Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981 |K*f0ttitÞ!ðfetfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö. ,Sveinn Björnsson Idag er minnzt aldarafmælis Sveins Björnssonar, en það kom í hans hlut að verða fyrsti forseti íslenzka lýðveldisins og markaði hann þannig djúp spor í samtímasögu okkar. Það var engin tilviljun að Sveinn Björnsson skipaði fyrstur manna þetta virðulega embætti. Hann ólst upp í því andrúmi, sem faðir hans Björn Jónsson, skapaði í kringum sig, en hann var einn skeleggasti stjórnmálamaður landsins í sjálfstæðis- baráttunni. Sveinn Björnsson hélt út í lífið með veganesti þessarar baráttu í brjósti sínu og var ekki gamall maður, þegar hann hóf afskipti af stjórnmálum, enda munaði minnstu, að hann yrði ráðherra Islands 1915. Þá var hann einn af forystumönnum gamla Sjálfstæðisflokksins, sem faðir hans hafði leitt til margra sigra, en flokkurinn klofnaði 1915 og lenti Sveinn Björnsson í því flokksbrotinu, sem kallað var „langsum". Að lokinni þátttöku í stjórnmálabaráttu hér heima í upphafi þriðja áratugarins, hóf Sveinn Björnsson brautryðjandastarf í utanríkisþjón- ustunni og helgaði krafta sína þjóð og landi, sem þá hafði fengið fullveldi úr hendi Dana. Starf Sveins Björnssonar í utanríkisþjónust- unni var svo giftudrjúgt, að hann var kvaddur til ráða þegar heim kom frá Danmörku, þar sem hann hafði gegnt sendiherrastarfi, og var íslenzkum stjónvöldum mikilsverður ráðgjafi í upphafi styrjaldar. Þá var hann kosinn ríkisstjóri íslands 17. júní 1941 og loks fyrsti forseti landsins að Lögbergi á Þingvöllum af Alþingi Islendinga. Hann hafði að vísu átt í nokkrum útistöðum við forystumenn í stjórnmálum vegna deilna um hraðskilnað eða lögskilnað, sem svo var nefnt, og lenti ekki sízt í andstöðu við forystumenn stærsta stjórnmálaflokksins, Sjálfstæð- isflokksins, sem börðust af oddi og egg gegn lögskilnaðarmönnunum í utanþingsstjórn dr. Björns Þórðarsonar og innan Alþýðuflokksins, en þar voru lögskilnaðarmenn sterkastir, þó að þeir ættu góða fulltrúa í öllum flokkum. Lögskilnaðarmenn vildu fresta stofnun lýðveldis, þar til hernámi Þjóðverja lyki í Danmörku en hraðskilnaðarmenn stefndu að lýðveldisstofnun, er sambandslagasamningurinn rynni út 1943. Sjálfstæðismenn áttu erfitt með að skilja, að ríkisstjóri skyldi skipa yfirlýstan lögskilnaðarmann forsætisráðherra utanþingsstjórnar, og af þeim sökum treystu ekki allir forystumenn Sjálfstæðisflokksins sér til þess að greiða Sveini Björnssyni atkvæði á hinum sögulega þingfundi á Þingvöllum þegar lýðveldi var stofnað. Naut þó Sveinn Björnsson mikils álits og virðingar þjóðar og þings og það átti eftir að sýna sig, að hann varð farsæll forseti og átti gott samstarf við stjórnmálamenn í öllum flokkum, ekki sízt Sjálfstæðisflokknum. Formaður hans, Ólafur Thors, og Sveinn Björnsson áttu lengst af gott samstarf eftir að Sveinn var orðinn forseti Islands. Það féll að sjálfsögðu í hlut fyrsta forsetans að gefa embættinu þann blæ, sem það síðan hefur haft og skapa því þá virðingu og það traust með þjóðinni, sem varð landinu til blessunar í forsetatíð Sveins Björnssonar. Þá voru