Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981 ingi bráðabirgðalaga þeirra, sem sett voru um hina íslenzku utanríkisþjónustu. I öðru lagi var unnið að samningu leiðbeiningarbókar fyrir starfsmenn utanríkis- þjónustunnar og í þriðja lagi var tekin saman skrá um gildandi samninga íslands við erlend ríki. Með þessari starfsemi var lagður grundvöllur að hinni íslenzku utanríkisþjónustu, og kom þar að góðu gagni hin mikla reynsla sem Sveinn Björnsson hafði öðlast í sendiherra- starfinu undanfarin tuttugu ár, enda býr utanríkisþjón- usta okkar enn að því grundvallarstarfi, sem Sveinn Björnsson vann á þeim tiltölulega stutta tíma sem hjer var um að ræða. Sveinn Björnsson tókst mikinn vanda á hendur, er hann gerðist fyrsti sendiherra, sem íslendingar eignuðust og hann átti allra manna mestan þátt í því að móta utanríkisþjónustuna sjálfum sjer til mikils sóma og þjóðinni til mikils gagns. En nú var þess skammt að bíða að Sveini Björnssyni væri falið miklu þýðingarmeira og virðulegra starf í þágu lands og þjóðar og hefst með því þriðji og síðasti þátturinn í hinu mikla og merka æfistarfi hans. Þegar Alþingi samþykkti þingsályktunartillöguna vor- ið 1940, sem getið er hjer á undan um meðferð konungsvaldsins og fól það ríkisstjórninni allri, var hjer um hreina bráðabirgðaráðstöfun að ræða. Mönnum var líka ljóst, að þetta var ekki heppilegt fyrirkomulag, sem vel gat valdið erfiðleikum ekki sízt í sambandi við stjórnarmyndanir, og því voru á Alþingi 1941 samþykkt lög um ríkisstjóra íslands, er fara skyldi með konungs- valdið fyrst um sinn. Lög þessi gengu í gildi hinn 17. júní þetta sama ár og þann dag kaus Alþingi Svein Björnsson í ríkisstjóraembættið. Ríkisstjóri var kjörinn til eins árs í senn og var Sveinn Björnsson endurkjörinn bæði árin 1942 'og 1943. Þegar næst skyldi gengið til kjörs á þjóðhöfðingja íslendinga var Alþingi búið að samþykkja stjórnarskrárbreytinguna í sambandi við stofnun lýð- veldisins hinn 17. júní 1944 og kaus þingið þá Svein Björnsson samdægurs fyrsta forseta landsins, svo sem kunnugt er.' Eftir það hefur forseti íslands verið þjóðkjörinn, og var Sveinn Björnsson sjálfkjörinn þau tvö skipti sem um það var að ræða á æfiskeiði hans, þ.e. árin 1945 og 1949. Það má af þessu glöggt sjá, að þjóðin stóð einhuga um Svein Björnsson. Hann hafði á þessum árum í raun og sannleika orðið sameiningartákn þjóðarinnar. Þegar Sveinn Björnsson hafði verið kjörinn ríkisstjóri í fyrsta sinn flutti hann á Alþingi ávarp til þjóðarinnar og mælti þá m.a. á þessa leið. „En framar öllu öðru lít jeg á starf mitt sem þjónustu við heill og hag íslenzku þjóðarinnar, þjónustu við málstað íslendinga, hvað sem fram undan kann að vera. Það er því ásetningur minn að leggja fram alla krafta mína, andlega og líkamlega, til þess að sú þjónusta megi verða landi mínu og þjóð til sem mestra heilla.“ Þegar dr. Sigurður Nordal gaf út endurminningar Sveins Björnssonar árið 1957 voru þessi orð sett framan við útgáfuna, og má óhætt segja, að það hafi verið vel ráðið. Sveinn Björnsson lagði oft á það áherzlu í ávörpum sínum til þjóðarinnar, sem hann lagði mikla alúð við að semja, að hann liti fyrst og fremst á starf sitt sem þjónustu við hana, eins og hann hafði komizt að orði í fyrsta ávarpinu. A það hefur verið minnzt, að Sveini Björnssyni hafi verið mikill vandi á höndum, er hann tók við embættinu sem fyrsti sendiherra íslands, en það átti ekki síður við, er hann varð fyrstur íslendinga þjóðhöfðingi landsins. Hann þurfti að byggja upp og móta alla starfsemina frá grunni, og má þeim mönnum vera það ljóst, sem eitthvað til slíkra mála þekkja, hversu vandasamt starf hjer var um að ræða og hverso mikið var hjer í húfi. En það mun flestra mál, að þetta vandaverk hafi Sveini Björnssyni farið vel úr hendi og stendur þjóðin öll í mikilli þakkarskuld við hann fyrir