Morgunblaðið - 27.02.1981, Page 32
SMMMBMMMI
Síminn
á afgreiösiunni er
83033
ftaqpuiliflafeifr
Síminn á ritstjórn
og skrifstofu:
! 10100
JRorjjunblatMti
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981
Ríkisstjórnin:
Endursendir Þórs-
haínarmálið til Fram-
kvæmdastofnunar
Á FUNDI sinum í gær sam-
þykkti ríkisstjórnin einróma
ályktun þess efnis aó Fram-
kvæmdastofnun ríkisins leiði til
iykta málið um togarakaup tii
ÍHirshafnar. samkvæmt fyrri
áiyktun stjórnar stofnunarinnar
frá 4. júlí sl. þar sem hún
samþykkir að atvinnumál Þórs-
hafnar verði leyst með þvi að
keyptur verði togari og rekinn
sameiginlega frá Raufarhofn.
Ríkisstjórnin tekur þó fram í
ályktuninni að hún telji eðlilegt
að Framkvæmdastofnun standi
við fyrri samþykkt sína um að lán
úr Byggðasjóði verði 20% miðað
við kaupverð 21 milljón norskra
króna.
Stjórnarmenn Framkvæmda-
stofnunar vildu ekki tjá sig um
málið fyrr en að loknum stjórn-
arfundi, sem verður kl. 10 í dag.
Sjá nánar umfjóllun um mál-
ið og ályktun rikisstjórnar-
innar á bls. 14.
Farmannaverkfallið:
Floti Hafskips bund-
inn innan tíu daga
ÁHRIF farmannaverkfalls-
ins koma nokkuð misjafnlega
niður á skipafélogunum sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
biaðsins, en Þorkell Sigur-
Duflið:
Rússneskt
kafbáta-
loftnet
„DUFLIÐ er hluti af kafháta-
loftneti og að minu áliti og
sérfræðinga af Keflavikur-
flugvelli rússneskt að gerð,
því við fundum rússneskt let-
ur á þvi þegar við skoðuðum
það í morgun,“ sagði Bcrent
Sveinsson, yfirloftskeytamað-
ur Landhelgisgæzlunnar. i
samtali við blaðamann Mbl. i
gær, en hann fór í gærmorgun
ásamt nokkrum sérfræðing-
um af Keflavikurflugvelli og
skoðaði duflið, sem áhófnin á
mb. Gauk GK 660 kom með til
Grindavíkur sl. sunnudag, en
])eir fundu það á reki á
svonefndum Reykjaneshrygg.
„Þetta er hluti af kafbáta-
loftneti, sem látið er fljóta upp
á yfirborðið þegar kafbáturinn
er neðansjávar. Varnarliðs-
menn munu flytja duflið upp á
Keflavíkurflugvöll til nánari
rannsóknar á morgun," sagði
Berent einnig, og aðspurður
sagði hann, að stundum væru
litlar sprengjur í slíkum dufl-
um, sem gegndu því hlutverki
að eyðileggja það, ef það slitn-
aði úr tengslum við loftnets-
kerfið, en annað hvort væri
ekki slík sprengja í þessu dufli
eða að hún hefði ekki virkað.
laugsson hjá Eimskip sagði í
samtali við Mbl., að áhrifa
þess væri lítið sem ekkert
farið að gæta i sambandi við
innflutning til landsins, enda
hafa ekki nema tvo skipa
félagsins stöðvast. — „Það
fer hins vegar ekki hjá því, að
verkfallið hefur mikil áhrif á
útflutning landsmanna og þá
kannski aiveg sérstaklega
síldarútflutninginn, scm nú
stendur yfir,“ sagði Þorkell.
„Ef verkfallið ekki leysist munu
tvö skip til viðbótar stöðvast um
helgina og þó nokkur í næstu viku,
en hjá okkur eru 25 skip í
siglingum.
Gera má ráð fyrir, að verulegra
áhrifa verkfallsins gæti ekki fyrr
en eftir tvær vikur varðandi inn-
flutning," sagði Þorkell Sigur-
laugsson ennfremur.
Guðmundur Baldur Sigurgeirs-
son hjá Hafskip sagði, að innan
viku til tíu daga myndi allur floti
félagsins stöðvast, drægist verk-
fallið á langinn. Skaftá væri þegar
stopp í Reykjavík og Langá kæmi
til Akureyrar og stöðvaðist á
morgun og síðan Rangá ennfrem-
ur á Akureyri um helgina. Hann
sagði að væntanlega myndu leigu-
skip félagsins, sem eru tvö, halda
áfram siglingum þrátt fyrir að
verkfallið, drægist á langinn.
Vélbáturinn Sæljón SU 104 kemur til
aðstoðar, en eins og sjá má er Hólmatindur
nánast kominn upp i fjöruborðið.
(Liófiin. Ævar AuAbjörnason).
Slitnaði frá bryggju og rak inn Eskifjörð
Eskifirði, 26. febriMr.