tímarnir að visu aðrir en nú og ekki langt síðan Island hafði verið konungsríki. Meðalvegurinn var því vandrataður. Bakhjarl Sveins Björnssonar í forsetastarfinu var arfurinn úr foreldrahúsum og mikilsverð reynsla, ekki sízt á erlendum vettvangi — en þó umfram allt menningararfur þjóðarinnar sjálfrar og sú trú á forsjónina, sem hafði verið henni sterkasta vörnin, þegar á reyndi. Sveinn Björnsson fór aldrei í launkofa með þá skoðun sína, að þetta tvennt, kristin trú og menningararfur íslendinga, væru það leiðarljós, sem bezt myndi duga hinu unga lýðveldi. I þeim anda starfaði hann sjálfur. Og þegar hann var allur, var hann syrgður af þjóð sinni, og ekki sízt þeim stjórnmálamönnum sem í forystu voru, eins og sjá má af merkri minningargrein Ólafs Thors um hann. Þar minnir Ölafur á yfirgnæfandi kosti Sveins Björnssoriar sem forseta. Og þjóðin öll tók undir. Það er því með gleði og þakklæti, sem íslendingar minnast í dag aldarafmælis fyrsta forseta lýðveldisins. í tilefni af því hefur Agnar Kl. Jónsson, fyrrum ráðuneytisstjóri og sendiherra, ritað merka grein í Morgunblaðið og skal að lokum til hennar vísað. Forsetaheimsókn til Danmerkur Isiendingar fylgjast vel með fyrstu heimsókn forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur, til Danmerkur. Meðan slíkar heimsóknir efla vináttu þjóða í milli, draga úr úlfúð og alls kyns þjóðarrembingi, eiga þær rétt á sér. Þær geta orðið til heilla. Að vísu er sá íburðarmikli blær, sem óneitanlega er á slíkum heimsóknum, ekki alveg í takt við þann tíma, sem við lifum. En þjóðhöfðingjar eru nú einu sinni tákn þess fólks sem löndin byggja, og sem slíkir koma þeir fram fyrir hönd þjóða sinna, ef um lýðræðisríki er að ræða. Það er því ekki ástæða til að einblína um of á pomp og prakt og segja að slíkar heimsóknir séu andstæðar lýðræðishugmyndum okkar. Með þeim viljum við minna á sjálfstæða tilveru okkar, lýðréttindi, menningu og mannúðarstefnu. Það er fyrst og síðast tilgangur slíkrar heimsóknar eins og forseti íslands er nú í og fylgja Vigdísi Finnbogadóttur því beztu óskir og undir það skal tekið, að hún flytur Dönum vináttu þjóðar sinnar, eins og hún sjálf komst að orði í veizluræðu í Kristjánsþorgarhöll. Á svölum Alþingishússins 18. júni 191*1*. konur nú kosningarjett. Einnig var samþykkt heimild um fjölgun ráðherra. Á þessu þingi var líka samþykktur hinn svonefndi „fyrirvari" um uppburð íslenzkra mála í ríkisráði, og var þar um gamalt deilumál að ræða milli íslendinga og Dana í sambandi við sjálfstæðisbaráttuna. Sigurður Eggerz lagði stjórnarskrárbreytinguna fyrir konung með þessum fyrirvara Alþingis, eins og honum bar, en konungur vildi ekki fallast á hann og frestaði málinu. Sigurður Eggerz tók afleiðingunum af því að geta ekki komið stjórnarskrárbreytingunni fram og baðst lausnar. Konungur ráðgaðist við Hannes Hafstein, sem þá var í stjórnarandstöðu, um málið og ráðlagði hann konungi að kveðja menn úr Sjálfstæðisflokknum á sinn fund. Konungur fylgdi þessari ráðleggingu og boðaði þrjá sjálfstæðismenn, þá Einar Arnórsson, Guðmund Hann- esson og Svein Björnsson á sinn fund. Þremenningarnir komu heim úr ferð