Morgunblaðið - 22.03.1981, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 22.03.1981, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 57 Hvers óskar þú þér í afmælisgjöf?, spurði Malenkov. Skilið konu minni aftur, sagði Molotov og hélt á brott ^ ^ (SJÁ: Utangarðsmenn) MEINLEYSINGJAR Skæruliðinn sem kunni ekki við að skjóta „A þeirri stundu held ég að við höfum verið vinir,“ sagði Shlomo þegar hann rifjaði upp nætur- ævintýri sitt. bessir „við“ eru Shlomo Zem- ach, 26 ára gamall israelskur skrifstofumaður hjá tollinum, og Juma Khalaf ai-Yussef, 26 ára gamall palestinskur skæruliði, sem laumast hafði inn í ísrael. I fjórar stundir var Shlomo gisi Juma í einhverjum undarlegasta atburði stríðsins milli ísraela og Palestinumanna. Allt frá upphafi var ekki um neina venjulega skæruliðaárás að ræða og Juma fór ekki inn í ísrael eftir þeim leiðum sem tíðkast höfðu, með bát eða fótgangandi. Hann flaug á vélknúnum svif- dreka. Klukkan hálfníu á föstudags- kvöldi lögðu Juma og félagi hans af stað í loftið frá hæð nokkurri fyrir norðan Litani-fljót í Líban- on. Félagi Juma varð að hætta við förina áður en hann komst inn í Israel, en Juma lenti nálægt Ahihud, Gyðingaþorpi í Vestur- Galíleu sem að öðru leyti er að mestu byggð Aröbum. Shlomo Zemach og fjölskylda hans voru að heimsækja ættingja sína í þorpinu og Shlomo hafði farið til kunningja síns til að horfa á sjónvarp. Þear hann var á heimleið til síns fólks birtist Juma skyndilega út úr myrkrinu. „Fyrst hélt ég að hann væri vörður úr þorpinu," sagði Shlomo í viðtali við blað í Israel, „og þegar hann veifaði byssunni framan í mig hélt ég að hann væri bara að glettast. En þá heyrði ég hann segja „Palestína" og ég áttaði mig á því að hann væri skæruliði." Juma ýtti Shlomo inn í skugg- ann og sagði við hann: „Eg er palestínskur skæruliði í sjálfs- morðsárás, ég flaug hingað frá Líbanon og ég mun ekki hika við að beita byssunni ef þörf krefur." Shlomo sagðist hafa hvatt Juma til að koma sér á burt frá Ahihud því að þar væri allt fullt af byssum og lögreglumönnum. Hann bauðst til að semja við söfnuðust flokksleiðtogarnir sam- an á grafhýsi Lenins þar sem hinsta kveðjan fór fram. Þríeykið, sem nú fór með völdin í Kreml, Malekov, Molotov og Beria, fluttu ræður í minningu Stalíns og þegar gengið var niður af grafhýsinu óskuðu Malenkov og Krushchev Molotov til hamingju með afmæl- ið. „Hvers óskar þú þér í afmælis- gjöf?“, spurði Malenkov. „Skilið konu minni aftur," sagði Molotov og hélt á brott. Beria skildist nú að hann gæti ekki lengur haldið Polinu í fang- elsi og daginn eftir var hún flutt til Moskvu með sérstakri flugvél og farið fyrst með hana á skrif- stofu Beria. Beria faðmaði hana að sér og sagði: „Til hamingju, Polina, við höfum komist að því, að þú ert heiðarlegur kommún- isti.“ Síðan var hún flutt í sumar- hús eiginmanns síns. Þótt Polinu hefði verið sleppt hataði Molotov Beria og óttaðist engu minna en áður, og nokkrum mánuðum síðar, þegar aðrir með- limir stjórnmálaráðsins fóru að leggja á ráðin um að losa sig við Beria, kom Molotov til liðs við þá. Beria var tekinn af lífi þetta sama hann: Þeir skyldu stela bíl og aka til heimilis Shlomos skammt fyrir austan Carmiel. Þar skyldi Shlomo gefa honum mat og aka honum síðan að líbönsku landa- mærunum. Juma féllst á þetta en bíllinn sem þeir reyndu að stela vildi ekki fara í gang þó að honum væri ýtt. Þá ákvað Juma, að þeir skyldu ganga til Carmiel. Shlomo lagði nú til við Juma að hann fæli byssuna svo að þeir gætu stoppað einhvern bíl á þjóð- veginum og fengið sér far með honum en Juma vildi það ekki. „Mér hefur verið kennt að skilja aldrei vopnin við mig,“ sagði hann. „Við skulum ganga yfir akrana." Nú lögðu þeir