í MORGUN lá við að illa færi er
skuttogarinn Hólmatindur slitn-
aði frá bryggju hér á Eskifirði í
suðaustanroki. í nótt gerði hér
mikið hvassviðri og hellirign-
ingu. I einni hryðjunni sleit
togarinn, sem hafði komið inn i
nótt, af sér landfestar og rak af
stað inn fjörðinn. Vélar skipsins
voru ekki i gangi og aðeins einn
maður var sofandi um borð i
skipinu. Tveimur mönnum tókst
þó að komast um borð i Hólma-
tind um það leyti er skipið var að
slitna frá.
Byrjuðu þeir strax að reyna að
koma vélum skipsins í gang, en
skipið rak hratt í átt að mb.
Sæljóni, sem lá við bryggju
skammt frá. Menn voru komnir
um borð í Sæljónið er séð varð
hvað verða vildi. Leystu þeir
lafldfestar og héldu til móts við
Hólmatind. Stóð það á endum, að
rétt áður en togarinn lenti upp í
fjöru tókst að gangsetja vélar
skipsins og þá var Sæljónið komið
á siðu togarans. Fór því betur en á
horfðist.
Mjög mikið hefur rignt hér
síðustu daga og nær allan snjó
tekið upp í bænum. Hins vegar
hefur verið gott skíðafæri í
Oddsskarði og margir lagt leið
sína þangað undanfarið, einkum
þó um helgar.
— Ævar.
*
Alit nefndar um skuldbreytingar húsbyggjenda rætt í rikisstjórn:
Lausaskuldum breytt í
10 ára verðtryggt lán
NEFND sú er ríkisstjórn-
in skipaði í janúar sl. til að
gera tillögur um skuld-
breytingar húsbyggjenda
úr lausum lánum í föst
lengri lán hefur skilað
áliti sínu, og kynnti Jón
Ormur Ilalldórsson. að-
stoðarmaður forsætisráð-
herra, álitið á ríkisstjórn-
arfundi í gærmorgun, en
hann var jafnframt ritari
nefndarinnar.
Nefndin varð sammála í áliti
sínu, nema hvað Sigurgeir
Jónsson, aðstoðarbankastjóri
Seðlabanka íslands, skilaði sér-
áliti. — Tillögur nefndarinnar
10,2% grunnkaupshækkim til báta- og togarasjómanna:
Öðlast lifeyrisréttindi 60
ára í stað 67 ára áður
SAMNINGAR tókust í
kjaradeilu báta- og togara-
sjómanna og útgerðar-
manna hjá Sáttasemjara
ríkisins rétt eftir miðnætt-
ið í fyrrinótt, en þar á
undan höfðu staðið yfir
Iangir og strangir fundir.
Guðlaugur borvaldsson,
ríkissáttasemjari, sagði í
samtali við Mbl. í gærdag,
að samið hefði verið um
10,2% grunnkaupshækkun
til sjómanna auk ýmissa
annarra félagslegra at-
riða.
Ein meginbreytingin í þessum
samningum að mati aðila er þó
nýtt fyrirkomulag á iðgjalda-
greiðslum fyrir sjómenn í
Lífeyrissjóð sjómanna. Það breyt-
ist á þann veg, að viðmiðunarfjár-
hæðir, eða iðgjaldapósturinn,
hækkar um 20% umfram lág-
markskauptryggingu, en hann
náði henni ekki áður. Iðgjalda-
greiðslan var áður ákveðin einu
sinni á ári, en mun nú fylgja
verðlagsbreytingum í landinu.
Þá er í samkomulaginu gert ráð
fyrir breytingum á réttindum til
lífeyristöku úr Lífeyrissjóði sjó-
manna, þannig að menn geti
öðlast réttindi 60 ára í stað 67 ára
áður. Útgjaldaauka sjóðsins vegna
þessa ákvæðis hefur ríkisstjórnin
ákveðið að bakka upp ef með þarf.
Sjá nánar viðtöl við
óskar Vigfússon, Kristján
Ragnarsson og Ingólf Fals-
son bls. 12.
gera ráð fyrir því, að húsbyggj-
endum og kaupendum verði gert
kleift að breyta öllum lausa-
skuldum í fast lán, sem yrði í
formi skuldabréfs til 10 ára, að
fullu verðtryggt með 2% vöxt-
um. Gert er ráð fyrir því að
Húsnæðismálastofnun ríkisins
gefi skuldabréfið út á ákveðinn
banka eða sparisjóð.
Sigurgeir Jónsson lagði til í
sínu áliti, að lánstíminn yrði 6
ár og vextirnir yrðu 2,5%. Rök-
semdir Sigurgeirs fyrir styttri
lánstíma og hærri vöxtum eru
þær, að ekki sé hægt að ganga of
nærri sparisjóðunum í landinu,
en þetta kerfi muni óneitanlega
binda mikið fé, sem sparisjóð-
irnir séu með fyrir í þessum
lánum.
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, sagði í samtali við
Mbl. í gærkvöldi, að tillögurnar
hefðu verið kynntar og ræddar á
ríkisstjórnarfundinum og yrðu
áfram til umfjöllunar. Af-
greiðslu væri hins vegar að
vænta innan tíðar.
I nefndinni sátu auk Jóns
Orms Halldórssonar og Sigur-
geirs Jónssonar þeir Grétar
Þorsteinsson, Jón G. Sólnes, sem
var formaður, Jón Júlíusson og
Ólafur Jónsson.