sinni með tillögur um lausn á stjórnarskrármálinu og urðu um þær miklar umræður og deilur. Brátt kom í ljós, að líklegt mátti telja, að meiri hluti þingmanna mundi fást til að fallast á þessar tillögur, þannig að stjórnarskrárbreytingin næði fram að ganga, en þar var sannarlega um hin þýðingarmestu atriði að ræða, eins og getið hefur verið. Á meðan þessar umræður og fundarhöld stóðu yfir, var einn þremenninganna, Einar Arnórsson, skipaður ráðherra, og hið einkennilega við þá skipun var, að hann hlaut ráðherraembættið nánast af misskilningi. Er verið var að ræða tillögur þremenninganna, höfðu þeir skipzt á nokkrum simskeytum við einkaritara konungs, og þá jafnan skrifað undir símskeytin eftirnöfn sín í stafrófs- röð. Símskeytin voru alltaf send á ensku vegna stríðsins. í síðasta símskeytinu, sem vjek að því, að þeir mundu gera tillögu um ráðherraefni, ef konungur gæti ekki fundið heppilegan mann sjálfur, var orðalagið þannig: „We prefer account abnormal situation leave Majesty personal question if considered necessary we will propose Arnorsson Bjornsson Hannesson." Nöfnin komu í sím- skeytinu í beinu framhaldi af texta þess og skildi konungsritarinn niðurlagið vegna orðalagsins þannig, að tveir hinir síðastnefndu væru að gera tillögu um hinn fyrstnefnda í ráðherraembættið. Vegna þessa misskiln- ings var Einar Arnórsson skipaður ráðherra. Þegar Einar Arnórsson kom til Kaupmannahafnar nokkru síðar, sagði hann Jóni Krabbe, að ætlunin hefði verið að benda á Svein Björnsson, ef konungur hefði óskað eftir ábendingu um ráðherraefni, en Sveinn Björnsson segir frá því í endurminningum sínum, að hann og Guðmundur Hannesson hafi verið búnir að koma sjer saman um að tilnefna einmitt Einar Arnórsson, ef til hefði komið. Telur Sveinn Björnsson, að misskilningur þessi hafi verið heppilegur og bætir við, að hann mundi ekki hafa viljað taka ráðherraembættið að sjer. Það er athyglisvert í sambandi við stjórnarmyndanirn- ar bæði árin 1914 og 1915, að Sveinn Björnsson, sem þá var nýliði á Alþingi og einna yngstur þingmanna, skyldi vera meðal þeirra helztu sem til greina komu sem ráðherraefni, og hefði, ef hann hefði viljað verða ráðherra og beitt sjer fyrir því að svo mætti verða, haft mjög miklar líkur til að hreppa embættið. Þegar heimsstyrjöldin skall á í ágústbyrjun 1914 sat Alþingi á rökstólum og kaus strax fimm manna nefnd, sem skyldi vera ráðherra til aðstoðar í sambandi við ýmis mál sem ljóst var að upp mundu koma vegna ófriðarins. Sveinn Björnsson var einn þessara manna, en nefndin gekk undir nafninu „velferðarnefndin". Tók hún undir eins til óspilltra mála og gerði mjög mikið gagn á þeim erfiðu tímum sem nú fóru í hönd. Eitt af fyrstu verkefnum Sveins Björnssonar í nefndinni var ferð til Bandaríkjanna ásamt Ólafi Johnson stórkaupmanni. Það var augljóst, að það gæti orðið þýðingarmikið að koma á viðskiptum við Ameríku. Þeir fjelagar fóru með leigu- skipi til New York, er flutti þangað íslenzkar afurðir og keyptu í staðinn ýmsar nauðsynjavörur til landsins. Gekk þessi ferð giftusamlega og var upphafið að töluverðum viðskiptum við Vesturheim sem hjeldust allt