Morgunblaðið - 22.03.1981, Side 17

Morgunblaðið - 22.03.1981, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 65 >teUo Guðmundar Jónssonar í hlut- verki Jagos, Pedro Lavirgen í hlutverki Otellos og leikur Sinfóníuhijómsveitar íslands undir stjórn Gilberts I. Lev- ine. Söngsveitin Filharmonía stóð sig vel, þó nokkuð vant- aði á samtök og lipurð í framburði í upphafsþætti óperunnar og einnig skerpu og nákvæmni á nokkrum stöðum í snöggum innkom- um. Sigurður Björnsson (Cassio), Anna Júlíana Sveinsdóttir (Emilia), Krist- inn Hallsson (Lodovico) og Már Magnússon (Rodrigo) stóðu sig vel, en einn nýliði Kristinn Sigmundsson, er söng tvö smáhlutverk (Mont- ano og sendiboða), vakti at- hygli fyrir góða frammistöðu og er þarna á ferðinni gott efni í söngvara. Skólakór Garðabæjar söng með í 2. þætti og setti fallegan svip á atriðið. Sieglinde Kahmann söng með afbrigðum vel, t.d. í upphafi 4. þáttar, þar var söngur hennar blátt áfram yndislegur og sterk andstæða þeirra atburða sem eftir komu. Lavirgen er ágætur söngvari og söng síðasta þátt- inn feikna vel. Guðmundur Jónsson, okkar ágæti söngvari, var frábær en einhvern veginn var ekki hægt að trúa á illsku Jago, svo elskulegur var söngur Guðmundar. í heild var flutningurinn mjög góður, en þrátt fyrir glæsilega tónlist Verdis, vantar mjög mikið, að hafa ekki sviðsmyndina, því Tónlist eítir JÓN ÁSGEIRSSON Otello er fyrst og fremst leikverk, þar sem átökin eru mögnuð ómennskri grimmd og afbrýðisemi. Upphaf 4. þáttar og Maríubænin er einn áhrifamesti kafli óperunnar og vann Sieglinde Kahmann mikinn listasigur með túlkun sinni og söng í þessu við- kvæma atriði. Jón Ásgeirsson ðs: jónvarps Vilhjálmur Hljálmarsson. stytting gangi fremur út yfir erlent efni en innlent. 4. Tímabil vetrardagskrár styttist um 1 xk mánuð og tímabil sumardagskrár lengist að sama skapi. Ætla má að þessi breyt- ing bitni meira á innlendu efni, t. d. þannig að þættir eins og Fréttaspegill, Vaka og Stundin okkar yrðu aðeins í gangi í u. þ.b. 6'A mánuð í stað 8 mánaða áður. Um Þjóðlíf gegn- ir öðru máli, þar var gengið frá ákveðnum fjölda þátta, í vetur sex, og breytist það ekki. Vakin skal athygli á því, að útvarpsráð á eftir að fjalla um íslenska dagskrárgerð á yfirstand- andi ári, bæði hvað snertir fasta þætti og annað innlent efni. Reykjavík 20. marz, óvenjumargar útvarpsguðs- þjónustur utan af landi ÓVENJULEGA margar út- varpsguðsþjónustur hafa verið utan af landi upp á síðkastið og sagði Bernharð- ur Guðmundsson á Bisk- upsstofu, að gerðar hefðu verið ferðir út um landið að undanförnu og mikill fjöldi guðsþjónustuna tekinn upp. Á næstu mánuðum yrði því mikið um guðsþjónustur utan af landi. Nefndi Bern- harður t.d., að farið hefði verið um sveitir Borgar- fjarðar að undanförnu, ennfremur Dali og Snæ- fellsnes. DODŒ ARIES DODGE ARIES 1981 er einhver glæsilegasti framhjóladrifsbílinn sem nú er völ á, enda kom það engum á óvart að hann var kjörinn BÍLL ÁRSINS 1981 í Bandaríkjunum. Þetta er í annað sinn á fjórum árum sem CHRYSLER fær verðlaun fyrir frábæran framhjóladrifinn fólks- bíl - árið 1978 hlaut DODGE OMNI sömu verðlaun. DODGE ARIES er nú fáanlegur með 4 cyl. 90 DIN hestafla vél, auk þess sjálf- skiptingu, vökvastýri og lúxusfrágangi í hólf og gólf. í alhliða akstri eyðir DODGE ARIES 9,4 I pr. 100 km., en á reynslubrautum verksmiðjanna aðeins 5,7 I. Undir vélarhlífinni leynist tölvu- búnaður sem stýrir eldsneytisneyslu og kveikjutíma. Það fer ekki á milli mála að DODGE ARIES er lítill bandarískur lúxusbíll frá CHRYSLER. Gæðin þekkja allir. Endinguna þekkja allir. Endur- söluverðið þekkja allir. K línan frá CHRYSLER - DODGE ARIES - er framtíðarbíll hinna kröfu- hörðu. DODGE ARIES er lúxuslausn í orku- kreppu. Fá þú þér lykilinn að lúxus- bílnum DODGE ARIES. ÍS wökull hf. Ármúla 36 Sími: 84366 ■I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.