af stað, Shlomo á undan en Juma á eftir með byssuna tilbúna. Shlomo gat bjargað sér dálítið í arabísku og nú tóku þeir tveir tal saman. Juma ár og nú var komið að konu hans að lenda í fangelsi. Að Beria gengnum tók „samvirka forystan" svonefnda við með Nikita Krushchev, aðalritara flokksins í Moskvu, í broddi fylkingar. Hvað Molotov varðar má segja, að tjaldið hafi fallið á 20. flokks- þinginu 1956 með leyniræðu Krushchevs þar sem kveðið var upp úr með glæpaverk Stalíns. Það var nefnilega Molotov sem 1937 hafði verið með í að skipu- leggja fundinn, sem lagði blessun sína yfir það, sem seinna gekk undir nafninu „skelfingin mikla“. Það var líka Molotov sem gaf grænt ljós á aðgerðir leynilögregl- unnar 1937—38 þegar milljónir manna voru handteknar og um hálf milljón dæmd til dauða. Milljónir annarra létu seinna lífið í fangabúðum. Eftir valdabaráttuna 1957 þar sem Krushchev hrósaði sigri er víst, að „fjórmenningaklíkan" bjóst við handtökum og réttar- höldum í kjölfar þeirra. Krush- chev lét sér þó nægja að auðmýkja þá. Molotov var sendur sem ambassador til Mongóliu, Malen- kov gerður að forstjóra fyrir fjarlægu raforkuveri, Kaganovich sagðist vera kominn til að drepa eins marga Gyðinga og hann gæti og frémja síðan sjálfsmorð ef hann hefði ekki annan útveg. Hann talaði um málstað Palest- ínumanna og sagði, að réttlætið myndi að lokum sigra og þreng- ingum þjóðar hans iinna. Juma sagðist eiga konu og tvö börn í Líbanon og Shlomo sagði honum frá konu sinni og barni. Nú var mjög liðið á nóttu og eins og oft vill verða á þessum slóðum var hryssingskalt rétt áður en sólin kom upp. Juma lánaði þá Shlomo leðurjakkann sinn og einu sinni, þegar Shlomo hrasaði um stein og féll endilang- ur ofan á runna, hjálpaði Juma honum á fætur aftur. „Á þeirri stundu held ég að við höfum verið vinir,“ sagði Shlomo í viðtali við blaðið Maariv. Eftir því sem á leið varð Juma órólegri og einu sinni hét hann því að drepa Shlomo ef þeir kæmust ekki á öruggan stað fljótlega. í annan tíma virtist eins og honum stæði á sama um hvað við tæki og lét þau orð falla, að kannski væri best að þeir færu hvor í sína áttina. Eftir fjögurra tíma göngu komu þeir að þjóðveginum og stoppuðu bíl, sem átti leið þar um. Shlomo settist inn í bílinn en Juma var eins og á báðum áttum og Shlomo hrópaði þá til bílstjórans: „Aktu af stað, þetta er skæruliði.“ Þeir skildu Juma eftir á vegin- um. Það hafði tekið ísraelsku her- mennina nokkurn tíma að átta sig á svifdrekanum, sem fannst ná- lægt Ahihud, en þegar þeir þóttust skilja hvernig í málinu lá komust þeir fljótt á slóðina. Juma var þá kominn í arabíska þorpið Tamra þar sem hann hafði brotist inn í hús og miðað byss- unni á heimilisfólkið. Seinna sagði það, að hann hefði krafist mikils „af tei og pita-brauði og olíu til að dýfa því í“. Juma, sem var glor- hungraður og örþreyttur, át og drakk af hjartans lyst en meðan á því stóð umkringdu ísraelskir ör- yggisverðir húsið. En þegar þeir réðust til atlögu kom ekki til neinna blóðsúthellinga eins og þeir höfðu jafnvel átt von á, því að Juma var sofnaður svefni hinna réttlátu! - MARCUS ELIASON varð forstjóri fyrir byggingar- efnaverksmiðju í Uralfjöllum og Shepilov yfirmaður lítillar ha- gstofu uppi í sveit. 