til ársins 1920. í annað skipti á stríðsárunum, eða nánar til tekið snemma á árinu 1916, fór Sveinn Björnsson til samninga í London að beiðni stjórnarinnar. Talin var nokkur hætta á, að viðskipti milli íslands og Bretlands gætu stöðvazt vegna aðgerða af Breta hálfu af því að þeir hefðu grun um, að íslenzkar afurðir færu að einhverju leyti til Þýzkalands um Norðurlönd, en Bretar höfðu sett hafnbann á Þýzkaland. Sveini Björnssyni tókst að ná hagstæðu samkomulagi við Breta og var það endurnýjað árlega með ýmsum breytingum fram yfir stríðslok. Þetta voru fyrstu störfin, sem Sveinn Björnsson vann að fyrir stjórnina á sviði utanríkisviðskipta landsins. Haustið 1916 fóru fram kosningar til Alþingis. Sveinn Björnsson hafði ekki hugsað sjer að bjóða sig fram til þings þá, því honum fjell ekki sjerlega vel að sitja á þingi, en ljet þó til leiðast fyrir fortölur samherja sinna. Sjálfstæðisflokkurinn hafði klofnað í tvennt, „langsum" og „þversum" út af stjórnarskrármálinu og lausn „fyrirvara" málsins. Harðskeyttastir gegn Sveini Björnssyni í þessum kosningum, eftir því sem honum sjálfum segist frá, voru fyrri flokksbræður hans „þversummennirnir". „Ljetu þeir einskis ófreistað til að fella mig. Enda fjell jeg — mjer til talsverðs hugarljett- is.“ Sveinn Björnsson var þó ekki laus við pólitísku bakteríuna, hann hjelt áfram að fylgjast vel með stjórnmálum og tók þátt í þeim utan þings. Haustið 1919 fóru fram kosningar til Alþingis. Þá voru sambandslögin gengin í gildi og um það leyti riðlaðist mjög hin gamla flokkaskipting auk þess sem nýir flokkar voru stofnaðir. Kom nú upp sú hugmynd, að reynt yrði að sameina góða og gegna menn úr Heimastjórnarflokknum og Sjálfstæð- isflokknum við þessar kosningar. Þannig varð það og í Reykjavík fjellst Sveinn Björnsson þá á að fara í framboð fyrir Sjálfstæðismenn eftir að fast hafði verið leitað eftir því hjá honum. Reykvíkingar kusu þá tvo þingmenn og fjekk Sveinn Björnsson flest atkvæðin við þessar kosningar. Seta Sveins Björnssonar á Alþingi varð þó ekki löng. Á fyrsta þinginu eftir þessar umræddu kosningar sam- þykkti Alþingi fjárveitingu til stofnunar sendiherraemb- ættis í Kaupmannahöfn og varð Sveinn Björnsson fyrir valinu í það starf og þar með fyrsti sendiherra hins fullvalda íslenzka ríkis. Skal nú nánar vikið að þessu máli. Samkvæmt sambandslögunum var Dönum falið að fara með utanríkismál íslands í umboði þess, en á hinn bóginn gátu Danir að sjálfsögðu ekki gætt hagsmuna íslendinga gagnvart sjálfum sjer. Þess vegna var sett um það ákvæði í sambandslögin, að hvort landið um sig gæti ákveðið, hvernig hagsmuna þess sjálfs og þegna þess skyldi gætt í hinu landinu. Danska ríkisstjórnin tók það ráð að skipa hjer fullgildan sendiherra árið 1919 og þótti islenzku stjórninni því rjett að skipaður yrði gagnkvæmt fullgildur sendiherra fyrir ísland í Darfmörku, enda var það í samræmi við þær reglur sem gilda um slíkt í samskiptum fullvalda ríkja að alþjóðalögum. Ríkisstjórn- in leitaði því heimildar Alþingis um fjárveitingu til stofnunar sendiherraembættis í Kaupmannahöfn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.