þetta brautryðjandastarf, eins og svo margt annað, sem hann vann þjóð sinni á hinum langa og gifturíka starfsferli. Enginn getur þó gert svo öllum líki. Frá ríkisstjóra- tímabilinu minnist sá sem> þetta ritar tveggja mála er Sveinn Björnsson hafði afskipti af og ágreiningur varð um og sem urðu orsök til nokkurs skoðanamunar. Hið fyrra þessara mála var skipun utanþingsstjórnar- innar í desember 1942. Eftir haustkosningarnar í október kom Alþingi saman til funda hinn 14. nóvember og á ríkisstjórnarfundi, sem haldinn var þennan dama dag, baðst Ólafur Thors lausnar fyrir minnihlutastjórn sína, eins og ráðgert hafði verið þegar lokið væri kosningum til Alþingis samkvæmt breyttri kjördæmaskipun, sem Alþingi hafði samþykkt fyrr á árinu. Ríkisstjóri veitti ráðuneytinu lausn, en bað ráðherrana að gegna áfram störfum þangað til ný stjórn hefði verið mynduð. Rúmsins vegna er ekki hægt að rekja hjer þær stjórnarmyndunartilraunir, sem nú hófust, nema í stórum dráttum. Þess skal aðeins getið, að vegna hins alvarlega ástands í efnahagsmálum var fyrst reynt að mynda stjórn með stuðningi allra fjögurra þingflokk- anna. Tilnefndi hver flokkur tvo menn til viðræðna í því skyni. Hinn 7. desember tilkynnti þessi átta manna nefnd ríkisstjóra, að hún teldi ekki möguleika á myndun fjögurra flokka stjórnar. Ríkisstjóri fól þá Haraldi Guðmundssyni, forseta sameinaðs Alþingis að reyna að mynda stjórn og hann kannaði myndun þriggja flokka stjórnar, Alþýðuflokks, Framsóknarflokks og Sósíalista- flokk?, en það reyndist ógerningur. Þá kom upp hugmyndin um embættismannastjórn til bráðabirgða eða utanþingsstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn gat ekki fallizt á slíkt og taldi það vanvirðu fyrir Alþingi og þingflokkana ef þessir aðilar gætu ekki uppfyllt þær skyldur sem stjórnarskráin og þingræðisreglan leggðu þeim á herðar. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins, undir forystu Ólafs Thors, vildi nú gera lokatilraun til stjórnarmyndunar og fjekk til þess stuttan frest, en allt kom fyrir ekki. Ríkisstjóra Sveini Björnssyni þótti sem nú væri þrautreynt af hálfu Alþingis og stjórnmálaflokkanna um skipun þingræðisstjórnar, auk þess sem ástandið í Frá sendiherra- árunum. Myndin er tekin i London 1933. efnahagsmálunum væri þannig, að óforsvaranlegt væri að láta myndun nýrrar ríkisstjórnar bíða öllu lengur og ákvað því skipun hinnar svonefndu utanþingsstjórnar hinn 16. dsember með dr. Björn Þórðarson sem forsætisráðherra. Var þessi skipun tilkynnt Alþingi samdægurs. Þessi ráðstöfun ríkisstjóra var mjög umdeild. Gagn- rýnin hefur þó ekki byggzt á því, að ríkisstjóri hafi með þessu gert eitthvað annað en það, sem löglegt var og hann hafði fulla heimild til samkvæmt valdastöðu sinni, enda er það óumdeilanlegt, að það vald hafði hann, heldur hefur frekar verið deilt á ríkisstjóra út frá því sjónarmiði hvort það hafi verið pólitískt rjett að skipa utanþings- stjórnina. Því hefur t.d. verið haldið fram, að ekki hafi verið búið að reyna til þrautar, hvort hægt hefði verið að mynda þingræðisstjórn og að embættismannastjórn hefði getað farið með völd um tíma, á meðan haldið hefði verið áfram samningsumleitunum. Ennfremur hefði verið hugsanlegt, að t.d. minnihlutastjórn hefði farið með völdin um sinn, eins og oft hefur verið tíðkað í nágrannalöndunum. Um það má sjálfsagt lengi deila hvaða aðferð sje rjett að viðhafa, þegar eins stendur á og hjer var um að ræða, og hætt við, að sitt sýnist hverjum. Þáð hefur oft komið fyrir, að lengi hefur dregist að mynda stjórn og lengur en hjer var um að ræða, án þess að til skipunar utanþingsstjórnar hafi komið. Hinsvegar virtist, þegar utanþingsstjórnin var skipuð í desember 1942, að útilokað væri að mynda þingræðisstjórh, og hinu má heldur ekki gleyma, að knýjandi þörf var á því að stöðva verðbólguna og gera