. Átti Hildi Ólafsdóttur. Þor- björn smiður í Seattle, Banda- ríkjunum, f. 3. marz 1877. Átti Brynhildi Erlendsdóttur. Helga f. 18. apríl 1879, d. 20. febr. 1880. Helga Jónssyni var það fyrir mestu að geta sem fyrst í barn- æsku hjálpað göfugri og góðri móður. Föðursystkini hans voru Helga og systkinum hans ógleym- anlega mikils virði. Helgi var sem barn dulur og fáskiptinn, svo var hann líka til æviloka. Helgi var gæddur ágætum námsgáfum, en því miður var ekki um langskóla- nám að tala, en lauk búfræðings- prófi frá Hvanneyri um 1900. Hugsunin var ljós, vandvirknin stórkostleg, furðu vel að sér, enda jafnan sílesandi, er tóm gafst. Bókakostur var góður á heimili hans um þau mál, sem honum voru hugleiknust, andrúmsloftið á heimili hans var honum upp- spretta mikillar gleði, víðsýni og mennta. Helgi varð ágætlega að sér í bókmenntum. Helgi hafði drengilegt og hreint hjarta, frábærlega grandvar mað- ur. Fórnfús og mikill drengur og trölltryggur vinum sínum. Helgi Jónsson kvæntist 25. okt. 1913, Jósefínu Sigurðardóttur. Var hún á 22 aldursári er þau áttust. Þau áttu mjög vel saman. Jósefína var gáfuð kona, höfðingi í lund og svo hjartagóð, að hún mátti ekkert aumt sjá án þess að hjálpa. Þau hjónin virtu hvort annað mikils og leit Jósefína ávallt upp til Helga sem mikils gáfumanns. Helgi kunni líka vel að meta hennar skörpu greind. Foreldrar Jósefínu voru hjónin: Sigurður f. 19. nóv. 1850, d. 23. júní 1933 í Ögursveit við Djúp, Jónsson bónda í Knarrarhöfn 1850—1871. Jónssonar bónda í Skálholtsvík í Hrútafirði f. 1776, d. 1812, Hjálm- arssonar prests í Tröllatungu Þorsteinssonar. Eiginkona Sigurðar og móðir Jósefínu, Hólmfríður f. 1853 d. 1929, Guðmundsdóttir frá Hrapps- stöðum Ólafssonar. Móðir Hólm- fríðar var Hólmfríður f. 1829, d. 1953, Bergþórsdóttir frá Leikskál- um Þorvarðarspnar. Systkini Jósefínu voru Guðrún, átti Gunnar H. Gíslason í Ármúla, Sigurbjörn í Reykjavík, Margrét ljósmóðir, Halldór sjómaður dó á Eskifirði, Finnbogi dó 17 ára gamall. Jósefína og Helgi voru einkar samhent, ást þeirra og umhyggja gagnvart dætrum þeirra 5 var ótakmörkuð. Ættrækni og gest- risni var þeim báðum í blóð borið. Gestrisninni á heimili þeirra hef- ur verið viðbrugðið af öllum. Þau fóru með gesti sína eins og foreldrar með börn. Þau hjónin höfðu hið mesta yndi af að spila og tefla, bæði skák og kotru, mjög oft lomber. Dætur þeirra eru þessar og allar á lífi: Guðrún, yfirhjúkrunarkona á heimili NLFÍ í Hveragerði, húsfreyja. Eiginmaður hennar, Ársæll Karlsson frá Gamla- Hrauni Eyrarbakka, vélstjóri. Börn þeirra tvö, Helgi pípulagnm. í Hveragerði, f. 1949, kv. Steinunni Óskarsdóttur úr Stykkishólmi. Guðfinna f. 1951, húsfreyja í De Vere Garden, Ilford, Essex í Eng- landi, gift Zenak Smidak tölvu- fræðingi frá Tékkóslóvakíu. Krist- ín húsfreyja í Vestmannaeyjum. Eiginmaður Haraldur Sigurðsson járnsmíðameistari frá Ey í Land- eyjum. Fóstursonur þeirra Helgi f. 12. nóv 1945, stýrimaður í Vest- mannaeyjum, Kristinsson skip- stjóra Magnússonar formanns og ritstjóra Jónssonar, bróður Helga föður Kristínar. Helgi drukknaði 5. nóv. 1%8 með vb. „Þráni“. Dóttir Helga Kristinssonar er Kristín f. 1. júlí 1966. Hólmfríður húsfreyja í Reykjavík, ekkja Kristjáns Friðriks heildsala Kristjánssonar frá Hvammi í Dýrafirði bl. Halldóra lyfjatæknir fyrr í Vestmannaeyjaapóteki nú í Holtsapóteki í Reykjavík. Dóttir hennar Fríða Sigrún f. 1950, kenn- ari og bókavörður, húsfreyja í Rvík Haraldsdóttir. Gift Sigur- birni húsamálara og kennara í Reykjavík Helgasyni úr Hvera- gerði. Þrúður húsfreyja á Hellu á Rangárvöllum. Eiginmaður Óskar húsasmíðameistari Einarsson frá Hallskoti í Fljótshlíð. Kjörsonur Helgi Bjarni f. 1955 starfsm. við Hrauneyjaf. kv. Guðrúnu Eiríks- dóttur á Hellu. Jósefína var eins og áður er sagt hin mesta gáfukona, mikill skör- ungur. Hún andaðist 21. nóv. 1971, hafði þá verið ekkja í 28 ár. Helgi afabróðir minn, bróðir Jóhannesar föðurföður míns, var mikill höfðingi með örlátt hjarta, óbilandi kjark og einlægni mikla, starfsþrá en var rúmliggjandi síðustu ár. Helgi andaðist 13. jan. 1943, sextíu og tveggja ára. Blessuð sé minning hjónanna Jósefínu og Helga B. Jónssonar. Helgi Vigfússon Sambyggt tæki með toppgæði SHARP SG-1H/HB: Klassa steríó sam- stæöa í „silfur" eða brons“ útliti. ... ; >» Breidd 390 mm. Hæð 746 mm / 373 mm Dýpt 330 mm. Reimdrifinn hálfsjálfvirkur plötuspilari m. magnetic pickup. Rafeinda móttökumælir. • LM, MW og FM bylgjur. • Rafeinda Topp” styrkmælir. SG-1HB * □□ DOLBY fyrir betri upptökur. • Útgangsorka 2x27 Wött v/4 Ohm. /METAL Stilling fyrir metal kassettur. SHARP CP-1H/HB: Hátalarar, bassa .og diskant (2 way), 25 Watta í „silfur" eöa „brons“ útliti. Breidd 220 mm. Hæð 373 mm. Dýpt 18.3 mm. Allt settið, Verð 6.320.-. HLJOMTÆKJADEILD llLift karnabær LAUGAVEGI 66 SIMI 25999 \ Utsölustaðir Karnabær Glæsibæ -Fataval Keflavik - Portið Akranesi - Eplið isafirði - Álfholl Siglufirði Cesar Akureyr: - Hornabær Hornafirði - Eyjabær Vestmannaey|um - M M h f. Selfossi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.