Morgunblaðið - 03.05.1981, Page 1
64 SIÐUR
97. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 3. MAÍ1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Pólland:
Svipminni
hátíðarhöld
Varsjá. 2. maí. AP.
MINNA varð úr hátíðahöldum i
tilefni 1. maí i Póllandi en undan-
farin ár og er talið að aðeins 90.000
manns hafi tekið þátt i Köngum og
útifundum i Varsjá miðað við
250.000 í fyrra er verkamönnum
var skylt að taka þátt i mannfögn-
uði af þessu tagi. Þátttakan i
hátíðahöldunum var þó meiri en
búist hafði verið við.
Samstaða hvatti hvorki né latti
félagsmenn sína til þátttöku, en
fulltrúar samtakanna tóku ekki þátt
í hátíðahöldunum. Stanislaw Kania
flokksformaður og Wojciech Jaruz-
elski forsætisráðherra voru í fylk-
ingarbrjósti, og segir í fréttum, að
margir göngumenn hafi borið pólska
fánann, rauða fánann, fána komm-
únista, og margar smáveifur með
mynd af pólska erninum. Hins vegar
hafi nú algjörlega vantað borða sem
höfðu að geyma formælingar í garð
Atlantshafsbandalagsins.
Blað ungliðadeildar pólska komm-
únistaflokksins, Sztandar Mlodyc,
hefur í dag eftir Lech Walesa,
forystumanni Samstöðu, að utanað-
komandi íhlutun í málefni Póllands
gæti því aðeins verið réttlætanleg ef
öngþveiti og ástand í líkingu við
borgarastyrjöld ríkti í landinu.
Stjórn Japan
sætir gagnrýni
Tókýó, Washinj<ton, 2. mai. AP.
BLÖÐ f Japan birtu harða
gagnrýni i garð stjórnvalda i
ritstjórnargreinum vegna
þeirrar akvörðunar stjórnar-
innar að draga úr bifreiðaút-
fiutningi til Bandarikjanna
næstu tvö árin. Gagnrýndu
blöðin sérstaklega, að ekkert
samráð hefði verið haft um
þessar aðgcrðir við bifreiða-
framleiðendur. en hér er um að
ræða 7,7% samdrátt í bifreiða-
útflutningi Japana, miðað við
útflutning 1980.
Rokusuke Tanaka viðskipta-
ráðherra Japan sagði, að fallist
hefði verið á að draga bifreiða-
útflutning til Bandaríkjanna
saman svo bandarískir bifreiða-
framleiðendur fengju svigrúm
til að hanna og framleiða spar-
neytna smábíla.
Skilyrði fyrir
fundum við
Rússa samræmd
RómaborK. 2. mai. AP.
ALEXANDER M. Haig, utanríkis-
ráðherra Bandarikjanna, kom i dag
til Rómaborgar til fundar við utan-
rikisráðherra annarra Atlantshafs-
bandalagsrikja.
Tilgangur fundarins er að sam-
ræma afstöðu bandalagsríkjanna
um skilyrði fyrir nýjum viðræðum
við Sovétmenn um takmörkun
kjarnorkuvopna í Evrópu.
í Rómarferðinni hittir Haig Jó-
hannes Pál páfa að máli og ræðast
þeir við einslega.
Bandaríkjamenn hyggjast koma
572 nýtízku eldflaugum fyrir í Evr-
ópu frá og með 1983 ef ekki verður
fyrirliggjandi samkomulag risaveld-
anna um takmörkun kjarnorku-
vopna í Evrópu fyrir þann tíma. Ríki
Atlantshafsbandalagsins samþykktu
áform um staðsetningu þessara
vopna fyrir tveimur árum, en þeim
er ætlað að vera mótvægi við
svokölluðum SS-20-eldflaugum sem
Sovétmenn hafa komið fyrir víðsveg-
ar handan járntjaldsins.
Ilafnfirskir verkamenn hengja upp á skreiðar-
hjöllum i Kapelluhrauni, en þar hangir nú uppi mikill
fiskur sem verið er að verka í skreið. Myndina tók
Kristján Einarsson ljósmyndari Mbl. úr lofti á miðviku
dag.
