Morgunblaðið - 22.03.1981, Side 18
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981
New York,
New York
Raging Bull kemur
áhorfandanum svo sannar-
lega á óvart. Hér er nefni-
lega á ferðinni mynd sem
byggð er á efni sem sjaldan
er kvikmyndað, lífshlaupi
sannkallaðs skítakarakters.
Hér er um að ræða hnefa-
leikakappann Jake La
Motta (Robert De Niro),
sem vann heimsmeistara-
titilinn í hnefaleikum í
millivigt árið 1948 (tapaði
titlinum til Sugar Ray
Robinson).
La Motta átti ógiæsilegan
lífsferil áður en hann öðlað-
ist frægð og frama í hringn-
um. Var að auki grjót-
heimskur þverhaus og þjáð-
ist af ótta og ofsóknarbrjál-
æði. Stoð hans og stytta var
bróðir hans (Joe Pesci), sem
hugsaði fyrir hann og
bjargaði honum út úr hvcrs
kyns vandræðum.
í myndarlok er La Motta
búinn að brjóta allar brýr
að baki sér, einn og yfirgef-
inn, spikfeitur, sóðalegur —
vonlaus.
Þennan manngarm leikur
Robert De Niro hreint út
sagt stórkostlega. Það er
ekki aðeins að hann túlki
aulann af innlifun, dansi í
stíl La Motta í hringnum,
beiti fyrir sig einu besta
andlitsgervi sem sögur fara
j af, heldur bætti hann á sig
15 aukakílóum til að ná
líkamlegu útliti La Motta á
árunum sem fylgdu í kjöl-
far frægðarinnar. En það er
ekki De Niro einn sem á
hrós skilið fyrir góðan leik í
Raging Bull. Tveir ókunnir
leikarar, Joe Pesci, sem góði
bróðirinn og ung, stórglæsi-
leg leikkona, Cathy Mori-
arthy, fara bæði glæsilega
með erfið hlutverk. (011
þrjú tilnefnd til Oskars-
verðlaunanna í ár.)
Raging Bull, fjórða
myndin sem þeir gera í
samvinnu, leikstjórinn
Martin Scorsese og De Niro,
(hinar eru Mean Street,
Taxi Driver og New York,
New York), er einkar vel
I gerð í alla staði. Handrit
Paul Schraders (Taxi Driv-
er), er gróft, óheflað og vel
skrifað. Tekist hefur óað-
finnanlega að endurskapa
umhverfi og anda fjórða
áratugsins. Kvikmyndataka
(svart/hvít) Michael Chap-
mans, endurvekur minn-
I ingar um myndir sem mað-
| ur hefur séð frá þessu
tímabili. Hér er endurborin
| þessi seiðmagnaða blanda
I grámósku og „glamours",
sem setti svo sterkan svip á
árin eftir stríð.
Nýjasta mynd Paul New-
man Fort Apache, The
Leikstjórinn Martin Scorsese. Álitið er að nýjasta mynd
hans, Raging Bull, áskotnist flest Oscars-verðlaunin í
ár og hann verði einnig sjálfur á meðal verðlaunahaf-
anna
Bronx, hefur verið mikið
hitamál hjá Puerto Rikön-
um í N.Y.C., sökum þess hve
einhliða mynd og nöturleg
er af þeim dregin í þessari
harðsoðnu lögreglumynd.
Paul Newman og Ken
Wahl, (The Wanderers),
eru félagar í lögreglunni í
einu alversta Puerto Rík-
ana-hverfi í Bronx-borgar-
hlutanum. Daglega blasa
við þeim ný dæmi um
mannlega niðurlægingu og
djöfulskap. Þeir fá ekki við
neitt ráðið, og áætlanir nýs,
metnaðargjarns lögreglu-
stjóra geta aldrei orðið
annað en orðin tóm. Svo
djúpt virðist mannskepnan
sokkin í þessu eymdar-
hverfi, að hún á sér tæpast
viðreisnarvon.
Fort Apache, The Bronx,
minnir nokkuð á vestra.
Þeir félagarnir Newman og
Wahl, eru eins konar ridd-
araliðsmenn nútímans,
þeysandi út frá virkinu til
að reyna að koma lagi á
villimennina sem þeir
botna ekkert í. Enda skilja
þeir ekki tungu Puerto Rík-
ananna frekar en riddara-
liðarnir indiánana fyrrum.
I þessari harðskeyttu
mynd má sjá gamla góða
Paul Newman á ný í topp-
formi, eftir mörg mögur ár.
Það bætir þó ekki upp þá
einhliða mynd sem dregin
er upp af Bronx, en sýnir
ljóslega hversu lágt Puerto
Rikanar eru skrifaðir, þeir
eru neðstir allra í stórborg-
inni. Mér er til efs að
nokkur þyrði að draga upp
slíka mynd af ástandinu í
slummhverfum Harlem-
borgarhlutans, sem þessa.
Öfgarnar eru á ýmsa
lund. Til hliðar við okkur
undir sýningu Fort Ap-
ache, The Bronx, sátu þel-
dökkir feðgar. Sonurinn á
að giska tíu ára, faðirinn
um þrítugt. Sá yngri kippti
sér ekki hætishót upp við
rosalegt ofbeldi myndar-
innar, en krafðist gjarnan
útskýringa hjá föður sínum
varðandi smáatriði. Þær
fékk hann loðnar enda fékk
pápi sér af og til vænan
reyk af einhverju sterkara
en nikótíni og ekki þótti
stráksa það heldur umtals-
vert. Mér varð hugsað til
Vítt og breitt
• Næsta mynd þeirra
félga, Robert De Niro og
Martin Scorsese verður
King of Comedy, sem tek-
in verður í sumar í New
York. Handritið er skrifað
af hinum virta gagnrýn-
anda Newsweek, Paul
Zimmerman en á móti De
Niro leikur gamall kunn-
ingi, Jerry Lewis ...
