Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981 Heimsókn forseta Islands til Danmerkur: Hátíðarsýning i Konung- lega leikhúsinu i gærkvöldi Kaupmannahöfn. frá Elínu Pálmadóttur. „ÞAÐ HLÝJAR mér um hjart- að að taka við gjöf, sem er gefin af slíkri hlýju og góðum hug til íslands," sagði Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, hrærð, þegar henni var í Kon- unglegu postulínsverksmiðj- unni í upphafi annars dags hinnar opinberu heimsóknar til Danmerkur, færður postu- línsbakki, sem á hafði verið máluð vatnslitamynd af Bessa- stöðum, er notuð var á vasa fyrir Kristjánsborgarhöll árið 1836, og þótt vasinn sé löngu horfinn, þá var nú hægt að mála mynstrið á bakkann fyrir forseta íslands ásamt blóma- umgjörð, sem táknaði íslensku flóruna. Þetta er einkennandi fyrir það, hve allir leggja sig fram um að sýna þjóðhöfðingja Islands hlýju hvar sem hún kemur. Danska þjóðþingið efndi í fyrsta skipti til sérstaks hádegisverðs fyrir þjóðhöfð- ingja í þinghúsinu og K.B. Andersen, forseti þingsins, bauð forseta Islands velkom- inn, sem fulltrúa þeirrar þjóð- ar, sem er sáðfræ allra þjóð- þinga í lýðræðislöndum. Danir fylgjast vel með heim- sókninni. Hátíðarsýningu í Konunglega leikhúsinu á ball- ettinum Sylfide, er sjónvarpað beint í kvöld. Og blöðin eru full af frásögnum undir fyrirsögn- unum „Hún kom með vináttu", í Berlingi, „Hún kom, sá og sigraði", í Ekstrabladet, og í Politiken: „Drottningin í minkapelsi, Vigdís i gæru- pelsi", „báðar í sínum þjóðlegu feldum", eins og segir í Politik- en. Og greinar eru um íslensk mál, viðtal við Selmu Jónsdótt- ur um Listasafn ríkisins, grein- ar um Snorra Hjartarson, sem unnið hefur bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs í Kultur Revyen í sjónvarpinu og vík- ingaþætti Magnúsar Magnús- sonar í sjónvarpi, sem byrjar frásögn sína af norrænum guð- um og Þórshamrinum eftir íslenskum heimildum, svo eitt- hvað sé nefnt. Morguninn hófst sem fyrr segir í Konunglegu postulíns- verksmiðjunni. Vigdís var í dag í hvítri kembdri ullarkápu og samsvar- andi kjól og húfu, hannað fyrir ferðina af Evu Vilhelmsdóttur. Margrét drottning bar menið með fjögurra laufa smáranum, sem forseti hafði fært henni og einnig um mittið fagurt gamalt stokkabelti með sprota, eflaust erfðagrip frá móður hennar en Vigdís var með skartgripi úr íslenskum steinum. í postulínsverksmiðjunni skoðuðu þær m.a. postulíns- styttu af íslenskri konu á peysufötum, sem fyrst var framleidd 1923, og var silfur- brúðkaupsgjöf til Kristjáns konungs og Alexandrínu Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands og Margrét Danadrottning drottningar 1923, fflóf frá skrifa nöfn sín í gestabók konunglegu postulínverksmiðjunnar. Kvennasamtökunum. Einmg simamyndir Nordfoto postulínsplatta með gamla Forseti íslands sýnir fréttamönnum postulínsskál, sem henni var gefin en i skálinni er gömul mynd af Bessastöðum greipt. Við hlið hennar situr Margrét Danadrottning. Forseti fslands gróðursetti tré í garði konunglegu postulínsverksmiðj- unnar. Forseti íslands skálar við K.B. Andersen, forseta danska þjóðþingsins er hún heimsótti þingið. Forseti íslands heimsótti leikhússafnið og i forgrunni sést brjóstmynd Poul Reumerts.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.