tafarlaust ráðstafanir gegn hinni geigvænlegu dýrtíð. Allt þetta mun Sveinn Björnsson vafalaust hafa haft í huga og metið, er hann tók ákvörðun um skipun utanþingsstjórnarinnar. Hitt málið, sem hjer er um að ræða, var tillaga sem ríkisstjóri sendi til forseta sameinaðs Alþingis með brjefi, dags. 21. janúar 1944, um þjóðfund til afgreiðslu á málinu um stofnun lýðveldisins. Á Alþingi höfðu verið kjörnar sjerstakar nefndir til að athuga fyrirliggjandi tillögur um niðurfellingu sambandssáttmálans við Dani um frumvarp til lýðveldisstjórnarskrár. Taldi ríkisstjóri sjer skylt að vekja athygli á því, hvort ekki mundi heppilegt, að nefndir þessar athuguðu jafnframt hvort tiltækilegt þætti, að Alþingi gerði ráðstafanir til þess, að hvatt yrði til sjerstaks þjóðfundar um þessi mál. Færði ríkisstjóri mörg rök fyrir tillögu sinni en aðaláherzluna lagði hann á það, að einskis mætti láta ófreistað til þess að skapa einhug meðal þjóðarinnar um lausn skilnaðar- og lýðveldismálsins og til þess áleit hann þjóðfund vel til fallinn. Þannig stóð þá á að nokkur skoðanamunur var upp kominn um lausn þessara mála, þ.e. hvernig og einkum hvenær leysa ætti þau með tilliti til hernáms Danmerkur. Þessi hugmynd um þjóðfund varðandi lýðveldismálið var ekki ný. Hún kom fram árið 1942 og var þá nokkuð rædd og hafnað. En brjef ríkisstjóra var hans eigið persónulega álit eða tillaga, sem var borin fram án samráðs við ráðuneytið eða einstaka ráðherra eftir því sem dr. Björn Þórðarson hefur skýrt frá, enda er þess getið í brjefinu sjálfu. Eins og við mátti búast vakti þetta brjef ríkisstjóra töluvert míkla athygli og kom hik á marga við það. Eins og fram var tekið gekk honum fyrst og fremst til að skapa samstöðu um lausn þessa þýðingarmikla máls og það var líka sannarlega mikilsvert atriði. Á hinn bóginn var Alþingi búið að marka þá stefnu sem-fylgja skyldi og auk þess var ríkisstjórnin búin að lýsa því yfir, að hún myndi framfylgja vilja Alþingis og ákvörðunum að svo miklu leyti sem málið og framkvæmd þess kæmi til hennar kasta. Yfirgnæfandi meirihluti Alþingis vildi ekki kvika frá þeirri stefnu í málinu sem þegar hafði verið ákveðin. og þá var einmitt verið að fjalla um í þinginu þessa dagana. Lýðveldisnefnd Alþingis samdi samkvæmt þess- ari stefnu ítarlega greinargerð um afstöðu þingsins til brjefs ríkisstjóra og var hún síðan afhent honum hinn 29. janúar. Þetta mál um þjóðfund kom ekki til frekari umræðu eða meðferðar á Álþingi. Að öðru leyti minnist sá sem þetta ritar ekki annarra mála á valdatímabili Sveins Björnssonar, sem vakið hafi nokkurn ágreining. Þvert á móti varð hann fljótt til þess að sameina þjóðina um mörg þau mál sem deilum og sundrungu ollu, og kom það hugarfar og sá vilji ekki sízt fram í ræðum og ávörpum sem forseti flutti við ýmis tækifæri, eins og áður hefur verið vikið að. Sveinn Björnsson var ekki síður sem forseti en hann hafði verið sem sendiherra mikilsvirtur ráðunautur ríkisstjórna og einstakra ráðherra. Oft var leitað til hans ef vandasöm mál komu upp, ekki sízt í sambandi við öryggismál landsins. Var alltaf hlustað á það með athygli, sem hann hafði til málanna að leggja og þótti hann hollráður í betra lagi engu síður en áður fyrr er hann á málaflutningsárum sínum gaf viðskiptavinum sínum álit sitt á málum þeirra. Á þessum árum ferðaðist Sveinn Björnsson töluvert, bæði heimsótti hann flest hjeröð landsins og fór nokkrum sinnum til útlanda. Á ferðum sínum um landið kom enn í ljós hversu auðvelt hann átti með að umgangast fólk og laða það að sjer. Vinsældir hans urðu því meiri sem hann heimsótti fleiri staði, og væntanlega hefðu ferðir hans um landið orðið ennþá fleiri, ef hann hefði þá ekki verið farinn að finna töluvert til þess sjúkdóms sem olli vanheilsu hans síðustu árin sem hann lifði, en hann var þá oft meira þjáður en margan grunaði. Á eitt