• Tveir snarruglaðir
náungar úr kvikmynda-
heiminum eru í þann
mund að hefja gerð mynd-
ar saman. Það eru þeir
Ken Russell og æringinn
John Belushi, sem við
sáum síðast í The Blues
Brothers. Belushi á að
leika Drottinn ...
• Og þá er byrjað að
kvikmynda hina hressi-
legu draugasögu Peter
Straub, Ghost Story, en
það hafa örugglega margir
lesið pappírskiljuna sem
hefur fengist hér um
nokkurt skeið. Með hlut-
verk gömlu öðlinganna í
„The Chowder Society",
fara kempurnar Fred
Astaire, Melvyn Douglas,
Douglas Fairbanks jr., og
John Houseman.
• Þessa dagana er verið
að undirbúa töku myndar-
innar The Thorn Birds,
sem byggð er á hinni
heimskunnu metsölubók
Colleen McCullough og
kölluð hefur verið hin
ástralska „Á hverfanda
hveli". Með aðalhlutverkið
mun Ryan O’Neal fara, að
öllum líkindum, en leik-
stjóri verður Arthur Hill.
þess þegar fjölskyldu minni
var stíað í sundur rösku ári
áður í London sökum þess
að þar í borg þótti ekki
forsvaranlegt að börn yngri
en sextán sæu þá ægilegu
filmu tö.Hárið, ekki einu
sinni í fylgd með óreyktum
foreldrum!
Margir kannast við hina
þekktu hasarsögu Frederick
Forsyths Dogs of War, sem
nú hefur verið kvikmynduð
af umtalsverðu raunsæi.
Hún fjallar um tilraunir
bresks auðkýfings að koll-
varpa einræðisherra í smá-
ríki í Afríku. (Sagt er að
Forsyth hefði verið með
Uganda sem fyrirmynd
Zingaro-bókarinnar.)
Leikstjóranum John Ir-
win, (Centennial), tekst að
byggja upp æsispennu í
bardagasenum myndarinn-
ar og aðdraganda þeirra
lýsir hann forkunnarvel.
Skapar framandi and-
rúmsloft en dásamar um of
blóðidrifna málaliðamenn-
ina. Christopher Walken
kemst vel frá sínu sem
forsprakki málaliðanna,
hlutverki víðsfjarri því sem
við minnumst hans úr í The
Deer Hunter.
Svo ólánlega vildi til að
fullt hús var jafnan á hin-
um frönsku myndum Mon
Oncle d'Amerique og The
Last Metro, þegar undirr.
átti þess kost að líta þær
augum. Þær verða því að
bíða betri tíma — að sinni.
Gervi Rob-
ert De Niros
er með ólik-
indum gott i
mynd Scors-
eses Raging
Bull.
Christopher Walken sem leiðtogi málaliðanna í The
Dogs of War.
Svefnlausi brúðguminn
í félagsheimili Sandgerðis
Sandgerði, 20. marz.
Hestar töpuðust
LEIKFÉLAG Sandgerðis frum-
sýndi á fimmtudagskvöldið í fé-
Iagsheimilinu í Sandgerði gam-
anleikinn Svefnlausi brúðgum-
inn eftir Arnoid og Bach undir
leikstjórn Herdísar Þorvaldsdótt-
ur. Alls koma 12 leikendur fram i
leikritinu.
Aðalhlutverkin fjögur eru í
höndum Óskars Guðjónssonar,
Gunnlaugs Haukssonar, Friðriks
Friðrikssonar og Stefaníu Jóns-
dóttur. Svefnlausi brúðguminn er
bráðfyndinn gamanleikur, sem
frumsýningargestir kunnu vel að
meta, og virtust þeir skemmta sér
konunglega og var mikið hlegið.
Enda var leikurum og leikstjóra
ákaft fagnað í leikslok.
Ákveðið er að sýna leikritið að
minnsta kosti 5 sinnum til viðbót-
ar og er næsta sýning á sunnu-
dagskvöld. Þetta er annað leikrit-
ið, sem Leikfélag Sandgerðis tekur
til sýningar á þessum vetri, því
fyrr í vetur sýndi það leikritið
Markólfu eftir Dario Fo.
Jón
AI M.VSINI.ASIMINN KR:
^ _ 2248D
TVEGGJA hesta er saknað
í Árnessýslu og hefur lög-
reglan þar beðið Mbl. að
geta þess. Snemma í febrú-
ar hvarf úr hesthúsi í
Vorsabæ í Ölfusi dökkrauð-
ur hestur, sex vetra, tam-
inn og á járnum. Þá hvarf
hinn 5. marz úr hesthúsi
vestan Ölfusár, við Bisk-
upstungnabraut, rauð-
stjörnóttur hestur, 16 til 17
vetra, ójárnaður. Þeir sem
gætu gefið upplýsingar um
hvar hesta þessa er að
finna eru beðnir um að
hafa samband við lögregl-
una í Árnessýslu.