1960 var Molotov skipaður fulltrúi Sovét- manna í kjarnorkumálanefnd SÞ í Vín, sem virtist þó aðeins vera liður í því að auðmýkja hann enn frekar, því að skömmu síðar var hann kallaður til Moskvu og rek- inn úr flokknum. Þegar Krushchev hóf að rita minningar sínar ákvað Molotov að gera það einnig. Krushchev, sem var maður raunsær, vissi ósköp vel, að þær fengjust aldrei gefnar út í Sovétríkjunum og tókst því að smygla þeim til Bandaríkjanna, en Molotov, alltaf sami flokksmaður- inn, sendi endurminningar sínar til mánaðarritsins Æskunnar. Þessi sending Molotovs kom mjög flatt upp á Æskuritstjórann og hann vissi ekki hvernig hann ætti að snúa sér í þessu. Nokkrum dögum seinna sagði hann þó við Molotov, að útgáfa væri ekki möguleg og ráðlagði honum að senda endurminningarnar til Marx-Lenin-stofnunarinnar. Hvort Molotov gerði það veit enginn. - ROY MEDVEDEV í bresku sjónvarpi voru ný- lega tveir þættir þar sem því var haldið fram fullum fetum. að ýmsir læknar styttu alvar- lega fötluðum börnum aldur með því að láta þau deyja hungurdauða. Tveir læknar. sem viðtal var haft við í þessum þáttum. staðfestu einn- LÍKNARMORÐ ig þessar staðhæfingar og sögðu frá því. að þeir hefðu sjálfir látið börn deyja með því að veita þeim enga hjálp og taka frá þeim næringu. Dr. Hugh Jolly, sem veitir forstöðu fæðingardeild Charl- ing Cross-sjúkrahússins, tók þannig til orða í viðtali við hann, að læknar „dræpu ekki börnin" heldur „legðu þeir sig bara ekki mjög fram við að halda í þeim lífinu". Hann sagði t.d. frá því hvernig börnum, sem fædd væru með klofna mænu og því ófær um að lifa eðlilegu lífi, væru gefin róandi lyf til að draga úr matarlystinni og síðan eingöngu gefið vatn þar til þau gæfu upp andann. Margir læknar og hjúkrun- arkonur, sem tekin voru tali í sjónvarpinu, fordæmdu mjög þessar aðferðir en framleiðend- ur þáttanna sögðust þó vera vissir um, eftir að hafa kynnt sér sjónarmið margra manna úr læknastétt, að meirihlutinn væri á sama máli og dr. Jolly. Árið 1979 dóu 84% þeirra 677 barna í Bretlandi, sem fæddust með klofna mænu, áður en þau náðu eins árs aldri. I öðrum sjónvarpsþætti, sem BBC sýndi fyrir stuttu, sagði dr. Donald Garrow, fæðingarlækn- ir við Wycombe-spítalann i Buckingham-skíri, frá því hvers vegna hann hefði hætt meðferð á þriggja ára gamalli stúlku með heilahimnubólgu. Litla stúlkan hafði fæðst með óeðlilegan æxlisvöxt í hnakka og dr. Garrow segir: „Það var rétt að hætta þeirri meðferð, sem gat haldið lífinu í barninu, þar sem það var öllum ljóst, að því var fyrir bestu að deyja.“ Ekki eru allir læknar sam- mála þessu og dr. Richard Barry Jones sagðist t.d. „aldrei hafa litið á það sem sitt starf að drepa börn“. Laganemi í Kings College í London, Ian Kennedy að nafni, spurði þessarar spurningar: „Hver í ósköpunum er eiginlega munurinn á því að neita barni um nauðsynlega meðferð og að reka hnífinn í hjarta þess?" Hann bætti þessu við: „Börn með klofna mænu eru ekki dauðvona. Þau deyja ekki þó að þau séu látin afskiptalaus um stund. .Vissulega eru þau ekki heilbrigð, en það er með þau eins og önnur börn, að okkur ber skylda til að sinna þeim.“ Viðbrögð þeirra foreldra, sem komu fram í þáttunum, voru með ýmsu og ólíku móti. Þar má nefna hjónin, sem áttu fimm ára gamalt barn, sem læknar höfðu dæmt til að eyða lífinu eins og hver önnur „planta“, en var samt sem áður sýnt þar sem það lék sér á reiðhjóli og spilaði á píanó, og önnur hjón, sem veltu því fyrir sér hvort 16 ára gömul dóttir þeirra væri ekki betur komin dáin. í opinberum leiðbeiningum til breskra lækna er kveðið svo á um, að ekki skuli lagt allt í sölurnar til að halda lífinu í börnum, sem eru alvarlega van- sköpuð. Breskir læknar og sam- tök þeirra segja hins vegar, að slíkar ákvarðanir verði að taka í samráði við foreldrana. Fyrir fimmtán árum gerðu læknar uppskurð á börnum, sem fæddust með klofna mænu. í nýjustu könnunum kemur fram, að þau þessara barna, sem enn lifa og eru nú á unglingsaldri, óska þess helst að þau hefðu fengið að deyja og losna þannig undan síendur- teknum uppskurðum og þján- ingum. - PENNY CHORLTON Sum börn eru látin deyja drottni sínum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.