ferðalag Sveins Björnssonar til útlanda langar mig að minnast lítilsháttar, því mjer var falið að fara með honum, þar sem utanríkisráðherra Bjarni Bene- diktsson átti ekki heimangengt eins og á stóð vegna stjórnmálaástandsins. í april 1947 andaðist Kristján konungur tíundi. Hann var sem kunnugt er síðasti konungur íslands og þegar frjettin um lát hans barst hingaö til lands fannst Sveini Björnssyni það vera skylda sín sem forseta íslands að vera við útför konungs. Ríkisstórnin var dálítið hikandi við slíkt ferðalag sem þetta svo stuttu eftir viðskilnaðinn við Dani og stofnun lýðveldisins, og var áhyggjufull út af því hvers konar viðtökur forseti íslands kynni að fá í Danmörku. En Sveinn Björnsson ljet engan bilug á sjer finna. Þetta var ferð sem hann sem forseti varð að fara. Það er skemmst frá því að segja, að forseta íslands var ákaflega vel tekið af öllum sem hann hitti, fyrst og fremst af Alexandrine drottningu og hinum nýju konungshjónum, Friðriki konungi og Ingiríði drottningu. Það var greinilegt að þau voru mjög þakklát og hrærð yfir þeirri hugulsemi sem forseti íslands sýndi minningu hins látna konungs, en hjer má líka nefna það, að Sveinn Björnsson var í vináttutengslum við konungsfjölskylduna frá sendiherraárunum. Þarna var sannarlega engan kala að finna til þjóðhöfðingja íslands eða íslenzku þjóðarinn- ar. Sama er mjer óhætt að segja um dönsku ráðherrana, að þeir tóku forseta jafn alúðlega og konungsfjölskyldan og sýndu honum fyllilega þann sóma og virðingu sem þjóðhöfðingja bar. Jeg vil aðeins geta þess til viðbótar, að kvöldið sem Sveinn Björnsson fór frá Danmörku var ferð hans heitið til Stokkhólms með næturlest, en þar ætlaði hann að leita sjer læknishjálpar við sjúkdómi sínum, en þá buðu konungshjónin honum til kvöldverðar þar sem hann var eini gesturinn auk mín. Konungur fylgdist með því hvað tímanum leið og þegar kom að brottfarartíma lestarinnar fylgdi hann forseta á stöðina þar sem þeir kvöddust innilega og með miklum virktum. Þetta var falleg framkoma af konungs hálfu sem Sveini Björnssyni þótti mjög vænt um. XXX Ekki verður skilizt svo við minningu Sveins Björnsson- ar að ekki sje getið hinnar mikilhæfu konu hans frú Georgíu Björnsson. Hún stóð við hlið manns síns í hinu umsvifamikla starfi hans og hjelt uppi risnu heimilis þeirra af miklum dugnaði og myndarskap, hvort sem það var í Kaupmannahöfn eða á Bessastöðum. Hún var indælis kona, skörungur og elskuleg í senn. Á Kaup- mannahafnarárunum voru þeir ófáir sem leituðu til hennar ef þeir þurftu á einhverri aðstoð að halda. Áttu margir hauk í horni þar sem sendiherrafrúin var. Frú Georgía er og verður þeim ógleymanleg sem kynntust henni. í október 1951 kom Sveinn Björnsson til London til að leita lækninga við sjúkdómi sínum, sem þá var farin að þjá hann allmikið. Hann gekk þar undir uppskurð, sem þótti takast vel og dvaldi þarna síðan um tíma til að ná sjer. Jeg var þá starfandi í London og heimsótti hann svo til daglega á sjúkrahúsið og varð ekki annars vart en hann smá hresstist og þegar jeg kvaddi hann í Leith um miðjan desember, er hann hjelt heim til íslands með Gullfossi var ekki annað að sjá en hann ætti eftir að starfa lengi og vel fyrir þjóðina. En það átti ekki svo að fara. Rúmum mánuði síðar var hann dáinn. Andlát hans bar að aðfaranótt hins 26. janúar 1952. Á þessum degi þegar liðin eru hundrað ár frá fæðingu Sveins Björnssonar munu íslendingar minnast eins hins mikilhæfasta sonar íslands á þessari öld, hins fyrsta forseta lýðveldisins. Hann vann alla æfi ósleitilega að málefnum þjóðar sinnar, þeim sem til framfara horfðu. Hann hafði það eitt fyrir leiðarstjörnu að vinna landi sínu og þjóð, sem hann unni svo heitt, allt það sem hann gat og með öllum þeim krafti og atgerfi sem hann átti til. Ágnar Kl. Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.