Skoðanakönnun sDáir
Mitterand meiri'
París 2. maí. AP.
í SKOÐANAKÖNNUN, sem gerð
var opinber í gær í París, kemur
fram, að Francois Mitterand,
írambjóðandi sósíalista, hefur 3%
forskot á Giscard d'Estaing for-
seta. Mitterand cr spáð 51,5% en
Giscard 48,5%. Giscard hefur
loksins látið svo lítið að minnast
á gaullista og frambjóðanda
þeirra. Jacques Chirac, enda mun
honum ekki veita af stuðningi
þeirra í síðari umferð forseta-
kosninganna 10. mai nk.
Giscard d’Estaing nefndi í fyrra-
kvöld Jacques Chirac á nafni í
fyrsta sinn síðan 26. apríl sl. og
sagði, að Chirac hefði gert rétt í því
að vara við „skriffinnunum" eins og
vinstrisinnar heita í frönskum
stjórnmálum. Giscard hvatti til
einingar og sagði, að ef hann yrði
kosinn forseti til annarra sjö ára,
yrði það eitt hans fyrsta verk að
efna til fundar með gaullistum um
framtíðarstefnumótun í stjórn-
málum.
Þó að Jacques Chirac hafi sjálf-
ur ákveðið að styðja d’Estaing í
síðari umferð forsetakosninganna,
hafa ýmsir háttsettir gaullistar
afráðið að veita Mitterand stuðn-
ing, t.d. Michel Jobert, sem var
utanríkisráðherra á dögum
Pompidous. Margir gauliistar
minnast andstöðu d’Estaing við
þjóðaratkvæðagreiðsluna 1969 en
De Gaulle sagði af sér eftir að
hafa beðið þar lægri hlut.
Churchill vildi varpa eitur-
gasi og sýklum á Þýskaland
Ixindon 2. maí. AP.
UNDIR lok síðustu heimsstyrj-
aldar skipaði Sir Winston
Churchill breska hernum að
gera „kaldrifjaða áætlun" um
eitusgasherferð gegn Þjóðverj-
um og lcggja á ráðin um
sýklaárás, sem hefði gctað drep-
ið þrjár milljónir manna. Þess-
ar upplýsingar koma fram i
stríðsskjölum, sem nýlega hafa
verið dregin fram i dagsljósið.
„Það er fáránlegt að vera með
siðferðilegar vangaveltur í þess-
um efnum," segir Churchill, sem
þá var forsætisráðherra, í bréfi,
sem hann skrifaði forseta her-
ráðsins. „Hér aðeins um að ræða
nýjustu tísku eins og þegar
kvenpilsin gera ýmist að síkka
eða styttast."
í skjölunum, sem fréttamaður
hjá BBC fann í opinberu skjala-
safni breskra stjórnvalda, var
einnig að finna áætlun um hugs-
anlegan árangur af því, að 2700
flugvélar Bandamanna vörpuðu
á einum og sama deginum sýkla-
sprengjum yfir Þýskaland,
sprengjum með miltisbrands-
sýklum, sem eru ákaflega smit-
andi. Dr. Rex Watson, sem var
yfirmaður þeirrar deildar breska
hersins á stríðsárunum, sem
fékkst við efnahernað, sagði í
viðtali við BBC, að ef þessum
áætlunum hefði verið hrundið í
framkvæmd, væri Berlín einskis
manns land og óbyggileg enn
þann dag í dag.
Sir Winston Churchill.
Sumarið 1944 fól Churchill
breska hernum að taka um það
ákvörðun, hvort rétt væri að
varpa sinnepsgassprengjum yfir
Þýskaland ef V-1 og V-2-flug-
skeyti Þjóðverja ógnuðu bresku
þjóðinni eða ef unnt væri að
stytta stríðið um eitt ár með
þessum hætti. „Ég vil að þetta
verði metið og vegið af skynsöm-
um mönnum en ekki af sálma-
söngvurum og óupplýstum upp-
gjafarsinnum, sem varla verður
þverfótað fyrir," sagði Churchill
í bréfi sínu til hershöfðingjanna.
Þessar áætlanir urðu aldrei að
veruleika og Þjóðverjar gáfust
upp fyrir Bandamönnum 8. maí
1945.