Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981 HÖGNI HREKKVISI Ast er... ... að afbera fjas hans um sinn frá- bœra Þrótt. TM Reg U.S. Pat. Off —all rights reserved • 1980 Los Angeles Times Syndicate Beint af auKum í tvu daga. og síðan beint tii vinstri í tvo daga og þá beint af augum. COSPER Ég bauð hara einkaritara forstjórans upp á glas í þeirri von, að hún leggi til að ég fái launahækkunina! Enn um hitaveitutengingar: Allt í grænum sjó Gísli Jóhannsson. einn af sölu- mönnum Danfoss-umboðsins, skrifar vegna pistils Hafsteins Blandon vélaverkfræðings í Vel- vakanda, sunnudaginn 22. febrúar sl., og lesendadálki Vísis, þriðju- daginn 24. febrúar sl. Nauðsynlegt er að þeir áhugamenn um fróðleik á tengingu hitakerfis, sem verk- fræðingurinn vill höfða til, sam- kvæmt ummælum hans, viti að hann ber fyrir brjósti smá fyrir- tæki, sem selur þrýstiminnkara og er því einn af okkar sölumönnum, en óskar sýnilega að það komi ekki fram. Telja verður mjög ánægjulegt og athyglisvert að stungið skuli niður penna um mál eins og tengingu hitakerfa, en hefði mátt vera með öðru hugarfari en pistill höfundar, eins veigamikið mál og um er að ræða fyrir alla þá fjölmörgu, er tengja hús sín hita- veitum. Haldin hafa verið sjö námskeið í stillingu hitakerfa, þar af fjögur í Reykjavík og einnig á ísafirði, Egilsstöðum og Akureyri. Hefur Byggingarþjónustan og iðnaðar- ráðuneytið staðið að þessum nám- skeiðum, en þau hafa í alla staði tekist vel og fjöldi þátttakenda orðinn á fjórða hundrað. Leiðbein- endur voru verkfræðingar, pípu- lagningameistarar og sölumenn undir stjórn Ólafs Jenssonar, - í huga vélaverk- fræðings framkvæmdastjóra Byggingar- þjónustunnar. Einfalt eða tvö- falt hitakerfi Rétt er hjá vélaverkfræðingnum að nauðsynlegt er að halda mis- munarþrýstingi yfir hitakerfi inn- an hæfilegra marka, þegar notaðir eru sjálfvirkir ofnlokar. Vil ég þó benda honum á, að ef nást á góður árangur á stillingu hitakerfis án uppblöndunar, er ávallt nauðsyn- legt að jafna mismunarþrýsting yfir hitakerfið, hvort sem um er að ræða sjálfvirka ofnahitastilla eða handstillta ofnloka. I pistlin- um er réttilega lýst mismun á svokölluðum einföldum og tvöföld- um fjarvarmaveitum, en forðast að nefna hvað sé mismunarþrýst- ingur innan hæfilegra marka, eins og hann orðar það. Þetta hefði ég ekki talið að þyrfti að fræða hann um, en honum hefði ef til vill verið gagnlegt að taka þátt í námskeið- inu og þá verða einhvers vísari m.a. um mat hlutlausra aðila. Nokkrir verkfræðingar og tækni- fræðingar hafa verið þátttakend- ur á umræddum námskeiðum án þess að sjá ástæðu til að mótmæla fullyrðingum fyrirlesara um mis- munarþrýsting yfir kerfi eða ein- staka loka. Þess má þó geta, að fyrirlesari varð nokkuð fróðari að námskeiði loknu um álit pípulagn- ingamanna o.fl. á þrýstiminnkur- um. Hvað er innan hæfilegra marka? Innan hæfilegra marka telst minnsti mögulegi mismunarþrýst- ingur yfir hitakerfið við mesta álag þess, þ.e.a.s. í kaldasta veðri. I venjulegu miðstöðvarkerfi með dælu er algengast að mismuna- þrýstingur yfir kerfi geti orðið mest 1—2 metra vatnssúla við minnsta álag, en fellur við vax- andi álag. Verða því hönnuðir hitakerfa að ganga út frá þessum forsendum m.a. og hefur það væntanlega verið gert við hönnun eldri húsa sem nýrra, er tengjast fjarvarmaveitum. Fjöldi eldri kerfa eru þó hönnuð sem eigin- þyngdarkerfi og í þeim kerfum getur verið þörf á enn nákvæmari stillingu á mismunarþrýstingi. Samkvæmt ofanrituðu er rétt Því að böm era besta fólk S.H. fyrrv. fóstra skrifar 23. febrúar: „Velvakandi. Málefni fóstra og dagvistar- heimila eru nú mikið til umræðu og sýnist sitt hverjum. Svokallaðan undirbúningstíma hafa fóstrur þegar fengið (á flest- um stöðum) og er það vel. Undir- búningstíminn er nauðsynlegur og nú geta fóstrur væntanlega notið matartímans í friði og sloppið við heimavinnu á kvöldin. Launamál þeirra hafa hins veg- ar ekki fengið jafnfarsæla af- greiðslu. Fóstrur leysa af hendi erfitt starf sem fylgir mikið and- legt álag. Þrátt fyrir það eiga þær margar góðar stundir, því að börn eru besta fólk. Iiafa okki efni á að vinna fósturstörf Þá kem ég að kjarna málsins og hann er sá að það eru ekki allar fóstrur sem hafa efni á að vinna við fósturstörf. Ég er ein þeirra (og því miður erum við þónokkr- ar). Ég hafði aflað mér ágætrar skrifstofumenntunar og vann skrifstofustörf í nokkur ár. Siðan langaði mig til að reyna eitthvað nýtt og valdi fósturskólann. Þar var ég í 3 ár og lauk prófi á tilskildum tíma. Full áhuga hóf ég starf sem fóstra, en komst fljót- lega að ég gat ekki lifað af þeim launum sem í boði voru. Þegar mér svo bauðst skrifstofustarf á ný á launum sem svarar til 19. launaflokks en tók laun sem fóstra skv. 11. launaflokki, tók ég boðinu, taldi mig ekki hafa efni á öðru með allar mínar námsskuldir á herðunum. Ef til vill ein- hvern tíma scinna Ef til vill hef ég einhvern tíma seinna efni á að veita mér þann munað að vinna sem fóstra. Ég vona það, því að það er mikill skortur á fóstrum. Að lokum óska é öllum börnum á dagvistarheimilum í Kópavogi og á Akureyri þess að þau fái fóstrurnar sínar sem fyrst aftur. Einnig vil ég leyfa mér að hvetja viðsemjendur fóstra til þess að semja við þær sem fyrst og aflétta þessu ófremdarástandi."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.