Morgunblaðið - 12.06.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1981
3
Þannig er áætlað að skipulag svæðisins i kringum Arnarhól verði i
framtiðinni. Hús Scðlabankans er fremst á myndinni.
Hús Seðlabankans reist f jær
Arnarhóli en áður var ætlað
SAMNINGUR hefur verið gerður
milli Revkjavikurborgar og Seðla-
banka íslands um makaskipti á
lóð Sænsk-islenska frystihússins,
sem er nr. 2 við Ingólfsstræti
(biðarstærð 4.488 fm) og á lóðinni
nr. 2 við Solvhólsgotu. þar sem
grafið var fyrir hankahúsi (lóð-
arstærð 3.200 fm).
Hús Seölabankans mun því rísa
mun fjær Arnaróli en upphaflega
var ætlað, og hafa verið gerðar
nýjar teikningar af byggingunni
vegna tilfærslunnar. Samkvæmt
þeim verður húsið alls um 9.500 fm
auk bílageymslu í kjallara, en þar
af eru liðlega 2.000 fm ætlaðir
Reiknistofu bankanna, en húsnæði
hennar verður hvorttveggja í senn
aðskilið og samtvinnað bankahús-
næðinu.
í kjallara hússins og á jarðhæð
verða auk þess um 100 bílastæði,
samkvæmt áætluðum þörfum
stofnananna og kröfum borgarinn-
ar, en undir þau fara um 2.800 fm
af húsrýminu. Almenn bílageymsla
fyrir nær 200 bíla verður einnig
byggð samtímis bankahúsinu í nú-
verandi grunni við Sölvhólsgötu á
vegum Reykjavíkurborgar. Mun
Seðlabankinn sjá um þær fram-
kvæmdir fyrir borgina.
Aðalhluti bankabyggingarinnar
mun liggja meðfram Ingólfsstræti
og verður 5 hæðir frá Arnarhóli séð
og 6 hæðir frá Skúlagötu. Til
vesturs verður síðan lág bygging,
ein til tvær hæðir, sem meðal
annars verður aðsetur Reiknistofu
bankanna.
Guðmundur J.:
Erum oft
skammað-
ir mikið
_ÞAÐ IIEFUR alla tið verið svo
að Dagsbrúnarmenn hafa verið
hressir og haft afgerandi skoðan-
ir. Ég tek þetta ekki sem van-
traust en ég hlusta hins vegar á
alla gagnrýni sem ég heyri og
tek tillit til hennar, en við erum
oft skammaðir mikið og það
hefur alltaf verið gert,“ sagði
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasambands
fslands, er Mbl. spurði hann álits
á yfirlýsingum félaga úr Dags-
brún i viðtali við Þjóðviljann
nýverið, en þar lýsa nokkrir
Dagsbrúnarmenn yfir mikilli
óánægju með forystumenn sina,
eins og komið hefur fram i
fréttum.
Þá sagði Guðmundur einnig, að
hann teldi að hluti af þessari
óánægju Dagsbrúnarmanna væri
hinn langi vinnutími, sem væri
við Reykjavíkurhöfn. „Það er mál
sem þarf að taka fyrir sérstak-
lega. Það eru sennilega fleiri
dagar sem þeir vinna til klukkan
tíu á kvöldin heldur en sjö og
vinnutími frá átta að morgni til
tíu á kvöldin og kannske flesta
laugardaga er algjörlega óviðun-
andi.“
— En kemst verkafólk af án
þess að vinna eftirvinnu í dag? Er
það ekki orðið því nauðsyn til að
geta framfleytt sér og fjölskyld-
um sínum?
„Ég hef aldrei vitað menn lifa á
daglaunum. Það er nú einmitt
óánægjan með að við skulum ekki
stöðva þessa gífurlegu nætur-
vinnu og það er nú satt að segja til
athugunar.“
— Nú nefndu þeir ekki þessa
hluti sem þú ert að nefna, heldur
aðeins að þið hefðuð brugðist og
væruð ekki til viðtals. Telur þú
ekki að aðrar ástæður geti legið
hér að baki?
„Ég held að að minnsta kosti
einn af þessum mönnum hafi
alltaf sagt þetta en hins vegar vil
ég ekkert vera að munnhöggvast
við mína menn og félagsmenn.
Þarna kemur náttúrlega fram
hörð gagnrýni og maður þarf að
athuga af hverju hún kemur upp.
Það er athugunarefni af hverju
þeir segja þetta.“
Landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins:
Dregið
á morgun
DREGIÐ verður í lands-
happdrætti Sjálfstæðis-
flokksins annað kvöld og
verður aðeins dregið úr
seldum miðum.
Afgreiðsla happdrættisins er í
Sjálfstæðishúsinu, Valhöll, Háa-
leitisbraut 1. Verður hún opin til
kl. 23 í kvöld og geta menn látið
senda eftir greiðslum og einnig er
hægt að fá miöa heimsenda. Þeir,
sem fengið hafa senda miða úti á
landi, eru beðnir að gera skil til
umboðsmanna þar strax.
■■■
ðþarfmeiiaen
veðurfar til að koma
MJLJBE XD'315W/40
úrjafnvægi
fjölþykkt fyrir diesel-
gildir raunar einu hver árstíðin
eöa hitastigið. ESSOLUBE XD-3
15W/40 fellur áð íslenskri veðráttu. Það
meginkostur hennar. Frábærir smur-
leikar hennar felast m.a. í því að hún
r fyrir litlum þykktarbreytingum
a hita og kulda.
Þetta tryggir örugga gangsetningu í
miklum kuldum og ekki síst örugga
smurhæfni við hátt hitastig og mikið álag.
Þannig helst smurolíu- og eldsneytis-
eyðsla í lágmarki. Góðir hreinsieigin-
leikar ESSOLUBE XD-3 15W/40 sem
hafa náðst með ítarlegum tilraunum, sjá
til þess að mótorinn helst hreinn og slit
í lágmarki.
Hverjir nota ESSOUJBE XD315W/40?
ESSOLUBE XD-3 15W/40 er fyrir
nær alla dieselmótora og stenst auk
þess allar kröfur sem gerðar eru til smur-
olíu fyrir bensínmótora. Hún er því
kjörin fyrir þá sem eru með blandaðan
tækjaflota s.s.: fyrirtæki, verktaka og þá
sem reka langferðabíla t.d.
ESSOLUBE XD-3 15W/40 allt árið,
veitir aukið rekstraröryggi og sparnað.
uinneiaaiont.
ESSOLUBE XD-:
Qölþykktarollan
áaUantækjaflotann